Morgunblaðið - 18.03.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
41
fclk í
fréttum
+ Þessi AP-fréttamynd er tekin yfir eitt af hinum sOgufrægu stórtorgum í London, Trafalgar torgið
fyrir skömmu er þar var þá haldinn fjölmennur mótmælafundur á vegum brezku verkalýðsfélaganna,
til að mótmæla stefnu stjómar Margrétar Thatchers á sviði efnahagsmála og niðurskurðar á
fjárframlögum hins opinbera. — Verkalýðsforingjar sögðu eftir þennan fjölmenna fund, að þar hefðu
verið alls um 140.000 manns. Væri þetta fjölmennasti mótmælafundur sem haidinn hafi verið í sögu
Bretaveldis.
+ Maðurinn með svörtu húfuna á
höfðinu er _prófessor Burhanudd-
in Rabbani, en hann er foringi
stjórnarinnar í Afganistan. Hann
er hér á blaðamannafundinum,
þar sem hann tilkynnti að stofn-
að yrði byltingarráð til að
stjórna og herða á hernaðarað-
gerðum gegn uppreisnarmönnun-
um í landinu, sem beriast gegn
stjórnvöldum og her Sovétríkj-
anna i landinu. Með honum á
myndinni eru nánir samstarfs-
menn hans tveir Nibi Mahamadi
og Sebghatullah.
+ Læknar í Hollywood hafa
sagt hinum fræga kvik-
myndaleikara Steve
McQueen, að hann sé heltek-
inn af lungnakrabba, herma
blöð. Hafa læknar boðið leik-
aranum að þeir skuli gera
sitt til þess að létta honum
sjúkdómsbyrðina. Að sögn
blaðanna, mun hann eiga
aðeins eftir ólifað í svo sem
tvo mánuði. I desembermán-
uði hafði hann orðið að fara
á sjúkrahús, en þá var verið
að vinna við töku myndar-
innar „The Hunter“. Hann
hefur síðan verið undir lækn-
is hendi. Vill hann að læknar
fylgist með framvindu sjúk-
dómsins, ef það gæti orðið að
liði í sambandi við baráttuna
gegn krabbameini.
Fyrir nokkrum mánuðum
giftíst hann ljósmyndafyrir-
sætunni Barböru Minty. —
Hann hefur mikinn áhuga á
flugi gamalla flugvéla. Þess
er getið, að hann hafi hætt
mótorhjólaakstri, selt öll sin
bifhjól 30 talsins. Konan
hans er nú að læra flug hjá
honum.
+ Ítalía hefur fyrir skömmu skipt um sendiherra hér á landi. Hinn nýi sendiherra kom fyrir skömmu
í fyrsta skipti hingað til lands til þess að afhenda forseta fslands embættisskilriki. — Var þessi mynd
tekin við það tækifæri. — Sendiherrann er fyrir miðju, en hann heitir Franco Ferretti. — Olafur
Jóhannesson utanrikisráðherra var þar viðstaddur. Sendiherrann er með aðsetur i Osló.
Prúttmarkaður
2. HÆÐ LAUGAVEGI 66
Ennþá er hægt aö gera stórkostleg kaup:
Herraföt Dömukápur
frá 39.900 frá 9.900
Stakir herraullar- Pils frá ’/«s.. 4.900
jakkar frá 23.900 Kjólar
Stakir Blazer jakkar frá ; 7.900
frá 17.900 Úlpur
Skyrtur frá 14.900
frá 3.900 Blússur
Buxur allskonar frá 3.900
frá 8.900 Vesti
Smekkbuxur frá 3.900
frá 8.900 og margt fleira.
Allt á að seljast
p Russarnir
koma
20. marz
Aóalfundur
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu,
föstudaginn 2. maí 1980, kl. 13.30.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum
félagsins samkvæmt 15. grein sam-
þykktanna.
3. önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík, 25. til
30. apríl.
Stjórnin
EIMSKIP
*