Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 18
SAMBAND ungra sjálf-
stæðismanna er 50 ára nú
á þessu ári. Sambandið var
stofnað þann 27. júní 1930
á Þingvöllum. Fyrsti
formaður SUS var Torfi
Hjartarson. Þrettán félög
ungra sjálfstæðismanna
víðsvegar um landið
stóðu að stofnun SUS.
Þetta voru:
Fylkir á ísafirði. Félag ungra
sjálfstæðismanna í Bolungarvík.
Félag ungra sjálfstæðismanna í
Borgarnesi. Félag ungra sjálf-
stæðismanna á Eskifirði. Víking-
ur, félag ungra sjálfstæðismanna
á Sauðárkróki. Njörður, félag
ungra sjálfstæðismanna í Siglu-
firði. Eyverjar, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum.
Félag ungra sjálfstæðismanna í
Vestur-Húnavatnssýslu. Heim-
dallur í Reykjavík. Óðinn á Flat-
eyri. Skjöldur í Stykkishólmi.
Stefnir í Hafnarfirði og Vörður á
Akureyri.
Á næstu árum f jölg-
aði aðildarfélögum og sam-
bandinu óx fiskur um hrygg
og varð brátt eitt öflug-
asta stjórnmálaafl á ís-
landi. Ekki leikur á því
nokkur vafi. að Samband
ungra sjálfstæðismanna
hefur haft mikil áhrif í
íslenzkum stjórnmálum á
undanförnum áratugum og
hefur enn. Bæði hefur SUS
haft veruleg áhrif á
stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins og almennar stjórnmála-
umræður i landinu og eins
hafa flestir forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins
hlotið sina stjórnmálaþjálfun
innan vébanda sambands-
ins.
Á þessum átta siðum
er gerð grein fyrir ýmsum
stefnu- og starfsmálum SUS,
rætt er við nokkra af
fyrrverandi formönnum
og birt ágrip af sögu sam-
bandsins.
I
Afnám vinstri skatta
AFNÁM vinstri skatta var eitt af
kjörorðum Sjálfstæðisflokksins
fyrir siðustu kosningar. Ttl að
fríska upp á minnið er rétt að
endurtaka þetta kjörorð hér.
1. Söluskattur lækki úr 23,5% í
20%.
2. Tekju- og eignaskattar verði
færðir í fyrra horf.
3. Skattur verði afnuminn af
fyrningum.
4. Vörugjald verði fellt niður.
5. Sérstakur skattur á verzlunar-
og skrifstofuhúsnæði verði
felldur niður.
6. Skattar á ferðalög verði af-
numdir.
7. Nýbyggingargjald verði fellt
niður.
Geir Haflgrimsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Hlutverk SUS er
að vera samvizka
Sjálfstæðisflokksins
Ungir Sjálfstæðismenn brugð-
ust skjótt við eftir stofnun
Sjálfstæðisflokksins fyrir 51 ári.
Þegar ári síðar er Samband
ungra Sjálfstæðismanna stofn-
að.
Á þessum tímamótum þykir
mér vænt um að þakka ungum
Sjálfstæðismönnum starf þeirra
í hálfa öld, sem haft hefur
heillavænleg áhrif á stefnu og
störf Sjálfstæðisflokksins, og
þar af leiðandi á þróun þjóðmála
á íslandi.
Ég hef einnig samtökum
ungra Sjálfstæðismanna per-
sónulega skuld að gjalda. Um 20
ára skeið leitaði ég til þessara
samtaka til fróðleiks og upplýs-
inga um stjórnmálastefnur og
þróun þjóðmála. Þar fann ég
vettvang áhugamála minna, far-
veg skoðana og sannfæringar
minnar, eignaðist félaga og vini,
sem síðan hafa verið sam-
starfsmenn ekki eingöngu á sviði
stjórnmála heldur og í öðrum
þjóðlífsþáttum.
Ég vonast til að samtök ungra
Sjálfstæðismanna megi verða
sem flestum ungum mönnum
það, sem þau hafa verið mér og
fjölmörgum öðrum hingað til.
Sjálfstæðisstefnan hlýtur öðr-
um stjórnmálastefnum fremur
Geir Hallgrimsson
að skírskota til ungs fólks, þar
sem byggt er á frelsi, framtaki
og ábyrgðartilfinningu einstakl-
ingsins í stað ópersónulegrar
forsjár hins opinbera. Frjáls
samskipti einstaklinganna
tryggja í senn bezt efnahagslega
afkomu fjöldans og lýðréttindi.
Frjáls markaðsbúskapur hefur
hvarvetna sýnt yfirburði yfir
sameignarstefnu og socialisma,
þegar litið er til lífskjara, mann-
úðar og menningar.
Áhugi, þekking og sannfæring
er öllum nauðsynleg, sem taka
þátt í stjórnmálum. Vissulega
kemur að þvi i lífi allra að taka
tillit til sjónarmiða annarra og
miðla málum. Stjórnmálaflokk-
ur nær ekki fjöldafylgi án mála-
miðlunar. En fjöldafylgi má ekki
kaupa því verði að misst sé
sjónar á hugsjónum, höfuð-
stefnumálum eða látið af sann-
færingu sinni.
Fylgi flokks er ekki alltaf
öruggur mælikvarði, hvort rétt
sé stefnt. Kjarkinn má ekki
bresta, þótt á móti blási um sinn.
Þá ber að efla samtök og sam-
heldni og berjast til sigurs.
Hvort heldur er í meðlæti eða
mótlæti reynir á trúmennsku
yngri manna sem eldri við hug-
sjónir og sannfæringu.
Það er ekki sízt hlutverk
ungra Sjálfstæðismanna að vera
samvizka Sjálfstæðisflokksins
að þessu leyti. 'Ég á enga ósk
betri Sambandi ungra Sjálf-
stæðismanna til handa á þessum
tímamótum en að ungir Sjálf-
stæðismenn reynist þessu hlut-
verki sínu vaxnir.
Báknið burt - umræð-
ur að frumkvæði SUS
Enginn vafi leikur á þvi, að
Samband ungra sjálfstæðisnianna
hefur að mörgu leyti veri^ leiðandi
i stjórnmálaumræðun’ á undan-
förnum árum. Eitt af þvi, sem setti
svip á umræðurnar var stefnuyfir-
lýsing SUS, undir neitinu „Báknið
burt“. Þar kom fram sá vilji ungra
sjálfstæðismanna að draga úr völd-
um og umsvifum rikisvaldsins og
að auka jafnframt svigrúm ein-
staklingsins. SUS lagði til:
Að afskipti hins opinbera af
lánsfjármarkaðnum yrðu með eðli-
legum hætti.
Að arðráni á sparifé yrði hætt.
Að reynt yrði að tryggja aukna
hagkvæmni í opinberum rekstri.
Að skapaðar yrðu forsendur fyrir
afnámi niðurgreiðslna og útflutn-
ingsbóta.
Að sífellt endurmat færi fram á
opinberri þjónustu svo að hún sam-
svaraði vilja og þörfum fólksins
hverju sinni.
Að tinstaklingurinn fengi ekki
opinbera þjónustu undir kostnaðar-
verði án tillits til efnahags nema í
undantekningartilvikum.
Að ríkið dragi stórlega úr þátt-
töku sinni í rekstri og framleiðslu
fyrirtækja.
Að ýmis ríkisfyrirtæki og stofn-
anir yrðu lögð niður eða seld
einstaklingum.
Að Framkvæmdastofnun ríkisins
yrði lögð niður og þau verkefni, sem
hún sinnir, yrðu falin öðrum.
Ungir sjálfstæðismenn eru ekki
alfarið á móti ríkisrekstri eða af-
skiptum ríkisins af einstaka málum.
Þeir telja hins vegar að ríkisafskipti
og áhrif stjórnmálamanna séu óeðli-
leg í íslensku þjóðlifi, þau skerði
hagkvæmni og velmegun og séu
lýðræði til tjóns.
Hvað er SUS
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna er bandalag kjördæm-
issamtaka ungra sjálfstæð-
ismanna um allt land. Tilgangur
SUS er:
1. að vinna að varðveislu hins
islenska lýðveldis, sjálfstæðis og
fullveldis og hagnýtingu gæða
landsins i þágu islenskra þegna.
2. að efla i landinu þjóðlega,
víðsýna og frjálslynda framfara-
stefnu á grundvelli einstaklings-
frelsis, atvinnufrelsis og séreign-
ar með hagsmuni allra stétta
fyrir augum.
Aðildarsamtök SUS eru nú
átta.
Utanríkis-
stefnan hef-
ur tryggt
þjóðinni vel-
f erð og öryggi
Ungir sjálfstæðismenn lýsa
fullum stuðningi við stefnu
Sjálfstæðisfiokksins í utanrik-
is- og öryggismálum enda hef-
ur dómur sögunnar staðfest
að stefna flokksins og forystu-
hlutverk á þessu sviði hefur
reynzt þjóðinni afar farsæl og
tryggt öryggi og velferð henn-
ar og frelsi til orðs og æðis.
Áherzla verði lögð á eftirfar-
andi meginþætti:
1. Þátttöku íslands í starfi
Sameinuðu þjóðanna.
2. Þátttöku íslands í samstarfi
Norðurlandanna.
3. Þátttöku íslands í Atlants-
hafsbandalaginu.
4. Traust varnarsamstarf ís-
lands og Bandaríkjanna og
viðleitni ti! að tryggja frið
og öryggi á Norður-
Atlantshafssvæðinu.
5. Samstöðu íslands með öðr-
um Evrópuríkjum eins og
hún hefur mótazt með
þátttöku í Evrópuráðinu,
aðildinni að Fríverzlunar-
samtökum Evrópu og viðsk-
iptasamningum við Efna-
hagsbandalag Evrópu.
6. Alþjóðiega baráttu fyrir því
að allar þjóðir fái búið við
mannréttindi og lýðræðis-
lega stjórnarhætti, um leið
og lýst er yfir fordæmingu á
stjórnarháttum er brjóta í
bága við þessi frumréttindi.
t
7. Vernd auðlinda og umhverf-
is með alþjóðlegu samstarfi.