Morgunblaðið - 19.08.1980, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980
UnKfrú Simone Overman (í miAju) með kórónuna sem hún hlaut með sÍKri sínum i feKuróarkeppninni
Miss VounK International í Manila á Filippseyjum. UnKfrú ísland. Unnur Steinsson. varð fjórða ok er
lenKst til hæKri á myndinni. UnKÍrú Filippseyjar. Felicidad Luis. sem varð fimmta, er lenKst til vinstri
ok síðan kemur UnKfrú Danmörk. Rikkie Petcrsen. sem varð 2. UnKÍrú Finnland. Anne Marie Tarhia,
sem er önnur frá ha-Kri, varð þriðja. UnKfrú ísland vann til. tvc-KKja verðlauna i keppninni þc-Kar hún
var kjörin Ungfrú Vinátta ok Ungfrú Stundvísi.
Fréttir um uppreisn
gegn stióm Khadafy
Tripoli. 18. ágúst. AP.
ARABÍSKIR diplómatar i
Marökkó sökóu i daK að líbýsk
herdeild hefði Kert uppreisn K<‘Kn
stjórn Moammar Khadafy
ofursta nýlc-Ka. en líbýska
I/ondon 18. ágúst AP.
AÐ SÖGN bresku löKreKlunnar.
sem nú vinnur að rannsókn
mesta fjöldamorðs i breskri söku.
kunna að vera allt að 50 vitni að
upptökum eldsins i næturklúbbn-
um þar sem 37 manns brunnu til
bana. Ekkert þeirra hefur þó enn
Kefið sík fram við löKreKluna.
Þeir, sem að iöKreKlurannsókn-
inni vinna, soköu í dag, að það
gæti tekið margar vikur áður en
full kennsl yrðu borin á alla, sem í
brunanum létust. Vitni hafaengin
gefið sig fram enda hafði hvorug-
ur veitingastaðurinn við hliðina á
þeim, sem brann, löggild leyfi.
fréttastofan bar fréttina eindreg-
ið til baka.
Heimiidir í Casablanca hermdu,
að um 400 manns hefðu fallið eða
særzt í bardögum, sem hefðu fylgt
í kjölfar uppreisnar níundu fót-
Talið er að auk, þess séu margir í
hópi fórnarlambanna og þeirra,
sem komust á brott Suður-Amer-
íkumenn, einkum Kólumbíumenn,
sem vinna sem ólöglegir innflytj-
endur í Englandi.
Ymsar getgátur eru uppi um
undirrót íkvfeikjunnar. Sumir
nefna til baráttu milli glæpa-
flokka í Soho, hefnd vegna þess, að
veitingastaðurinn hefði neitað að
gjalda glæpamönnum skatt, og
jafnvel stríð milli pylsusala í West
End. Lögreglan telur, að bensín
eða annar eldfimur vökvi hafi
verið notaður við íkveikjuna vegna
þess hve eldurinn breiddist ört út.
gönguliðsstórdeildar Líbýu nálægt
Tobruk skammt frá egypzku
landamærunum. Fjöldi manna
flúði til Egyptalands eftir upp-
reisnina samkvæmt heimildunum.
í Tripoli sagði hin opinbera
Jana-fréttastofa, að engin upp-
reisn hefði verið gerð í Líbýu og
allt væri með eðlilegum hætti í
Tobruk.
Evrópskar heimildir herma, að
viss öfl í hernum hafi verið
óánægð með Khadafy vegna
stuðnings hans við Idi Amin,
fyrrverandi einræðisherra í
Uganda, og tilrauna hans til
íhlutunar í borgarastríðinu í
Chad.
Herforingjar voru einnig
óánægðir vegna handtöku um
1.000 háttsettra embættismanna
nýlega, einkum í stórum fyrir-
tækjum.
Arabísku diplómatarnir í
Marokkó sögðu, að neyðarástandi
hefði verið lýst yfir á Tobruk-
svæðinu. Hersveitir hollra stjórn-
inni umkringdu lið uppreisnar-
manna. Stjórnarherinn var efldur
með liðsforingjum, sem voru sótt-
ir til Austur-Þýzkalands. Líbýa
hefur keypt mikið magn vopna í
Sovétríkjunum.
Vitni vilja ekki
gefa sig fram
Þetta gerðist
1973 — Georg Papadopoulos
verður fyrsti forsætisráðherra
Grikklands.
1966 — Rúmlega 600 farast í
jarðskjálfta í Tyrklandi.
1956 — 200 farast í flóðum i
Connecticut og níu öðrum norð-
austurríkjum Bandaríkjanna.
1940 — ítalskur her tekur
Brezka Somaliland herskildi.
1934 — Þjóðverjar samþykkja í
þjóðaratkvæði að Adolf Hitler
fái alræðisvald sem Foringi.
1861 — Vegabréfakerfi innleitt í
Bandaríkjunum.
1858 — Austurríki, Prússland,
Frakkland, Bretland, Rússland,
Tyrkland og Sardinía ákveða að
sameina Moldavíu og Valakíu.
1812 — Bandaríska freigátan
,Constitution“ (kölluð „Old Iron-
sides") sigrar brezka freigátu í
orrustu á Norður-Atlantshafi.
1796 — Frakkar og Spánverjar
stofna bandalag í San Udefonso
gegn Bretum — Franskur her
gerir innrás í Þýzkaland, en Karl
erkihertogi af Austurríki sigrar
hann við Amberg.
1792 — Franski byltingar-
dómstóllinn settur á laggirnar.
1692 — Prestur og fimm konur
dæmd fyrir galdra og tekin af
lífi í Salem, Massachusetts.
1691 — Lúðvík af Baden sigrar
Tyrki við Salem Kamen, Búig-
aríu, og Mustafa Kiúprili fellur í
orrustu.
1601 — Mikael djarfi, fursti af
Moldavíu, ráðinn af dögum af
ungverskum ættjarðarvinum.
1587 — Sixtus páfi V lýsir yfir
kaþólskri krossferð til innrásar í
England.
1561 — María Skotadrottning
snýr aftur frá Frakklandi.
Afmæli. Elízabet, „vetrardrottn-
ing“ af Bæheimi (1596—1662) —
Maria Jeanne Becu, greifafrú du
Barry, frönsk ævintýrakona
(1746-1793) - Orville Wright,
bandarískur flugbrautryðjandi
(1871—1918) — Georges Enescu,
rúmenskt tónskáld (1881—1955).
Andlát. 1662 d. Blaise Pascal,
guðfræðingur & stærðfræðingur
— 1819 d. James Watt, verk-
fræðingur — 1928 d. Haldane
vísigreifi, stjórnmálaleiðtogi —
1929 d. Sergei Diaghliev, ballett-
meistari — 1944 d. Sir Henry
Wood, hljómsveitarstjóri —
1959 d. Jacob Epstein, mynd-
höggvari.
Innlent. 1871 Alþingi mótmælir
Stöðulögum — 1870 Benedikt
Sveinssyni vikið úr starfi yfir-
dómara — 1871 Þjóðvinafélag
stofnað 1876 Vesturfarar koma
til Gimli — 1891 d. Gestur skáld
Pálsson - 1925 d. Sig. K.
Pétursson rith. — 1939 Blindra-
félag stofnað — 1960 Sex Spán-
verjar finnast eftir leit á Vatna-
jökli — 1978 Þrennt ferst í
Krossá — 1979 Grænfriðungar
handteknir.
Orð dagsins. Tónlist Wagners er
betri en hún hljómar — Mark
Twain, bandarískur rithöfundur
(1835-1910).
Sprengjuárásir
Rússa á Herat
Nýju Delhí. Kabúl. 18. ágúst AP.
SOVÉSKAR orrustuþotur hafa
undanfarið gert harðar árásir á
Flúði Spán undan
saudi-arabískum
sendiráðsmönnum
Grepevine, Texas 18. áKÚst AP.
UNG saudi-arabísk stúlka kom i
dag til Bandaríkjanna eftir að hafa
flúið undan saudi-arabískum sendi-
ráðsstarfsmönnum frá Spáni. í
fjóra daga fór hún huldu höfði á
Spáni af ótta við að verða framseld
til Saudi-Arabíu. ásökuð fyrir hór-
dóm. Refsingin við hórdómi þar i
landi er dauðadómur.
Stúlkan, Huda Kreiner hafði það
til saka unnið að giftast bandarísk-
um manni, án þess að sækja um leyfi
til slíks hjá innanríkisráðuneytinu í
Saudi-Arabíu. Kreiner fór til sendi-
ráös lands síns í Madríd og bað um
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.
Hún var beðin um að sýna vegabréf
sitt og eins leyfisbréf. Þegar hún
sýndi það var spurt um íslamískt
leyfisbréf. Hún hafði ekkert slíkt og
var þá sagt, að hún hefði brotið í
bága við lög Saudi-Arabíu þar sem
hún hefði gifst útlendingi án leyfis.
Þgar hún fór frá sendiráðinu í
Madríd var hún elt, að hennar sögn
og henni var gefið í skyn hvað hún
ætti yfir höfði sér. Hún fór í felur
meðan beðið var leyfis um að
yfirgefa landið. Það fékkst og Krein-
er fékk að fara úr landi án nokkurra
hindrana.
gamla hluta Heratborgar i
V-Afganistan. Ilerat er þriðja
stærsta borg Afganistan. Harðir
bardagar hafa undanfarið geisað
í borginni milli frelsissveita Afg-
ana og hersveita Kabúlstjórnar-
innar. Hersveitir stjórnarinnar
ráða að sögn mestum hluta borg-
arinnar að degi til en hermenn
frelsissveitanna koma i borgina
þegar skyggja tekur og herja á
stjórnarhermenn. Bardagar i
borginni hafa staðið siðan í júlí.
Þá hefur komið til bardaga að
degi til, að sögn sjónarvotta.
Sovéskir hermenn hafa ekki enn
tekið þátt i bardögum i borginni.
Afganska útvarpið skýrði frá
því í dag, að aðstoðarforsætisráð-
herra landsins, Assuldullah Sar-
wari, fyrrum yfirmaður leynilög-
reglunnar hafi verið gerður að
ambassador í Mongólíu. Tilkynnt
hafi verið, að Sawari hefði verið
fluttur fyrr á árinu til Moskvu.
Sarwari er leiðtogi Khalflokks-
ins, annarar tveggja helstu fylk-
inga sem standa að baki stjórn-
inni. Hin fylkingin er Parchamites
en leiðtogi þeirra er Karmal,
forsætisráðherra. Þessar tvær
fylkingar hafa háð grimmilega
baráttu um völdin í landinu. Þykir
nú sýnt, að Khalfylkingin hafi
beðið lægri hlut í þeirri baráttu.
Þegar Sovétmenn gerðu innrás í
landið gerðu þeir Sarwari að
aðstoðarforsætisráðherra ásamt
Kistmand, einum helsta leiðtoga
Parchamíta.
írak lokar
sendiráði
BaKdad, 18. ágÚHt. AP.
STJÓRNIN í írak lokaði sýr-
lenzka sendiráðinu í dag, skipaði
öllum sýrlenzkum diplómötum að
fara úr landi innan 48 tima og
sakaði þá um að smygla þungum
vopnum og sprengiefni til
skemmdarverka gegn stjórn
Saddam Husseins forseta.
írakska utanríkisráðuneytið
sagði í yfirlýsingu, að hergögn og
sprengiefni hefðu verið flutt úr
byggingu sýrlenzka sendiráðsins.
Svo virðist sem öryggissveitir hafi
ráðizt inn í bygginguna.
Talsmaður stjórnarinnar í
Damaskus sakaði írakskar örygg-
issveitir um að hafa gert áhlaup á
sendiráðið. Irakska utanríkisráðu-
neytið sagði að 36 pokar af
ótilteknu eitri og mikið magn af
eitruðum vindlingum og sígarettu-
kveikjurum hlöðnum sprengiefni
hefði fundist í sendiráðinu og auk
þess fimm flöskur af fljótandi
eitri.
Ráðuneytið sagði að vopnin
hefði átt að nota til skemmdar-
verka, hryðjuverka og fjölda-
morða í Irak og lýsti alla sýr-
lenzku sendiráðsmennina óæski-
lega. Þó hefur írak ekki slitið
stjórnmálasambandi við Sýrland.
Samskipti íraks og Sýrlands
hafa verið stirð síðan stjórn Huss-
eins í Bagdad tók af lífi 21
háttsettan embættismann fyrir
tilraun til að steypa stjórninni
með stuðningi ónefnds Arabaríkis
fyrir um það bil einu ári.
Leit að Titanic
frestað um sinn
New York, 18. áKÚst. AP.
STÓRSJÓR og vistaskortur hafa
bundið enda á leitina að Titanic
að sinni en gert er ráð fyrir, að
hafist verði handa við hana að
nýju næsta sumar. Að sögn
áhafnarinnar á leitarskipinu
H.W. Fay hefur hún fundið hlut á
hafsbotni, sem er „sá sami á
lengd. breidd og hæð og Titanic“.
Við leitina að Titanic var notað-
ur sleði búinn næmum mælitækj-
um og var hann dreginn á eftir
skipinu í um 200 m fjarlægð frá
botni. Þrír stórir hlutir komu
fram á mælitækjunum, tveir
reyndust vera mikil björg en sá
þriðji virðist koma heim og saman
við útlit Titanics. Fyrirhugað var
að senda niður sjónvarps- og
ljósmyndavélar til að taka myndir
af hlutunum en vont veður og
3—4ra metra ölduhæð kom i veg
fyrir það.
Jack Grimm, olíukóngurinn frá
Texas, sem stendur straum af
leitinni, hyggst gera út annan
leiðangur næsta sumar og verður
hann búinn litlum, sjö-manna
kafbát, sem farið verður á niður
að skipinu.
Carter
vinnur á
New Vork. 16. áxúst. AP.
JIMMY Carter forseti hefur aukið
fylgi sitt í kjölfar landsþings
demókrata samkvæmt skoðana-
könnun AP og NBC. Samkvæmt
könnuninni styðja 39% Ronald
Reagan, 32% Carter og 13% John
Anderson. Samkvæmt könnun AP
og NBC fyrir hálfum mánuði
studdu 47% Reagan, 22% Carter
og 15% Anderson.