Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
15
Svíar elta
kafbát í
landhelgi
Stokkhólmi. 19. >«eptember. — AP.
ÞYRLUR ok varðskip sænska
sjóhersins leita að erlendum
kafbáti í skerjagarðinum hjá
Stokkhólmi samkvæmt áreið-
anlegum heimildum í dag.
Kafbátsins varð vart í
sænskri landhelgi í gær um
þrjár sjómílur frá ströndinni.
Djúpsprengju var varpað úr
þyrlu þegar neitað var að gefa
upp hvaðan kafbáturinn væri.
Síðan hvarf kafbáturinn og
talið er að vélar hans hafi verið
stöðvaðar.
Sven Karlsson sjóliðsforingi
sagði, að hann gerði þó ráð
fyrir að kafbáturinn væri í
grenndinni. Mörg hernaðar-
mannvirki eru á næstu grös-
um. Sænski sjóherinn kveðst
ekki hafa hugmynd um frá
hvaða landi kafbáturinn sé.
Veður
víða um heim
Akureyri 3 skýjað
Aþena 29 heióskírt
Brússel 18 skýjaö
Chicago 24 heióskírt
Feneyjar 24 þokumóóa
Frankfurt 21 heiöskírt
Færeyjar 9 þoka
Genf 22 skýjaó
Helsinki 16 heióskírt
Kaupmannahöfn 17 heióskírt
Las Palmas 25 hálfskýjaó
London 21 skýjað
Los Angeles 30 heióskírt
Malaga 26 skýjað
Mallorca vantar
Miami 30 heióskírt
Moskva 20 heióskírt
New York 23 heióskírt
Oslo 18 skýjaó
Paris 22 skýjaó
Reykjavík 7 súld
Rómaborg 26 skýjaó
Stokkhólmur 17 skýjaó
Vínarborg 14 þoka
Innrás í
kannski
Heræfingar
Vestur-þýzkir hermenn stugga við kúm sem hindruðu Howitz-
erskriðdreka i að komast ieiðar sinnar i þorpinu Fulda.
Hermennirnir og skriðdrekinn, en ekki kýrnar, tóku þátt i
æfingum 170.000 hermanna frá Bandarikjunum, V-Þýzkalandi,
Bretlandi. Danmörku og Kanada.
Sovézkt tímarit
lofar Pastemak
Moskvu, 19. september. — AP.
SOVÉZKA timaritið „Novi Mir“,
sem fyrir tuttugu árum hafnaði
nDr. Zhivago“ eftir Boris Past-
ernak, hefur birt lofgrein um
skáldið og rithöfundinn, meðal
annars útdrætti úr ljóðum „Zhi-
vagos“ sem hafa aldrei verið birt
í Sovétrikjunum.
Greinin, sem birtist í septem-
berhefti blaðsins, eins helzta bók-
menntatímarits Sovétríkjanna, er
eftir Andrei Voznesensky, vinsælt
skáld, sem stundum hefur sjálfur
átt í útistöðum við hugsjónafræð-
inga þeirra sem völdin hafa í
sovézka bókmenntaheiminum.
Voznesensky segir í greininni að
Pasternak hafi ekki getað ort
slæmt kvæði. í greininni er aldrei
minnzt á „dr. Zhivago" með nafni
og ekkert kvæðanna er heldur birt
í heild. Rússar telja kvæðin
merkasta hluta bókarinnar.
Lofið í kvæðinu er þó mikilvæg-
ur liður í endurreisn skáldsins,
sem ei^t sinn sætti svæsnum
árásum fyrir „andsovézkan róg“
og var neyddur til að hafna
bókmenntaverðlaunum Nóbels
1958.
„Óheflað fólk skilur ekki líf og
starf skálda," sagði Voznesensky
og réðst þar með óbeint á þá sem
eitt sinn veittust að skáldinu.
Þetta gerdist
20. september
1978 — Jóhannes Vorster tilkynnir
afsögn sína í S-Afríku.
1977 — Víetnam fær aðild að SÞ.
1974 — Þúsundir taldir af í fellibyl í
Honduras.
1970 — Sýrlenzkt skriðdrekalið
sækir inn í Jórdaníu.
1967 — „Queen Elizabeth 11“ hleypt
af stokkunum.
1963 — Ræða John F. Kennedys á
Allsherjarþinginu með tillögu um
leiðangur Bandaríkjamanna og
Rússa til tunglsins.
1960 — 13 nýfrjáls Afríkuríki og
Kýpur fá inngöngu í SÞ.
1945 — Indverjar hafna tiilögu
Breta um sjálfstjórn.
1938 — Tæplega 700 farast í fellibyl
í norðausturríkjum Bandaríkjanna.
1906 — „Mauretania" hleypt af
stokkunum.
1870 — Sameining Ítalíu verður að
veruleika þegar Frakkar hörfa frá
Róm.
1857 — Bretar ná aftur Delhi eftir
umsátur síðan í júní.
1854 — Orrustan við Alma (Bretar
og Frakkar sigra Rússa á Krím).
1792 — Orrustan við Valmy.
1697 — Ryswick-sáttmáli undirrit-
aður og ófriði Frakka, Englendinga,
Hollendinga og Spánverja lýkur.
1565 — Spánverjar myrða hóp
franskra Húgenotta í ( Port Royal,
Florida.
1530 — Marteinn Lúther ráðleggur
þýzkum mótmælendafurstum aö búa
sig undir stríð.
1520 — Súleiman I verður Tyrkja-
soldán við lá Selim I.
1519 — Sæfarinn Magellan fer frá
Spáni til að finna vesturle'ðina til
Indlands.
480 f. Kr. — Grikkir sigra Persa í
sjóorrustunni við Salamis á Eyja-
hafi.
Afmæli. Sophia Loren, ítölsk kvik-
myndaleikkona (1934—) — Upton
Sinclair, bandarískur rithöfundur
(1878-1968).
Andlát. 1803 Robert Emmet, írskur
ættjarðarvinur, líflátinn — 1863
Jakob Grimm, fræðimaður — 1908
Pablo de Sarasate, fiðluleikari —
1957 Jean Sibelius, tónskáld.
Innlent. 1448 Páfabréf um árás
barbara á byggðir Grænlendinga
þrjátíu árum áður. — 1240 d.
Magnús Guðmundarson allsherjar-
goði (bpsefni) — 1823 d. Geir bp
Vídalín — 1861 Nefnd skipuð í
fjárhagsmálinu — 1900 34 farast og
mikið tjón á skipum og húsum í
ofsaveðri — 1905 11 drukkna nálægt
Akranesi — 1931 Gengisfelling —
1936 Minningarathöfn um þá sem
fórust með „Pourqoui Pas?“ — 1939
Sigur Islendinga í 2. flokki á skák-
móti í Buenos Aires — 1940 „Esja“
fer í Petsamoför — 1972 Freigáta
kemur með fimm skipbrotsmenn til
Hornafjarðar — 1974 Bráðabirgða-
lög — "979 Víetnamar koma — 1888
f. Ríkhs-rður Jónsson.
Orð dagsins. Þegar þjóð berst fyrir
frelsi fær hún sjaldnast nokkuð
annað með sigrinum en nýja herra
— Halifax lávarður, enskur stjórn-
málaleiðtogi (1633-1695).
PóUand
í aðsigi?
lioston. 19. Koptombor. AP.
ÓVENJULEG hernaðarumsvií í Austur-Þýzkalandi og
Sovétríkjunum undanfarna daga geta bent til þess, að
annað hvort sé innrás í Pólland í aðsigi eða að Rússar t
ætli að sýna mátt sinn til að hræða Pólverja til hlýðni
samkvæmt vestrænum leyniþjónustuheimildum að sögn
„Boston Globe“ í dag.
Blaðið segir að m.a. sé unnið að
undirbúningi að því að nokkur
hinna 20 herfylkja á herstjórnar-
svæðunum í vesturhluta Sovét-
rikjanna taki sér stöðu, svo og
nokkur hinna 20 sovézku herfylkja
í Austur-Þýzkalandi. Auk þess
hefur orðið vart herkvaðningar
varahermanna á byrjunarstigi.
Samkvæmt heimild blaðsins fer
ekki milli mála að þetta beinist
gegn Póllandi, en liðið geta nokkr-
ir dagar eða ein vika áður en í ljós
komi hve umfangsmiklar aðgerðir
eru á ferðinni. Lengri tími getur
liðið áður en í ljós kemur hvað
vakir fyrir Rússum.
Tvær grímur hafa runnið á
sérfræðinga, sem hafa talið að
Rússar muni bíða í nokkra mánuði
til að sjá hvort nýju valdhafarnir
ráða við ástandið. Ástæðurnar
fyrir vaxandi ugg Rússa eru m.a.
áformin um stofnun sambands
frjálsra verkalýðsfélaga, fyrirhug-
uð ferð verkalýðsleiðtogans Lech
Walesa á fund páfa í Róm og
hreyfing, sem er sögð uppi um að
hreinsa pólska kommúnistaflokk-
inn af spillingu og sovézkum
áhrifum.
Játað er að Rússar yrðu fyrir
áfalli í Póllandi og víðar ef þeir
létu til skarar skríða strax, en
bent er á að þeir gætu kannski
Oswald ekki
grafinn upp
Fort Worth. Texas, 19. september.
JAMES Wright dómari i Fort
Worth, Texas, neitaði í dag að
samþykkja beiðni brezka rit-
höfundarins Michael Eddowes
um að gröf Lee Harvey
Oswalds yrði opnuð til að
ganga mætti úr skugga um
hvort hann iægi i gröfinni eða
tvifari hans.
Hann sagði, að enga nauðsyn
bæri til að grafa líkið upp og
engin knýjandi ástæða væri til
þess. Hann bætti því við, að
hviksögur, kenningar, vanga-
veltur og forvitni almennings
væru ekki nógu gild ástæða.
Lögfræðingar rithöfundar-
ins kváðust mundu gaumgæfa
úrskurðinn áður en þeir
ákvæðu hvort þeir myndu áf-
rýja honum. Eddowes telur, að
Oswald hvíli ekki í gröfinni
heldur rússneskur njósnari,
sem hafi verið gerður út til að
myrða John F. Kennedy for-
seta.
ekki snúið þróuninni við ef þeir
biðu í nokkra mánuði.
Rússar drógu saman 500.000
manna herlið þegar þeir sömdu
við leiðtoga Tékka fyrir innrásina
1968. Þvi segir „Globe" að sovézkir
herforingjar vilji sennilega hafa
tiltækt nógu öflugt herlið til að
bæla niður mótspyrnu með skjót-
um hætti. Munurinn sé sá að
Pólverjar, bæði her og þjóð, muni
veita mótspyrnu.
Bandarískir sérfræðingar segja,
að Rússar þurfi minnst tværvikur
til að tefla fram nógu öflugu
herliði að sögn blaðsins.
Heilagt stríð
Fez, 19. september. — AP.
FRELSISSAMTÖK Palestínu-
manna (PLO) og Sýrlendingar
bundust i dag samtökum á ráð-
stefnu islamskra rikja i Marokkó
og hvöttu til „heilags striðs“ gegn
Bandarikjunum og Israel.
I tillögum PLO og Sýrlendinga er
m.a. lagt til olíubanns gegn Banda-
ríkjunum. Einnig að mannafli og
náttúruauðlindir verði virkjaðar
gegn ísrael og Bandaríkjunum. Jafn-
framt að opnaðar verði skrifstofur
PLO í öllum löndum múhameðstrú-
armanna.
Allir, er til máls tóku á allsherj-
arfundi ráðstefnunnar í dag, lýstu
stuðningi við heiiagt stríð gegn
Israel. Meirihluti ræðumanna að-
hylltist skýringu Hassans Marokkó-
konungs á heilögu stríði, en hann
sagði, að í því fælust pólitískar og
efnahagslegar þvinganir og „sálræn-
ar ofsóknir".
Óþarft að óttast
Madrid. 19. september. — AP.
HEILBRIGÐIS-yfirvöld á Spáni
sögðu i dag, að ástæðuiaust væri
fyrir fólk á Benidorm-svæðinu að
óttast hermannaveikina svonefndu,
þótt staðfest hefði verið. að einn
maður hefði dáið úr veikinni og
fimm verið lagðir inn i sjúkrahús
eftir sýkingu í Benidorm.
Sagði í tilkynningu yfirvalda, að
veikin, sem er afbrigði lungnabólgu,
hefði breiðst um víða veröld eftir að
hennar varð fyrst vart í borginni
Fíladelfíu í Bandaríkjunum fyrir
fjórum árum.
Ennfremur sagði, að ekki hefðu
fundist nein merki þess, að starfs-
fólk í Rio Park-hótelinu væri smit-
berar, en á því hóteli bjuggu sex-
menningarnir sem veiktust. Vísinda-
menn vinna nú að því að finna
skýringar á sýkingu sexmenning-
anna.
Einangraðir
Nýju Delhí, 19. september — AP.
ÞÚSUNDUM manna sem hafa
strandað i flóðunum á Suðaustur-
Indlandi, var i dag bjargað um
borð í þyrlur og báta. en a.m.k.
40.000 eru ennþá einangraðir.
Fundist hafa lik 19 manna og
óttast er að a.m.k. 100 hafi drukkn-
að í flóðunum. en talsmenn stjórn-
valda spgja. að voniaust sé að gizka
á um það.
Úrhelli hefur verið í Suðaustur-
Indlandi og brast stífla í ánni
Bansadhara, en við það myndaðist
flóðbylgja sem olli miklu tjóni í
bæjum, sem rúmlega 50 þúsund
manns byggja. Sums staðar mynd-
aðist allt að fimm metra dýpi.