Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980 Forsætisráðherra: Afhenti Kekkonen • • „Oldu aldanna44 I>oir sem hoAuðu til blaðamannafundarins: Eirikur Brynjólfsson kennari, Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur, Pétur Pétursson þulur og Sigurjón Helgason sjúkraliði. Á myndina vantar Hjördísi Hjartardóttur félagsráðgjafa. „Er þetta ríkisstjórn Vinnu veitendasambandsins?“ - spyrja nokkrir opinberir starfsmenn, sem andæfa samkomulagi BSRB NOKKRIR opinberir starfsmenn, sem staðið hafa fyrir andstöðu gegn samningi BSRB-forystunnar við rikisvaldið. efndu til blaðamanna- fundar á Hótel Borg í gær þar sem þeir gerðu grein fyrir afstöðu sinni. Fundarboðendur voru þau Hjördis Iljartardóttir féiagsráðgjafi, Eirikur Brynjólfsson kennari. Ragnar Stef- ánsson jarðskjáiftafræðingur, Sigur- jón Heigason sjúkraliði og Pétur Pétursson þulur. I máli fundarboðenda kom fram, að' með þeim samningi, sem nú hefði verið gerður, væri gengist undir þau lög, sem sett hefðu verið snemma árs 1979 en með þeim væru laun skert reglulega um 2% á þriggja mánaða fresti. Ennfremur sögðu þeir, að sú hækkun, sem boðin væri í neðstu flokkunum, yrði að engu á hálfu ári og hyrfi raunar fyrr í miðflokkunum. Eftir það yrði samkomulagið hreint kauplækk- unarsamkomulag vegna fyrrnefndra vísitöluákvæða. Á þessu væri þó sú undantekning, að laun í efstu flokkun- um hækkuðu með alls konar laumu- spili. Þeir félagar sögðu, að barátta þeirra snerist ekki í raun um grunnkaups- hækkanir, heidur um það, að því yrði skilað, sem af þeim hefði verið tekið. Með öðrum orðum: Samningana í gildi. Þá væri ekki hvað síst ástæða til að mótmæla aðferðum forystumanna BSRB þar sem í hverri blaðagreininni á fætur annarri væri veist með ókvæðisorðum að aimennum félögum samtakanna, sem andvígir væru sam- komulaginu, og þeir kallaðir „sundr- ungarmenn". Þegar spurt var um hverja fundar- boðendur teldu ástæðurnar vera fyrir því, að BSRB-forystan, sem hefði lagt upp með miklar launakröfur, 19—37%, sætti sig nú við fimm prósentin, sögðu þeir, að fyrir því væru vafalaust margar ástæður enda ýmsu borið við. Sagt væri, að allir stjórnmálaflokkar væru einhuga um að ekki mætti koma til grunnkaupshækkana og hitt væri líka jafn víst að afstaðan til ríkis- stjórnarinnar réði ekki minna. Pétur Pétursson vakti þá athygli á því, að í viðtali við Harald Steinþórsson í Alþýðublaðinu fyrir skömmu hefði hann sagt, að þeir hjá BSRB teldu, að vel væri hægt að hækka grunnkaupið meira, en við núverandi aðstæður teldu þeir, að verkfallsvopnið skilaði ekki meiru. „Hvernig veit hann það?“ spurði Pétur. Þeir félagar sögðu, að sannleikurinn væri, að afstaða ríkis- stjórnarinnar væri sú, að BSRB-samkomulagið ætti að vera for- dæmi fyrir öðrum samningum á vinnumarkaðinum. „Það má því spyrja," sögðu þeir, „er þetta ríkis- stjórn vinnuveitendasambandsins?" Þegar talið barst að því hvort fundarboðendur teldu líklegt að sam- komulagið yrði fellt í allsherjarat- kvæðagreiðslunni, sögðust þeir ekki vilja leggja mat sitt á það. Hitt væri þó Ijóst, að uppgjafarandinn væri allt of útbreiddur í röðum forystumanna og mörgum fyndist sem þeir ættu allt sitt undir náð og miskunn yfirvalda. Þar mætti m.a. því um kenna hvernig haldið hefði verið á málum. Ekkert væri gert til að bæta fólki kjaraskerð- ingar síðustu tveggja ára, aðeins hopað á hæl og gefist upp. Ef þetta samkomulag verður fellt, sögðu þeir, má ef til vill endurvekja þá trú hins almenna félagsmanns, að hann geti nokkru ráðið um sín eigin kjör. Fundarboðendur vildu taka það fram, að þeir teldu það ekki sjálfgefið, að til verkfalls kæmi þó að samkomu- lagið yrði fellt. Þeir sögðust vera fylgjandi félagslegum umbótum en Árlegir merkjasöludagar Hjálpræðishersins hófust í gær og halda áfram í dag, föstudaginn og á laugardag- inn. Merkin eru seld víða um land til styrktar starfi hers- VIÐ ATHÖFN í forsetahöllinni í Ilelsingfors í gær i tilefni af áttræðis afmæli Uhro Kekkonen forseta Finnlands, flutti Gunn- ar Thoroddsen, forsætisráð- herra honum árnaðaróskir rík- isstjórnar íslands og islensku þjóðarinnar og færði forsetan- um að gjöf afsteypu af verki Einars Jónssonar „Öldu ald- anna.“ „Frétt frá forsætisráðuneytinu segir að forsætisráðherra hafi í ræðu sinni lokið lofsorði „á vitur- iega forustu forsetans í málefnum Finnlands, hið heimsögulega framlag hans til friðar og öryggis og hlut hans í norrænni sam- vinnu". þær nægðu þó ekki einar sér. Það er líka fáránlegt, sem haft hefur verið eftir sáttasemjara, að hann verði að taka aftur tilboð ríkisins um félags- málapakkann ef samkomulagið verður fellt. Það er bara „ríkisstjórn hinna vinnandi stétta" að hóta félagsmönn- um BSRB, sögðu þeir félagar að lokum. - segir Steinn Lár- usson um óvissuna um framtið Atlants- hafsflugsins „ÞESvSI mál hafa lítil áhrif á vetraráætiunina hjá okkur. og hún mun verða svipuð næsta vetur og undanfarin ár, nema hvað óvissa er með Luxemburg og á hvaða dögum flogið verður til New York“ sagði Steinn Lár- usson formaður Félags ferða- skrifstofueigenda i samtali við Morgunblaðið i gær. ins hér á landi. Meðfylgjandi mynd tók Kristján ljós- myndari Mbl. í Austurstræti í gær en þar voru seld merki Hjálpræðishersins. Þá flutti forsætisráðherra hon- um þakkir fyrir vináttu hans og tryggð í garð íslensku þjóðarinn- ar. I fylgd með forsætisráðherra voru Guðmundur Benediktsscn, ráðuneytisstjóri og Ingvi S. Ingv- arsson, sendiherra. Arnarflug hefur áætlunarflug til Grundarfjarðar ARNARFLUG mun á morgun hefja áætlunarflug til Grundar- fjarðar og verður flogið þang- að þriðjudaga. fimmtudaga og föstudaga frá Reykjavík kl. 10 árdegis. Brátt er ár liðið frá því Arnarflug hóf reglubundið áætlunarflug til Stykkishólms og Rifs og segir í frétt frá Arnarflugi að reynslan hafi sýnt aukið traust ibúanna á flugsamgöngum og sé þessi nýi áfangastaður bein afleiðing þess. Þá segir í frétt Arnarflugs, að í sumar hafi fyrirtækið staðið fyrir all ítarlegri þjónustukönn- un meðal íbúa þeirra staða, sem nú séu í reglubundnu sambandi við Reykjavík. Sé nú verið að vinna úr svörum og eigi að taka tillit til óska íbúanna við gerð vetraráætlunar félagsins. Steinn var að því spurður, hvaða áhrif óvissan um framtíð Atlants- hafsflugs Flugleiða hf, hefði á rekstur islenskra ferðaskrifstofa. Steinn sagði, að ferðamanna- straumur hefði aldrei verið frá íslandi til Luxemborgar, og því hefði það mál lítil áhrif. Annað mál væri ef til vill með ferða- mannastrauminn hingað til lands næsta sumar. „Um það er hins vegar ekki unnt að fullyrða neitt enn sem komið er,“ sagði Steinn að lokum, „en við fylgjumst að sjálfsögðu með framvindu þessara mála eins og aðrir." Fyrsta síldin á haustinu sölt- uð á Eskifirði KskifirÖi, 3. september. FYRSTA síldin á haustinu var söltuð hér á Eskifirði um helgina, en þá voru saltaðar 200 tunnur hjá Sæbergi hf. Þórir SF kom með síldina, sem fékkst á Vopnafirði. í gær kom Freyr SF síðan með 200 tunnur og Þórir aftur með 400 tunnur, sem saltaðar voru hjá sölt- unarstöðvunum Sæbergi og Auð- björgu. Þrjár stöðvar munu taka á móti síld hér í haust, söltunarstöð Friðþjófs hf. auk hinna fyrrnefndu. Allmikil síld hefur veiðst í lagnet hjá minni bátum hér inni á Reyðar- firði og Eskifirði og hefur hún öll verið fryst. — Ævar. Leiðrétting frá Þjóðleikhúsinu I fréttum af blaðamannafundi um verkefni Þjóðleikhússins á vetri komanda virðist hafa misskilist, að því hafi verið haldið fram að óperan La Bohéme hafi aldrei verið flutt i Þjóðleikhúsinu áður, þá er það ekki rétt. Hún hefur hins vegar aldrei verið flutt af Þjóðleikhúsinu. Félag einsöngvara stóð fyrir ágætri sýningu á La Bohéme fyrir 25 árum, og fóru þær fram í Þjóðleikhúsinu. (Fréttatilkynninx Irá ÞjóðlcikhÚHÍnu). Einar S. Einarsson: Lágt lagst í sambandi við deilurnar um formannsembættið i Skáksam- bandi Norðurlanda. vílaði tals- maður stjórnar Skáksambands íslands. Þorsteinn Þorsteins- son, ekki fyrir sér að breyta frá fyrri þýðingu og rangþýða eina málsgrein i lögum SN, til að hleypa betri stoðum undir skoð- un málflutning sinn. samanber hér að neðan: Frumtexti. STADGAR för Nordiska Schackförbundet .t mom. Ordförandtf i styrdvcn ár tfn ay lcdamöterna fran Utft land som náMa gang 'kall anordna den nordiska schackturnc- ringtfii. Vtfdcrhorandc mtfdlermförhund \ál- ,jcr (»rtlföramlcö. Skiflc pn ordforandtfposU’n sktfr cftcr avxltiiundtft av dcn ukuitfll.i tur iu*ruigcn och tffier utt hc?tlul har faitats om vilket mtfvlltfmsförbund som skall arran- gcra nasta tiirnenng. „Rétt“ eldri þýðing. Forseti sambandsins er annar stjórnmannanna frá því landi, sem heldur næsta Norðurlanda- mót í skák. Viðkomandi aðildar- samband tilnefnir forsetann. Forsetaskipti fara fram þá er mótinu sjálfu er lokið og eftir að ákveðið hefur verið, hvaða aðild- arsamband skuli halda næsta mót. „Röng“ breytt þýðing send Mbl. af Þorsteini Þorsteinssyni f.h. stjórnar S.f. LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980 3. Stjórnarformaður cr annar fulltrúa þess lands, er næst heldur Norður- landamót í skák. Viökomandi aðild- arskáksamhand vclur stjórnarfor- manninn Tilfærsla á emhgttu stjómarformanns á scr stað að loknu NnrðurlandasJtákmótinu.’þcg- ar fyrir liggur ákvöröun um, hvaöa skáksamhand heidur næsta mót. Þá er meirihluti stjórnar Skáksambands íslands, hafnaði birtingu kveðju frá mér í móts- skrá Norðurlandamóts Grunn- skóla nú fyrir skömmu, var ég enn viðurkenndur stjórnarfor- maður Skáksambands Norður- landa, skv. þeirra eigin túlkun- um. Það var ekki fyrr en um viku seinna, sem stjórn S.í. ákvaö að skipa Dr. Ingimar Jónsson, í embættið, upp á sitt eindæmi. Því er ljóst að með því að neita birtingu umræddrar kveðju, braut stjórn Skáksambands Is- lands lög á mér. Blómasöludagar Hjálpræðishersins Hefur lítil áhrif á vetraráætlanirnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.