Morgunblaðið - 20.09.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
Lélegt benzín hér veld-
ur meiri benzíneyðslu
LÉLEGT benzín, sem hefur
verið hér á markaðnum að
undanförnu, hefur valdið mörg-
um híleÍKandanum huKarangri.
Bilarnir hafa verið lélegri í
gangi og eytt töluvert meira
henzíni fyrir vikið.
Finn Jensen, verkstæðisfor-
maður hjá fólksbílaverkstæði
Veltis, sagði í samtali við Mbl.,
að þeir hefðu orðið mikið varir
við afleiðingar þessa lélega benz-
íns.
Fjöldi Volvo-eigenda hefði
leitað til þeirra með bíla, þar
sem mikið bank væri í kveikju og
bílarnir gengju ekki eðlilega. —
„Þessu samfara er svo meiri
benzíneyðsla, þar sem vélin
vinnur ekki eins vel úr benzíninu
eins og ella, en þetta lélega
benzín skemmir vélar bílanna
ekkert," sagði Finn.
Venjulegast er hér á markaði
benzín með oktantölu 93, en það
benzín, sem nú er fáanlegt er
með oktantölu 90. Mjög margir
bílar framleiddir í Vestur-
Evrópu eru gerðir fyrir benzín
með oktantölu 97 og hafa gengið
nokkuð eðlilega á benzíni með
oktantölu 93. Þetta sama á við
um flesta bandarísku og jap-
önsku bílana.
Aðeins Kópaskers-
bátum verða veitt
veiðileyfi í Öxarfirði
Hafrannsóknastofnunin
hefur lagt til samdrátt í
rækjuveiðum í Öxarfirði
úr 400 tonnum í 300 tonn á
komandi vertíð. Þá munu
aðeins Kópaskersbátar
fyrst um sinn fá leyfi til
veiða og hefur þetta valdið
óánægju á Húsavík, en
þaðan hafa nokkrir bátar
stundað rækjuveiðar.
Að sögn Jóns B. Jónassonar deild-
arstjóra í sjávarútvegsráðuneyt-
inu hefur rækjuveiði miðað við
togtíma minnkað verulega í Öx-
arfirði auk þess sem rækjustofn-
inn þar varð fyrir áföllum sl. vor
vegna kulda í sjónum. Hefur
Hafrannsóknastofnunin því lagt
til verulegan niðurskurð, úr 700
tonnum árið 1978 í 400 tonn í fyrra
og nú í 300 tonn. Sagði Jón að
kvótinn væri svo lítill nú, að rétt
hefði þótt að heimila einungis
Kópaskersbátum veiðar fyrst um
sinn eða á meðan séð yrði hvernig
veiðarnar gengju.
Búist er við því að veiðarnar
geti hafist um næstu mánaðamót.
Prentaraverkfall
á mánudaginn í
stað fimmtudags
FÉLÖG bókagerðarmanna, Hið ís- hann vonast til að unnt yrði að
Viðræður um kaupliðinn
hef jast væntanlega í dag
VIÐRÆÐUR um röðun starfsheita í
launaflokka héldu áfram i gær
milli einstakra félaga innan Al-
þýðusambands tslands og Vinnu-
veitendasamhands íslands. sem eru
ekki innan landssambanda, en sam-
komulag hefur tekizt milli allra
samhandanna og VSl og þar með
fyrir obba launþega i landinu. Er
nú búizt við, að viðræður hef jist um
kaupliði kjarasamninga á sátta-
fundi, sem boðaður er i dag. Bjugg-
ust samningamenn við að fundir
yrðu haldnir um helgina.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær setti Vinnuveitenda-
sambandið það skilyrði fyrir áfram-
haldandi samningaviðræðum, að það
fengi skýrslu frá ríkisstjórninni um
það, hvað hún hygðist fyrir um
félagsmál verkalýðshreyfingarinnar.
Hafði Guðlaugur Þorvaldsson sátta-
semjari milligöngu um að komið var
á fundi þriggja ráðherra og og
5-manna sendinefndar VSÍ. Fundinn
sátu af hálfu ríkisstjórnarinnar
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra, Svavar Gestsson, félagsmála-
ráðherra og Tómas Árnason, við-
skiptaráðherra, en af hálfu VSI, Páll
Sigurjónsson, formaður, Þorsteinn
Pálsson framkvæmdastjóri, Krist-
ján Ragnarsson, Hjalti Einarsson og
Jón Ingvarsson. Svo virðist, sem
ráðherrarnir hafi gefið fulltrúum
VSI þau svör, að þeir telji sig geta
haldið áfram samningaviðræðum.
Þau félög, sem voru í viðræðum
um launaflokkaröðun í gær voru
múrarar, málarar, pípulagninga-
menn, veggfóðrarar, ASB, bakarar,
hárgreiðslusveinar, kjötiðnaðar-
menn og netagerðarmenn. Verður
viðræðum við þessa hópa haldið
áfram eftir helgi. Þá eru bókagerð-
armenn boðaðir á sáttafund árdegis
í dag klukkan 09. Klukkan 10,30
kemur viðræðunefnd VSÍ saman til
fundar og klukkan 11 14 manna
nefnd ASI. Er síðan gert ráð fyrir að
viðræður hefjist milli ASÍ og VSÍ.
lenzka prentarafélag. Grafiska
sveinafélagið og Bókbindarafélag
tslands boðuðu i gær verkfall i
dagblaðaprentsmiðjum mánudag-
inn 29. september i stað verkfalls-
ins fimmtudaginn 25. september,
sem fórst fyrir vegna formgalla í
boðun þess. Verður því verkfallið
föstudag. laugardag og mánudag i
dagblaðaprentsmiðjum, en sunnu-
dag, mánudag og þriðjudag i öðr-
um prentsmiðjum.
Ólafur Emilsson, formaður Hins
íslenzka prentarafélags, kvaðst
vona að þessar boðuðu aðgerðir
nægðu til þess að félögin fengju
raunhæfar viðræður í gang og ekki
þurfi því að koma til frekari verk-
fallsboðunar og jafnframt kvaðst
aflétta þessum aðgerðum. Bóka-
gerðarmenn leggja höfuðáherzlu á
atvinnuöryggis- og tæknimál.
Viðsemjendur bókagerðarmanna,
Félag íslenzka prentiðnaðarins, sátu
á fundi í gærkvöldi og ræddu stöðu
samningamálanna, en eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær sam-
þykkti félagsfundur í fyrradag að
grípa til gagnaðgerða, ef framhald
yrði á boðuðum verkföllum bóka-
gerðarmanna. Samkvæmt upplýs-
ingum Haraldar Sveinssonar, for-
manns FÍP, voru engar gagnráð-
stafanir ákveðnar, þrátt fyrir boðun
verkfallsins á mánudag. Klukkan 09
árdegis í dag er boðaður sáttafund-
ur í kjaradeilu þessari hjá sátta-
semjara ríkisins.
Brúarfoss lenti í hörðum
árekstri við Nova Scotia
Pílagrímaflug Flug-
leiða að hefjast
PÍLAGRÍMAFLUG Flugleiða
milli borga í Nígeríu og Jeddah í
Saudi-Arabiu hefst nk. miðviku-
dag og fara fyrstu áhafnirnar
utan á mánudaginn.
Samkvæmt upplýsingum Sveins
Handtekinn
fyrir að mis-
bjóða velsæmi
ungra stúJkna
ÞRÍTUGUR maður var hand-
tekinn í Langholtshverfi í
Reykjavik I fyrrakvöld fyrir
að misbjóða velsæmi ungra
stúlkna.
Maðurinn sat í bíl sínum og
þegar ungar stúlkur gengu
framhjá tók hann niður um sig
buxurnar í von um að stúlkurn-
ar færu að kíkja. Manninum
varð að ósk sinni því nokkrar
stúlkur á aldrinum 13—14 ára
kíktu á bílrúðurnar til að sjá
nánar hvað væri á seyði. Lög-
regiunni var umsvifalaust gert
viðvart og handtók hún mann-
Sæmundssonar blaðafulltrúa
Flugleiða verða tvær DC-8 þotur í
flutningunum og við flugið munu
starfa 80—90 manns. Flogið verð-
ur í tveimur lotum. í fyrri lotunni
verður flogið frá Nígeríu til Jed-
dah dagana 24. september til 9.
október og er áætlað að fljúga með
um 6 þúsund píiagríma. Mögulegt
er að Öeiri ferðir bætist við allt til
13. október. Seinni lotan mun
standa frá 23. október fram í
nóvembermánuð og verður þá
flogið frá Jeddah til borga í
Nígeríu.
BRÚARFOSS, skip Eimskipafé-
lags tslands, lenti i hörðum
árekstri við 6000 tonna skip,
John M, sem skráð er i Panama,
fyrir utan Nova Scotia á fimmtu-
dagsmorgun. Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri E.Í., sagði i
samtali við Mbl. í gærkvöldi, að
engin slys hefðu orðið á mönnum
við áreksturinn. Skemmdir urðu
á Brúarfossi að framan, en skipið
hélt áfram til Gloucester og átti
að koma þangað siðdegis i gær.
Hörður kvaðst ekki geta sagt til
um, hvernig áreksturinn hefði
orðið. Það yrðu sjópróf að leiða í
ljós. „En þetta var töluverður
árekstur," sagði Hörður. „Brúar-
foss opnaðist eitthvað að framan
og það kom einhver leki að
skipinu, en sjór fór ekki í flutn-
ingalestir." Brúarfoss, sem er 4065
lestir, var með frystan fisk. Brú-
arfoss snéri við til Halifax fyrst
eftir áreksturinn, en síðan, þegar
skemmdir höfðu verið fullkannað-
ar, var haldið áfram til Gloucest-
er. Hörður sagði, að þar yrði
skipið skoðað og lagað, ef þurfa
þætti, fyrir áframhaldandi ferð til
Cambridge.
John M sigldi til Yarmouth í
Kanada og sagðist Hörður ekki
vita um skemmdir á því, nema
hvað það hefði líklega skemmzt
meira en Brúarfoss. Skipstjóri á
Brúarfossi er Ragnar Ágústsson.
Þjófurinn
ófundinn
MAÐURINN, sem sveik 2,6 millj-
ónir króna út úr veðdeild Lands-
banka íslands fyrir nokkru er enn
ófundinn. Erla Jónsdóttir, deildar-
stjóri hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, tjáði Mbl. í gær að
lögreglan hefði enn ekki komizt á
sporið, þrátt fyrir að mikil vinna
hefði verið lögð í rannsókn máls-
íns.
HJÓN á sjötugsaldri slösuðust er bifreið þeirra lenti í árekstri
við vörubifreið á mótum Bæjarbrautar og Bæjarháls klukkan
rúmlega 16 i gærdag. Bæði hlutu höfuðáverka auk fleiri
meiðsia. Þau voru bæði flutt á siysadeildina. Bifreið þeirra er
stórskemmd, en hún var af gerðinni Fiat. Mikið var um
árekstra i höfuðborginni í gær. LjÓ8m Mb, Júlíus.
Viðskipta-
ráðherra vill
ráða olíu-
sérfræðing
TÓMAS Árnason viðskiptaráð-
herra hefur sótt um það að á
fjárlögum fyrir næsta ár verði
heimild til að ráða sérfræðing i
oliumálum til viðskiptaráðu-
neytisins.
Tómas sagði í samtali við Mbl.
í gær að nauðsynlegt væri fyrir
ráðuneytið að fylgjast mjög náið
með þróun olíumála á hverjum
tíma og meta beztu möguleikana
í olíukaupum, þar sem miklir
fjármunir væru í húfi. Það væri
bezt gert með því að hafa sér-
stakan starfsmann í því verkefni,
sem gæti þá gripið inn í önnur
mál ef þurfa þætti. Ráðherrann
kvað það skoðun sína að við
íslendingar værum nú vel settir í
olíumálum með samninga bæði
við Sovétmenn og brezka ríkis-
olíufélagið BNOC, auk þess sem
olíufélögin keyptu sjálf einn og
einn farm.