Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
36
Kartöflur og
agúrkur í salati
750 gr.—1 k)?. kartöflur,
Vt anúrka,
Vi bolli af majones,
salt, pipar,
2—3 matsk. sinnep,
1—2 matsk. saxað persille.
Kartöflurnar soðnar hýðislausar, skornar í sneiðar
og kældar. Agúrkan skorin í bita og blandað saman við
kartöflurnar. Kryddi og mjólk blandað saman við
majonesið og sett yfir kartöflurnar um leið og á að
neyta þeirra. Skreytt með persille.
Þegar þurrka
þarf gúmmí-
stígvél
Það er ekki auðvelt að
þurrka mörg pör af gúmmí-
stígvélum, sjaldnast eru
hitarör til að setja nema eins
og eitt par á. Gott er að vöðla
saman dagblöðum og stinga
inn í hvert stígvél, þá haldast
þau upprétt, blöðin draga í
sig raka og flýta þurrkun.
Ágætt ráð til að láta stígvél
standa, í staðinn fyrir að
bögglast niður á gólf —
þannig fer meira fyrir þeim
— er að láta stóra klemmu á
hvert par. Sjá mynd.
Til að
mýkja
hendurnar
Það leynist ýmislegt í eld-
húsinu, sem nota má sem
fegrunarlyf eins og áður hef-
ur verið minnst á. Það er
gott að ná sterkri matarlykt
af höndum með sítrónusafa,
einnig þeim ummerkjum sem
stundum koma á hendur þeg-
ar grænmeti er hreinsað. En
sítrónan er til fleiri hluta
nytsamleg, hún mýkir hend-
urnar ef daglega er nuddað
safa inn í húðina. Jafnfiamt
er mælt með að bera eggja-
hvítu á hendurnar einu sinni
til tvisvar í viku.
Það þarf
að hreinsa
teketilinn
Teketillinn, eins og
annað, þarf að fá sína
hreinsun. Það getur meira
að segja komið aukabragð
af teinu, ef þessi þáttur er
vanræktur. Til þess er
gott að setja sódaduft
(natron) í ketilinn, hella
volgu vatni á og láta
standa drykklanga stund.
A eftir er skolað vel með
vatni.
GUÐRÚN ÓSK OG GRÉTAR ÞÓR heita þessir krakkar. — Þau efndu
til hlutaveltu fyrir nokkru til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar.
Þau söfnuðu til hennar rúmlega 4400 krónum.
ÞESSIR strákar, Halldór Már Sæmundsson, Svavar Ragnarsson og
Sveinn Þórhallsson efndu fyrir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir
Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og söfnuðu þeir 6400 krónum.
FYRIR nokkru efndu þessar stúlkur til hlutaveltu til ágóða fyrir
„Sundlau);arsjóð“ Sjálfsbjargar — landssambands fatlaðra. Þær heita
Sif Sigurðardóttir, Svava Sigurðardóttir og Ljósbrá Baldursdóttir.
Þær söfnuðu 21.000 krónum í sjóðinn.
ÞESSAR ungu dömur færðu Dýraspitala Watsons fyrir skömmu
tæplega 23.000 kr. sem var hagnaður af hlutaveltu sem þær efndu til
fyrir spitalann. — Þær heita Auður Jónsdóttir, Hulda B. Stefánsdóttir
og Edda Daviðsdóttir.