Morgunblaðið - 04.09.1980, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
Forsætisráðherra:
Afhenti Kekkonen
• •
„Oldu aldanna44
I>oir sem hoAuðu til blaðamannafundarins: Eirikur Brynjólfsson kennari, Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur, Pétur Pétursson þulur og Sigurjón Helgason sjúkraliði. Á myndina vantar Hjördísi
Hjartardóttur félagsráðgjafa.
„Er þetta ríkisstjórn Vinnu
veitendasambandsins?“
- spyrja nokkrir opinberir starfsmenn,
sem andæfa samkomulagi BSRB
NOKKRIR opinberir starfsmenn,
sem staðið hafa fyrir andstöðu gegn
samningi BSRB-forystunnar við
rikisvaldið. efndu til blaðamanna-
fundar á Hótel Borg í gær þar sem
þeir gerðu grein fyrir afstöðu sinni.
Fundarboðendur voru þau Hjördis
Iljartardóttir féiagsráðgjafi, Eirikur
Brynjólfsson kennari. Ragnar Stef-
ánsson jarðskjáiftafræðingur, Sigur-
jón Heigason sjúkraliði og Pétur
Pétursson þulur.
I máli fundarboðenda kom fram, að'
með þeim samningi, sem nú hefði verið
gerður, væri gengist undir þau lög,
sem sett hefðu verið snemma árs 1979
en með þeim væru laun skert reglulega
um 2% á þriggja mánaða fresti.
Ennfremur sögðu þeir, að sú hækkun,
sem boðin væri í neðstu flokkunum,
yrði að engu á hálfu ári og hyrfi
raunar fyrr í miðflokkunum. Eftir það
yrði samkomulagið hreint kauplækk-
unarsamkomulag vegna fyrrnefndra
vísitöluákvæða. Á þessu væri þó sú
undantekning, að laun í efstu flokkun-
um hækkuðu með alls konar laumu-
spili.
Þeir félagar sögðu, að barátta þeirra
snerist ekki í raun um grunnkaups-
hækkanir, heidur um það, að því yrði
skilað, sem af þeim hefði verið tekið.
Með öðrum orðum: Samningana í gildi.
Þá væri ekki hvað síst ástæða til að
mótmæla aðferðum forystumanna
BSRB þar sem í hverri blaðagreininni
á fætur annarri væri veist með
ókvæðisorðum að aimennum félögum
samtakanna, sem andvígir væru sam-
komulaginu, og þeir kallaðir „sundr-
ungarmenn".
Þegar spurt var um hverja fundar-
boðendur teldu ástæðurnar vera fyrir
því, að BSRB-forystan, sem hefði lagt
upp með miklar launakröfur, 19—37%,
sætti sig nú við fimm prósentin, sögðu
þeir, að fyrir því væru vafalaust
margar ástæður enda ýmsu borið við.
Sagt væri, að allir stjórnmálaflokkar
væru einhuga um að ekki mætti koma
til grunnkaupshækkana og hitt væri
líka jafn víst að afstaðan til ríkis-
stjórnarinnar réði ekki minna. Pétur
Pétursson vakti þá athygli á því, að í
viðtali við Harald Steinþórsson í
Alþýðublaðinu fyrir skömmu hefði
hann sagt, að þeir hjá BSRB teldu, að
vel væri hægt að hækka grunnkaupið
meira, en við núverandi aðstæður
teldu þeir, að verkfallsvopnið skilaði
ekki meiru. „Hvernig veit hann það?“
spurði Pétur. Þeir félagar sögðu, að
sannleikurinn væri, að afstaða ríkis-
stjórnarinnar væri sú, að
BSRB-samkomulagið ætti að vera for-
dæmi fyrir öðrum samningum á
vinnumarkaðinum. „Það má því
spyrja," sögðu þeir, „er þetta ríkis-
stjórn vinnuveitendasambandsins?"
Þegar talið barst að því hvort
fundarboðendur teldu líklegt að sam-
komulagið yrði fellt í allsherjarat-
kvæðagreiðslunni, sögðust þeir ekki
vilja leggja mat sitt á það. Hitt væri
þó Ijóst, að uppgjafarandinn væri allt
of útbreiddur í röðum forystumanna
og mörgum fyndist sem þeir ættu allt
sitt undir náð og miskunn yfirvalda.
Þar mætti m.a. því um kenna hvernig
haldið hefði verið á málum. Ekkert
væri gert til að bæta fólki kjaraskerð-
ingar síðustu tveggja ára, aðeins
hopað á hæl og gefist upp. Ef þetta
samkomulag verður fellt, sögðu þeir,
má ef til vill endurvekja þá trú hins
almenna félagsmanns, að hann geti
nokkru ráðið um sín eigin kjör.
Fundarboðendur vildu taka það
fram, að þeir teldu það ekki sjálfgefið,
að til verkfalls kæmi þó að samkomu-
lagið yrði fellt. Þeir sögðust vera
fylgjandi félagslegum umbótum en
Árlegir merkjasöludagar
Hjálpræðishersins hófust í
gær og halda áfram í dag,
föstudaginn og á laugardag-
inn. Merkin eru seld víða um
land til styrktar starfi hers-
VIÐ ATHÖFN í forsetahöllinni í
Ilelsingfors í gær i tilefni af
áttræðis afmæli Uhro Kekkonen
forseta Finnlands, flutti Gunn-
ar Thoroddsen, forsætisráð-
herra honum árnaðaróskir rík-
isstjórnar íslands og islensku
þjóðarinnar og færði forsetan-
um að gjöf afsteypu af verki
Einars Jónssonar „Öldu ald-
anna.“
„Frétt frá forsætisráðuneytinu
segir að forsætisráðherra hafi í
ræðu sinni lokið lofsorði „á vitur-
iega forustu forsetans í málefnum
Finnlands, hið heimsögulega
framlag hans til friðar og öryggis
og hlut hans í norrænni sam-
vinnu".
þær nægðu þó ekki einar sér. Það er
líka fáránlegt, sem haft hefur verið
eftir sáttasemjara, að hann verði að
taka aftur tilboð ríkisins um félags-
málapakkann ef samkomulagið verður
fellt. Það er bara „ríkisstjórn hinna
vinnandi stétta" að hóta félagsmönn-
um BSRB, sögðu þeir félagar að lokum.
- segir Steinn Lár-
usson um óvissuna
um framtið Atlants-
hafsflugsins
„ÞESvSI mál hafa lítil áhrif á
vetraráætiunina hjá okkur. og
hún mun verða svipuð næsta
vetur og undanfarin ár, nema
hvað óvissa er með Luxemburg
og á hvaða dögum flogið verður
til New York“ sagði Steinn Lár-
usson formaður Félags ferða-
skrifstofueigenda i samtali við
Morgunblaðið i gær.
ins hér á landi. Meðfylgjandi
mynd tók Kristján ljós-
myndari Mbl. í Austurstræti
í gær en þar voru seld merki
Hjálpræðishersins.
Þá flutti forsætisráðherra hon-
um þakkir fyrir vináttu hans og
tryggð í garð íslensku þjóðarinn-
ar.
I fylgd með forsætisráðherra
voru Guðmundur Benediktsscn,
ráðuneytisstjóri og Ingvi S. Ingv-
arsson, sendiherra.
Arnarflug hefur
áætlunarflug til
Grundarfjarðar
ARNARFLUG mun á morgun
hefja áætlunarflug til Grundar-
fjarðar og verður flogið þang-
að þriðjudaga. fimmtudaga og
föstudaga frá Reykjavík kl. 10
árdegis. Brátt er ár liðið frá
því Arnarflug hóf reglubundið
áætlunarflug til Stykkishólms
og Rifs og segir í frétt frá
Arnarflugi að reynslan hafi
sýnt aukið traust ibúanna á
flugsamgöngum og sé þessi nýi
áfangastaður bein afleiðing
þess.
Þá segir í frétt Arnarflugs, að
í sumar hafi fyrirtækið staðið
fyrir all ítarlegri þjónustukönn-
un meðal íbúa þeirra staða, sem
nú séu í reglubundnu sambandi
við Reykjavík. Sé nú verið að
vinna úr svörum og eigi að taka
tillit til óska íbúanna við gerð
vetraráætlunar félagsins.
Steinn var að því spurður, hvaða
áhrif óvissan um framtíð Atlants-
hafsflugs Flugleiða hf, hefði á
rekstur islenskra ferðaskrifstofa.
Steinn sagði, að ferðamanna-
straumur hefði aldrei verið frá
íslandi til Luxemborgar, og því
hefði það mál lítil áhrif. Annað
mál væri ef til vill með ferða-
mannastrauminn hingað til lands
næsta sumar. „Um það er hins
vegar ekki unnt að fullyrða neitt
enn sem komið er,“ sagði Steinn
að lokum, „en við fylgjumst að
sjálfsögðu með framvindu þessara
mála eins og aðrir."
Fyrsta síldin
á haustinu sölt-
uð á Eskifirði
KskifirÖi, 3. september.
FYRSTA síldin á haustinu var
söltuð hér á Eskifirði um helgina, en
þá voru saltaðar 200 tunnur hjá
Sæbergi hf. Þórir SF kom með
síldina, sem fékkst á Vopnafirði. í
gær kom Freyr SF síðan með 200
tunnur og Þórir aftur með 400
tunnur, sem saltaðar voru hjá sölt-
unarstöðvunum Sæbergi og Auð-
björgu. Þrjár stöðvar munu taka á
móti síld hér í haust, söltunarstöð
Friðþjófs hf. auk hinna fyrrnefndu.
Allmikil síld hefur veiðst í lagnet
hjá minni bátum hér inni á Reyðar-
firði og Eskifirði og hefur hún öll
verið fryst. — Ævar.
Leiðrétting frá
Þjóðleikhúsinu
I fréttum af blaðamannafundi
um verkefni Þjóðleikhússins á vetri
komanda virðist hafa misskilist, að
því hafi verið haldið fram að
óperan La Bohéme hafi aldrei verið
flutt i Þjóðleikhúsinu áður, þá er
það ekki rétt. Hún hefur hins vegar
aldrei verið flutt af Þjóðleikhúsinu.
Félag einsöngvara stóð fyrir
ágætri sýningu á La Bohéme fyrir
25 árum, og fóru þær fram í
Þjóðleikhúsinu.
(Fréttatilkynninx Irá ÞjóðlcikhÚHÍnu).
Einar S. Einarsson:
Lágt lagst
í sambandi við deilurnar um
formannsembættið i Skáksam-
bandi Norðurlanda. vílaði tals-
maður stjórnar Skáksambands
íslands. Þorsteinn Þorsteins-
son, ekki fyrir sér að breyta frá
fyrri þýðingu og rangþýða eina
málsgrein i lögum SN, til að
hleypa betri stoðum undir skoð-
un málflutning sinn. samanber
hér að neðan:
Frumtexti.
STADGAR
för
Nordiska Schackförbundet
.t mom. Ordförandtf i styrdvcn ár tfn ay
lcdamöterna fran Utft land som náMa gang
'kall anordna den nordiska schackturnc-
ringtfii. Vtfdcrhorandc mtfdlermförhund \ál-
,jcr (»rtlföramlcö. Skiflc pn ordforandtfposU’n
sktfr cftcr avxltiiundtft av dcn ukuitfll.i tur
iu*ruigcn och tffier utt hc?tlul har faitats om
vilket mtfvlltfmsförbund som skall arran-
gcra nasta tiirnenng.
„Rétt“ eldri þýðing.
Forseti sambandsins er annar
stjórnmannanna frá því landi,
sem heldur næsta Norðurlanda-
mót í skák. Viðkomandi aðildar-
samband tilnefnir forsetann.
Forsetaskipti fara fram þá er
mótinu sjálfu er lokið og eftir að
ákveðið hefur verið, hvaða aðild-
arsamband skuli halda næsta
mót.
„Röng“ breytt þýðing send Mbl.
af Þorsteini Þorsteinssyni f.h.
stjórnar S.f.
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
3. Stjórnarformaður cr annar fulltrúa
þess lands, er næst heldur Norður-
landamót í skák. Viökomandi aðild-
arskáksamhand vclur stjórnarfor-
manninn Tilfærsla á emhgttu
stjómarformanns á scr stað að
loknu NnrðurlandasJtákmótinu.’þcg-
ar fyrir liggur ákvöröun um, hvaöa
skáksamhand heidur næsta mót.
Þá er meirihluti stjórnar
Skáksambands íslands, hafnaði
birtingu kveðju frá mér í móts-
skrá Norðurlandamóts Grunn-
skóla nú fyrir skömmu, var ég
enn viðurkenndur stjórnarfor-
maður Skáksambands Norður-
landa, skv. þeirra eigin túlkun-
um.
Það var ekki fyrr en um viku
seinna, sem stjórn S.í. ákvaö að
skipa Dr. Ingimar Jónsson, í
embættið, upp á sitt eindæmi.
Því er ljóst að með því að neita
birtingu umræddrar kveðju,
braut stjórn Skáksambands Is-
lands lög á mér.
Blómasöludagar
Hjálpræðishersins
Hefur lítil áhrif á
vetraráætlanirnar