Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980 21 Jenný Sðrheller, flugfreyja „Fjárhagsleg af- koma hundruða heimila í hættu“ Flugumsjónin í Kefla- vík flutt til Rvíkur - segir Jenný Sör- heller, flugfreyja „ÞAÐ bíða allir eftir því hvað kemur út úr ráðherraviðræðunum við Luxemborgarmenn í næstu viku og eins eftir því hvort þessar upsagnir eru ólöglegar eða ekki,“ sagði Jenný Sörheller flugfreyja. Hún var að koma úr flugi frá Glasgow og Kaupmannahöfn þeg- ar Morgunblaðsmenn ræddu við hana um borð í einni af Boeing 727 þotum Flugleiða á Keflavíkur- flugvelli í gærdag. Jenný sagði að mikill ótti og uggur væri í starfsfólkinu varð- andi framtíðina, sem væri ákaf- lega óviss. Þar væri mikið í húfi, svo sem fjárhagsleg afkoma hundruða heimila og ekki glæsi- legar horfur um störf handa öllu þessu fólki. Öllum flugfreyjum Flugleiða hefur verið sagt upp, alls um 160 talsins. Þar af hætta 30 fyrsta október. „Við lítum þetta ákaflega alvarlegum augum þar sem öllum hefur verið sagt upp og leggjum áherslu á að sameigin- legur starfsaldurslisti verði látinn ráða varðandi uppsagnirnar svo sem hingað til hefur verið gert. Það er mjög alvarlegt að aliur þessi hópur verði látinn koma á vinnumarkaðinn í einu á svo stuttu tímabili, eins og atvinnu- horfurnar eru, en málin eru öll í mikilli óvissu og erfitt að átta sig á hver framvindan verður," sagði Jenný Sörheller. AÐSETUR flugumsjónar Flugleiða á Keflavíkurflugvelli er á efri hæð flugstöðvarbyggingarinnar og er þar jafnan erill mikill, símar og radíótæki kalla og flugmenn koma við og taka nauðsynleg gögn og upplýsingar áður en flug er hafið. Þarna vinna tveir menn á vöktum og þótt mikið virtist að gera hjá þeim, sífelldar hringingar og amst- ur gáfu þeir sér þó tíma til að spjalla við blaðamenn Mbl. inn á milli. Sögðu þeir að þá stundina væri fremur lítið að gera, ástandið rétt eins og í kirkjugarði, en stund- um gæti hasarinn orðið allmikill. — Þessar uppsagnir gera það að verkum að starfsandinn verður lélegur, að minnsta kosti hjá okkur, enda er ætlunin að leggja flugum- sjón hér niður og sameina hana annarri flugumsjón félagsins á Reykjavíkurflugvelli, sögðu þeir flugumsjónarmenn Goði Sveinsson og Kristbergur Guðjónsson vakt- stjóri. Kristbergur, sem starfað hefur við flug og flugumsjón í yfir 30 ár, sagði að þeir væru nokkrir með áratuga starfsferil, sem sagt hefði verið upp. Þeir væru allir fullfrískir og vel vinnufærir, ekki farnir að tapa niður kunnáttu sinni og ekki fallið úr starfsdagur. — Við erum tiu, sem störfum á vöktum i flugumsjón Flugleiða hér á Keflavíkurflugvelli. Við sem eldri erum í starfi höfum sótt menntun og þjálfun í Bandaríkjunum og höfum því flestir réttindi til starfa þar, en þeir yngri eru flestir aðeins með réttindi hérlendis, segir Krist- bergur. — Okkur er ekki ljóst hvernig hægt verður að þjóna flug- inu ef flugumsjón hér verður lögð niður, en það á eftir að koma í ljós, sögðu þeir félagar. í starfi flugumsjónarmanna felst m.a. að undirbúa hvert flug, taka við upplýsingum um veður á fyrirhug- aðri flugleið, skipuleggja flugáætlun í framhaldi af því, fá upplýsingar um hleðslu og eldsneyti og skrá hvernig því er komið fyrir í vélunum og þar fram eftir götunum. Flug- stjóri fer síðan yfir þessar áætlanir sem flugmennirnir taka með sér ásamt öðrum gögnum, sem flug- umsjónarmenn hafa undirbúið, kortum af flugvöllum o.fl., áður en lagt er í flug. Er því oft sagt sem svo að flugumsjónarmaðurinn sé flug- maðurinn á jörðu niðri, enda ber hann ábyrgð til jafns við flugmann á því að allt sé undirbúið og skráð að reglum. Þar fyrir utan eru flug- umsjónarmenn oft í sambandi við vélarnar þegar þær fara að nálgast landiö, gefa þeim upplýsingar um veður o.fl., um þá fara þau skilaboð sem á þarf að halda og þannig mætti lengi telja. — Hér er mest að gera milli 7 og 9 á morgnana þegar vélarnar eru á förum til Evrópu og Bandaríkjavél- arnar að koma og í eftirmiðdaginn þegar þær eru að koma frá Evrópu og Bandaríkjavélarnar að fara. Á næturnar er yfirleitt rólegt, en þá notum við tímann til að undirbúa morgunflugið. Hins vegar eru vélar Flugleiða ekki þær einu, sem við þjónum, hér fara um SAS vélar og hinar og aðrar vélar erlendra flug- félaga, sem lenda óvænt, og þurfa á þjónustu okkar að halda, upplýsa þeir Kristbergur Guðjónsson og Goði Sveinsson einnig og þótti nú rétt að tefja þá ekki öllu lengur, þar sem búið var að trufla starfsfrið þeirra nóg. Ekki kváðust þeir búast við að geta leitað fyrir sér annars staðar um starf flugumsjónarmanns, hér væri um sérhæft starf að ræða, sem fyrirfyndist ekki hjá öðrum aðilum en millilandaflugfélögum og því óljóst hvað flugumsjónarmenn gætu tekið sér fyrir hendur þegar Flug- leiðum sleppti. Kjartan Norðdahl flugmaður (t.v.) og Bragi Norðdahl flugstjóri. Yonum að sem flest- ir haldi starfinu Stöðugt stríð allt frá sameiningunni FÍA menn kæmust að á henni og Flugleiðir neyddust til að fara að kröfum þeirra. Þeir vilja nú halda sínum hlut þrátt fyrir að samdrátturinn sé á þeirra leið- um, sögðu flugmenn og héldu áfram: — Þeir eru flestir eldri í starfi, en yngstu menn í FÍA og ef litið er á listana kemur í ljós að fyrstu 20 menn, sem þyrfti að segja upp eru frá okkur, menn sem fljúga Fokker og nokkrir á Boeing þotunum. En hvað geta flugfreyjurnar, sem verða að hætta hjá Flugleið- um, farið að gera? — Við höfum fengið atvinnutil- boð hér innanlands, t.d. fiskvinnu bæði á Vestfjörðum og Höfn, sögðu þær. — Sjálfsagt getum við fengið eitthvert starf þegar við göngum héðan út, en það verður ekki flugfreyjustarf. Þá ræddu flugmenn nokkuð um verkefni, sem fengin hafa verið í hendur Arnarflugi: — Við höfum ekki flogið eina einustu sólarlandaferð í allt sumar, Arnarflug hefur annast allt leiguflug fyrir Flugleiðir. Árið 1977 flugum við 111 ferðir á 3 mánuðum og þetta hefur kannski verið kringum 900 tíma vinna á ári, en nú hafa þeir alveg séð um þetta flug. Við teljum að vel hefði mátt skipuleggja flugið þannig að hægt hefði verið að fljúga það á okkar vélum. En hvað tekur við, hvenær búist þið við að frétta af endur- ráðningum? — Það er nú það sem við bíðum öll eftir. Við fréttum yfirleitt fyrst um einhverjar svona að- gerðir í blöðunum og finnst okkur oftast að lítið samband sé haft við okkur starfsmenn, sögðu þau Jón Karl Snorrason, Stefár Gunnarsson, Magnús Jónsson, Inga Eiríksdóttir, Guðrún Clau- sen, Helga Ottósdóttir og Elísa- bet Hannam. - segja Fí A menn — ÞAÐ eru náttúrlega óánægja með þessar uppsagnir og þriggja mánaða uppsagnarfresturinn virð- ist ekki virtur sem skyldi, sögðu þeir Bragi Norðdahl flugstjóri og Kjartan Norðdahl flugmaður er Mbl. spjallaði við þá þegar þeir voru að koma eina ferðina frá Kaupmannahöfn í vikunni á Boeing-727 þotu Flugleiða og eru þeir í Félagi ísl. atvinnuflugmanna. — Við vitum í raun ekkert um það sem gerast kann á næstunni, það mun unnið að útvegun nýrra verkefna og við bíðum í voninni til 1. nóvember, að sem flestir haldi starfi, sögðu þeir einnig. — Við vonum að forráðamenn félagsins geti fljótlega skýrt málin og teljum að fækkað verði um færri menn en talað var um fyrst. Stærsta málið finnst okkur vera það, að láta ekki sætiö handa einhverjum öðrum. Aðferðin við endurráðningarnar er ekki ljós ennþá, en menn myndu ekki fallast á að standa upp einungis til að annar maður komi í sæti þeirra. Sú staða gæti til dæmis komið upp, að aðstoðarflug- menn á Fokker-vélunum þyrftu að víkja fyrir aðstoðarflugmönnum á DC-8 og menn vilja ekki rýma á þann hátt fyrir öðrum. — Þá finnst okkur ekki rétt eins og Loftleiðaflugmenn hafa bent á að samdráttur sé líka í verkefnum Boeing-þotanna þar sem nú er verið að selja tvær þeirra. Sala þeirra nú er að miklu leyti vegna fjármagnsskorts félagsins og sá fjárskortur stafar ekki af öðru en rekstrarerfiðleikum vegna taps á ákveðnum áætlunarleiðum félags- ins. Er sala Boeing-vélanna því óbein afleiðing samdráttarins. — Flugfélög erlendis eru einnig að segja upp flugmönnum og því er mjög óvíst að nokkur fái störf þar, þessi samdráttur er víða fyrir hendi og óvissa í flugmálum hvar- vetna, sögðu þeir að lokum. - segja Loftleiða- flugmenn — STARFSFÓLKIÐ veit í rauninni ekki hvað er að gerast í fyrirtæk- inu núna eða hvað hefur verið að gerast að undanförnu, við höfum ekki verið látnir vita og það má eiginlega segja að við höfum átt von á hverju sem væri síðustu árin og stjórn fyrirtækisins hefur verið í lágmarki, sögðu þeir Pálmi Sig- urðsson flugstjóri og Árni Sigur- bergsson flugmaður á DC—8 þotu, sem var að koma frá Luxemborg er blaðamaður Mbl. ræddi stuttlega við þá og innti þá álits á því sem er að gerast hjá Flugleiðum um þess- ar mundir. — Við höfum engar „patent"— lausnir, en greinilegt er að sam- keppni og olíuverðið eru félaginu erfið og við þá erfiðleika verður að kljást ef halda á uppi samgöngum við landið. Ekki er hægt að kenna neinu einu sérstöku atriði um það hvernig nú er komið fyrir félaginu, en menn vita að allt frá samein- ingu félaganna hefur verið nánast stöðugt stríð, innbyrðis óánægja grafið um sig og sífelldur slagur verið milli stjórnar Flugleiða og starfsfólks. Góður starfsandi er verður að vera fyrir hendi, en það gerist vart þegar þeir sem eiga að stjórna félaginu geta ekki komið fram og fengið starfsfólkið með sér. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér, á vel við í þessu sambandi og við teljum að nú sé mál til komið að leggja niður allar deilur að hugsa um það að koma félaginu á réttan kjöl, kváðu þeir félagar og ræddu síðan um nauðsyn þess að halda áfram Ameríkufluginu: — Ef Flugleiðir hætta flugi til Luxemborgar er ljóst að þeir munu á þeim degi taka við fluginu sjálfir og þá er um leið ljóst að Flugleiðir koma þar ekki við sögu meir. Sennilega hefði átt að vera búið að koma ríkinu meira inn í stjórn Flugleiða, fleiri aðilar og nýir aðilar ættu að koma í stað þeirra sem nú ráða mest ríkjum. Það er djúp lægð sem gengur yfir okkur núna, en vonandi á fyrirtækið eftir að komast fyrir hana. Pálmi Sigurðsson flugstjóri (t.v.) og Árni Sigurbergsson flugmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.