Morgunblaðið - 20.09.1980, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
Skipulagsstofa höfuðborgarsvæðisins:
Kemur lagi
á skipulagið
SKIPULAGSSTOFA höfuðborg-
arsvæðisins er nýlega tekin til
starfa að Hamraborg 7 í Kópa-
vogi.
Samstarf sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu hefur aukizt mjög
undanfarin ár. í framhaldi þess
hafa átta sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu, Kjalarneshrepp-
ur, Mosfellshreppur, Reykjavík,
Seltjarnarnes, Kópavogur, Garða-
bær, Bessastaðahreppur og Hafn-
arfjörður komið á fót sameigin-
legri skipulagsstofu, til þess að
stuðla að bættu skipulagi á höfuð-
borgarsvæðinu. Samþykkt þar að
lútandi var gerð í ársþyrjun 1979,
og nú er, sem segir í upphafi,
Skipulagsstofa höfuðborgarsvæð-
isins komin í gagnið.
Með stjórn Skipulagsstofunnar
fara forstöðumaður, Gestur
Ólafsson, og fimm manna fram-
kvæmdastjórn, sem heyrir undir
yfirstjórn „Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu".
A fundi blm. með starfs-
mönnum Skipulagsstofunnar og
framkvæmdastjórninni kom fram,
að það svæði sem hin átta sveit-
arfélög ná yfir, eru tæpir 740
ferkílómetrar. Þar búa 120 þúsund
manns, sem eiga 54% af allri
bifreiðaeign landsmanna. Og á
þessu svæði er miðstöð stjórn-
sýslu, menntunar, verzlunar, iðn-
aðar, þjónustu og samgangna fyrir
landið allt, auk þess sem þar eru
höfuðstöðvar stærstu fyrirtækja
og stofnana landsins.
Þess vegna ríður á, sagði Gestur
Ólafsson, að samstarf þessara
sveitarfélaga geti verið sem eðli-
legast, og starfsrekstur Skipu-
lagsstofunnar er ríkur þáttur í
því.
Okkar aðalstarf hér á Skipu-
lagsstofunni er að koma sam-
ræmdri mynd á skipulagsmál
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu, og þeir eru margir mála-
flokkarnir og veigamiklir, sem
unnt er að leysa í samstarfi og
þannig til hagræðis fyrir öll sveit-
arfélögin.
T.a.m. eru 54% einkabílaeignar
landsmanna á höfuðborgarsvæð-
inu, og okkur reiknast svo til að
rekstrarkostnaður þeirra sé
kannski 100 milljarðar króna á
ári. Á þessu svæði sækir fólk
yfirleitt vinnu nokkuð langa leið,
og með samræmdu skipulagi ætti
að vera mögulegt að stytta vega-
lengdir milli vinnustaðar og heim-
ilis og ef almenningsvagnakerfið
yrði bætt og samræmt um leið
gætu þannig sparazt milljarðar á
ári hverju.
Þeir fjórir starfsmenn, sem
starfa á Skipulagsstofunni, sögðu
fyrstu vikurnar hafa að mestu
farið í það, að koma upp vinnu-
aðstöðu og afla upplýsinga og
nauðsynlegustu gagna. Skipu-
lagsstofan skal gegna ráðgefandi
Frá blm.fundi Skipulagsstofnunar og framkvæmdastjórnarinnar.
Ljósm.: KriMtián
hlutverki fyrir sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu og vinnur
stofan að því að koma upp bóka-
safni um skipulagsmál, svo og
litskyggnusafni, svo hún geti rækt
það hlutverk sitt sem bezt.
Við viljum eiga sem bezt sam-
starf við fjölmiðla, sagði Gestur,
því þessi mál snerta hvern einasta
mann og því mikilvægt, að fólk fái
nákvæmar og umfram allt réttar
upplýsingar um það sem er á
döfinni í þessum efnum og fái
vitneskju um hugsanlega valkosti
í skipulaginu. I þessu skyni höfum
við líka hafið útgáfu fréttabréfs,
sem við köllum „Skipulagsmál
höfuðborgarsvæðisins" og ráðgert
er að það komi út tvisvar til
fjórum sinnum á ári, þegar tilefni
þykir til. Almenningur getur haft
samband við okkur og gerzt
áskrifendur að fréttabréfinu og
við hvetjum alla, sem starfa að
skipulagi, fjalla um þau mál
ellegar hafa á þeim áhuga, að
koma til okkar athugasemdum og
ábendingum.
Fundarmenn kváðust síður en
svo óttast, að svo náið samstarf
sveitarfélaga í skipulagsmálum
gæti haft þær afleiðingar að þau
kæmust með tímanum undir einn
hatt. — Ágætt samstarf sveitarfé-
laga á ýmsum sviðum þýðir ekki
að þau verði ekki lengur sjálfstæð-
ar pólitískar einingar, sögðu þeir.
Þetta er einungis spurningin um
hagkvæmni.
— Jú, auðvitað geta hagsmunir
sveitarfélaganna rekizt á og það
harkalega. En kannski þarfasta
verkefni þessarar stofnunar,
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæð-
isins, sé að finna lausn á slíkum
ágreiningsefnum.
Óskar Þór Karlsson, eríndreki SVFÍ:
Reykskynjarar
eru ódýr
líftrygging
Eins og alkunna er varð stór-
bruni í Varmahlíð í Skagafirði
nú nýlega.
í fréttum kom fram að eldsins
hafi orðið vart með því að hiti
setti í gang hljóð í kallkerfi
hússins. Kallkerfinu var ekki
ætlað að vera aðvörunartæki
gegn eldsvoða, þótt það yrði það
að þessu sinni.
Kerfi sem aðvarar um yfirvof-
andi eldsvoða, var ekkert í hús-
inu og sama gildir því miður um
þúsundir híbýla landsmanna,
þrátt fyrir að til séu ódýr og
örugg aðvörunartæki.
Eldsvoðar verða aldrei að
fullu umflúnir. Spurningin er
hvar og hvenær eldur verður
næst laus og hversu miklu tjóni
hann veldur. Slíkum spurning-
um getur að sjálfsögðu enginn
svarað fyrirfram. Flestir elds-
voðar sem verða í heimahúsum
verða á tímabilinu frá miðnætti
til kl. 6 að morgni.
Á þessum tíma er fólk yfirleitt
í fastasvefni og því mannslíf í
mikilli hættu ef eldur kviknar.
Margt má gera til þess að
minnka hætturnar á því að eldur
verði laus og einnig til þess að
fólk fái aðvörun í tíma ef eldur
kviknar og ýmislegt er sannar-
lega gert en þó ekki nóg. í
þessum efnum er til mikils að
vinna.
Dauðsföll af völdum eldsvoða
hér á landi eru orðin fjölmörg í
gegnum árin. Flestir deyja
vegna eitrunar frá banvænum
lofttegundum sem myndast við
bruna. Reykskynjari gæti í flest-
um tilfellum komið í veg fyrir
slík slys. Reykskynjari er tæki
sem verið hefur í þróun um
áraraðir og er í dag orðinn mjög
fullkominn. Jafnframt hefur
verð þessara tækja nú lækkað,
þannig að hverri fjölskyldu er
vel kleift að eignast slíkt tæki.
Þeir skynjarar sem seldir eru
hér á landi til heimilisnota eru
svokallaðir jónunarskynjarar og
draga þeir nafn sitt af þeim
hluta tækisins sem skynjar svo
vel þær lofttegundir sem mynd-
ast við bruna — þ.e. jónunar-
hólfinu, sem er rafleiðandi svið.
Um leið og bruni hefst, myndast
baneitraðar lofttegundir, svo
sem kolefnismonoxíð, vetnis-
zyaníð og fleiri tærandi gasteg-
undir. Tækið skynjar þessar
lofttegundir strax og gefur frá
sér merki með flauti (ca. 80—100
decibel hávaði). Reykskynjarinn
verður var við bruna á algjöru
byrjunarstigi. Hávaðinn sem
hann gefur frá sér, vekur fólk
upp af svefni og nægur tími
gefst til þess að yfirgefa húsið ef
ekki reynist unnt að slökkva
eldinn með handslökkvitæki, en
það tekst raunar oftast, sé slíkt
tæki til staðar og nægilega fljótt
við brugðist.
Þær gerðir reykskynjara sem
hér um ræðir eru allar knúnar
rafhlöðum. Ending rafhlöðunnar
er yfirleitt 12—18 mánuðir. í
hverju tæki er ein rafhlaða og
þegar þarf að skipta um, þ.e.
þegar spennan er komin niður
fyrir ákveðið lágmark, lætur
skynjarinn eiganda sinn eða
umsjónarmann vita um að nýrr-
ar rafhlöðu sé þörf, með því að
gefa frá sér stutt hljóð á u.þ.b.
einnar mínútu fresti og því
heldur hann áfram í viku til 10
daga ef ekki er skipt um.
Mælt er með því að skynjarar
séu prófaðir einu sinni í mánuði
með því að blása reyk frá
eldspýtu eða vindlingi inn um
rist hans, þar til hann flautar.
Aðrar gerðir eru búnar prófun-
arhnappi sem þrýst er á og
flautar þá skynjarinn til merkis
um það að allar straumrásir og
búnaður séu í fullkomnu lagi.
Þar sem tæki þetta er ætlað til
þess að vekja fólk, ef eldsvoði er
yfirvofandi, er best að staðsetja
skynjarann í lofti gangs fyrir
utan svefnherbergi. Ef um fleiri
en eina svefnherbergisálmu er
að ræða, t.d. á tveimur hæðum,
skal hafa skynjara í gangi
hvorrar álmu. Einnig getur verið
gott að koma skynjara þannig
fyrir að hann skynji reyk á
útgönguleið fólks úr svefnher-
bergjum og út úr húsinu. Ekki
má staðsetja skynjara í eldhúsi,
bílskúr, við loftræstingu eða í
burstaþaki.
Vissar gerðir reykskynjara
eru þannig að tengja má við þá
hitaskynjara eða sérstaka flautu
og fer þá hvorttveggja í gang í
einu á tveimur stöðum í húsinu
ef eldur verður laus.
Þegar er vitað um nokkur
dæmi þess að reykskynjari hafi
bjargað mannslífum hér á landi,
jafnvel heilum fjölskyldum.
Líklegt er þó að dæmin séu
mun fleiri en vitað er um, því
fólk kallar oft ekki í slökkvilið,
ef það ræður sjálft niðurlögum
eldsins.
Eins og áður er nefnt þá eru
það hinar baneitruðu lofttegund-
ir sem myndast, sem flestum
dauðsföllum valda í eldsvoðum.
Aðeins u.þ.b. 10% slíkra loft-
tegunda er sýnilegur reykur, hin
90% er ósýnilegt eiturloft.
Reykskynjarinn skynjar hins-
vegar bæði sýnilegar og ósýni-
legar lofttegundir og varar fólk
við þeim og um leið eldinum sem
á eftir kann að fylgja.
í flestum tilfellum varar
skynjarinn það snemma við
hættunni að tími gefst ekki
eingöngu til að bjarga mannslíf-
um, heldur og húsi og húsbúnaði
með því að ráða niðurlögum
eldsins, einkum ef á heimilinu er
gott handslökkvitæki.
Fullyrða má að slík tilvik eiga
eftir að verða æði mörg í fram-
tíðinni og því fleiri sem notkun
reykskynjara og handslökkvi-
tækja verður algengari á heimil-
um.
Álitið er að nú sé reykskynjari
á u.þ.b. öðru hverju heimili í
landinu. Mikið vantar því enn á,
þar sem tæki þetta eykur mjög
öryggi fjölskyldunnar og á því
fyllilega erindi inn á hvert heim-
ili. Slysavarnafélag Islands hef-
ur ásamt fleirum mjög hvatt til
þess að fólk búi heimili sín
þessum sjálfsögðu öryggistækj-
um. Vona ég að grein þessi verði
fólki hvatning til þess að gera
nauðsynlegar ráðstafanir í þess-
um efnum sem fyrst, síðar gæti
það orðið einhverjum of seint.
Óskar bór Karlsson,
erindreki SVFÍ.