Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980 19 formenn SUS Ásgeir Pétursson, formaður SUS 1955—57: Höfðum hugann öðru frem- ur við sjálfstæði landsins „Hvaða málaflokkar voru það aðallega, sem þið höfðuð áhuga á um miðjan sjötta áratuginn"? Ungir sjálfstæðismenn létu sér auðvitað fátt mannlegt óviðkom- andi þá eins og nú. Það er því ekki auðgert að meta það hvaða mál- efni menn báru helst fyrir brjósti. En vissulega settu ákveðnir mála- flokkar þó skýrari svip á starfið en aðrir, enda mótast flest mál- efni eftir þjóðfélagsaðstæðum hverju sinni. Auðvitað leiðir þó af sjálfu sér að ungir menn höfðu hugann öllu öðru fremur við sjálfstæði lands- ins, vörzlu þess og verndun. Liðinn var aðeins rúmur áratugur frá því að þjóðin öðlaðist fullt sjálfstæði með lýðveldisstofnuninni 1944. Til voru þeir, sem litu svo á að sjálfstæðisbaráttunni hefði lokið með þeim áfanga. Þessir menn töldu að hlutleysi væri affarasæl- ast fyrir þjóðina. Þessu vorum við algerlega ósammála. Við töldum rétta stefnu í þessu þýðingar- mesta máli okkar vera þá að líta svo á, að sjálfstæðisbaráttunni lyki reyndar aldrei. Hún væri þá fólgin í því útávið að tryggja sjálfstæði og öryggi landsins í samstarfi við aðrar vestrænar lýðræðisþjóðir og innávið í því að treysta og efla atvinnu- og efna- hagsgrundvöll landsmanna. „En voru ekki einmitt miklar flokkadeilur um öryggismálin um þessar mundir"? Jú vissulega. Vinstri stjórnin fyrsta, gerði öryggismálin að eins- konar verzlunarvöru og lék háska- lega leiki í meðferð þeirra og utanríkismála. Þetta var uggvæn- legt því lífsnauðsyn var á því að lýðræðisflokkarnir kæmu sér saman um fastmótaða stefnu í öryggis- og utanríkismálum, sem byggðist á samstöðu vestrænna þjóða um verndun frelsis og sjálf- stæðis. Þetta vissu margir í öðrum lýðræðisflokkum. En það voru þó ekki einungis þeir stjórnmála- menn, sem blindast höfðu á báð- um augum af hinu austræna vagli, sem börðust gegn vörnum lands- ins, heldur fundust einnig þeir, sem enn höfðu ekki skilið að hlutleysi er blekking, sem hefur orðið sjálfstæði margra þjóða að falli. Enn í dag sjáum við stöðugt ný rök fyrir réttmæti þeirrar skoðunar. „Hvaða önnur málefni báruð þið einkum fyrir brjósti"? Auðvitað voru okkur öll fram- faramál hugleikin. Ef eitthvað á að nefna, man ég það að mennta- mál voru ofarlega á baugi. Skilj- anlega er meðferð þeirra mála eitt mesta hagsmunamál æskunnar. Við vildum auka verknámið í skólum og fullnægja vaxandi þörf atvinnuveganna á sérmenntuðum mönnum, körlum og konum. Á þessum árum var mjög rætt um og það réttilega að efla iðju og iðnað, þar á meðal stóriðju. En forsenda þess að koma upp nýjum iðnaði var auðvitað sú að tækniþekking væri fyrir hendi í landinu. Við settum því fram þá stefnu að koma upp tækniskóla og efla háskólann almennt og þá sérstaklega raunvísindaþátt hans. Ég held að ekki sé ósanngjarnt að segja að þarna stigu ungir Sjálf- stæðismenn gæfuspor, því úrbæt- ur urðu miklar. Einnig minnist ég þess að sam- göngumál voru ofarlega á baugi. Með nýjum tímum varð stöðugt augljósara að vegagerð úr varan- legu efni var og er hið brýnasta úrlausnarefni. Við áttum stundum í rökræðum við þá sem eldri voru út af þessu. Okkur fannst þeir sumir ekki vilja skilja að varanleg vegagerð er ekki lúxus heldur mjög arðbært fyrirtæki, sem eykur framleiðsl- una, rýfur einangrun og greiðir fyrir hverskyns mannlegum sam- skiptum og framförum. Bæði í efnalegum og menningarlegum skilningi. Þessi barátta átti sinn þátt í fyrstu stórframkvæmd á þessu sviði, lagningu Reykjanes- brautar. „En voru ekki uppi deilur vegna þeirra kosningaúrslita sem urðu 1956“? Ásgeir Pétursson. Við sjálfstæðismenn töldum að framsókn og kratar hefðu notfært sér galla kjördæmaskipunarinnar, sem þá gilti, til þess að „reikna sér út“ fleiri þingmenn en eðlilegt var að þeir fengju. Ferill hins svo- nefnda hræðslubandalags varð til þess að herða á og flýta því að kjördæmaskipaninni var breytt 1959. Sannleikurinn um þá breyt- ingu er að mínu viti sá að við flýttum okkur ef t.v. um of, því fljótlega komu fram alvarlegir ágallar á núverandi kjördæma- skipan, reyndar einnig aðrir en þeir augljósu, sem bundnir eru við ranglæti í hlutfalli atkvæðamagns að baki þingmanna í ólíkum kjör- dæmum. Ér reyndar spurning hvort innbyrðis erfiðleikar í Sjálf- stæðisflokknum eiga ekki að nokkru rætur sínar að rekja til þessara efna. „Hvað er um félagsstarfsemi sambandsins að segja“? Við gáfum m.a. út bæklinga um stjórnmál og svo kom sambands- síðan í Morgunblaðinu út undir ágætri ritstjórn Þórs Vilhjálms- sonar. Við beittum okkur fyrir stofnunum nýrra félaga, t.d. tveggja á Austurlandi. Fyrsta atvinnuráðstefnan, reyndar um landbúnaðarmál, var haldin á þessari tíð. Síðar fylgdu margar slíkar á eftir. Annars var starf- semin með svipuðu sniði og verið hafði. „Hvernig var samvinnan innan S.U.S. og við forystu flokksins"? Hún var góð. Stjórnin var sam- hent og ríkti jafnan drengilegt samstarf, þótt fyrir kæmi að við deildum um sjónarmið. Allt voru þetta ágætismenn. Metingur og eigingirni þekktist ekki þótt stundum þyrfti að samræma sjón- armið ungu mannanna, sem gat orðið heitt í hamsi, eins og ungum mönnum er títt. Hafi okkur farn- ast vel stjórn S.U.S. á þessum árum, er það ugglaust vegna einhuga samstöðu stjórnarinnar. Ekkert félagsstarf getur blómgast ef sjálfa stjórnina brestur sam- stöðu. Samstarfið við flokksstjórnina var gott, þótt sjónarmið væru vissulega ekki alltaf hin sömu. En við ungir sjálfstæðismenn bárum gæfu til þess að skilja, að á fáu var þjóðinni meiri nauðsyn en að Sjálfstæðisflokkurinn væri sam- hentur og einhuga, þannig að afl hans kæmi að fullum notum. Við stóðum því þétt að baki formanns okkar, Ólafs Thors, og áttum jafnan við hann hin bestu sam- skipti — reyndar ógleymanleg. Og nú í dag á ég enga ósk einlægari til ungra sjálfstæðismanna en að þeir efli samstöðu og einingu flokksmanna, til nýrra átaka og framfara þjóðinni til gæfu og gengis. Þá er bezta vegarnestið að sjálfstæðismenn standi af trúmennsku vörð um hugsjónir sínar og berjist drengilega fyrir framgangi þeirra. Ellert B. Schram, formaður SUS 1969—1973: „Eins og vítamíni hefði verið sprautað í unga sjálfstæðismenn þegar vinstri stjórnin tók við“ „Fyrst er frá því að segja að ég tók við forystu í SUS þegar mikill óróleiki var á meðal námsmanna víða um heim og sú vakning, sem gætti meðal ungs fólks barst einnig til íslands. Unga fólkið reis upp gegn kerfinu og ríkjandi skipulagi. Enginn vafi er á því að þessi bylgja hafði töluverð áhrif m.a. á þingkosningarnar ’67 for- setakosningarnar 1968 og kosn- ingarnar 1970. Þetta gerði Við- reisnarstjórninni ákaflega erfitt fyrir og þá einkum Sjálfstæðis- flokknum, sem var ímynd valdsins í augum ungs fólks. Ég gerðist talsmaður þess að Sjálfstæðisflokkurinn opnaði sig og aðlagaði gagnvart þessum nýju viðhorfum og skoðunum og m.a. vegna þessa urðu snörp og mikil átök við kosningu mína til for- manns, sem reyndar endurspegl- uðu átökin sem áttu sér stað í flokknum sjálfum. Við ungir sjálfstæðismenn sett- um fram okkar stefnumið sem mörg hver komust í ályktanir Landsfundar Sj álfstæðisflokksins og í stefnu hans. Við ger5um þá kröfu að ungt fólk fengi fulltrúa í miðstjórn og reglum um mið- stjórnarkjör yrði breytt þannig að þar sætu ekki eingöngu þingmenn, og að hinn almenni flokksmaður hefði meiri áhrif á stefnu flokks- ins; Á þesum tíma urðu miklar breytingar á stjórn flokksins, Bjarni Benediktsson fellur frá, Jóhann Hafstein lætur af störfum sem formaður 1973, og við honum tekur Geir Hallgrímsson. Sem eðlilegt er höfðu þessar breytingar mikil áhrif á störf sambandsins á þessum tíma. í landsmálum gerist það helst að Viðreisnarstjórnin missir þing- meirihluta sinn 1971, aðallega vegna þess að Alþýðuflokkurinn tapar miklu fylgi til Hannibals og hans stuðningsmanna. Sjálfstæð- isflokkurinn stóð nokkuð vel af sér þetta stjórnartímabil. Ég held að forystumenn SUS og Ellert B. Schram. reyndar flokksmenn allir hafi þekkt sinn vitjunartíma og haft vit á því að koma til móts við breytt viðhorf almennings í land- inu. Lögð var mikil áhersla á að flokkurinn skoðaði sjálfan sig, rykið var hreinsað af stefnumál- um flokksins og rétt brugðist við breyttum tíðaranda. Ég tel að þær breytingar sem áttu sér stað á flokknum hafi átt stóran þátt í sigri hans í Alþing- iskosningunum 1974, auk þess sem nýr formaður stýrði flokknum sem fulltrúi nýs tíma. Við settum fram fjölmörg ný atriði sem höfð- uðu til ungs fólks, meira, en gerðist meðal hinna flokkanna og aldrei hefur einum flokki tekist að fá eins mikið af fylgi ungs fólks til liðs við sig eins og Sjálfstæðis- flokkurinn gerði þá. Það var eins og vítamíni hefði verið sprautað í SUS þegar vinstri stjórnin tók við 1971. Sjálfstæðis- flokkurinn hafði verið í stjórnar- aðstöðu í tólf ár og það hafði sín áhrif á starfsemina. Sterk forysta var í flokknum og olnbogarými yngri manna lítið. Þegar vinstri stjórnin tekur síðan við skapast ný viðhorf, mikill baráttuandi vaknaði meðal ungra sjálfstæð- ismanna og við höfðum að ein- hverju að stefna. Það var góður andi ríkjandi í röðum ungra sjálfstæðismanna á þessum árum og ég á ekkert nema góðar minningar frá starfi mínu í SUS. Leikarnir í Moskvu Þess var vandlega gætt að is- lenska þjóðin fcngi ekki að sjá þessa mynd af Ólympiuleikunum í Moskvu. Á mcðan við fylgdumst með glæsilegum iþróttamönnum heyja keppni i fögrum iþróttum innan um glæst leiktjöld suvét- skipulagsins, var þetta sú mynd. sem alþýða Afganistans sá af baksviði Ólympiuleikanna. Þetta baksvið birtist Tékkum fyrir 12 árum og Ungverjum 12 árum þar áður. Það er sameiginlegt þessu tákni ug Ólympíuhringjunum að þau birtast bæði með reglulegu millibili. Annað á tólf ára fresti en hitt á fjögurra ára fresti. Hugmynda- fræðin og raunveru- leikinn SÓSIALISMI: Þú átt tvær kýr og gefur nágranna þínum aðra. _ KOMMÚNISMI: Þú átt tvær kýr, stjórnin tekur báðar og gefur þér mjólkina. FASISMI: Þú átt tvær kýr, stjórnin tekur báðar og selur þér mjólk. NAZISMI: Þú átt tvær kýr, stjórnin tekur báðar og skýtur þig. SKRIFRÆÐI: Þú átt tvær kýr, stjórnin tekur báðar, skýtur aðra, mjólkar hina og hellir mjólkinni niður. KAPITALISMI: Þú átt tvær kýr, selur aðra og kaupir þér tarf. Opnar um- ræður um málefni flokksins Um alllangt skeið hefur SUS gengist fyrir ráðstefnum um þau mál, sem ofarlega hafa verið á baugi hverju sinni, bæði lands- mál og flokksmál. Af einstökum umræðuefnum má nefna vega- mál, menningarmál, sveitar- stjórnarmál. utanrikismál og menntamál. Á síðastliðnu ári efndi SUS til ráðstefnu um málefnið „Sjálf- stæðisflokkurinn í kosningum" og fékk til framsögu menn úr öðrum stjórnmálaflokkum. Er óhætt að fullyrða að slíkt sé einsdæmi í íslenskum stjórnmálum. Sýnir þetta betur en nokkuð annað hversu óhræddir sjálfstæðismenn eru við frjálsar umræður um sín flokksmálefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.