Morgunblaðið - 13.07.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ1980
41
+ Fólk velur sér tómstunda-
gaman eftir aðstæðum, smekk
og getu. Sumir safna frímerkj-
um eða öðru, s.s. steinum,
eldspýtustokkum o.fl., aðrir
iðka iþróttir eða stunda útilíf
og svo mætti lengi telja. Við
fréttum af ungri húsmóður i
Mosfellssveit, Brynhildi Ein-
arsdóttur, sem hefur nokkuð
sjaldgæft tómstundagaman, en
það er að smiða litil garðhús
fyrir smáfugla. í húsin not-
ar hún krossvið, trjágreinar
og margar tegundir isienzkra
steina, sem hún limir á þak og
hliðar. Allan útskurð og
smiðar annast hún sjálf með
vélsög og hefur nú þegar smið-
að sjö hús. Eitt húsið gaf hún
til happdrættis Hundarækt-
Smíðar
hús f yrir
smá-
fuglana
arfélags íslands, en önnur
hefur hún gefið vinum og
venzlamönnum, en tvö eru i
hennar eigin garði i Mos-
fellssveit.
Af hverju valdi hún þessa
tómstundaiðju, en ekki ein-
imm® Flugmaðurinn fann
ekki flugvöllinn ...
Flogskiparin
fann ikki
flogvolhn
Landentyrio
menn í
Hummarfn
sss-ssxhrtwáJrSr
ITtn'K.’.jfnZ
+ Flugmaðurinn fann ekki
flugvöllinn, er fyrirsögn á frétt á
forsíðu færeyska blaðsins
Dimmalætting 5. júlí sl. Þar
segir frá svaðilför sem hluti
færeyska landsliðsins í knatt-
spyrnu lenti í á leið sinni frá
íslandi á dögunum.
Fimm af landsliðsmönnunum
fóru í lítilli flugvél. Gekk ferðin
vel framan af en flugmaðurinn
átti í erfiðleikum með að halda
réttri stefnu þegar vélin nálgað-
ist Færeyjar þar sem mikil þoka
var yfir eyjunum. Loks villtist
hann gjörsamlega. Hann sá þó
eyjar fyrir neðan vélina en var
ókunnugur á þessum slóðum og
vissi því enn ekki hvar hann var
staddur. Varð hann þá að spyrja
leikmennina til vegar og með
þeirra hjálp tókst honum að
lokum að finna flugvöllinn og
lenda vélinni. En þó munaði litlu
að illa færi því lítið eldsneyti var
eftir á tönkum vélarinnar er
ferðinni lauk.
hverja aðra? „bað er nú
kannske mest vegna þess að
mér þykir vænt um smáfugl-
ana. beir leita i húsin að
vetrinum, og geta fengið þar
björg, óhuitir frá köttum, en
ganga verður þannig frá
húsunum að kettir nái ekki til
þeirra, t.d. á hárri stöng eða
uppi á girðingum.“
A myndinni hér að ofan.
sem Emilia Björg tók, er
Brynhildur með dóttur sinni,
borgerði, og heimilishundin-
um Sunnudals, Birtu.
Lengst til vinstri er húsið,
sem Brynhildur gaf til happ-
drættis Hundaræktarfélags-
ins og borgerður litla situr
á svonefndum varðhundi, en
hann bjó Brynhildur einnig til.
+ Hér býður Hans
Tuch, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Voice of
America, Jónínu íris
Guðlaugsdóttur, vel-
komna til afhendingar
Harry S. Truman verð-
launanna (Harry S,
Truman Good Neigh-
bor Award). Jónína
stundar nám í Kansas-
fylki í Bandaríkjunum
og er föst venja að
teknar séu myndir með
málverk af Truman í bak-
sýn, af þeim náms-
mönnum, er sækja
verðlaunaafhendinguna
sem gestir.
Sá stóri í
baUettheiminum...
f ær þann stóra...
+ Ballettdansarinn Helgi Tómasson hefur verið hérlendis
undanfarið og brá sér um sl. helgi i Laxá i Kjós. Helgi fékk sjö
punda lax á flugu, en setti í þrjá aðra, sem hann missti. Helgi mun
oft hafa veitt silung á stöng á æskustöðvum sinum í Holtum, hann
var þar í sumardvöi, en þetta er fyrsti laxinn, sem hann veiðir
og raunar i fyrsta skiptið sem hann hefur farið i laxveiðiferð.
í bandariska timaritinu „Ballet News“ er forsiðumynd a/
Helga Tómassyni og grein um hann eftir Eric Taub með
fyrirsögninni „Just about perfect“, sem má lauslega þýða „Nánast
fullkominn“ og er, eins og fyrirsögnin bendir til, þar f jallað
ákaflega iofsamlega um Helga og dans hans.
fólk í
fréttum
r