Morgunblaðið - 20.09.1980, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
ÍAOKOÚN
KArFINU
(Ooffc
Hve margar sneiðar, frú mín
Kóð?
Yfirkokkurinn bað mig að
spyrja um líðan þína?
Guð lætur ekk-
ert koma fyrir
Guðfinna Jónsdóttir, Hafn-
argötu 40, Fáskrúðsfirði, skrifar:
„Pönkadrottningin sem var í
Morgunblaðinu á þriðjudaginn 16.
september 1980 hefur örugglega
ekki rétt fyrir sér með að jarð-
skjálfti fari um jörðina, því að
Guði þykir svo vænt um börnin
sín, að hann lætur ekkert koma
fyrir á jörðinni. Hann er búinn að
treysta mér fyrir því, að hann ætli
að koma á friði í heiminum. Það
tekur sinn tíma, því að hann þarf
að hvíla sig annað slagið, enda
spáð heimsfriði 1985. Þess vegna
er ástæðulaust fyrir fólk að taka
pönkadrottninguna alvarlega."
• Vildu borga
með lofi um
Stalín
Húsmóðir skrifar:
„Eg hef í áratugi reynt að
fylgjast með kjörum rússneskrar
alþýðu. Svo fjölmenn sem hún er,
þá var bara einn eftirlitsmaður á
hverja tvo til þrjá verkamenn,
þegar Árni Bergmann var í Rúss-
landi. Ég hef þess vegna aldrei
lesið áróðurinn sem menn skrif-
uðu þegar þeir komu saddir úr
lúxusferðalögum frá Rússlandi
sem almenningur kostaði, og vildu
endilega borga með lofi um Stalín.
• Gróf íhlutun?
Núna þykir mér aftur á móti
gott að heyra fréttirnar frá Tass.
Þar segir, að pólskir verkamenn
séu andsósíalskir og Pólland megi
ekki þiggja hjálp frá Vesturlönd-
um og hin frjálsu verkalýðsfélög
megi ekki styrkja verkamennina í
Póllandi, því að það sé gróf
íhlutun í innanríkismál landsins.
BRIDGE
Ef til vill kann iesendum að
þykja spilið í dag of auðvelt til að
líta megi á það sem þraut. En í
rauninni er máiið ekki alveg svo
einfalt.
Gjafari vestur, austur-vestur á
hættu.
Vestur Austur
S. D S. K73
H. ÁDG963 H. 52
T. Á T. D954
L. ÁKD102 L. G754
Andstæðingarnir hafa alltaf
sagt pass en vestur verður sagn-
hafi í sex laufum. Sem slíkar
skipta sagnirnar ekki máli en
fram hefur komið, að þú, með spil
vesturs, átt mörg spil bæði í
hjarta og laufi.
Útspil tígultvistur. Og nú reynir
þú.
Spilið virðist gott ef suður á
hjartakónginn. Þá má ná niður
hjartakóngnum og láta síðan
spaða blinds í hjörtun. Vissulega
þokkalegur möguleiki. Einnig má
hugsa sér að spila lágum spaða frá
blindum og fá slaginn á drottning-
una ef suður á ásinn og er meira
og minna sofandi. En það er
auðvitað lítil von til að þetta
takist. Eftir sagnirnar veit suður
að við eigum mörg spil í hjarta og
laufi.
Þegar spilið kom fyrir beitti
vestur skemmtilegri brellu. Hann
reiknaði með, að norður hefði ekki
spilað út frá kóngnum. Og ef hann
ætti hjartakónginn var um að
gera að fá hann til að spila aftur
tígli. Vestur bað því um tígul-
drottninguna frá blindum, suður
lét kónginn og nú lítum við á allt
SpÍ1Íð’ Norður
S. G954
H. K8
T. G732
Vestur L 983 Austur
S. D S. K73
H. ÁDG963 H. 52
T. Á T. D954
L. ÁKD102 L. G754
Suður
S. Á10862
H. 1074
T. K1086
L. 6
í næsta slag spilaði vestur
tromptíu á gosann, svínaði hjarta
og eins og um var beðið spilaði
norður aftur tígli. Spilið orðið
upplagt eins og lesendur ættu að
sjá sjálfir.
COSPER
Þú kvaðst ekki mundu koma heim fyrr en kl. 6 i kvöld. — Er ekki
lengur hægt að treysta orðum þinum?
félk í
fréttum
F T
Pönkadrottningin
♦ ÞESSI unga stúlka, Nina
Hagen, er kunn í pönkaheimin-
um, sem „Pönkadrottning".
Hún er reyndar frá Austur-
Þýzkalandi. Yfirvöldin þar
leyfðu henni að yfirgefa komm-
únistasæluna. Þá settist hún að
í V-Þýzkalandi. Hún var nýlega
í Ósló og hélt þá blaðamanna-
fund. Þá vakti athygli hvað
hana sjálfa snerti hárgreiðslan.
Það var nánst ekki um neina
hárgreiðslu að ræða því það
stóð út í allar áttir. Hún sagði
blaðamönnunum að hún hefði
daglegt samband við Guð. í
Bibliunni stæði að jarðskjálfti
myndi fara um jörðina. Hinir
útvöldu, sem stæðu á ströndinni
þegar ósköpin dynja yfir myndu
lifa náttúruhamfarirnar. Myndi
hún samkvæmt því sétjast að á
Bahamaeyjum. Hún hafði verið
spurð um það á hvern hátt
fólkið í A-Evrópu myndi brjóta
kerfið þar niður. Með Guðs-
trúnni. Hvað er að gerast í
Póllandi og víðar þar eystra?
spurði Nína. En ekki taidi hún
horfur á því að það mynd takast
í A-Þýzkalandi. Þar vanUr trú-
arstyrkinn.
sr.O''4-1jo
Portisch
Htibner Vi
Eftir átta jafntefli kom vinning-
ur.
Níunda einvigisskákin
Hvítt: Hiibner
Svart: Portisch
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
a6, 6. Be3 — e6. í fyrstu og þriðju v
skák einvígisins lék Portisch 6. —
e5, en nú velur hann aðra leið. 7.
Í4 - b5, 8. Df3 - Bb7, 9. Bd3 -
Rbd7,10. g4 - Rc5,11. g5 - b4!,
12. gxf6 — bxc3, 13. fxg7 —
Bxg7, 14. bxc3 — Dc7! Góður
leikur. Húbner hafði aðeins búist
við 14. — Da5, en það er síðri
leikur. 15. Hbl — 0-0-0, 16. Ke2.
Við þurfum ekki að sjá meira.
Ljóst er, að Húbner hefur teflt
þessa byrjun afleitlega og er nú
þegar kominn með verra tafl. 16.
— Hhe8. Húbner hefði getað
klórað í bakkann eftir 16. — f5,17.
Hxb7. 17. Hhgl - Bh8, 18. f5. í
þessari stöðu eru aðeins til lélegir
leikir. Portisch hótaði að leika 18.
— f5, og eitthvað varð Húbner að
taka til bragðs. 18. — e5,19. Rb3,
eftir GUÐMUND
SIGURJÓNSSON
19. — Rxe4! Þetta reiðarslag
kemur ekki úr heiðum himni, en
Húbner sá þetta þó ekki fyrir. 20.
Bxe4 — Dc4+, 21. Kd2 — Bxe4.
Húbner er kominn í verulega
taphættu. 22. Df2 — Kd7, 23. Bb6
- Hb8, 24. Kcl - Ba8, 25. Rd2
— Da4. Larsen og fleiri álitu
betra að leika 25. — Dxa2 og
svartur hefur peð yfir. 26. Í6 læsir
biskupinn inni. 26. — Bd5, 27. c4.
Húbner leggur sig allan fram við
að flækja taflið. 27. — Bxc4, 28.
Hg4 - Da3+, 29. Hb2 - Be6, 30.
Rc4! — Dh3? Portisch skynjar
ekki hættuna. Rétt var 30. — Bxc4,
31. Rxe5+! í einu vetfangi snýr
Húbner taflinu sér í vil. 31. —
Dxe5, 32. Hd4+! Allt bendir til að
Portisch hafi yfirsést þessi hrotta-
lega skák. 32. — Bd5. Eini leikur-
inn. Lítum á mátstefin: A. 32. —
exd4, 33. Dxd4+ — Kc8, 34. Dc5+ —
Kb7 (Kd7, 35. Dc7 mát), 35. Dc7+
36. Da7 mát; B. 32. — Kc6, 33.
Hd6+! - Kxd6 (Kb7, 34. Ba5+ og
mátar). 34. Dc5+ - Kd7, 35. Dc7
mát; C. 32. - Kc8, 33. Hd8+! -
Hxd8 (Kb7 t.d., 34. Ba5+ - Kc6,
35. Hb6+ og mátar) 34. Dc5+ —
Kd7, 35. Dc7+ - Ke8, 36. De7 mát.
33. Ilxd5+ - Ke6, 34. Hc5 -
Dh6+, 35. Kbl - Df4, 36. Hc6+ -
Kf5, 37. De2 — h6. Kóngurinn
svarti er kominn á vergang og
Portisch reynir að búa honum
griðland á h7. 38. Hb3 — Kg6, 39.
Hf3 - Dd4, 40. Hb3 - Dd5?
Betra var 40. — Ðf4. 41. Dg4+.
Biðleikurinn. Hort og ég lögðum
til, að Húbner ynni skákina á
eftirfarandi hátt: 41. — Kh7, 42.
Df5+ - Kg8, 43. Hg3+ - Kf8, 44.
Dh7 - Ddl+, 45. Kb2 - Hxb6+, 46.
Hxb6 - Dd4+, 47. Kcl - Df4+, 48.
Kbl - Dfl+, 49. Kb2 - Bxf6, 50.
Dg8+ - Ke7, 51. Hb7+ - Kd6
(Kd8, 52. Dxe8+! — Kxe8, 53. Hg8
mát) 52. Dxe8 — e4+, 53. c3 —
De2+ (Df2+, 54. Kb3) 54. Ka3 og nú
þótti doktornum nóg komið og bað
okkur að hætta. Hann taldi sig
færan um að vinna þessa stöðu án
frekari rannsókna og samþykktum
við það. En Portisch gafst upp án
þess að tefla frekar, og þar með
hafði Húbner tekið forystuna í
einvíginu.