Morgunblaðið - 18.03.1980, Side 48

Morgunblaðið - 18.03.1980, Side 48
Gull og silfur til fermingargjafa <í>uU Sz á?ilfttr Laugavegi 35 Lækkar hitakostnaðinn ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 Frá eldstöðvunum norður af Kröflu síðdegis á sunnudag. í>é tók ljósm. Mbl. Ragnar Axelsson þessa mynd úr lofti yfir nyrsta hluta sprungusvæðisii^þar spýttust rauðir logar upp af sprung- unni, eins og Ijós á stjaka. og hraunið vall út frá þeim. Kröflueldar: ww Oflugasta gos- ið frá upphafi MESTA eldgus Krötluelda, frá því þeir hófust í desember 1975, varö á sunnudag, er gaus á nimlcKa fjögurra km langri sprungu, er nær frá Leirhnjúki fáa km frá Kröfluvirkjun, og norður í Gjástykki. Voru mestu eldarnir nú norðarlega, en i hverri hrinu Kröfluelda hefur gossprungan lengst í norður, sem er hagstæðara, því við það minnkar hættan á að vcrulcgt eldgos skaði byggð eða verksmiðjur. í þessu f jörða eldgosi í um það bil tylft af eldvirknishrinum Kröfluelda var gossprungan nú mun lengri. hraunið sem upp kom meira og eldgosið stóð líka lengur en áður hefur orðið, eða frá kl. 3.15 siðdegisá sunnudag og fram yfir kl. 10 um kvöldið. Stöðugir jarðskjálftar fylgdu og sáust á mælum í Reykjahlíð frá því gosið hófst, en herti mjög um kvöld- ið. Þá fundust rækilega margir stórir kippir í Mývatnssveit og drunur heyrðust í lofti á undan þeim. Munu þeir hafa verið 3—4 að styrkleika á Richterskvarða. Var hraunkvikan þá talin vera farin að ganga til suðurs í átt að Bjarnarflagi, enda var þá hratt landsig við Kröflu. Óttuðust menn að gos kynni.að færast þangað og skaða Kísilverksmiðjuna, en í gosinu 1977 kom upp gosefni í borholu þar nokkrum klukkustund- um eftir að hætti að gjósa norðurfrá. En land fór aftur að rísa um miðja nóttina og dró úr styrkleika jarð- skjálftanna, þótt þeir héldu stöðugt áfram á mælunum. Sprungur virtust ekki hafa gliðnað í Bjarnarflagi, en einhver hreyfing hefur samt verið um nóttina, því símalínan til Kröflu slitnaði. Almannavarnir í Mý- vatnssveit, sem höfðu sent út aðvar- anir og biðu til reiðu í stjórnstöð, hættu vaktinni kl. 11 á mánudags- morgun. í gærkvöldi héldu jarðskjálftar áfram að hjaðna og aðeins lagði gufur upp úr gossprungunni. Sjá nánar frásögn á bls. 18 og 19. Vestfirðir: Verkfall hjá sjómönnum? SÁTTAFUNDUR var haldinn á ísa- firði i gær i kjaradeilu Sjómanna- félags ísafjarðar og Útvegsmanna- félags Vestfjarða. Tii hans boðaði Guðmundur Vignir Jósefsson, vara- sáttasemjari. A fundinum höfnuðu útvegsmenn öllum kröfum sjó- manna og benda þvi allar líkur til þess, að á fimmtudag hefjist verk- fall sjómanna á fjórum skuttogur- um Vestfirðinga, en verkfalli á línuhátum hafði verið frestað til 30. marz. Samkvæmt upplýsingum Péturs Sigurðssonar, formanns Alþýðu- sambands Vestfjarða tefldu útvegs- menn vestra fram Kristjáni Ragn- arssyni, formanni Landssambands íslenzkra útvegsmanna og kvað Pét- ur það ekki hafa gerzt í áratugi, að Hagsmunaaðilar í ullariðnaði: Greiðslugetan þrotin fjöldauppsagnir blasa við Á FUNDI hagsmunaaðiia í uilar- iðnaði, sem haldinn var á Hótel Sögu í gærdag kom fram, að þrátt fyrir aðgerðir ríkisvaldsins til að- stoðar ullariðnaðinum teldu hags- munaaðilar hans að greiðslugeta margra fyrirtækjanna væri í reynd þrotin og fjöldauppsagnir blöstu við, ef ekki kæmu til frekari aðgerðir. Einnig kom fram í máli manna, að gerðir ríkisvaldsins, aðrar en aukning niðurgreiðslu á uli, kæmu fyrirtækjunum að harla litlu gagni, og um þrir fjórðu hlutar vandans væru enn óleystir. Fundurinn var haldinn að tilhlut- an Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar- ins, Félags ísl. iðnrekenda og Iðnað- ardeildar S.I.S. í setningarorðum Davíðs Sch. Thorsteinssonar kom m.a. fram, að framleiðslukostnaður iðngreinarinnar hefði aukist á sl. 12 mánuðum um 50% og út séð væri, að aðgerðir ríkisvaldsins gerðu lítið til að varanlegar úrbætur fengjust og sama vandamál blasti við öðrum útflutningsiðngreinum. Ef ekkert yrði að gert væri fyrirsjáanlegt að einhver af þremur jafnslæmum kostum kæmi til, þ.e. sílækkandi laun, lokun fyrirtækjanna, og í framhaldi af því atvinnuleysi og áframhaldandi fólksflótti úr land- inu. Hann sagðist vona, að framá- menn þjóðfélagsins sæju til þess að þannig myndi ekki fara. í máli manna og ályktun fundar- ins kom fram, að a.m.k. fjögur atriði þarf að taka til afgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins, til að iðnaðurinn geti öðlast rekstrargrundvöll á ný. í fyrsta lagi að innlent ullarverð verði sambærilegt við heimsmarkaðsverð; uppsafnaður söluskattur verði end- urgreiddur jafnóðum; svonefnt „upp- safnað óhagræði", þ.e. gengisóhag- ræði verði einnig endurgreitt jafnóð- um og ekki verði gripið til ráðstaf- ana í sjávarútvegi sem verða til þess að útflutningsiðnaðurinn sitji uppi með óraunhæfa gengisskráningu. Nánar verður sagt frá fundinum í blaðinu á morgun. formaður LÍÚ hafi komið vestur til afskipta af kjaradeilu sjómanna. „Okkur sýnist hér,“ sagði Pétur, „að Útvegsmannafélag Vestfjarða hafi afsalað sér sjálfstæði sínu gagnvart LÍÚ og er það hlutur, sem kom okkur mjög á óvart. Hefur LÍÚ loks náð vestfirzkum útvegsmönnum undir sitt vald, þannig að nú mega þeir ekki semja um neitt.“ Pétur Sigurðsson kvað Kristján Ragnarsson hafa lýst því yfir á fundinum, að ekki yrði samið um neitt, hvort sem vinnustöðvun yrði aflétt eða ekki. Þessu svaraði hann, er hann var spurður að því, hvort það væri vegna þessarar verkfallsþving- unar, sem útvegsmenn neituðu samn- ingum, en hann kvað það ekki skipta neinu máli. Togararnir, sem stöðvazt við verkfallið, sem kemur til fram- kvæmda á fimmtudag, eru fjórir: Guðbjörg, Júlíus Geirmundsson, Guðbjartur og Páll Pálsson. Á hverj- um þessara skuttogara eru 15 menn. Verkfallið mun því ná til 60 sjó- manna, en að auki kvað Pétur það ná til 300 til 400 manns í landi eða rúmlega það. Kröfurnar, sem settar hafa verið fram er 3% stigahækkun á skipta- prósentu. Pétur sagði: „Reyndar er- um við búnir að lækka hana niður í llÆ%, þar sem hún er byggð á olíusjóðnum, þar sem verið er að feta sig aftur í gamla sjóðakerfið og vilja menn koma í veg fyrir það. Þegar sjóðakerfið var áflagt, var samið um lægri skiptaprósentu, en nú virðist svo sem menn vildu byrja á því á ný. Þá er farið fram á frítt fæði, sem að vissu leyti er eðlilegt fyrir menn, sem vinna utan síns heimilis." Ríkisspítalarnir: Rúmlega 814 milljónir vantar á fjárlög SAMTALS vantar rikisspitalana á fjárlög 815 milljónir króna vegna þess reksturs, sem talinn hefur verið nauösynlegur við rekstur Landspitalans. Fjárhæð þessi er 450 milljónir króna fyrir álags- og yfirvinnu og fjárveiting vegna 53ja nauðsyn- legra staða, sem nú þegar hafa verið viðloðandi spitalann sam- tals að upphæð 365 milljónir króna. Heildarupphæð fjárvont- unarinnar er þó eitthvað hærri, þar sem þessar 365 milljónir eru á verðlagi í janúar 1979. Þessar upplýsingar koma fram í viðtali við Davíð Á. Gunnarsson, forstjóra ríkisspítalanna, sem birt er í Morgunblaðinu í dag á bls. 16. Ríkisspítalarnir fóru árið 1976 inn á föst fjárlög, en áður nutu þeir tekna vegna daggjalda, sem Borgarspítalinn og Landa- kotsspítali starfa enn samkvæmt. í viðtalinu telur Davíð kerfis- breytinguna hafa verið til góðs fyrir rekstur Landspítalans, en hann bendir jafnframt á, að hefði Landspítalinn á árinu 1979 verið á daggjaldakerfi, hefði hann skil- að tæplega 'h milljarði króna í hagnað. Árlega hefði fjárveiting á fjárlögum þó verið vanreiknuð til spítalans, en það jafnan leið- rétt síðari hluta árs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.