Morgunblaðið - 19.08.1980, Síða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980
25
Öruggur sigur
AKURNEiSINGAR unnu öruRg-
an sÍKur, 3—0, á Þrótturum í 1.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu á Akranesi á iaugardaK-
inn, i skemmtileKum og vel leikn-
um leik. Skagamenn voru allan
tímann mun sterkari aöilinn,
einkum þó í fyrri hálfleik þegar
þeir yfirspiluðu Þróttara algjör-
lega ok skoruðu þeir öll mörkin i
þeim hálfleik. Eftir þennan sigur
eygja Skagamenn enn möguleika
á sigri i íslandsmótinu, en staða
Þróttara fer nú hríðversnandi og
virðist nú fátt geta komið i veg
fyrir fall þeirra í aðra deild.
Fyrri hálfleikur var með þeim
líflegri sem undirritaður hefur séð
í sumar og sérlega vel leikinn af
hálfu Skagamanna, sem yfirspil-
uðu Þrótt nær algjörlega og skor-
uðu þeir þá þrjú falleg mörk.
Þróttarar fengu þó fyrsta færið,
þegar á upphafsmínútum leiksins,
er Þorvaldur Þorvaldsson komst
inn í sendingu Árna Sveinssonar á
markmann, Bjarna Sigurðssyni
tókst að verja frá honum í horn.
Síðan tóku Skagamenn völdin
smám saman í sínar hendur og á
6. mín. braust Sigþór upp að
endamörkum og þaðan inn að
markhorninu, en í stað þess að
senda boltann út í teiginn reyndi
hann skot, sem ekki rataði rétta
leið. Á 16. mín. skaut Sigurður
Halldórsson beint í fang Jóns
Þorbjörnssonar markmanns
Þróttar úr þröngri aðstöðu. Á 17.
mín. skoruðu Skagamenn svo sitt
fyrsta mark, þegar einn Þróttara
lagði boltann fyrir Sigurð Lárus-
son rétt utan vítateigs og hann var
ekkert að tvínóna við hlutina
heldur skaut umsvifalaust þrumu-
skoti í stöng og inn án þess að Jón
í Þróttarmarkinu kæmi nokkrum
vörnum við. Á 24. mín. kom svo
annað markið og var það einkar
glæsilegt, Sigurður Lárusson
skallaði þá boltann út á hægri
kantinn til Kristjáns Olgeirsson-
ar, sem stóð þar óvaldaður. Hann
lék upp að vítateigslínunni og
sendi þéttingsfastan bolta þvert
yfir teiginn og á móts við fjær-
stöngina kom Árni Sveinsson á
fullri ferð og þrumaði boltanum
viðstöðulaust í markhornið fjær
IA —
Þróttur
3:0
án þess að vörn Þróttar fengi rönd
við reist.
Stuttu eftir þetta var Harry
Hill borinn meiddur af velli eftir
að hafa lent í tæklingu við Krist-
inn Björnsson, en hann hafði fram
að því verið einna frískastur
Þróttara, sem tókst að skjóta inn
einni og einni sókn án þess að
skapa þó nokkur veruleg færi. Það
var svo loks á 44. mín. sem þriðja
markið kom og aftur fengu Skaga-
menn góðan stuðning Þróttara við
það. Einn af varnarmönnum
Þróttara átti þá góða sendingu á
Kristján Olgeirsson, sem stóð
óvaldaður rétt utan vítateigs.
Hann lek upp að markinu og sendi
boltann af öryggi í netið undir Jón
Þorbjörnsson sem kom út á móti.
Seinni hálfleikur var svo allur
mun tíðindaminni og slakari, svo
virtist sem Skagamönnum fyndist
nóg komið, því þeir slöppuðu
verulega af og áttu ekki nema eitt
færi, sem teljandi var. Þeir Krist-
inn Björnsson og Kristján 01-
geirsson léku sig skemmtilega í
gegn um Þróttarvörnina og Krist-
inn renndi boltanum út í teiginn,
en Jóhann Hreiðarsson bjargaði
skoti Sigurðar Lárussonar á línu.
Marktækifæri Þróttara voru ekki
heldur mörg, þó þeir kæmu nú
meira inn í leikinn, en er um 10
mínútur voru til leiksloka var
heppnin svo sannarlega ekki með
þeim. Þorvaldur Þorvaldsson
slapp þá einn í gegn um vörn
Skagamanna en skot hans hrökk
af Bjarna markmanni í þverslána
og út í teiginn til Ólafs Magnús-
sonar, sem skallaði enn í slána og
þriðja tilraun Þróttara fór svo
rétt framhjá.
Eins og áður sagði léku Skaga-
menn fyrri hálfleikinn mjög vel,
og í jöfnu lið þeirra bar mest á
Árna Sveinssyni sem að þessu
sinni lék í stöðu tengiliðs og
islandsmötlð i. delld
skilaði henni vel, og Kristjáni
Olgeirssyni. Af slökum Þrótturum
bar einna helst á Jóhanni Hreið-
arssyni.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild, Akranes-
völlur, ÍA — Þróttur: 3—0 (3—0).
Mörk í A: Sigurður Lárusson á 17.
mín. Árni Sveinsson á 24. mín. og
Kristján Olgeirsson á 44. mín.
Áminningar: Engin.
Áhorfendur: 790.
Dómari: Arnþór Óskarsson og
hefði hann sennilega getað gert
betur.
Þorsteinn Bjarnason ÍBK átti sannkallaðan stórleik í markinu er lið hans mætti Fram í gærkvöldi á Laugardalsvellinum
og varði Þorsteinn hvað eftir annað meistaralega.
Fram sigraöi í jöfnum leik
FRAM bætti við tveimur dýrmætum stigum í safn sitt í gærkvöldi er
liðið sigraði lið ÍBK með einu marki gegn engu á Laugardalsvellinum.
Leikur liðanna var vel leikinn og bráðskemmtilegur. Bæði liðin áttu
góðar sóknarlotur og hættuleg marktækifæri. Lið Keflavíkur lék
sennilega einn sinn besta leik í sumar þrátt fyrir að þeim tækist ekki
að skora.
Fram —
ÍBK
1:0
Bæði liðin byrjuðu leikinn af
miklum krafti og var sýnilegt að
það átti ekkert að gefa eftir, báðir
aðilarnir ætluðu sér sigur í leikn-
um. Fyrsta hættulega marktæki-
Einkunnagjðfin
LIÐ IA LIÐ KR: LIÐ UBK:
Bjarni Sigurðsson 7 Stefán Jóhannsson 6 Guðmundur Ásgeirsson 6
Guðjón Þórðarson 6 Jósteinn Einarsson 5 Tómas Tómasson 5
Jón Áskelsson 5 Sigurður Pétursson 5 Einar Þórhallsson 6
Sigurður Lárusson 7 Ottó Guðmundsson 6 Benedikt Guðmundsson 6
Sigurður Halldórsson 6 Börkur Ingvarsson 7 Valdimar Valdimarss. 6
Jón Gunnlaugsson 7 Ágúst Jónsson 5 Sigurjón Kristjánss. 6
Kristján Olgeirsson 7 Elías Guðmundsson 6 Þór Hreiðarsson 7
Guðbjörn Tryggvason 5 Jón Oddsson 6 Sigurður Grétarsson 6
Sigþór Ómarsson 6 Sæbjörn Guðmundsson 5 Ingólfur Ingólfsson 6
Kristinn Björnsson 6 Hálfdán Örlygsson 6 ólafur Björnsson 7
Árni Sveinsson 7 Hákon Gunnarsson 7
Björn II. Björnsson 5 Vignir Baldurss. (vm) 6
LIÐ VÍKINGS:
LIÐ ÞRÓTTAR LIÐ FH: Diðrik Ólafsson 6
Jón Þorbjörnsson 6 Friðrik Jónsson 6 Gunnar Gunnarsson 7
Daði Harðarson 5 Viðar Halldórsson 6 Ragnar Gislason 6
Harry IIill 6 Atli Alexanderss. 5 Magnús Þorvaldsson 6
Rúnar Sverrisson 5 Valþór Sigþórsson 7 Þórður Marelsson 6
Sverrir Einarsson 6 Guðjón Guðmundsson 6 Jóhannes Bárðarson 7
Jóhann Hreiðarsson 6 Logi Ólafsson 5 Helgi Helgason 7
ólafur Magnússon 5 Helgi Ragnarsson 5 Ómar Torfason 7
Þorvaldur Þorvaldsson 5 Ásgeir Eliasson 6 Hinrik Þórhallsson 6
Baldur Hannesson 5 Valur Valsson 6 Heimir Karlsson 6
Ágúst Hauksson 6 Pálmi Jónsson 6 Lárus Guðmundsson 6
Sigurkarl Aðalsteinsson 5 Ásgeir Arnbjörnsson 6 Gunnar Örn Kristjánss. (vm) 6
Páll ólafsson varam. 6 DÓMARI: DÓMARI:
Arnar Friðriksson varam. 4 ÓIi Olsen 6 Rafn Hjaltalin 7
LIÐ FRAM:
Guðmundur Baldursson
Jón Pétursson
Marteinn Geirsson
Hafþór Sveinjónsson
Simon Kristjánsson
Gunnar Guðmundson
Erlendur Daviðsson
Guðmundur Torfason
Guðmundur Steinsson
Pétur Ormslev
Gústaf Björnsson
Rafn Rafnsson (vm)
LIÐ ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason
Kári Gunnlaugsson
Guðjón Guðmundsson
Óskar Færseth
Hilmar Hjálmarsson
Skúli Rósantsson
Ólafur Björnsson
Ólafur Júliusson
Ragnar Margeirsson
Björn Ingólfsson
Sigurjón Sveinsson (vm)
Steinar Jóhannsson (vm)
Dómari Guðmundur Haraidsson7
8
6
f»
r>
6
5
6
7
7
f»
6
6
færið kom við mark ÍBK á 15.
mínútu er Þorsteinn Bjarnason
markvörður missti boltann frá sér
og Guðmundur Torfason skaut
föstu skoti rétt framhjá úr góðu
færi. Á 25. mín. átti Ólafur
hörkuskot af stuttu færi beint á
Guðmund markvörð Fram. Guð-
mundur Steinsson komst í gegn á
30. mín. en Þorsteinn hirti boltann
af tánum á honum. Á 34. mínútu
fékk lið ÍBK sitt besta marktæki-
færi í leiknum. Ragnar Margeirs-
son gaf vel fyrir markið og Ólafur
rétt náði til boltans á markteig en
skaut í stöngina. Þar voru Fram-
arar heppnir.
Síðari hálfleikur var leikinn af
sama krafti og sá fyrri og ekkert
gefið eftir. Var stundum full mikið
kapp í leikmönnum beggja liða og
þó nokkuð um gróf brot á báða
bóga. Sigurmark Fram kom á 57.
mínútu leiksins. Guðmundur
Í>lovmmMní>iíi
nrrarmna
markvörður Fram á eitt af sínum
löngu útspörkum beint á fætur
Péturs Ormslev. Pétur afgreiddi
boltann failega til Guðmundar
Steinssonar sem var rétt innan
vítateigs. Guðmundur skaut fal-
legu bogaskoti í markhornið fjær
yfir Þorstein markvörð. Mjög fal-
legt mark og vel að því staðið.
Lið ÍBK lét ekki deigan síga
þrátt fyrir að fá á sig mark. Þeir
börðust áfram ótrauðir en gekk
ekki vel að nýta tækifæri sín.
Vörn Fram var föst fyrir og gaf
ekkert eftir. Fram átti mikið af
skyndisóknum og á 60. mínútu
komst Guðmundur Steinsson einn
innfyrir vörn ÍBK, ætlaði sér að
leika á Þorstein en hætti við og
skaut, en ekki tókst betur til en
svo að boltinn fór beint í fætur
Þorsteins, sem kom út á móti.
Þarna fór gott tækifæri forgörð-
um.
Lið ÍBK fékk gott tækifæri á að
jafna metin á 65,' mín. þegar
Ragnar gaf vel fyrir markið og
Ólafur Júlíusson og Steinar voru
fyrir opnu marki en náðu ekki til
boltans. Hilmar Hjálmarsson átti
þrumuskot af löngu færi á 79.
mínútu — fór skot hans rétt yfir
Staðan í 1. deild
STAÐAN í 1. deild
Valur
Víkingur
Fram
Akranes
Breiðahlik
KR
ÍBV
Keflavík
FH
Þróttur
að loknum 14 umferðum:
14 9 2 3 34:12 20
14 66 2 20:14 18
14 8 24 16:18 18
14 6 4 4 22:16 16
14 6 1 7 22:19 13
14 516 14:19 13
13 4 35 19:23 11
14 35 6 13:19 11
14 437 19:29 11
13 238 8:17 7
Bjargar FH sér frá falli?
FH-INGAR eygja nú skyndilega
von um að sleppa við fall niður í
2. deild eftir tvo sigurleiki i röð.
Fyrst unnu þeir Skagamenn og á
sunnudagskvöldið urðu KR-ingar
að lúta i lægra haldi fyrir frísku
FH-liðinu á Laugardalsvellinum.
1:2. FH-ingar hafa nú hlotið 11
stig eða jafnmörg stig og ÍBV og
ÍBK fyrir þessa umferð, en Þrótt-
arar sitja nú kyrfilega fastir á
botninum með aðeins 7 stig og
fallið virðist óumflýjanlegt.
Fyrri hálfleikurinn var fremur
tilþrifalítill, leikið var af tals-
verðri hörku og liðin sýndu stór-
karlalega knattspyrnu. FH-ing-
arnir voru öllu sókndjarfari og
áttu nokkur langskot að marki
KR, sem fóru framhjá eða lentu í
öruggum höndum Stefáns mark-
varðar. Á 29. mínútu munaði litlu
að Pálma tækist að skora eftir að
hann hafði fengið sendingu frá
Ásgeiri Arnbjörnssyni en Pálmi
skallaði naumlega framhjá.
Á 43. mínútu átti Börkur Ingv-
arsson skalla að marki FH en
Friðrik Jónsson varði snilldarlega.
En Friðrik átti ekkert svar á
lokamínútu hálfleiksins, þegar
Börkur skallaði boitann að marki
eftir innkast Jóns Oddssonar.
Friðrik náði að koma höndum á
boltann en skallinn var of fastur
og í netinu hafnaði boltinn.
Miðað við gang leiksins var
forysta KR ekki sanngjörn. Hins
vegar voru KR-ingarnir sterkari
aðilinn framan af s.h. eða allt þar
til FH-ingar jöfnuðu metin á 17.
mínútu hálfleiksins. Viðar Hall-
KR —
FH
1:2
' JT\ jrw * i
Besti maður KR-liðsins, Börkur
Ingvarsson.
dórsson ætlaði að skjóta að marki
en hitti boltann illa. Boltinn barst
inn í þvögu leikmanna og síðan til
Pálma Jónssonar, sem komst á
auðan sjó og skoraði framhjá
Stefáni, sem kom hlaupandi út á
móti. Þorvarður Björnsson línu-
vörður veifaði á rangstöðu, en
eftir að Óli Olsen dómari hafði
ráðfært sig við Þorvarð dæmdi
hann markið gilt.
Þegar u.þ.b. 15 mínútur voru
eftir af leiknum, kom Leifur
Helgason inná hjá FH og hleypti
það nýju blóði í framlínuna. Leif-
ur hafði ekki verið lengi inná er
hann skoraði sigurmark FH. Ás-
geir Arnbjörnsson braust upp
vinstri kantinn, gaf boltann síðan
út til Leifs, sem var staðsettur
rétt fyrir utan vítateiginn. Hann
var ekkert að tvínóna við hlutina
heldur skaut viðstöðulausu skoti,
sem hafnaði í horni KR-marksins.
Laglega að verki staðið hjá Leifi.
Síðustu 10 mínútur leiksins
sótti KR af þunga og litlu munaði,
að Birgi Guðjónssyni tækist að
skora, en skot hans af 20 metra
færi lenti í þverslánni.
FH-liðið hefur sótt mjög í sig
veðrið upp á síðkastið og með
sama áframhaldi ætti það að
sleppa við fa.ll. Hjá KR-liðinu
hefur verið tröppugangur í mót-
inu. Liðið byrjaði ekki sannfær-
andi, en náði sér vel á strik um
miðbik mótsins. Nú er hins vegar
farið að halla undan fæti að nýju.
En það sama má segja um KR og
FH, bæði liðin eru of góð til þess
að falla niður í 2. deild.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild. KR - FH 1:2
(1:0), á Laugardalsvelli 17. ágúst:
MARK KR: Börkur Ingvarsson á
45. mínútu.
MÖRK FH: Pálmi Jónsson á 62.
mínútu og Leifur Helgason á 78.
mínútu.
GUL SPJÖLD: Sigurður Péturs-
son KR.
- SS.
þverslána. Síðasta dauðafæri í
leiknum átti Fram, er Guðmundur
Steinsson fékk enn eitt tækifærið
er hann var á auðum sjó og átti
aðeins markvörðinn eftir. Þor-
steinn sá þó við honum í enn eitt
skiptið og varði meistaralega.
Bæði liðin léku þennan leik
mjög vel. Mikil barátta var í
leikmönnum beggja liða svo og
kraftur. Boltinn fékk að ganga vel
á milli manna og margar góðar
sóknarlotur sáust af hálfu beggja
liða. Bestu menn Fram í leiknum
voru Pétur Ormslev og Marteinn
Geirsson. í liði ÍBK átti Þorsteinn
Bjarnason markvörður stórleik.
Bjargaði hvað eftir annað mjög
vel. Þá voru Ragnar Margeirsson
og Ólafur Júlíusson góðir.
í stuttu máli. Islandsmótið 1.
deild. Fram-ÍBK 1-0 (0-0).
Mark Fram: Guðmundur Steins-
son á 57. mín.
Gult spjald: Guðmundur
Steinsson Fram. Áhorfendur 726.
— ÞR.
Naumur sigur Vikings
LIÐ VÍKINGS bar sigurorð af
Breiðabliki er liðin mættust i I.
deildar keppninni i knatt-
spyrnu á laugardag á Kópa-
vogsvelli. Þar náði Vikingur sér
í dýrmæt stig og liðið er enn
með i baráttunni um toppinn i
deildinni. Sigur Víkings gegn
Breiðabliki hékk á bláþræði.
Vikingar náðu tveggja marka
forystu í leiknum, og allt virtist
stefna i öruggan sigur. En þá
tók lið Breiðabliks loks við sér í
lciknum og iék eins og það
gerir best. Enda lét árangurinn
ekki á sér standa. Blikarnir
jöfnuðu leikinn og voru hárs-
breidd frá því að ná forystunni.
En það tókst ekki og Gunnar
örn, sem kom inn á sem vara-
maður í síðari hálfleiknum,
skoraði sigurmark Vikings með
góðu skoti eftir að hafa komist
einn i gegn.
Fyrri hálfleikurinn var frem-
ur slakur hjá liðunum, og ekki
mikið um góð marktækifæri. Á
15. mínútu eiga Víkingar góða
sókn að marki UBK og Heimir
Karlsson gaf góða sendingu á
Ómar Torfason sem skaut
þrumuskoti í boga efst í mark-
hornið fjær. Óverjandi fyrir
Guðmund markvörð UBK. Var
þetta glæsilegt mark og vel að
því staðið.
Á 26. mínútu á Hákon Gunn-
arsson þrumuskot úr miðjum
vítateignum, en Diðrik var vel á
verði og varði mjög vel. Síðari
hálfleikurinn fór rólega af stað.
Sigurður Grétarsson átti gott
skot úr aukaspyrnu rétt utan
vítateigs en framhjá. Á 55.
mínútu leiksins skora Víkingar
sitt annað mark. Boltinn hrökk
slysalega af Sigurjóni Krist-
jánssyni eftir aukaspyrnu beint
til Lárusar Guðmundssonar sem
stóð á markteig. Lárus þakkaði
fyrir sig með því að taka vel á
móti boltanum og skalla hann
síðan beint neðst í markhornið.
2—0 fyrir Viking. Nú var eins og
lið UBK tæki fyrst við sér í
leiknum. Það hafði verið fremur
UBK —
Víkingur
2:3
ómar Torfason átti góðan leik og
skoraði glæsilegt mark fyrir Vík-
ing.
Knattspyrna
dauft og gekk illa að finna
taktinn í leiknum. Nú breyttist
leikur liðsins til batnaðar. Og á
65. mínútu ná Blikamir að
skora. Eftir hornspyrnu barst
boitinn til Ingólfs Ingólfssonar
sem skoraði af stuttu færi. Nú
sótti lið UBK mjög stíft og á 70.
mínútu ná þeir að jafna leikinn.
Eftir glæsilega sókn, þar sem
vörn Víkinga var tætt í sundur,
gaf Hákon Gunnarsson góða
sendingu inn á Þór Hreiðarsson
sem skoraði með fallegu skoti.
Nú var mikið fjör komið í
leikinn og stuðningsmenn UBK
hrópuðu ákaft með liði sínu. Og
á 77. mínútu átti lið UBK að ná
forystunni leiknum. Þá komst
Ingólfur Ingólfsson einn í gegn,
lék á Diðrik markvörð og skaut
en á síðustu stundu tókst Magn-
úsi Þorvaldssyni að bjarga á
marklínu í horn. Þarna skall
hurð nærri hælum við mark
Víkinga. En þeir sluppu með
skrekkinn. Aðeins þremur mín-
útum síðar sendir Gunnar
Gunnarsson góða sendingu fram
völlinn til Gunnars Kristjáns-
sonar, hann lék laglega á einn
varnarmann UBK, komst í gegn
og skoraði með föstu skoti og
tryggði Víkingum sigur.
Lið Breiðabiiks vantaði fjóra
af fastamönnum sínum, þá
Helga Helgason Gunnlaug
Helgason, Helga Bentsson og
Vigni Baldursson. Vignir kom
reyndar inn á þegar um 20
mínútur voru eftir af leiknum og
stóð sig vel. En greinilega setti
það svip sinn á Blikana að geta
ekki verið með sitt besta lið.
Þeim gekk fremur illa að finna
sig framan af leiknum en er líða
tók á leikinn sóttu þeir í sig
veðrið og léku þá vel. Bestu
menn liðsins voru Einar Þór-
hallsson og Hákon Gunnarsson.
Lið Víkinga féll í sömu gryfju
og í leiknum á móti KR, að missa
niður tveggja marka forskot.
Hvað veldur er ekki gott að segja
til um. Liðið leikur skínandi
góða knattspyrnu á köflum en á
það til að missa taktinn í leik
sínum og lenda í erfiðleikum.
Vörnin var betri hluti liðsins að
þessu sinni. Gunnar Gunnars-
son, ómar Torfason og Jóhannes
Bárðarson áttu allir góðan leik.
í STUTTU MÁLI: Islandsmót-
ið 1. deild. Kópavogsvöllur.
UBK-Víkingur 2—3 (0—1).
MÖRK UBK: Ingólfur Ingólfsson
á 65. mínútu og Þór Hreiðarsson
á 70. mínútu.
MÖRK VÍKINGA: Ómar Torfa-
son á 15. mínútu, Lárus Guð-
mundsson á 55. míntutu og
Gunnar Örn á 80. mín.
GULT SPJALD: Enginn.
ÁHORFENDUR: 722.
DÓMARI: Rafn Hjaltaiín og
dæmdi hann ágætlega.
ÞR.