Morgunblaðið - 20.09.1980, Side 40
flfotgpilltltfsifrft
^SÍminn á afgreiðslunm er
83033
|M*r0unbInbib
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980
Viðskiptabankarnir:
VIÐSKIPTABANKARNIR hala í framhaldi af aðgerðum Seðlabankans
til að auka aðhald í viðskiptum innlánsstofnana við hann «ert með sér
samkomulaK. sem á að draga mjon úr útlánaaukninKU það sem eftir er
ársins, og hafa sparisjóðirnir verið beðnir að gera hliðstæðar
ráðstafanir. Þetta samkomulag viðskiptabankanna felur í sér „strang-
ara aðhald í útlánum, einkum að því er varðar lán til fjárfestingar, kaup
viðskiptavíxla og aðra skammtimafyrirgreiðslu, lán til einstaklinga,
aukaviðb<jtarlán út á afurðir og lán til olíufélaga," að þvi er segir i
fréttatilkynningu frá Seðlabankanum.
Eftir að hægt hafði nokkuð á
'útlánaaukningu í júlímánuði og
staða innlánsstofnana gagnvart
Seðlabankanum batnað, snérist
þróunin við í ágúst, en þá versnaði
lausafjárstaða innlánsstofnana
gagnvart Seðlabankanum um 10
milljarða króna og var þá orðin
röskum 28 milljörðum króna óhag-
stæðari en í ársbyrjun.
Bankastjórn Seðlabankans átti
vegna þessa fundi með fulitrúum
innlánsstofnana og eru niðurstöður
þeirra ráðstafanir, sem annars veg-
ar eiga að bæta lausafjárstöðu
innlánsstofnana gagnvart Seðla-
bankanum, þannig að hún verði
komin í viðunandi horf um áramót-
in og hins vegar á að halda
útlánaukningu á árinu innan við
líklegt verðbólgustig.
Sjá fréttatilkynningu Seðlabank-
ans: Þorf er á verulega hertu
aðhaldi um útlán, bls. 14
Frá viðræðufundi íslendinga
og Luxemborgarmanna í for-
sætisráðuneyti Luxemborgar
í gærmorgun. Frá vinstri
Ilendrik Sv. Björnsson sendi-
herra íslands í Brússel og
Luxemborg, Steingrimur
Hermannsson samgönguráð-
herra, Walter forsætisráð-
herra Luxemborgar og Josy
Bartel samgönguráðherra.
Ljówmynd Mbl. Ragnar Axelsson.
Lán til einstaklinga og
fyrirtækja skorin niönr
Forsætisráðherra Luxemborgar:
„Vona að flugið verði áfram
í höndum okkar og Flugleiða“
„ÞAÐ ER min von að sá mikilvægi
þáttur sem flugreksturinn er
fyrir Luxemborg verði áfram í
höndum Luxemborgar og tslands
og við vonumst til þess að unnt
verði að ná rekstrargrundvelli á
ný á Norður-Atlantshafsleiðinni
með þvi að grandskoða alla mögu-
leika sem kunna að vera,“ sagði
Walter forsætisráðherra Luxem-
borgar í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins að loknum fundi
með Steingrími Hermannssyni í
forsætisráðuneytinu í Luxemborg
árla dags í gær. Walter kvað
mikla erfiðleika i stáliðnaði Lux-
emborgar þrengja mjög umsvif í
fjármálum þannig að þar væri
einnig við erfiðleika að glíma auk
erfiðieikanna i flugrekstri, sem
væri orðinn það snar þáttur i
atvinnu og efnahagslífi Luxem-
borgar að allt yrði að gera til þess
2.670 krónur, kílóið af hjörtum og
nýrum 1.771 krónu. Sviðnir hausar
kosta 1.376 krónur kílóið.
Heilslátur með ósviðnum haus og
1 kg af mör kostar 2.228 krónur og
heilslátur með sviðnum haus og 1 kg
af mör kostar 2.528 krónur.
Nýtt verð á kindakjöti:
Hækkunin er
frá 17
NÝTT verð á kindakjöti tekur gildi
á mánudaginn og er smásöluverðs-
hækkunin á kjöti á bilinu 16,8 til
26,3%, en innmatur hækkar um
10,7%. Minnsta hækkun á kjöti er á
súpukjöti, heilum og hálfum fram-
pörtum.niðursöguðum. en þar
hækkar kílóið úr 1.859 krónum í
2.172 krónur, og mesta hækkunin
er á hryggjum og lærum, en þar
hækkar kilóið úr 2.521 krónu í
3.183 krónur. Kótelettur hækka
um 24,8%, hvert kíló úr 2.766
krónum i 3.451 krónu.
Verðið er miðað við óbreyttar
niðurgreiðslur á kjöti og er reiknað
með 11% hækkun á verði til bænda
miðað við verðlagsgrundvöllinn frá
1. júní sl., en ekki hefur verið að
fullu gengið frá nýjum verðlags-
grundvelli.
Súpukjöt, 80% frampartur og
20% læri og hryggir, hækka um
17%, eða hvert kíló úr 2.205 krónum
í 2.582 krónur. Heilir skrokkar, 1.
verðflokkur, skipt eftir ósk kaup-
anda, hækka um 24,5%, eða hvert
kíló úr 1.947 krónum í 2.424 krónur
og smásöluverð heilla skrokka í
öðrum verðflokki hækkar um 25,1%,
eða hvert kíló úr 1.790 krónum í
2.239 krónur.
Kílóið af lifur kostar eftir helgina
að halda honum áfram á traustum
grunni.
Josy Bartel samgönguráðherra
sagði í samtali við Mbl. síðdegis í
gær í Luxemborg að hann væri
mjög ánægður með viðræðurnar
við Islendinga og niðurstöður
þeirra, en kvað boltann nú í
höndum Flugleiðamanna. Bartei
kvað afráðið að ríkisstjórnir Lux-
emborgar og Islands héldu áfram
samstarfi til þess að fylgjast með
og kanna alla möguleika á eflingu í
flugrekstri landanna og m.a. kvað
hann Luxair hafa kannað mögu-
leika á stofnun nýs flugfélags að
undanförnu þar sem ennþá væri
spurning um hvort það teldist
æskilegt og þá undir stjórn hverra
slíkt félag skyldi vera. Bartel kvað
stjórnvöld í Luxemborg ekki geta
ákveðið styrkveitingu í flugrekstur
á Norður-Atlantshafsleiðinni leng-
ur en í eitt ár og reyndar hefðu
stjórnvöld takmarkaðan áhuga á
að styrkja rekstur ef hann borgaði
sig ekki til lengdar, en Bartel
kvaðst undrandi yfir því hve ís-
lenzk stjórnvöld hefðu tekið seint á
þeim mikla vanda sem Flugleiðir
ættu við að glíma vegna Norður-
Atlantshafsins.
Roger Sietzen forstjóri Luxair og Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða á fundi í Luxemborg í gær en þeir hafa mjög náið samstarf
og ræða reglulega sameiginlega hagsmuni og möguleika Flugleiða og
Luxair. Ljósmynd Mbl. RAX.
Flugleiðir:
Óska tilboðs frá
Cargolux í við-
hald á DC-8 vélum
FLUGLEIÐIR hafa óskað eftir
tilboði frá Cargolux i allt viðhald
DC-8 þota félagsins en um árabil
hefur Seaboard i Bandarikjunum
Flugleiðir vilja endur-
ráða 68 flugfreyjur
Flugfreyjur mótmæla að ekki er farið eftir starfsaldurslista
FORRÁÐAMENN Flugleiða áttu í munu engar raddir hafa komið
fram gegn kröfunni um að starfs-
aldurslistinn réði endurráðningum.
gærmorgun fund með stjórnar-
mönnum Flugfreyjufélagsins og
lögðu þar fram lista með nöfnum 68
flugfreyja, sem þeir sögðu félagið
vilja endurráða og að bréf þess
efnis yrðu send út á mánudaginn.
Stjórnarmenn Flugfreyjufélagsins
sáu við lestur listans að þar var
ekki farið eingöngu eftir starfs-
aldri og fengu það staðfest. ítrek-
uðu þær þá kröfu félagsins um að
farið yrði eftir starfsaldurslista við
endurráðningar og á félagsfundi
Flugfreyjufélagsins i gærkvöldi.
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, staðfesti í samtali við
Mbl. í gærkvöldi, að forráðamenn
Flugleiða, þ.á.m. Erling Aspelund,
nefðu í gærmorgun átt fund með
fulltrúum stjórnar Flugfreyjufélags-
ins, þar sem rætt hefði verið um
endurráðningar í 68 flugfreyjustörf.
Staðfesti Sveinn, að varðandi endur-
ráðningar flugfreyja réði starfsald-
urslisti ekki eingöngu enda hefði
félagið í uppsagnarbréfum til flug-
freyja áskilið sér rétt til að endur-
ráða þær, sem hæfastar væru að
mati forráðamanna félagsins.
Flugleiðir sögðu upp öllum flug-
freyjum félagsins, 131 talsins.
Sveinn Sæmundsson sagði að mögu-
leikinn á hlutastörfum fyrir flug-
freyjur hefði verið ræddur og sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl.
hefur, munu hátt í 100 flugfreyjur
hafa skrifað undir lista þess efnis að
þær vildu hafa þann háttinn á.
annast allar stærri skoðanir á
DC-8 þotum Flugleiða. Er gert ráð
fyrir því að nýr samningur um
viðhald þessara véla komi til
framkvæmda um næstu áramót
sagði Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða i samtali við Mbl. i
Luxemborg i gær þar sem hann
var að koma af viðræðufundi með
Sietzen forstjóra Luxair. Á fundi
þeirra Sigurðar og Roger Sietzen
var fjallað um ýmsa þætti i sam-
vinnu Flugleiða og Luxair.
„Við ræddum möguleika á nánari
samvinnu Luxair og Flugleiða í
markaðsmálum, en hagsmunir
þessara félaga eru mjög tengdir
saman, enda um mjög náin sam-
skipti að ræða milli forráðamanna
félaganna," sagði Sigurður.
„Luxair", hélt Sigurður áfram „er
með flug í allar áttir árið um kring,
m.a. til Israel og Grikklands og við
ræddum mögulegar tengingar við
þær ferðir bæði fyrir íslenzka
ferðamenn og aðra sem til koma og
verður málið kannað frekar. Þá
ræddum við málin frá síðustu
viðræðufundum í sumar og kynnt-
um stöðuna hjá hvoru félagi fyrir
sig.“