Morgunblaðið - 18.03.1980, Page 27

Morgunblaðið - 18.03.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 27 Bjarni varð meistari í Qpna flokknum á Islandsmeist- aramótinu í judo SÍÐARI hluti íslandsmótsins í judó fór fram í íþróttahúsi Kenn- araháskólans um helgina. Keppt var í opnum þyngdarfiokki karla og kvennaflokki og í þyngdar- flokkum unglinga. Bjarni Frið- riksson Ármanni sigraði með nokkrum yfirburðum í karla- flokki, og lagði mótherja sína örugglega. Er hann greinilega okkar sterkasti júdómaður í dag. Sýndi Bjarni oft hrein og falleg brögð. Ætti hann að eiga góða möguleika á Norðurlandameist- aramótinu sem fram fer í Finn- landi á næstunni. í kvennaflokki sigraði Margrét Þráinsdóttir Ármanni. Annar i karlaflokki varð Halldór Guðbjörnsson en hann vann nauman sigur á Sig- urði Haukssyni i undanúrslitun- um. Úrslitin i mofinu urðu ann- ars sem hér segir. Úrslitin í opnum flokki karla: Bjarni Friðriksson Ármanni Halldór Guðbjörnsson JR Sigurður Hauksson og Ómar Sig- urðsson UMFK Úrslitin í opnum flokki kvenna: Margrét Þráinsdóttir Á María Gunnlaugsdóttir Á Guðríður Júlíusdóttir og Sigrún Sveinsdóttir Á Unglingar 15 til 17 ára: Þungavikt: Þorsteinn Kjartansson UBA Kristján Valdimarsson Á Kristján Friðriksson ÍBA Millivikt: Hilmar Bjarnason Á Magnús Jónsson Á Broddi Magnússon ÍBA Léttvikt: Halldór Jónasson Á Ágúst Egilsson UMFK Guðmundur Sigurðsson Á — þr. ómar Sigurðsson UMFK kominn í úlfakreppu í einni af glímum sinum á mótinu. Ómar varð i þriðja sæti á mótinu i karlaflokki, ásamt Sigurði Haukssyni. nœstunni Meistarakeppni Evrópu Brottför: . , , . Heimkoma: Föstudaginn 28. marz 2jð ClSgfl TGrO. Sunnudaginn 30. marz kl. 17.00 frá Keflavík. kl. 15.0ð frá Munchen. Dagskrá: Verzlanir opnar frá 09.00—14.00. Knattspyrna: 29. marz kl. 15.30. TSV Munchen 1860 — Schalke 04. Handknattleikur: 29. marz kl. 19.15. Valur — Grossvallstadt. Verö kr. 184.700.-(Greiösluskilmálar). InnlfsliA: Flugferöir — gisting meö morgunveröi (öll gisting meö baöi) — flutningur til og frá flugveili — aögöngumiöar (sæti) á báöa lelkina og feröir. Fararstjórar: Jóhann Ingi Gunnarsson og Ólafur H. Jónsson. FERÐASKRIFSTOFAN URVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900 • Tveir frægustu leikmenn Grosswaldstadt, Kurt Kluhspies (t.v.) og Manfred Hoffmann markvörður, báðir með yfir 100 landsleiki og 500 deildarleiki. Ljósm. Klaus Weingartner. Hafa ekki tapað leik á heimavelli í heil fjögur ár EFTIR nákvæmlega tvær vikur leika Valsmenn úrslitaleik sinn í Evrópumeistarakeppninni i handknattleik. Mótherjar þeirra eru vestur-þýsku meistararnir Grosswaldstadt, eins og öllum er kunnugt um. En hver er styrk- leiki þessa þýska liðs og hver hefur verið árangur þess í gegn um árin? Grosswaldst. er nú langsterkast handknattleiksliða í V-Þýskalandi. Liðið sem er reyndar núverandi Evrópumeistari í handknattleik er byggt upp af geysilega sterkum leikmönnum og leikreyndum. Lið- ið hefur svo gott sem tryggt sér meistaratitilinn í V-Þýskalandi í ár. Liðið þarf aðeins að fá eitt stig til viðbótar þeim 36 sem það hefur 63. héraðsþing Ungmenna- sambands Austur-Húnvetninga var haldið á Skagaströnd laug- ardaginn 1. mars. Þingið sátu rúmlega 30 fulltrúar auk stjórnar USAH og gesta. Á þinginu var lögð fram árs- skýrsla sambandsins. Þar kom m.a. fram að á siðasta ári voru iþróttaþjálfarar í starfi hjá sam- bandinu og aðildarfélögum þess. Héraðsmót voru haldin í frjálsum íþróttum, knattspyrnu og sundi. Únglingamót voru í frjálsum íþr. og knattspyrnu. Keppni fór fram í ýmsum iþróttum milli skólanna í héraðinu, en USAH stendur árlega fyrir slikri keppni. Keppendur voru sendir á mörg íþróttamót utan héraðs. Frjáls- íþróttalið sambandsins sigraði sýslukeppni við Vestur-Húnvetn- inga og Skagfirðinga og í þriðju deild Islandsmótsins varð liðið í þriðja sæti. Unglingar voru sendir á meistaramót yngri aldursflokk-’ þegar fengið, og þetta eina stig þarf að koma úr einhverjum þeim sex leikja sem eftir eru. Líklegra er að stigin verði 12. Grosswaldst. hefur aðeins tapað einum leik í allan vetur í deildinni og ekki gert nema fjögur jafntefli. Liðið hefur ekki tapað leik á heimavelli í fjögur ár, já fjögur heil ár. Frábær árangur. Þetta sýnir okk- ur best að það verður á brattann að sækja hjá liði Vals. Til að fá enn frekari upplýsingar um liðið slógum við á þráðinn til Jóns Péturs Jónssonar sem er fyrrver- andi Valsleikmaður og hefur dval- ið í V-Þýskalandi í vetur og leikið með Dankersein. Við báðum hann að spá í möguleika Vals í úrslita- leiknum. Jón sagði: anna í frjálsum íþróttum. Þangað fá þeir unglingar að fara sem skara fram úr á skólamótinu. Á meistaramótinu, sem háð var í febr. sl. áttu USAH tvo íslands- meistara og tveir keppendur urðu í öðru sæti á því móti. Húnavakan, hin árlega fræðslu- og skemmtivaka Ungmennasam- bandsins var haldin í apríl sl. vor. í ár er áætlað að Húnavakan hefjist 23. apríl. Ritið Húnavaka kemur árlega út í tengslum við samkomuna, Á þinginu var lýst kjöri íþrótta- manns ársins og var það Sigríður Gestsdóttir. Þá var afhentur far- andbikar því félagi, sem bestum árangri náði á mótum innan sambandsins á síðasta ári. Umf. Fram á Skagaströnd sigraði þá keppni með 48 stigum, en Umf. Hvöt á Blönduósi hlaut 46 stig. Form. UMFÍ, Pálmi Gíslason af- henti sr. Pétri Þ. Ingjaldssyni prófasti starfsmerki UMFÍ fyrir mikil og góð störf í þágu USAH. — Valur hefur allt að vinna og engu að tapa í þessúm leik. Ég tel líkurnar 30 hjá Val á móti 70 fyrir Þjóðverjana, en lið Grossvaldst. er alls ekki óvinnandi. Leiki þeir til dæmis slakan leik og Valur nái sínum besta getur allt gerst. Hinn frægi markmaður Manfred Hoff- mann hefur ekki varið vel í síðustu fjórum leikjum með liði sínu, og langt frá því leikið vel. Hins vegar hefur allur varnarleik- ur og sóknarleikur liðsins verið frábær. Leikmenn liðsins hafa allir um og yfir 500 deildarleiki og sumir hverjir yfir 100 landsleiki og eru því reynslumiklir leikmenn og líkamlega sterkir svo að af ber. Lykilmaðurinn í liðinu er Kurt Kluhspies; hann verður að stoppa, þá er mikið fengið. Skyttur eins og Meisinger og Freisler eru báðir stórhættulegir og skora megnið af mörkum liðsins. Ég er búinn að senda Hilmar þjálfara þrjár myndsegulbandsspólur og mikið af upplýsingum um leikmenn. Það kemur vonandi að gagni. Valur hefur það fram yfir Þjóðverjana og ætti því að geta komið þeim á óvart. Valsmenn eiga góða möguleika á að standa sig vel hangi þeir á boltanum og spili yfirvegað, að standa í þessum körlum. Blöð og sjónvarp hér ytra hafa þegar bókað Grosswaldst. sem meistara. Leiknum hér verður bæði sjónvarpað og lýst í útvarpi. Ég reikna með að aðsóknin hér ytra verði um 9 til 10 þúsund manns. Þó er ekki gott að segja til um það. Eitt atriði er ég hræddur um og það er að dómararnir verði Vals- mönnum óhagstæðir. Það er áber- andi hér hversu aðkomudómarar dæma með v-þýsku liðunum. Sérstaklega þó danskir dómarar. Dómurum er jafnvel hyglað til þess að fá sem hagstæðasta dóm- gæslu fyrir heimaliðið. Að lokum báðum við Jón að spá um úrslit í leiknum og hann svaraði að bragði, Grosswaldstadt vinnur leikinn 17—14. - þr. Gróska í starfi A-Húnvetninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.