Morgunblaðið - 18.04.1980, Page 1
36 SÍÐUR
88. tbl. 67. árg.
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Enn bíða 9.700
San Jose — lfi. apríl — AP.
254 KÚBANSKIR flóttamenn komu til Costa Rica í dag og höfðu
margir þeirra þá sögu að segja að menn Castros Kúbuleiðtoga hefðu
rænt þá ýmsu fémætu við brottförina, auk þess sem þeir hefðu veitzt
að þeim með háðsglósum og illyrðum. Að sögn fulltrúa Perú-stjórnar
bíða nú 9.700 flóttamenn þess að verða fluttir frá Kúbu. en þeir, sem
komnir eru til Costa Rica. verða þar næstu daga eða unz samastaður
hefur verið ákveðinn í hverju tilviki.
Garcia y Garcia, utanríkisráð-
herra Perú, hefur borið Kúbu-
stjórn á brýn, að hún reki nú
taugastríð gegn flóttafólkinu og
geri sér far um að tefja brottför
þess á alla lund, en yfirvöld á
Kúbu vísa þessum ummælum
snúðugt á bug og segja ráðherrann
fara með fleipur eitt. Allt sé gert
til að flýta afgreiðslu nauðsyn-
legra skilríkja á Kúbu, en hins
vegar hafi Perú-stjórn tafið fyrir
vegabréfsáritunum þeirra Kúbu-
manna, sem óski að flytjast til
Perú.
Zimbabwe sjálf-
stætt lýðveldi
Salisbury — 17. apríl — AP
RHODESÍA síðasta nýlenda
Breta í Afríku. varð á miðnætti
sjálfstætt ríki, og nefnist héðan
í frá Zimbabwe. Brezki samveld-
isfáninn var dreginn niður
hinzta sinni og um leið var
þjóðfáni Zimbabwe dreginn að
húni á flóðlýstum leikvangi í
Salisbury þar sem hátíðarat-
höfnin fór fram. Karl Breta-
prins fékk forsta hins nýja
lýðveldis, Canaan Banana, í
hendur sjálfstæðisyfirlýsingu
brezka þingsins, að viðstöddum
fjórum forsetum, sjö forsætis-
ráðherrum, sendimönnum um
hundrað rikja og fjörutiu þús-
und öðrum gestum.
Gífurleg fagnaðarlæti urðu er
lýst hafði verið yfir sjálfstæði
lýðveldisins. í dag flutti forsætis-
ráðherra Zimbabwe, Robert Mug-
abe, ávarp til þjóðarinnar og vakti
sértaka athygli hversu gott orð
honum lá til fráfarandi ríkis-
stjóra, Christopher Soames, um
leið og hann hvatti til samstöðu
meðal þjóðar sinnar.
SVO mikil er örtröðin á lóð sendiráðs Perú í Havanna. þar sem tæplega 10 þúsund manns bíða
brottflutnings að við stórslysi lá í dag þegar hindrun á lóðarmörkunum lét undan.
Mál flóttafólksins hefur vakið mikla eftirtekt á Kúbu 'og er búizt við mikilli þátttöku í útifundi. sem
haldinn verður í námunda við sendiráðið á iaugardag. en tilgangur fundarins er að mótmæla flóttanum.
(AP-símamynd).
Afganistan:
Napalm og eiturgasi
rignir yfir bæi og þorp
Kína inn —
Formósa út
Washington — 16. apríl — AP
KÍNVERJAR urðu í dag full-
gildir aðilar að Alþjóðabank-
anum, en í kjölfar aðildarinn-
ar munu þeir hljóta stóraukna
efnahagsaðstoð. Formósa á nú
ekki lengur aðild að bankan-
um, sem er samstarfsstofnun
140 ríkja, þar sem enn hefur
ekki tekizt að finna lausn á því
hvernig koma má við aukaað-
ild eyjarskeggja, en í stofnskrá
bankans er kveðið á um eitt
sæti fyrir Kína eins og önnur
ríki.
Peshawar — Lundúnum — 16. aríl. — AP.
NAPALMI og eiturgasi er nú varpað úr sovézkum
herþyrlum á afgönsk þorp og bændabýli. Hundruð bæja
og býla eru rjúkandi rústir og Sovétmenn flytja fólk
hundruðum saman nauðungarflutningum til sovétríkj-
anna í því skyni að höggva skörð í raðir uppreisnar-
manna. Þetta kom fram á fréttamannafundi, sem
Bhurhanuddin Rabbani, einn helzti leiðtogi islamskra
uppreisnarmanna, hélt i Lundúnum i dag.
Frá Pakistan berast þær fregnir
að hafin sé gífurleg sókn Sovét-
manna gegn uppreisnarmönnum í
lofti og á landi í austurhluta
Afganistans. Fjöldi fólks hefur
verið fluttur í sjúkrahús í Pakist-
an, þar af margt kvenna og barna.
I einum bardaganum er sagt að 65
hermenn hafi fallið, en mun fleiri
konur og börn hafi látið lífið í
þeim átökum.
„Hingað til höfum við hvorki
fengið vopn né aðra aðstoð, sem að
gagni gæti komið í baráttu okkar
fyrir frelsun Afganistans," sagði
Rabbani í dag. „Okkur vantar ekki
liðsauka, við höfum allan þann
mannafla, sem við þurfum á að
halda, en okkur vantar vopn“.
Hann skoraði sérstaklega á þjóðir
múhameðstrúarmanna að koma
til skjalanna og aðstoða Afgani í
baráttunni gegn sovézka innrás-
ariiðinu, og sagði, að þyrluárásir
Sovétmanna á þorp og bæi væru
nýjasta aðferðin til að reyna að
brjóta frelsishreyfingarnar í land-
inu á bak aftur. Rabbani kvað
undirbúning hafinn að þvi að
komið yrði á fót útlagastjórn
Afgana, en ekki vildi hann skýra
nánar frá því máli að svo stöddu.
Mannf all í Beirút
Beirút — 16. april — AP
TUTTUGU manns íéllu og
yfir fjörutíu særðust í
hörkubardögum milli
stuðningsmanna írakskra
og íranskra shiita í Beirút
í dag. í átökunum var beitt
sprengjuvörpum, eldflaug-
um og vélbyssum. en sagt
að PLO, undir forystu
Yasser Arafats, og Sýr-
lendingar beiti sér í sam-
einingu fyrir því að binda
enda á átökin.
Sýrlenzkt herlið stendur vörð
um sendiráð íraks og írans í
borginni eftir að eidflaugaárásir
voru gerðar á báðar byggingarnir
í gær.
Zia skammar Bandaríkin
— ræðir við Gandhi um Afganistan
Salisbury — 16. apríl — AP
ZIA Ul-IIaq, forseti Pakistans, réðst í dag harkalega á
stjórn Bandaríkjanna fyrir linkind þeirra í garð
Sovétmanna vegna innrásarinnar í Afganistan, og sagði
m.a. að stjórn Carters hefði verið nær að láta til skarar
skríða í stað þess að láta sitja við orðin tóm í sambandi
við „grímulausa árás“ Sovétmanna.
Ekki útskýrði Pakistanforseti
nánar til hvers hann ætlaðist af
Bandaríkjunum í þessu efni, en
þau Indira Gandhi forsætisráð-
herra Indlands hittast á morgun
til að ræða Afganistanmálið.
Það verður í fyrsta sinn sem
fundum þeirra ber saman, en
leiðtogar þessara næstu ná-
grannaríkja hins hersetna Af-
ganistans eru komnir til Salis-
bury ásamt fjölda annarra
þjóðaleiðtoga til að taka þátt í
hátíðahöldum í tilefni þess að
Zimbabwe hlýtur fullt sjálf-
stæði. Zia hefur úthúðað Sovét-
stjórninni vegna innrásarinnar í
Afganistan, en Gandhi ber af
henni blak og telur óráðlegt að
hafa í frammi harða gagnrýni.
Slíkt muni aðeins tefja fyrir því
að Rauði herinn hafi sig á brott
frá Afganistan.
Zia Ul-Haq
Bannað
að borga
Frá Önnu Bjarnadóttur frettaritara
MorKunblaúsins í Washinston
JIMMY Carter. forseti Banda-
ríkjanna. gerði í dag grein
fyrir skrefum sem munu draga
frekar úr samskiptum Banda-
ríkjanna við íran. Hann hefur
nú bannað allar yfirfærslur á
fjármunum til íran. allan inn-
flutning frá íran og ferðir
almennings til íran. Hann
mun fara fram á við banda-
ríska þingið. að bankainni-
stæður íran í Bandaríkjunum.
sem nema um 8 milljörðum
dollara. verði notaðar í þágu
handarísku gíslanna. sem voru
handteknir í Tehran 4. desem-
ber sl.
Carter sleit í síðustu viku
stjórnarsamstarfi við Teheran.
Stjórnvöld þar fögnuðu stjórn-
arslitunum við Bandaríkin og
hafa síðan sagt, að gíslarnir
verði ekki látnir lausir fyrr en í
fyrsta lagi í júlí.