Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980 33 félk í fréttum Gamli fanginn + HÉR í blaðinu á fimmtudag var sagt frá þessum gamla ameriska blökkumanni í frétt á forsíðu blaðsins. — Þetta er hinn 104 ára gamli lífstíðarfanKÍ, John Dav- is, sem árið 1922 framdi innbrot hjá fatakaup- manni einum í S-Karo- línufylki, eftir að hann hafði selt John gamla föt sem hann gat ekki notað þegar allt kom til alls. — Þá var þyngsta refsing við innbrotsþjófnuðum í fylkinu lífstíðar fangelsi. Þann dóm hlaut gamli negrinn. — Sjá nánar í blaðinu í gær, ef vill. — Myndin af fanganum er tekin fyrir skömmu. Eg mun sigra! + MUHAMMAD Ali hefur nú hafið loka- þjálfun sína fyrir keppnina við Larry Holmes sem fram fer í Las Vegas 2. október. bar munu þeir berjast um meistaratitil Hnefaleikasambandsins í þungavigt. Ali hefur létzt mikið að undanfornu og er það hald manna, að það muni auka sigurlikur hans verulega. Þrátt fyrir að Ali hafi ekki barist í tvö ár, hefur annáluð kokhreysti hans ekki minnkað. „betta verður engin keppni. Ég ét Holmes í mig og slæ hann út úr hringnum!“ sagði Ali og virðist hvergi smeykur að venju. — Þetta er nýleg mynd írá æfingu AIis og þjálfarans Marty Monroe, í Los Angeles. „Lífid er sterkara .. + FYRIR SKÖMMU hrimsótti Johannes Páll páfi II borgina Frascati sem er skammt suður af Róm á ítaliu. Þar vottaði hann fórnarlömhum seinni heimsstyrjaldarinnar virðingu sina. Nú eru liðin 37 ár frá því að Bandamenn vörpuðu sprengjum á borgina, sem kostuðu 600 manns lífið og særðu þúsundir annarra. „Lífið er sterkara en dauðinn. við verðum að velja veg lífsins," sagði páfi þeim 5 þúsundum manna sem fylltu aðaltorg borgarinnar, er hann flutti messu þar i septembersól. BLÚM VIKUNNAR bfstfc'í UMSJÓN: ÁB. UM REYNIVIÐINN í Fornhaga í Hörgárdal Herdís Pálsdóttir garðyrkjukona í Fornhaga í Hörgárdal hefur tekið saman eftirfarandi pistil og fylgdi honum mynd sú er hér birtist: „Myndin sem fylgir er af gömlu reynitrjánum í Fornhaga eins og ég man fyrst eftir þeim. Þangað var stutt leið úr bæjardyrum og þar var gott að vera. Sitja í skjóli og halla sér upp að stofninum, hlusta á þyt í laufi og fuglasöng. Frá þeim bernskudögum á ég margar ljúfar minningar. Um uppruna þessara trjáa er ekkert vitað með vissu. Sögn er til um það að þau séu ættuð úr Möðrufellshrauni í Eyjafirði en líklegra þykir mér að þau séu úr Tunguárgiljum, — þar vex reyniviður enn í dag, blómgast og þroskar fræ. Sonur Þorláks Hall- grímssonar sem bjó í Skriðu fór til Danmerkur og nam þar eitthvað í ræktun og þykir mér líklegt að hann hafi sótt þessar plöntur í gilin ásamt birki því sem gróðursett var í Skriðu um sömu mundir. En í Reyniviðirnir að Fornhaga í H<»rgárdal. Myndina tók Morten Hansen, líklega á árunum 1915—1920. Reyniviðirnir að Fornhaga í Hörgárdal. Myndina tók Morten Hansen árid 1914. Fornhaga bjó Björn sonur Þorláks og halda menn að trén á þessum bæjum hafi verið gróðursett samtímis á árunum milli 1820 og 1830. Nú eru flest trén í Fornhaga fallin, aðeins tvö eftir. Efstu trén (til vinstri á myndinni) dóu þegar ég var barn, á árunum 1920—1925, en öll hin hafa brotnað af rótum í stórhríðarbyljum. Samt sem áður lifa þau og hafa endurnýjað sig sjálf. Langt frá trjánum hafa komið upp rótarsprotar, sem vaxið hafa með ótrúlegum hraða og eru þau tré nú orðin eins há eða hærri en gömlu trén voru eða um það bil 10—12 m. Svæðið í kringum gömlu trén var girt af árið 1940 (áður voru sprotarnir bitnir niður) og á þessum tíma hafa þau teygt þetta úr sér. Auðvitað hef ég grisjað þessar þyrpingar eftir þörfum. Einnig hef ég tekið upp stóra toppa af rótarsprotum, aðskilið kvistina, plantað í beð og síðan út í garð að nokkrum árum liðnum. í garðinum ofan við veginn sem liggur um hlaðið í Fornhaga standa þau í röðum og skýla fyrir verstu vindáttum og eru bakgrunnur fyrir annan gróður. - H.P. bess má geta að reyniviðirnir sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni munu hafa verið með þeim allra fyrstu sem ræktaðir voru hér á lanui og komust til nokkurs þroska. Afkomendur þeirra mun mega finna víðsvegar um landið. — Ums.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.