Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980 Haukur Sævaldsson, verkfræðingur: Stóriðja og gæluverkef ni Inngangur I ritstjórnargrein nýlega beinir Morgunblaðið spjótum sínum að iðnaðarráðherra. Spjótalögin beinast einkum að áhugaleysi hans fyrir stóriðjuframkvæmdum annarsvegar en hinsvegar að ým- iss konar gæluverkefni eigi allan forgang, verkefni sem séu áhættu- söm tilraunaverkefni. Tilnefnir blaðið þar sérstaklega „Essin fjög- ur“ (Saltverksmiðja, Sykurverk- smiðja, Steinullarverksmiðja og Stálbræðsla). Höfundur þessarar greinar er ekki kunnugur stjóriðjumálum al- mennt og þeim tengdum orku- framkvæmdum eða þremur „Ess- anna“ en einu þeirra, þ.e.a.s. Stálbræðslunni er ég mjög vel kunnugur, og er fyrirlitningin í skrifum Mbl. um þetta gæluverk- efni hvatinn að þessum skrifum. Forsagan Það var einmitt í Mbl. fyrir u.þ.b. tíu árum að ég fékk birta grein um þá verðmætasóun er meðhöndlun íslendinga á brota- járni er. Sú grein var meðal annars hvati að stofnun Stálfé- lagsins hf. í nóvember 1970, þegar rúmlega sextíu einstaklingar lögðu fram hver tíu þúsund krón- ur (þó nokkrir meira eða allt að þrjátíu þúsund krónur). Verkefni þess var að standa straum af kostnaði vegna gaumgæfilegrar athugunar á því hvort grundvöllur væri fyrir hagnýtingu innlends brotajárns og framleiða úr því steypustyrktarstál fyrir innan- landsmarkað. Þessir einstaklingar höfðu trú á framtíð íslensks iðn- aðar og tóku alvariega hástemmd- ar skálaræður stjórnmálamanna um nauðsyn átaks til uppbygg- ingar á iðnaði, en um það leyti komust þessar skálaræður í tísku og hafa tollað í henni síðan. Hefðu þessir einstaklingar keyþt þá fyrir þessar tíu þúsund krónur ríkis- tryggð skuldabréf væri andvirði þeirra nú rúmlega þrjúhundruð og sextíu þúsund krónur. Stálfélagið lauk sínum athugun- um á miðju ári 1971 og varð niðurstaðan sú að hagkvæmt væri að reisa hér litla verksmiðju er sæi landsmönnum fyrir steypu- styrktarstáli til allrar mannvirkjagerðar. Var gefinn út mjög viðamikill bæklingur um málið og hann afhentur hinum nýstofnaða Norræna iðnþróun- arsjóði til umfjöllunar. Baráttan Ég mun nú freista þess að rifja upp í allra stærstu atriðum þá málsmeðferð sem Stálfélagið hef- ur fengið hjá iðnaðarráðuneyti og iðnþróunarsjóði. Ekki verða hér tíundaðar hinar fjölmörgu heim- sóknir til ráðherra og embætt- ismanna ráðuneytanna né ótelj- andi símtöl við hina og þessa minni spámenn kerfisins. Fullyrða má að þessi samskipti hafi ein- kennst af mjög miklum seinagangi og áhugaleysi, þar til núverandi iðnaðarráðherra tók við embætti. Það tók Iðnþróunarsjóð eitt ár að hafna hugmyndinni um rekstur stálverksmiðju. Sumar forsendur synjunarinnar hefðu nægt til þess að leggja stáliðnað allrar heims- byggðarinnar algerlega í rúst. Því næst voru áætlanirnar um mitt ár 1973 afhentar Þjóðhagsstofnun til yfirferðar, að undirlagi þáverandi iðnaðarráðherra, Magnúsar Kjartanssonar. Skilaði hún, í júli 1974, mjög jákvæðri niðurstöðu. Eftir stjórnarskipti 1974 var mál- ið tekið upp við hinn nýja iðnað- arráðherra, Gunnar Thoroddsen. Leiddi það til þess að Þóðhags- stofnun fór á nýjan leik yfir áætlanirnar eftir að Stálfélagið hafði fengið nýtt tilboð í tækjab- únað. í maí 1975 sendi Stálfélagið bréf til iðnaðarráðuneytis, þar sem farið var fram á ríkisábyrgð fyrir 75% af stofnkostnaði. Fyrr- ipart árs 1976 sendi iðnaðarráðun eytið málið til umfjöllunar í fjár- málaráðuneytið. í maí 1976 vísar það málinu aftur til iðnaðarráðun- eytisins vegna ónógra upplýsinga ásamt fjölda fyrirspurna. Iðnað- arráðuneytið sendi málið aftur til fjármálaráðuneytisins í ágúst 1976. Til þess að herða á málinu, fóru Stálfélagsmenn á fund for- sætisráðherra og að hans undir- lagi var Þjóðhagsstofnun falið að yfirfara dæmið í þriðja sinn og barst niðurstaða hennar mjög fljótt eða í október 1976 og með sömu jákvæðu útkomu og áður. I kjölfar þessarar þriðju yfirferðar Þjóðhagsstofnunar fór iðnaðar- ráðuneytið fram á það við fjármálaráðuneytið að ríkis- ábyrgð vegna Stálfélagsins yrði tekin upp í fjárlögum 1977. Neitun fjármálaráðuneytisins barst fyrst í júní 1977. Vegna eftirgangssemi Stálfélagsins voru því tilkynntar þessar niðurstöður í september 1977 án þess að nokkur afstaða væri tekin til synjunarinnar af hálfu iðnaðarráðuneytisins. Stálfélagsmenn fóru fljótlega eftir embættistöku núverandi iðn- aðarráðherra á fund hans. Eftir að hann hafði kynnt sér málið gaumgæfilega sumarið 1979, ákvað hann að láta kanna eins rækilega og tök væru á, tilfallandi brotajárnsmagn og í framhaldi af því var skipuð verkefnisstjórn. Mikil og blómleg starfsemi hjá Fáki Reiðskólinn í Saltvík á Kjal- arnesi hefur verið starfræktur í sumar í samvinnu við Æsku- lýðsráð og í vetur var einnig rekinn skóli frá neðri hesthús- um Fáks og var aðsókn svo mikil, að ekki var unnt að anna eftirspurn. Auk firmakeppninnar voru haldin tvö mót í vor og var þar í FRÉTTABRÉFI, sem Hesta- mannafélgið Fákur hefur sent frá sér, segir, að um 500 hross hafi verið á fóðrum hjá félag- inu í vetur og auk þess 70 á Ragnheiðarstöðum. Félagið rak tamningastöð frá janúar til júníloka og varð aðsókn að henni mjög mikil. Fákur hefur nú aðgang að 13 heitarlöndum sem flest eru í nágrenni Reykjavíkur. Vegna áburðar- gjafar og kostnaðar við girð- ingar hefur beitarkostnaður aukist verulega. Á síðasta ári keypti F’ákur jörðina Ragnheiðarstaæði í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa og hefur verið hafist handa við framkvæmdir á jörðinni og endurbætur á húsum. Borinn var áburður á landið og sáð grasfræi og var það gert í samvinnu við Landgræðslu rík- isins. Stjórn Fáks kann sand- græðslustjóra miklar þakkir fyrir góða samvinnu í þeim málum. Ragnheiðarstaðir eru um það bil 850 hektarar að stærð. Núverandi stjórn Hestamannafélagsins Fáks fitjað upp á ýmsum nýmælum. Notaðir voru rásbásar, sem fé- lagið lét smíða, og er það í fyrsta sinn sem þeir eru notaðir hér á landi. íþróttadeild Fáks starfaði vel og tók m.a. þátt í íslandsmóti í hestaíþróttum og stóð fyrir námskeiðum. Fjáröfl- unardeildir félagsins unnu ötult starf. Kvennadeildin sá um hlaðborðin vinsælu og happ- drættið, og karladeildin stóð fyrir firmakeppni. Hestamannafélagið Fákur fagnar því að Skipulag ríkisins hefur ráðið Einar E. Guð- mundsson til að gera tillögur um reiðleiðir á Stór-Reykjavík- ursvæðinu og tengivegi milli hestamannafélaganna. Stjórn Fáks hefur mikinn áhuga á að ?era verði göng undir veginn við Rauðavatn enda er slysahætta iar mikil. í tilefni af ári trésins lafa Fáksfélagar plantað 4000 ;rjám í reit félagsins við Elliða- ír. í fréttabréfi Fáks er að síð- istu skorað á alla félaga að ?anga vel um beitarlöndin og jnnars staðar þar sem þeir eru i ferð. Athygli er vakin á því að íheimilt er að taka hesta úr beitarlöndum eftir 30. septem- ber nema haft sé samband við jkrifstofuna og að síðustu eru hestamenn hvattir til að ríða ivallt á hægri vegarkanti og víkja vel fyrir akandi umferð. I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.