Morgunblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
TÚNLIST
Píanótónleikar í
Norrœna húánu
SÆNSKI píanóleikarinn
Viggo Edén heldur tón-
leika í Norræna húsinu
laugardaginn 20. septem-
ber kl. 17.00.
Flytur hann þar verk
eftir danska tónskáldið
Carl Nielsen (1865—1931)
Viggó Edén nam píanó-
leik m.a. hjá Sigrid Mahr-
ström, Hilding Donnellöf,
Hilda Waldeland og
Carl Nielsen.
Gottfrid Boon, og kamm-
ermúsík nam hann m.a. hjá
Johan Akeson. Hann hefur
einnig lagt stund á sem-
balleik.
Viggó Edén hefur um
árabil kennt stærðfræði
við Lundarháskóla og er
staddur hérlendis vegna
farar Lundarstúdentakórs-
ins til íslands, sem farin er
til minningar um dr. Ró-
bert A. Ottósson.
Viggo Edén hefur marg-
oft komið fram sem ein-
leikari, kammertónlistar-
maður og undirleikari bæði
á Skáni, í Stokkhólmi og í
Gautaborg, og hefur mjög
lagt sig eftir að leika verk
eftir Carl Nielsen.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið. Snjór, laugardag
ki. 20, sunnudag ki. 20.
Leikfélag Reykjavikur. Að sjá til
þín, maður, laugardag kl. 20.30,
sunnudag kl. 20.30.
Kín verskir tónlis tar-
menn halda hljómleika
KARLAKÓR Reykjavíkur og
Kinversk-islenska menningar-
félagið hafa boðið hingað til
lands hópi hljóðfæraleikara
ásamt þjóðlagasöngkonu úr
„Hinni þjóðlegu kínversku
hljómsveit", en hljómsveit þessi
fæst einkum við túlkun erlendr-
ar og kinverskrar tónlistar á
hefðbundin, kinversk hljóðfæri.
Tónlistarmennirnir munu
dvelja hér á landi frá 20.—26.
þessa mánaðar og halda þrenna
tónleika. Hinir fyrstu verða á
Selfossi á morgun, sunnudag, 21.
sept., og hefjast kl. 20.30 í
Selfossbíói. Þá verða tvennir
tónleikar í Reykjavík: þriðjudag-
inn 23. sept. verða tónleikar í
Austurbæjarbíói, sem hefjast kl.
19 og fimmtudaginn 25. sept.
verða tónleikar í Bústaðakirkju
og hefjast þeir kl. 20.30.
Þetta er i fyrsta sinn sem
íslenskum tónlistarunnendum
gefst tækifæri til að hlusta á
hljómlist leikna á kínversk þjóð-
arhljóðfæri, sem sum eiga sér
meira en 3500 ára sögu.
Hljómsveit þessi hefur hlotið
margvíslega viðurkenningu á
erlendum tónlistarhátíðum 'og
síðastliðið ár vann hún fyrstu
verðlaun í tónlistarkeppni, sem
haldin var í tilefni 30 ára
afmælis Kínverska alþýðulýð-
veldisins.
mgar
um helgina
Kjarvalsstaðir: Septemhópur-
inn sýnir 60 olíumálverk og 5
skúlptúrverk í austursal. Sýn-
ingunni lýkur annað kvöld.
Vilhjálmur Bergsson sýnir 63
olíumálverk og 10 teikningar i
vestursal. Sýningunni lýkur
annað kvöld.
Norræna húsið: Jónas Guð-
varðsson sýnir 58 „lágmyndir"
og 14 skúlptúrverk í kjallara
hússins. Sýningunni lýkur 5.
október.
Una Dóra Copley sýnir mál-
verk, grafík o.fl. í anddyri.
Sýningunni lýkur 28. sept.
FIM-salurinn, Laugarnesvegi
112: Örn Ingi sýnir málverk,
teikningar og skúlptúrverk.
Sýningin er opin frá kl. 14—22
og lýkur annað kvöld.
Galleri Suðurgata 7: Finnski
myndlistarmaðurinn Ilkka Ju-
hani Takalo-Eskola sýnir verk
með blandaðri tækni. Sýningin
er opin 16—18 virka daga, en
16—22 um helgar til mánaða-
móta.
Djúpið, Hafnarstræti: Sjöfn
Haraldsdóttir sýnir tré- og
leirmyndir. Sýningin er opin
frá kl. 11-23.30 til 24. sept.
Mokka-kaffi, Skólavörðustíg:
Úlfur Ragnarsson sýnir vatns-
lita- og pastelmyndir. Sýningin
stendur til mánaðamóta.
Landspítalinn: Jóhanna Boga-
dóttir sýnir 24 myndir, málverk
og grafíkmyndir, á göngum
spítalans. Sýningin stendur til
5. október.
Skipulagsstofa höfuðborgar-
svæðisins, Hamraborg 7, Kóp.:
Sigurður Örlygsson sýnir 8
olíu-, akríl- og klippimyndir.
Listmunahúsið: Þrír danskir
listamenn sýna myndvefnað og
höggmyndir. Sýningin stendur
í 10 daga.
Una Dóra Copley i vinnustofu sinni.
örn Ingi við eitt verka sinna í sýningarsal FlM.
Vilhjálmur Bergsson við eitt verka sinna á sýningunni „Ljós og
víddir“ í vestursal Kjarvalsstaða.
Bíóin um
Gamla bíó sýnir bandarísku gam-
anmyndina Loðni saksóknarinn
(kl. 5 og 7). Aðalhlutverk Dean
Jones og Suzanne Pleshette; og
Komdu með til Ibiza (Summer
Night Fever), þýsk-franska gam-
anmynd með Oliviu Pascal (kl 9).
Háskólabió sýnir slagsmálamynd-
ina Jarðýtan með Bud Spencer í
aðalhlutverki. Mánudagsmyndin:
Hamingjan fylgir heimskingjan-
um, bandarísk gamanmynd með
Margot Kidder og Gene Wilder í
aðalhlutverkum.
Hafnarbíó sýnir bandaríska saka-
málamynd, Hraðsending, með Bo
Svenson og Cybill Shepherd í
aðalhlutverkum.
Nýja bíó frumsýnir gamanmynd-
ina Matargatið. Aðalhlutverk
Dom DeLuise og Anne Bancroft.
Regnboginn. Salur A: Sæúlfarnir,
ensk-bandarísk stórmynd um
djarflega för á ófriðartímum. í
aðalhlutverkum Gregory Peck,
Roger Moore og David Niven.
Salur B: Undrin í Amityville,
dulræn mynd byggð á sönnum
viðburðum. í aðalhlutverkum
James Brolin, Rod Steiger og
Margot Kidder. Salur C: Sólar-
landaferðin, sænsk gamanmynd.
Salur D: Ógnvaldurinn, hrollvekja
með Peter Cushing.
helgina
Borgarbióið sýnir nýja banda-
ríska mynd um líf forhertra
glæpamanna í Folsom-fangelsinu í
Kaliforníu.
Tónabió sýnir óskarsverðlauna-
myndina Frú Robinson. Aðalhlut-
verk Dustin Hoffman, Anne
Bancroft og Katharine Ross.
Austurbæjarbió endursýnir
bresk-tékkneska mynd, Sjö menn
við sólarupprás, sem fjallar um
morðið á SS-foringjanum Rein-
hard Heydrich. Aðalhlutverk Tim-
othy Bottoms og Martin Shaw.
Stjörnubió sýnir nýja bandaríska
stórmynd, Þrælasalan, sem fjallar
um nútíma þrælasölu. Aðalhlut-
verk Michael Caine, Peter Ustinov,
Rex Harrison, Willian Holden,
Omar Sharif og Kabir Bedi.
Laugarásbió sýnir myndina Jöt-
unninn ógurlegi (kl. 5 og 7) og
Hefnd förumannsins, kúrekamynd
með Clint Eastwood í aðalhlut-
verki (kl. 9 og 11).
Hafnarfjarðarbió sýnir myndina
Flóttinn frá Alcatraz, með Clint
Eastwood (kl. 5 og 9), Maðurinn
sem bráðnaði, hryllingsmynd (kl.
7) og Hrakförina, ævintýramynd
(kl. 3).
Bæjarbió sýnir bandaríska mynd,
Þrumur og eldingar, með David
Gardini og Kate Jackson í aðal-
hlutverkum.
Mánudagsmynd Iláskóiabíós
Hamingja fglgir
heimskingjanum
MÁNUDAGSMYND Háskólabiós verð-
ur að þessu sinni handarísk gaman-
mynd, Hamingja fylgir heimskingjan-
um (Quacker Fortune Ilas a Cousin in
The Bronx). Leikstjóri Waris Hussein.
Aðalhlutverk Margot Kidder (Super-
man) og Gene Wilder.
Myndin lýsir lífi lágstéttarfólks í
Dublin. Segir þar frá ungum manni
(Gene Wilder), sem svo illa er í ætt
skotið, að hann vill ekki fyrir nokkurn
mun vinna í verksmiðjum, heldur tekur
sér fyrir hendur að safna hrossaskít á
götum úti, m.a. eftir hestana sem draga
mjólkurvagnana, og selur síðan fínum
frúm í blómabeðin. Og það ótrúlega
gerist, að gullfalleg menntaskólastúlka M.r|fot K,dder ^ W||fcr ,
(Margot Kidder) renmr hyru auga til .H.mlngJ. fylgir helm8klngj«num“.
ættlerans unga. mánudagsmynd Háskólahiós.