Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980 23
bing S.U.S. 1955: Á myndinni eru m.a.: Ásgeir Pétursson (4. frá v. á bekknum), Ragnhiidur Helgadóttir (6. frá v. á bekknum), Magnús Jónsson (7. frá v. á bekknum),
Þorvaldur Garðar Kristjánsson (1. röð, 3. frá h.), Geir Ilallgrímsson (1. röð, 4. frá h.), Matthías Á. Mathiesen (1. röð, 2. frá v.), Matthías Johannessen (2. röð, 3. frá h.).
viðskiptafræðingur gegn Jóni í
prófkjöri ungra manna 1973 og féll
og Jón Steinar Gunnlaugsson í
prófkjöri 1975 gegn Jóni og féll.
Mikla athygli vakti, að ungur
maður bauð sig fram til varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins á lands-
fundinum 1979. Hann var Davíð
Oddsson borgarfulltrúi, en aðrir í
kjöri voru Matthías Bjarnason og
Gunnar Thoroddsen, og náði Gunn-
ar naumlega kjöri. Davíð sagði í
viðtali í 1.—2. hefti Stefnis 1980:
„Með þessu framboði mínu til vara-
formanns, vildi ég taka af allan vafa
um, á afgerandi og táknrænan hátt,
að ég teldi nauðsyn breytinga á
forystuliði flokksins.“
Það þótti flestum til marks um
aukin áhrif ungs fólks í Sjálfstæð^g-
flokknum, þegar þau Kjartan Gunn-
arsson og Inga Jóna Þórðardóttir
tóku við framkvæmdastjórn flokks-
ins í septemberbyrjun 1980.
Tengsl S.U.S.
við önnur samtök
Samband ungra sjálfstæð-
ismanna var í Æskulýðssambandi
íslands, en sagði sig ásamt mörgum
öðrum félögum úr því 1973, þegar
róttæklingar náðu tökum á því og
samþykktu ályktanir um stjórnmál,
sem voru þvert á stefnu sambands-
ins. Aftur var gengið í Æskulýðs-
Mikla athygli vakti framboð
Davíðs Oddssonar til varaf-
ormanns sjálfstæðisflokksins
1979, en með því risu ungir
menn upp gegn hefðbundnum
flokkadráttum hinna eldri.
Þættir úr
sögu SUS.
Allri alvöru fylgir nokkurt gaman. Hér handleikur Árni
Sigfússon, kennari og blaðamaður, gitarinn á kvöldskemmtun á
aukaþingi S.U.S. á Þingvöllum 1978.
sambandið 1978, þegar róttæklingar
höfðu sleppt tökum á því. Samband-
ið varð aðili að samtökum ungra
íhaldsmanna á Norðurlöndum,
Nordisk Ungkonservativ Ungdom
eða NUU, 1978 og að samtökum
ungra lýðræðissinna í Norðurálfu,
Democratic Youth Community eða
DEMYC, 1977.
Aðild Sambandsins að þessum
tveimur samtökum hefur verið
gagnrýnd af tveimur ástæðum. í
fyrsta lagi telja margir, að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé annarrar gerð-
ar en íhaldsflokkarnir á Norður-
löndum og eigi því varla að starfa
með þeim einum á alþjóðavettvangi,
honum svipi miklu fremur til
Kristilega lýðræðisflokksins í
Vestur-Þýzkalandi eða fhalds-
flokksins í Bretlandi en norrænu
íhaldsflokkanna. í öðru lagi óttast
sumir, að sambandið verði að ferða-
félagi, þannig að starfið miði allt að
því að komast í „ókeypis" utan-
landsferðir. Hinir, sem fylgjandi
eru aðild, segja, að hún sé ungum
sjálfstæðismönnum gagnleg, því að
þeir fræðist um viðhorf og vinnu-
brögð lýðræðissinna í öðrum lönd-
um.
Samband ungra sjálfstæðis-
manna hefur einnig verið í nokkrum
tengslum við félög, sem eru ekki
félög sjálfstæðismanna einna, en
margir ungir sjálfstæðismenn
starfa þó í. Eitt þeirra er Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta í
Háskóla íslands, sem stofnað var
1936, en fyrsti formaður þess var
Jóhann Hafstein og núverandi for-
maður er Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson. Annað er Varðberg, sem
er félag ungra áhugamanna um
vestræna samvinnu. Það var stofnað
á fyrri hluta sjöunda áratugarins,
og í því starfa saman fulltrúar
ungra sjálfstæðismanna, alþýðu-
flokksmanna og framsóknarmanna.
Formenn Varðbergs úr röðum ungra
sjálfstæðismanna hafa verið: Hörð-
ur Einarsson, Guðmundur H. Garð-
arsson, Hilmar Björgvinsson, Jón E.
Ragnarsson, Markús Örn Antonsson
og Már Gunnarsson. Hið þriðja er
Félag frjálshyggjumanna, sem
stofnað var 8. maí 1979 til að safna
og miðla upplýsingum um frjáls-
hyggju og sósíalisma (eða sam-
hyggju), en formaður þess er Frið-
rik Friðriksson. Einnig má nefna
íslenzku andófsnefndina, sem stofn-
uð var eftir handtöku vísinda-
mannsins Andreis Sakharovs í
janúar 1980, leiðtoga andófsmanna í
Ráðstjórnarríkjunum. Formaður
andófsnefndarinnar er Inga Jóna
Þórðardóttir.
Starfsreglur
Sambands ungra
s jálf stæðisman na
Samkvæmt fyrstu 'águm sam-
bandsins, sem Torfi Hjartarson
samdi, voru félög u'’gra sjálfstæð-
ismanna aðildarfélóg. í stjórn sam-
bandsins voru 5 menn, allir kjörnir
á sambandsþingi, en formaður var
kjörinn sérstaklega. Ákvæði var um
fulltrúaráð í þessum fyrstu lögum,
en það starfaði ekki að neinu ráði. I
fulltrúaráðinu áttu að vera stjórn-
armenn og einn fulltrúi hvers aðild-
arfélags. Sambandsþing átti að
koma saman árlega (en síðar var því
breytt í annað hvert ár). Samkvæmt
núgildandi lögum sambandsins eru
sambandið „bandalag kjördæmis;
samtaka" ungra sjálfstæðismanna. í
stjórn sambandsins eru 22 menn,
kjörnir á sambandsþingi, formaður,
sem kjörinn er sérstaklega, 9 frá
Reykjavík, 4 af Reykjanesi, 2 úr
Norðurlandskjördæmi eystra og af
Suðurlandi, en 1 úr öðrum kjördæm-
um. Innan stjórnarinnar starfar
framkvæmdastjórn formanns,
tveggja varaformanna, gjaldkera og
ritara. Sambandsþing kemur saman
annað hvert ár.
Félög ungra sjálfstæðismanna
eru nú þessi: Heimdallur í Reykja-
vík, Þór á Akranesi, Félag ungra
sjálfstæðismanna í Mýrasýslu, Fé-
lag ungra sjálfstæðismanna í Snæ-
fells- og Hnappadalssýslu, Félag
ungra sjálfstæðismanna í Dala-
sýslu, Neisti í Vestur-Barðastranda-
sýslu, Félag ungra sjálfstæðis-
manna í Austur-Barðastrandasýslu,
Fylkir á ísafirði, Félag ungra sjálf-
stæðismanna í Vestur-ísafjarðar-
sýslu, Félag ungra sjálfstæðis-
manna í Norður-ísafjarðarsýslu,
Ingólfur í Strandasýslu, Jörundur í
Austur-Húnavatnssýslu, Víkingur á
Sauðárkróki, Njörður á Siglufirði,
Vörður á Akureyri, Garðar á Ólafs-
firði, Félag ungra sjálfstæðismanna
í Austur-Skaftafellssýslu, Félag
ungra sjálfstæðismanna í Vestur-
Skaftafellsýslu, Fjölnir í Rangár-
vallasýslu, Eyverjar í Vestmanna-
eyjum, Trausti í Árnessýslu (en
heifur ekki starfað lengi), Félag
ungra sjálfstæðismanna í Kjós, Týr
í Kópavogi, Stefnir í Hafnarfirði,
Heimir í Keflavík og Baldur á
Seltjarnarnesi. — Ætlunin var sam-
kvæmt starfsreglum, að kjördæmis-
samtök ungra sjálfstæðismanna
væru aðilar að Sambandi ungra
sjálfstæðismanna, en þau hafa lítið
sem ekkert starfað, og því hafa hin
einstöku félög í raun verið aðilar.
Óvíst er, hve margir félagar eru
skráðir í Sambandi ungra sjálfstæð-
ismanna, en sennilega eru þeir um 5
þúsund.
Höfum við gengið
til góðs________?
Samband ungra sjálfstæð-
ismanna hefur starfað í fimmtíu ár,
og viðeigandi er að lokum að spyrja
einnar spurningar: Höfum við geng-
ið til góðs ...? Sumt bendir til þess,
að svarið kunni að vera neitandi.
Ungir sjálfstæðismenn geta náð
góðum árangri í þeirri baráttu fyrir
einstaklingsfrelsi, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn var stofnaður til að
sinna, án þess að bindast samtökum,
eins og dæmin sýna. Einnig getur
verið, að úr slíku starfi mótist
sérstök manngerð, ef svo má segja:
atvinnustjórnmálamaðurinn, sem
lifir ekki fyrir stjórnmálin, heldur
af þeim. Jón Þorláksson, Ólafur
Thors og Bjarni Benediktsson ólust
ekki upp í neinum æskulýðssamtök-
um. Þeir voru svipmiklir einstakl-
ingar, sem sköruðu í einhverju fram
úr, og völdust því til forystu. En
atvinnustjórnmálamanninum úr
æskulýðssamtökunum hættir til að
gera fylgisöflunina að eina tak-
markinu, hann hefur vanizt því frá
unglingsárum að safna atkvæðum
með alúðlegu viðmóti og þeirri
ófrumlegu hugsun, sem fælir engan
frá. Hann hefur alltaf starfað innan
flokksins og ber vopnin því ekki eins
fimlega á vettvangi stjórnmálanna,
þar sem flokkarnir berjast, og þeir
menn, sem fengnir eru inn i stjórn-
málaflokk vegna einhverra verð-
leika. En fleira bendir þó til, að
svarið verði játandi — að við höfum
þrátt fyrir allt gengið götuna til
góðs. Ungt fólk er að öllu jöfnu
óspilltara af þeim málamiðlunum,
sem gera þarf í stjórnmálum, en
hinir eldri, það vakir betur yfir
hugsjónunum. Það er ekki allt
tjóðrað við vanann eða hamslaust af
vaidafýsn. Hlutverk ungs fólks í
Sjálfstæðisflokknum hefur alltaf
verið að gæta þess, að þeirri stefnu
hans, sem mörkuð var í upphafi,
væri fylgt. Æskan hefur verið sam-
vizka Sjálfstæðisflokksins. Eldmóð-
ur hennar er flokknum lífsnauðsyn-
legur eins og reynsluvit hinna eldri
manna. Því betur skipulagðir sem
ungir menn eru, því áhrifameiri eru
þeir, og áhrif ungs fólks eru æ: ileg
í Sjálfstæðisflokknum, ekki sízt nú
þegar hann glímir við mikinn vanda
og torleystan. Æskan er ekki ein-
ungis samvizka Sjálfstæðisflokks-
ins, hún er einnig eina von hans.
BAKHtB BURT
Hugmyndir ungra sj&lfstædismanna um samdrátt í ríkisbúskapnum
Afleiðingar rikisumsvifanna:
Misrétti og slæmar
fiárfestingar xmm
J o gtsasjisg SSS:
'*l~ •» »l*c »*«• •
mma lHcnla •1M1 ifeautl feWHipknii .| H « >•
Ungir sjálfstæðismenn setja
fram hugmyndir um breytingar:
Burt með til-
færslur-hag-
kvæma fjár-
festingu
Barátta ungra sjálfstæðismanna 1977 undir kjörorðinu „Báknið
burt“ vakti mikía athygli. Þeir kröfðust þess, að dregið yrði úr
ríkisbúskapnum til þess að auðvelda markaðsbúskap og tryggja
þannig almenna velmegun.