Morgunblaðið - 19.08.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980
43
Guðjón F. Teitsson:
Gáð til veðurs
Nú þegar víðtækar launadeilur
eiga sér stað hér á landi og
verkföll eru yfirvofandi til stór-
tjóns fyrir þjóðarbúið, er vert að
litast um og athuga hvað gerzt
hefir og er að gerast meðal
nokkurra helztu viðskiptaþjóða
vorra á sviði þýðingarmikilla
iðngreina, svo sem í skipasmíðum
og bílaframleiðslu. Skulu í þessu
sambandi endursagðar nokkrar
upplýsingar nýlega birtar í hinu
brezka dagblaði Lloyd’s List, sem
tengt er hinum heimsþekkta
brezka vátryggingamarkaði.
Skipasmíðastöðvar
í Svíþjóð
Hinn 8. maí sl. var sérútgáfa af
Lloyd’s List helguð Svíþjóð og var
þar m.a. gefið eftirgreint yfirlit
um stöðu nokkurra hinna þekkt-
ustu skipasmíðastöðva í landinu:
sept. n.k. og fækki starfsliði úr 740
1250.
V auxhall-bílaver k-
smiðjurnar í
Bretlandi
í L. L. hinn 1. júlí sl. er skýrt frá
því, að ofangreindar verksmiðjur
hafi á árinu 1979 tapað rúmlega 16
millj. sterlingspunda, samsv.
nærri 19 milljörðum ísl. kr., í stað
þess að hagnast um nærri 12 millj.
£, samsv. nærri 14 milljörðum ísl.
kr., á árinu 1978.
Stjórn verksmiðjanna kennir
aðallega vinnudeilum á árinu 1979
um nefnda kollsteypu í rekstrar-
útkomu og segir dæmið táknrænt
Bílaiðnaður i
Bandaríkjunum
Vitað er, að hinn mikli bílaiðn-
aður í Bandaríkjunum á nú við
verulega rekstrarörðugleika að
etja og er sumpart kominn á
ríkisframfæri, svo sem Chrysler-
verksmiðjurnar. Eru orsakir þessa
m.a. raktar til vinnudeilna, sí-
hækkandi olíuverðs og samkeppni
annarra þjóða, einkum Japana.
Snertir þetta ís-
lendinga, t.d. flug-
reksturinn?
Þegar svo stórbrotnir atburðir,
sem hér hefir verið lýst, gerast í
næstu viðskiptalöndum með há-
þróaðan iðnað, er vafalítið, að
Guðjón F. Teitsson
slíkt mun snerta íslendinga með
ýmsum hætti. Er því þörf á öðru
fremur hér á landi en kjaradeilum
og verkföllum. — Mætti fram-
angreint dæmi frá Vauxhall-
verksmiðjunum í Bretlandi verða
til nokkurrar viðvörunar. t.d. i
sambandi við flugrekstur íslend-
inga. sem er sérstaklega við-
kvæmur fyrir öllum trufiunum
og á nú sem kunnugt er af
margþættum ástæðum mjög í vök
að ver jast.
Erfiðleikar
og gagnsókn
Þótt syrt hafi í álinn hjá
Bretum á sumum sviðum, þá skal
bent á, að þeir hafa hafið gagn-
sókn á öðrum, og er t.d. áætlað, að
olíuvinnsla þeirra frá botni Norð-
ursjávar nemi á þessu ári 80—85
milljónum tonna; við lok ársins
samsvarandi sem næst því, er þeir
þurfa beinlínis til eigin nota.
Enn er tiltölulega lítið af auð-
lindum íslands í fallvötnum og
jarðvarma virkjað og nýtt. Þar
bíða landsmanna mjög álitleg
verkefni til aukinnar hagsældar
fólks, ekki aðeins á íslandi heldur
einnig í öðrum löndum. Beinum
því fjármagni og vinnuafli þjóðar-
innar á komandi árum i auknum
mæli að nýtingu nefndra auðlinda
fremur en t.d. stefna að því að eiga
flesta bíla allra þjóða miðað við
íbúatölu.
Nafn skipasmíðastöðvar Algeng tala starfs- • Áætlanir um framtíð
manna vorið 1980 eða áður en rekstur drógst saman eða hætti eða upplýsingar um hvað gerst hefur
Götaverken Arendal 3,300 Áframhaldandi starf- semi verði einkum við smíð olíuborpalla, tilheyrandi tækja og ýmiss konar véla. Starfsmönnum fækki um 1500.
Uddevallavarvet 3,000 Haldi áfram smíði skipa af venjulegri gerð, en starfs- mönnum fækki um 100.
Kockums 4,600 Smíði framvegis skip til sérstakra nota, svo sem tankskip til flutnings á gasi og kemiskum efnum, enn fremur ýmiss konar vélar. Starfsmönnum fækki um 1,880.
Eriksbergs 4,750 Stöðin lögð niður 1979.
Götaverken Öresundsvarvet 3,000 Starfsemi hætti við árslok 1983.
Götaverken Finnboda 450 Starfsemi hætti við árslok 1983.
Götaverken Sölvesborg 300 Stöðin verði endur- skipulögð með tilliti til þarfa iðn- aðar eða lögð niður.
Karlskronavarvet 1,700 Haldi áfram að smíða varðskip og/eða herskip, en starfsmönnum fækki um 250.
Götaverken Cityvarvet 2,200 Taki að sér smíðar, sem áður tilféllu Finnboda, en starfsmönnum fækki um 900.
Skipasmíðar í
Bretlandi
Hinn 2. júlí sl. birtust í Lloyd’s
List fréttir af því, að hin stóra
skipasmíðastöð Harland and
Wolff í Belfast á Norður-írlandi
hafði á sl. ári tapað 24 millj.
sterlingspunda, samsvarandi
nærri 28 milljörðum ísl. kr., og
hafði ríkisstjórn Bretlands vegna
hinnar mjög slæmu rekstrarstöðu
ákveðið að láta stöðina fá án tafar
42,5 millj. sterlingspunda, sam-
svarandi nærri 49 milljörðum ísl.
kr., fjárstuðning í reiðufé til
áframhaldandi rekstrar, sem
hafði þó þegar dregizt verulega
saman vegna verkefnaskorts að
undanförnu. Starfsmönnum hafði
fækkað um 800 og enn búizt við
frekari fækkun.
í annarri grein í L. L. 2. júlí var
skýrt frá því, að yfirvofandi væri
lokun hinnar víðkunnu vélaverk-
smiðju Doxford Engines Ltd. í
Sunderland, Englandi, sem eink-
um hefir framleitt meðalhrað-
gengar dísilvélar á styrkleika-
sviðinu 5000—27000 héstafla
(BHP). Er ráðgert, að verksmiðjan
hætti framleiðslu nýrra véla í
fyrir það, hve samdráttur í fram-
leiðslu og viðskiptum af nefndum
ástæðum í viðkvæmum atvinnu-
rekstri geti skipt sköpum. —
Sumir kunni að álíta, að slík
truflun viðskipta sé aðeins bundin
þeim tíma, sem truflunin stendur,
en það sé í flestum tilvikum harla
óraunsætt, því að töpuð viðskipti
verði sjaldan endurheimt og óvíst
með öllu, að viðskiptasambönd,
sem glatast, fáist upp tekin á ný.
Vauxhall-verksmiðjurnar eru
sagðar hafa tapað sölu 48.000 bíla
á árinu 1979 vegna umræddra
vinnudeilna innan og utan verk-
smiðjanna, og eru þessar taldar:
Verkfall flutningaverkamanna í
janúar/febrúar, deila við starfs-
menn birgðastöðvar varahluta í
febrúar og í verksmiðju í Luton í
marz, röð skærustöðvana í verk-
fræðideild, sem hafði áhrif á
framleiðslu síðari hluta sumars og
loks 12 vikna deila í Ellesmere
Port-verksmiðju um haustið, sem
olli því að sú verksmiðja var lögð
niður með alvarlegum afleiðingum
fyrir verksmiðjureksturinn í
sunnanverðu landinu.
ALFA
VEGGSAMSTÆÐAN
frá hinu þekkta norska fyrirtæki BAHUS
gefur óendanlega möguleika í uppsetningu.
Komiö og skoðið þessar fallegu veggsamstæöur
uppsettar í verslun okkar.
MJOG HAGSTÆTT
VERÐ
Verió velkomm!
SMIDJUVl.Gí 6 SIMI 44544