Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
Leikendur í Mávinum sem sjónvarpið sýnir kl. 21.30. Fremst á myndinni f.v.: leikkunan (Simone
Signoret), rithöfundurinn (James Mason), unga stúlkan (Vanessa Redgrave), ungi maðurinn (David
Warner).
Sjónvarp kl. 21.30:
Mávurinn
— eftir leikriti Tjekovs
Á dagskrá sjónvarps kl.
21.30 er bresk bíómynd,
Mávurinn, frá árinu 1968,
byggð á einhverju þekktasta
leikriti Antons Tjekovs.
Leikstjóri er Sidney Lumet.
Aðalhlutverk: James Mason,
Simone Signoret, Vanessa
Redgrave og David Warner.
Þýðandi er Rannveig
Tryggvadóttir.
— I Mávinum segir frá
ókvæntum rosknum manni á
eftirlaunum, sagði Rann-
veig. Hann er fyrrverandi
opinber starfsmaður, en býr
nú á búgarði uppi í sveit.
Hjá honum er stödd systir
hans, sem er leikkona (Sim-
one Signoret), og er í leyfi
frá störfum, ásamt elskhuga
sínum, sem er rithöfundur
(James Mason). Sonur henn-
ar (David Warner), 25 ára
gamall, sem langar mikið til
að verða rithöfundur, býr
hjá móðurbróður sínum og
lifir í algerri einangrun
þarna í sveitinni, skrifar og
lætur sér leiðast. Inn í
söguna koma ung stúlka úr
nágrenninu (Vanessa Red-
grave) sem ungi maðurinn
er ástfanginn af, læknirinn í
sveitinni, ráðsmaður bú-
garðsins, eiginkona hans og
dóttir.
Unga manninum finnst
lítið koma til bókmennta
eins og elskhugi móður hans
framleiðir, finnst þær vellu-
kenndar og ófrumlegar.
Sama finnst honum um leik-
ritin sem móðir hans leikur
í. Hann semur og setur á
svið leikrit sem er eintal
ungrar stúlku um fjarlæga
framtíðarsýn. Móðir hans
gerir grín að þessu verki og
særir viðkvæmt stolt hans.
Nágrannastúlkan, sem hann
elskar lítur á rithöfundinn
og verk hans í öðru ljósi en
ungi maðurinn og sér hvort
tveggja í hillingum.
Snilldarlegar persónulýs-
ingar og samtöl, sagði Rann-
veig Tryggvadóttir að lok-
um. Leikritið Mávurinn var
leikið í Iðnó 1971 í þýðingu
Péturs Thorsteinssonar.
Hringekjan kl. 16.20:
Nýr þrýstihópur
í þjóðfélaginu
— og orkusparandi réttur vikunnar
Á dagskrá hljóðvarps kl. 16.20
er þátturinn Hringekjan —
fyrir börn á öllum aidri — í
umsjá Eddu Björgvinsdóttur og
Helgu Thorberg.
— í þessum þaetti verður
fjallað um framkomu fullorð-
inna við börn, sagði Helga, — og
leitað álits barna í þessu efni.
Kannað verður hvernig af-
greiðslu börn fá í kjörbúðum,
sjoppum og á götum úti. Þá
kynnumst við nýjum þrýstihópi í
þjóðfélaginu, HSÞ-hópnum, nán-
ar til tekið Hrekkjusvínaþrýsti-
hópnum, en sem kunnugt er vaða
hrekkjusvín uppi um þessar
mundir. Flutt verður frumsamið
óskalag Hringekjunnar, og við
fáum óræka sönnun þess að
gamli rímnakveðskapurinn er
ekki búinn að syngja sitt síðasta
vers. Réttur vikunnar er orku-
sparandi: Heitt kakó — gerir
kleift að sofa við mun minni hita
en venjulega, og nota má prímus
við drykkjargerðina.
Handan um hof kl. 20.30:
Thor VHhjálmsson
Ási i Bæ.
Trukk Parísar
Thor Vilhjálmsson fer
á kostum hjá Ása í Bæ
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.30
er þátturinn Handan um höf í
umsjá Ása í Bæ, sem rabbar að
þessu sinni við Thor Vilhjálms-
son rithöfund um París og flétt-
ar inn í viðtalið franskri tónlist.
— Thor dvaldist í París í
nokkur ár, sagði Ási, má segja
samfleytt frá '47—52. Hann bjó í
iistamannahverfunum á Mont-
martre og Montparnasse og
kynntist ýmsum listamönnum
sem nú eru heimsþekktir. Thor
hefur frá mörgu að segja og fer á
kostum eins og hans er vandi,
þegar hann lýsir trukki Parísar
á þessum tíma.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
20. september
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar. Þui-
ur velur og kynnir.
8.00 Fréttir. Tónleikar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
daghi. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúkiinga. Krist-
ín Sveinbjörnsdóttir kynnir.
(lO.OOFréttir. 10.10 Veður-
frcgnir).
11.20 Að leika og lesa.
Jónína II. Jónsdóttir stjórn-
ar barnatíma. M.a. rifjar
Jóhanna Friðriksdóttir upp
minnisstætt atvik úr
bernsku sinni og Kári Þor-
mar, 12 ára gamall. leikur
eigin verk á flautu og píanó.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
SÍÐDEGIO
14.00 í vikulokin.
Umsjónarmenn: Guðmundur
Árni Stefánsson, Guðjón
Friðriksson, óskar Magn-
ússon og Þórunn Gestsdóttir.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hringekjan
Blandaður þáttur fyrir börn
á öilum aldri.
Stjórnendur: Edda Björg-
vinsdóttir og Helga Thor-
berg.
16.50 Síðdegistónleikar.
Fílharmoníusveitin í Bad
Reichenhall leikur Vals úr
óperunni „Faust“ eftir
Charles Gounod; Wilhelm
Barth stj./ Leontyne Price
og Placido Domingo syngja
dúetta úr óperum eftir Puc-
cini með Nýju fílharmoníu-
sveitinni; Nello Santi stj./
Sinfóníuhljómsveitin i
Malmö leikur þætti úr
„IInotubrjótnum“, ballett-
svítu eftir Pjotr Tsjaikovský;
Janos Furst stj.
17.50 „Sjóræningjar í Strand-
arvík“, gömul færeysk saga.
Séra Garðar Svavarsson les
þýðingu sína. (Áður útvarp-
að i þættinum „Eg man það
enn“, sem Skeggi Asbjarnar-
son sá um 29. f.m.).
mnmmm
LAUGARDAGUR
, 20. september
16.30 Íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Fred Flintstone í nýjum
ævintýrum
Sautjándi og síðasti þáttur.
býðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og
dagskrá
20.35 Shelley
Gamanþáttur.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
Non.
21.00 Einu sinni var
Trad kompaníið leikur
gamlan jass.
Kompaníið skipa: Ágúst
Eliasson, trompet Helgi G.
Kristjánsson, gitar; Frið-
rik Theodórsson, bassi og
söngur; Kristján Magnús-
son, pianó; Július K. Valdi-
marsson, klarinetta;
Sveinn ÓIi Jónsson, tromm-
ur; og Þór Benediktsson,
básúna.
Stjórn upptöku Tage Amm-
endrup.
21 „30 Mávurinn
Bresk biómynd frá árinu
1968, byggð á einhverju
þekktasta leikriti Tjekovs.
Leikfélag Reykjavikur
sýndi leikritið árið 1971.
Leikstjóri Sidney Lumct.
Aðalhlutverk James Mas-
on, Simone Signoret, Van-
essa Redgrave og David
Warncr.
Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir.
23.45 Dagskrárlok
18.20 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 „Babbitt“ saga eftir Sin-
clair Lewis.
Sigurður Einarsson þýddi.
Gísli Rúnar Jónsson leikari
les sögulok (42).
20.00 Harmonikuþáttur.
Högni Jónsson kynnir.
20.30 Handan um höf.
Ási í Bæ rabbar við Thor
Vilhjálmsson rithöfund um
París og fléttar inn í viðtalið
franskri tónlist.
21.30 Illöðuball.
Jónatan Garðarsson kynnir
ameríska kúreka- og sveita-
söngva.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Sætbeizka
sjöunda árið“ eftir Hcinz G.
Konsalik. Bergur Björnsson
þýddi. Ilalla Guðmundsdótt-
ir les (8).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.