Morgunblaðið - 20.09.1980, Side 27
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
27
MYNDLIST
Jónas Guðvarðsson
í Norræna húsinu
Andres Tinbo við tvö
verkanna á sýningunni i
Listmunahúsinu.
MYNDLIST
Danskir
listamenn
í List-
munahúsinu
í DAG hefst í Listmunahús-
inu fjösurra danskra iista-
manna á myndvefnaði og
höKKmyndum (skúlptúr).
Þær Annette Holdesen,
Kim Naver og Margrete Agg-
er sýna þar listvefnað og
Anders Tinsbo sýnir skúlptúr.
Listafólkið er hingað komið í
boði Listmunahússins. Sýn-
ingin stendur í 10 daga og eru
öll verkin til sölu.
1 DAG kl. 14 opnar Jónas Guð-
varðsson sýningu á verkum sinum i
kjallara Norræna hússins. Hann
sýnir þar 58 lágmyndir, svokallað-
ar af Valtý Péturssyni, og 14
skúlptúr-verk.
Jónas er Sauðkræklingur, fæddur
1932. Hann fluttist ungur maður í
Hafnarfjörð og býr þar nú. Jónas
nam i Myndlistarskólanum í
Reykjavík veturna 1963—1968, og í
kunnum spænskum skólum 1968—
1970.
Jónas Guðvarðsson hefur sýnt á
haustsýningum F.Í.M. í fimm skipti
undanfarin ár. Hann sýndi á sam-
sýningu í Barcelona 1969 og 1970 og
í Palma 1970, og ennfremur á
sýningunni „Skagfirskir málarar" á
Sauðárkróki 1971. Síðan hefur hann
haldið einkasýningar í Bogasalnum
'68, á Spáni "71, í Bogasalnum aftur
sama ár og í Norræna húsinu 1978.
Jónas vill ekki ræða um sínar
myndir, segist lítið gefinn fyrir slíkt
og vill láta verkin tala. Verkin á
þessari sýningu hefur hann unnið
tvö síðastliðin ár.
Sýning Jónasar Guðvarðssonar í
Norræna húsinu stendur til 5.
október, og er opin virka daga frá kl.
16—22, um helgar frá kl. 14—22.
Jónas Guðvarðsson við eitt verka sinna, „Háhyrnu“, á sýningunni í
Norræna húsinu.
Austurbœjarbíó endursýn-
ir Sjö menn við sólarupprás
UM ÞESSAR muffdir endursýnir
Austurbæjarbió myndina Sjö menn
við sólarupprás, sem fjallar um
morðið á SS-foringjanum Reinhard
Heydrich i Prag vorið 1942 og
hryðjuverkin sem á eftir fylgdu.
Myndin er bresk-tékknesk og er i
lit. Handrit er eftir Ronald Har-
wood, byggt á samnefndri sögu
Alan Burgess, „Seven Men at Day-
break“. Tóniist er eftir David
Hentschel. Framleiðandi er Carter
de Haven. Leikstjóri Lewis Gilbert.
Grein um atburði þessa birtist í
Morgunblaðinu 7. sept. sl.
Þegar komið er fram á'árið 1941
og Þjóðverjar virðast nær óstöðv-
andi hvarvetna, taka yfirvöld Tékka,
sem aðsetur höfðu í London, þá
ákvörðun að senda menn til Tékk-
óslóvakíu til að vinna þar á hættu-
legasta manni Þjóðverja, SS-foringj-
anum Reinhard Heydrich, sem bar
nafnbótina „ríkisverndari Bæheims
og Mæris“. Verkefni Heidrichs er að
tryggja sem best nýtingu vinnuafls-
ins í landinu í þágu hemaðar
Þjóðverja og hefur hann þegið al-
ræðisvald hjá Hitler í þeim tilgangi.
Tékkar senda fyrst 3 menn, sem
svífa til jarðar í fallhlíf, og síðan eru
fleiri sendir til viðbótar. Þeir leggja
á ráðin um tilhögun tilræðisins og
komast að þeirri niðurstöðu, að best
sé að vinna á Heydrich, þegar hann
aki til Prag frá aðsetri sínu utan
borgarinnar. Ekill hans neyðist til
að hægja ferðina, þegar komið sé að
ákveðinni beygju á leiðinni.
MYNDLIST
Jóhanna Bogadóttir sýnir
UM ÞESSAR mundir sýnir Jó-
hanna Bogadóttir 24 myndir á
göngum Landspitalans. Eru
þetta málverk og grafikmyndir
sem hún hefur unnið á sl. tveimur
árum.
Jóhanna hefur haldið margar
einkasýningar hér á landi og
erlendis og tekið þátt í fjölda
samsýninga víða um heim.
Sýningin var opnuð 12. sept-
ember og stendur til 5. október.
Þetta er fjórða sýningin sem
starfsmannaráð Landspítalans
stendur fyrir.
MYNDLIST
Sýningu Vil-
hjálms aó Ijúka
UM HELGINA lýkur sýningu Vil-
hjáims Bergssonar i vestursal
Kjarvalsstaða.
Á sýningunni sem Vilhjálmur
nefnir „Ljós og víddir" eru 63
olíumálverk og 10 teikningar. Að-
sókn hefur verið allgóð, að sögn
Vilhjálms, og 17 myndir selst. Sýn-
ingunni, sem opin er frá kl. 14.00—
22.00, lýkur annað kvöld.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
Septem ’80
ANNAÐ kvöld lýkur á Kjarvals-
stöðum — i austursal — sýning-
unni Septem '80. Þar sýna þau
Þorvaldur Skúlason, Sigurjón
Ólafsson, Karl Kvaran, Kristján
Davíðsson, Guðmunda Andrésdóttir,
Jóhannes Jóhannesson og Valtýr
Pétursson 60 olíumálverk og 5
skúlptúrverk. Að sögn þeirra Valtýs
og Jóhannesar hefur aðsókn verið
mjög góð. Sýningin verður opin frá
kl. 14.00—22.00 bæði í dag og á
morgun, en henni lýkur annað kvöld
eins og fyrr segir.
Úr leikritinu „Að sjá til þin, maður“ sem Leikfélag Reykjavíkur
frumsýndi á fimmtudagskvöld: Emil Gunnar Guðmundsson og
Sigurður Karlsson i hlutverkum sinum.
,/lð sjá til þín,
maður“ hjá LR
Á fimmtudagskvöid frumsýndi
Leikfélag Reykjavikur leikritið
„Að sjá til þín, maður“ „Mensch
Meier!) eftir þýska leikritaskáld-
ið Franz Xaver Kroetz, en þetta
er í fyrsta skipti sem leikrit eftir
hann er sýnt á íslensku leiksviði.
Kroetz þykir nú meðal fremstu
höfunda í Þýskalandi og er mest
leikinn allra vestur-evrópskra
leikritahöfunda. Islenska þýðingu
verksins gerðu Ásthildur Egilson
og Vigdís Finnbogadóttir. Leik-
mynd og búningar eru eftir Jón
Þórisson. Lýsingu annast Daníel
Williamsson. Leikstjóri er Hall-
mar Sigurðsson og er þetta fyrsta
leikstjórnarverkefni hans fyrir
Leikfélag Reykjavíkur, en Ha-
llmar er nýkominn heim frá námi
við Dramatiska Institutet í Stokk-
hólmi.
Leikendur í „Að sjá til þín,
maður" eru þrír: Sigurður Karls-
son sem leikur Ottó, Margrét
Helga Jóhannsdóttir sem leikur
Mörtu og Emil Gunnar Guð-
mundsson sem ieikur Lúðvík, son
þeirra.
Leikritið fjallar um hjónin Ottó
og Mörtu og son þeirra á tánings-
aldri. Ottó er verkamaður og
sonurinn vill gerast múrari. For-
eldrar hans eru hins vegar ekki á
sama máli í því efni og vilja að
hann stefni hærra.
Eitt einkenni á verkum Kroetz
er fámenni þeirra, þau lýsa gjarna
tveimur eða þremur persónum.
Segist höfundur fremur vilja
glæða fáa einstaklinga lífi en
bregða upp yfirborðslegri mynd af
fjölda manns. „En þótt persónurn-
ar í verkum mínum séu fáar, eru
þær þó um leið fulltrúar fyrir
miklu stærri fjölda," segir Kroetz.
Framandi menning
í framandi landi
Hetur þú áhuga á aö búa eitt ár í framandi landi?
• Viltu auka þekkingu þína á umheiminum?
• Viltu kynnast lifnaöarháttum annarra þjóöa?
• Víltu veröa víösýnn?
• Viltu veröa skiptinemi?
Ef svariö er já, haföu samband viö:
á íslandi
Hverifsgötu 39. — P.O. Box 753-121 Reykjavík.
Sími 25450 — Opið daglega milli kl. 16 til 18.30.
ffl Orðsending frá
Hitaveitu Reykjavíkur
Þeir húsbyggjendur og aörir sem ætla aö fá tengda
hitaveitu í haust og í vetur þurfa aö skila beiöni um
tengingu fyrir 1. okt. n.k.
Minnt er á aö heimæðar veröa ekki lagðar í hús fyrr
en þeim hefur veriö lokaö á fullnægjandi hátt, fyllt
hefur verið aö þeim og lóö jöfnuö sem næst því í þá
hæö sem henni er ætlaö aö vera.
Heimæöar veröa ekki lagðar ef jörö er frosin, nema
gegn greiðslu þess aukakostnaöar sem af því leiöir,
en hann er verulegur. Hitaveita Reykjavíkur.