Morgunblaðið - 19.08.1980, Blaðsíða 24
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980
Umhverfismála-
ráÖ veitir við-
urkenningar:
UMHVERFISMÁLARÁÐ
Rcykjavíkur veitti í gærdaK
viðurkenninKar fyrir fagurt
<t>í snyrtile>rt umhverfi í bur>r-
inni. Bor>carfulltrúar. verð-
launahafar og aðrir gestir
voru þá saman komnir í
Hofða þe«ar Sixurjón Pét-
ursson, forseti boruarstjórn-
ar, tiikynnti úrslit.
Fyrir bezta umhverfi barna
hlutu raðhúsalóðir við Bakka-
sel í Seljahverfi viðurkenn-
ingu. Það voru börnin sjálf
Teigagerði fegursta
gata Reykjavíkur ...
sem veittu viðurkenningunni
viðtöku. Segir í áliti dóm-
nefndar, að við Bakkasel hafi
fjórar raðhúsaeiningar gengið
frá sameiginlegu leiksvæði
fyrir börn, þar sem „leikur og
öryggi" sé allsráðandi. Dóm-
nefnd sátu Anna Kristjáns-
dóttir, Auður Sveinsdóttir og
Einar E. Sæmundsson.
I tilefni af Ári trésins var
valin trjágarður ársins og
hlaut garður Sveinbjörns
Jónssonar, hæstaréttarlög-
manns, í Ártúnsbrekku viður-
kenningu. Segir dómnefnd
trjágarð Sveinbjörns þann
„stórfenglegasta í Reykjavík",
en Sveinbjörn lézt á s.l. hausti
84 ára að aldri og er garðurinn
nú í forsjá barna Sveinbjörns,
þeirra Jóns og Helgu. Ræktun-
arstarf Sveinbjörns í Ártúns-
brekku hófst árið 1934 og þar
eru nú hávaxin tré — garður-
inn er „sannkallaður unaðs-
reitur", segir dómnefnd, sem
Sigríður H. Bragadóttir, Vil-
hjálmur Sigtryggsson og Haf-
Úr verðlaunagarði Sveinbjörns heitins Jónssonar,
Hús Osta- og smjörsölunnar við Bitruháls.
Krakkarnir í Bakkaseli taka við viðurkenningunni. Pétursson stendur hjá.
liði Jónsson skipuðu. Það var
Jón Sveinbjörnsson sem veitti
viðurkenningunni viðtöku.
Þá var veitt viðurkenning
fyrir „ytra og innra umhverfi"
og hlaut hana Osta- og smjör-
salan að Bitruhálsi 2. Segir
dómnefnd, að það sé ekki
aðeins utandyra hjá Osta- og
smjörsölunni, þar sem hrein-
leiki og fegurð ríki, heldur
einnig innandyra. Dómnefnd
skipuðu Guðjón Jónsson,
Magnús L. Sveinsson og Gísli
Kristjánsson.
Loks var fegurstu götu
Reykjavíkur veitt viðurkenn-
ing. Teigagerði í Smáíbúða-
hverfi var valin fegursta gata
Reykjavíkur 1980. Segir dóm-
nefnd að íbúar við aðrar götur
borgarinnar mættu taka sér
Teigagerðisbúa til fyrirmynd-
ar. Dómnefnd sátu Gunnar
Helgáson, Pétur Hannesson og
Hafliði Jónsson. Frú Bryndís
Bjarnadóttir mætti fyrir hönd
Teigagerðisbúa og þakkaði
fyrir sig og fór nokkrum orð-
um um gildi þess að fága
umhverfi sitt; þau tengsl sem
sköpuðust milli íbúa götunnar
þegar þeir væru samtaka í
þessu efni.
Að þessu loknu bauð forseti
borgarstjórnar í kaffi. Var það
mál manna að viðurkenningar
sem þessar örvuðu fólk mjög,
til þess að huga að umhverfi
sínu.