Morgunblaðið - 20.09.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
25
til að
i olíu-
i tima
og dagverði í Rotterdam, dagana
sem lestun fer fram. Hver þessi
munur verður veit auðvitað enginn
á þessari stundu. Aðalatriðið er það,
að til lengdar má búast við því, að
hið almenna viðskiptaverð séu
kaupanda hagstæðara en dagverðið,
og þar að auki mun minna sveifluk-
ennt, eins og sést strax á því, að
verðið í BNOC samningnum, er fast
til margra mánaða, á meðan Rotter-
dam-verðið sveiflast frá degi til
dags. Olíuviðskiptanefnd hefur
margtekið fram, að alls ekki sé hægt
að búast við því, að hið almenna
viðskiptaverð sé alltaf hagstæðara
en dagverðið. Menn verða að gera
það upp við sig, hvorn kostinn þeir
vilja heldur til lengdar. Það er ekki
hægt að hlaupa á milli verðviðmið-
ana eftir því, hvor er hentugri á
hverjum tíma. Mat nefndarinnar
var, að hið almenna viðskiptaverð
henti íslendingum betur, þegar til
lengri tíma væri litið, og á þetta
mat féllst viðskiptaráðuneytið, þeg-
ar ákveðið var að ganga til samn-
inga við BNOC á þessum grundvelli.
Ég hef þá trú, að þessir samningar
eigi eftir að verða Islendingum til
góðs, þegar fram í sækir. Hér má
bæta því við, að af hálfu BNOC
hefur verið gefinn kostur á viðskipt-
um með fleiri olíutegundir en gas-
olíu eina, og þá jafnframt á grund-
velli almenns viðskiptaverðs, en um
þetta er enn ósamið."
— Er oliuviðskiptanefnd ennþá
starfandi?
„Olíuviðskiptanefndin hefur ekki
formlega verið lögð niður. Nefndin
var skipuð með bréfi viðskiptaráð-
herra 29. júní 1979 og hefur skilað
ráðherra tveimur skýrslum um við-
fangsefni sitt. í bréfi, dagsettu 14.
febrúar 1980, sem sent var með
síðari skýrslunni, segir m.a.: „Meg-
inverkefnið, sem nú er framundan,
er að kanna til hlítar viðskiptakosti,
sem íslendingum kunna að standa
til boða á árinu 1981 og síðar. Er hér
um veigamikil verkefni að ræða,
sem nefndin hefur þegar unnið
allmikið að, en eru þó ekki nema
skammt á veg komin. Telur nefndin
eðlilegt, að ríkisstjórnin taki nú til
yfirvegunar, hvort hún óskar þess,
að nefndin haldi áfram störfum enn
um sinn með sama hætti og hingað
til, eða hvort hún vill koma annarri
skipan á meðferð þessara mála.
Með þessu óskaði nefndin eftir
frekari fyrirmælum um það, hvort
henni bæri að halda starfi sínu
áfram eða ekki. Við þessu hefur enn
ekki borizt svar og hefur nefndin því
ekkert hafzt að frá því hún sendi
þetta bréf og meðfylgjandi skýrslu."
— Hverju spáir þú um fram-
vindu mála á sviði olíuviðskipta?
„Um þetta efni er bezt að hafa
uppi sem minnstar spár. Eins og nú
standa sakir er augljóslega mikið
umframframboð á olíu, en reynslan
sýnir okkur, að í þessum málum
geta aðstæður brugðizt fyrr en
nokkurn varir. Þróunin á næstunni
fer óhjákvæmilega mikið eftir því,
hver verður stefna OPEC á næstu
mánuðum. Eins og verð á hráolíu og
fullunninni olíu er núna er olíu-
hreinsun er rekin með miklu tapi
víðast hvar. Það ástand fær ekki
staðizt til frambúðar, annað hvort
hlýtur hráolíuverð að lækka eða
verð á fullunnum vörum að hækka.
Hvort af þessu verður ofan á fer
fyrst og fremst eftir ákvörðunum
OPEC á næstunni, til dæmis því
hvort dregið verður úr hráolíufram-
leiðslu, en einnig eftir almennum
eftirspurnarþáttum, sem meðal
annars byggjast á hagvaxtarþróun-
inni, veðurfari og fleiru."
Þú getur bjargað lífi:
ÞEGAR hafa safnast 1,2
millj. kr. í söfnun Rauða
kross íslands „Þú getur
bjargað lífi“. Til Reykja-
víkurdeildarinnar höfðu í
gær borizt alls 700 þús. kr.
Þá kom maður, sem ekki
vill láta nafns síns getið,
með 200 þús. kr. á aðal-
skrifstofuna og sjúklingur
á Borgarspítalanum gaf 5
þús. kr., sem hann afhenti
á verzlun kvennadeildar
Rauða krossins á spitalan-
um, en áður höfðu safnast
295 þús. kr.
Frá fundinum með skólastjórunum í gær. Ljósm. Mbl. Ól. K. Magnússon.
1,2 millj. haía safnast
Undirbúningur söfnunarher-
ferðarinnar, sem hefst formlega 1.
okt. nk., er nú í fullum gangi. í
gær héldu forráðamenn Rauða
kross íslands og framkvæmda-
nefnd söfnunarinnar fund með
skólastjórum og fulltrúum þeirra
á höfuðborgarsvæðinu og ná-
grenni. Á fundinum var rætt um
hugsanlega kynningu hungur-
vandamáls barna Afríku í skólum
landsins og möguleika á aðstoð
skólabarna hér í söfnunarherferð-
inni. Tóku skólamenn vel í málið
og fóru þar fram gagnleg skoðana-
skipti um framkvæmd og kynn-
ingu herferðarinnar.
Ákveðið hefur verið að halda
stóra ráðstefnu í Reykjavík um
málefnið og leitað verður þá til
sérfræðinga á ýmsum sviðum til
að flytja stutt erindi. Þá mun aðili
frá Rauða krossinum halda til
A.-Afríku á næstunni og verður
hann tengiliður, sem sér um að
hjálparframlög frá íslandi komi
að sem beztum notum og einnig að
allt söfnunarféð komist örugglega
til skila.
Þá er í undirbúningi að hefja
samvinnu við sem flest áhuga-
mannafélög og þá sem vilja leggja
sitt af mörkum til að söfnunin nái
sem beztum undirtektum. Fjöl-
margir aðilar, listamenn o.fl. hafa
þegar boðið fram aðstoð sína en
öll slík aðstoð og ábendingar eru
vel þegnar.
Rauði krossinn hefur gefið út
sérstakan fjórblöðung, sem fyrir-
hugað er að senda inn á öll heimili
landsins og í fyrirtæki og stofnan-
ir. í ritinu eru upplýsingar um
ástandið í þeim löndum sem verst
eru stödd. Þá er þar birt kort af
hörmungasvæðinu og númer gíró-
reiknings söfnunarinnar, sem er
1-20-200. Þeir sem áhuga hafa á
kynningu málefnisins t.d. á félags-
fundum eða æskja þess að fá
fjórblöðunginn sendan geta leitað
til framkvæmdastjóra söfnunar-
innar, Jóns Ásgeirssonar, á aðal-
skrifstofu Rauða kross íslands.
Framkvæmdanefndin biður
fólk, sem hyggst leggja af mörkum
til söfnunarinnar, að nota gíró-
reikninginn 1-20-200 eða snúa sér
beint til Rauða kross félaga á
viðkomandi stöðum eða aðal-
skrifstofu. Þá skal þess getið — til
að forðast mistök — að ekki
verður gengið í hús, né staðið að
söfnun á annan hátt en framan-
greindan fyrr en eftir 1. okt. og
verður það vandlega auglýst áður.
Fjórblöðungurinn, sem Rauði krossinn heíur gefið út. Forsiðan liggur
ofan á opnunni.
Ameriskur prófessor hér á landi:
Ný lyf við gláku
Hérlendis er nú staddur próf-
essor B. Kronenberg, kunnur
maður í læknastétt og sérfræðing-
ur og kennari i augnsjúkdómum
við New York Eye and Ear
Infirmary. próf. Kronenberg
flutti í gærdag fyrirlestur á
Borgarspítaianum. Þar voru
mættir starfandi augnlæknar, ís-
lenzkir, og nemendur í fræðun-
um, sem hlýddu á próf. Kronen-
berg segja frá baráttunni við
gláku.
Glákan
Kronenberg er maður kominn af'
léttasta skeiði, en iðar af lífcíjöri.
Hann er hér í heimsókr, ásamt
konu sinni. — Glakóma er grískt
orð, sagði hann, sen> hreinlega
þýðir grænt ljósop, en það eru
sjáanleg einkenni gláku á háu
stigi-
Kronenberg kvað gláku afar
vandasaman sjúkdóm í greiningu.
Við köllum hana „the thief in the
night", sagði hann. Giákan herjar
á unga sem aldna, og sjúkdóms-
einkenni koma óglöggt fram, nema
þegar sjúkdómurinn er kominn á
það hátt stig að erfitt er um
lækningu. Glákan leynir á sér og
sjúklingurinn veit ekki af henni
fyrr en hún er orðinn alvarleg,
enginn sársauki finnst t.a.m. fyrr
en sjón hans tekur að daprast. Auk
þess sem glákan bitnar mjög
misjafnlega á mönnum.
Baráttan við gláku
í fyrirlestri sínum greindi próf.
Kronenberg frá baráttu læknavís-
indanna við glákuna gegnum árin.
Hann sagði af nýlegum aðferðum,
og árangursríkum, við greiningu á
gláku. Gláka er margbrotinn sjúk-
dómur og einkenni hennar marg-
vísleg. Kronenberg taldi upp
helztu einkennin, og síðan hvernig
hin ýmsu lyf, sem gefin hafa verið
við gláku, virka á þau einkenni, og
hverjar aukaverkanir þeirra væru
— ef einhverjar.
Það eru einkum tvö ný lyf, sem
bera beztan árangur við að halda
gláku niðri. Það eru „Propine" og
„Timulol Maleate" (sem á íslenzku
er nefnt „blokkadren").
Próf. Kronenberg var ekki í
vafa, hvort lyfið væri betra — það
var Timulol Maleate, en hann kvað
lyfjafyrirtæki ýmis þegar farin að
framleiða Propine. Próf. Kronen-
berg sagði samt 2ja ára ágæta
reynslu komna á Timulol Maleate í
Bandaríkjunum.
Þegar próf. Kronenberg hafði
lokið máli sínu, tóku læknar við að
spyrja. Þeir voru hrifnir mjög af
greinargóðu yfirliti Bandaríkja-
mannsins, en blm. forðaði sé.
þegar fyrirspurnirnar gerðust
flóknar.
- J.F.Á.
Prófessor Kronenberg flytur erindi sitt í fyrirlestrasal Borgarsjúkra-
hússins. Ljósm. Kristján.