Morgunblaðið - 21.09.1980, Síða 25
Jón Magnússon, formaður SUS
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
25
Rangfærslur leiðréttar
VEGNA ummæla í grein Ein-
ars K. Guðfinnssonar í Mbl. þ.
19.9. sl. leyfi ég mér að benda á
eftirfarandi:
1. Einar heldur því fram, að
ekkert hafi heyrst frá S.U.S.
upp á síðkastið varðandi
afstöðu til ríkisstjórnarinn-
ar. S.U.S. eru samt einu
landssamtök Sjálfstæðis-
flokksins, sem tekið hafa
ákveðna afstöðu gegn ríkis-
stjórninni. Staðhæfingar
um annað eru því beinlínis
rangar.
2. Í undirbúningi er Sam-
bandsráðsfundur, þar sem
m.a. verður fjallað um mál-
efni atvinnuveganna og hug-
myndir ungra Sjálfstæð-
ismanna um það hvernig
eigi að stöðva landflóttann.
Ég veit að við Einar erum
sammála í þeim efnum og
okkur gefst á þeim fundi
tækifæri til að berjast fyrir
sjónarmiðum okkar, en
staðhæfingar um aðgerðar-
leysi í þessum efnum eru því
rangar.
Jón Magnússon.
fundi Sjálfstæðisflokksins
og mælst til þess að hún yrði
samþykkt.
4. Yfirskrift greinar Éinars
og eitt aðalatriði hennar
lýtur að því, að með sam-
þykkt sinni hafi fram-
kvæmdastjórn S.U.S. brotið
lög S.U.S. Þessi staðhæfing
er einnig röng.
Þær takmarkanir, sem
lög S.U.S. setja varðandi
ályktanir framkvæmda-
stjórnar eru tvenns konar.
Annarsvegar þær, að verði
ágreiningur í fram-
kvæmdastjórn skuli máli
vísað til stjórnar þ.e. einn
framkvæmdastjórnarmað-
ur hefur neitunarvald. Hins
vegar að framkvæmda-
stjórn sé óheimilt að álykta
um stjórnmál. Fram-
kvæmdastjórn var sam-
mála um þá tillögu sem
borin var fram og hugtakið
stjórnmál verður ekki skýrt
það rúmt, að ráðning fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins falli þar undir.
Á þessi atriði þykir mér rétt
að benda, þar sem rangt er farið
með staðreyndir, önnur mætti
nefna, en ég læt lesendum Morg-
unblaðsins eftir að dæma um
gildi þeirra röksemda sem fram
komu í grein minni í Mbl. þ. 18.
sept. og Einars þ. 19. sept. sl.
Jón Magnússon.formaður
S.U.S.
ÞAU Bryndis Ólafsdóttir. Kristin Gunnsteinsdóttir og Eirikur Gunn-
steinsson hafa haldið hlutaveltu tii ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og
fatlaðra og söfnuðu þau tæp. 5400 kr.
ÞETTA eru þær Rannveig Kramer og Regina Indriðadóttir. Þa>r héldu
hlutaveltu til ágóða fyrir Kattavinafélagið, ásamt vinkonu sinni Ástu
Grétu, sem var ekki með er myndin var tekin. — Þær söfnuðu rúmlega
700 kr. til félagsins.
3. Því er haldið fram, að
ályktun framkvæmda-
stjórnar S.U.S. vegna ráðn-
ingar framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins hafi
byggst á getgátum einum.
Þessi staðhæfing er röng.
Formaður Sjálfstæðis-
flokksins hafði þá þegar
haft samband við ýmsa mið-
stjórnarmenn og tilkynnt
þeim, að hann mundi leggja
til þá skipan, sem síðar var
samþykkt á miðstjórnar-
Þetta geröist
22. september
1975 — Misheppnað banatilræði
við Ford forseta í San Francisco.
1974 — Fimm þúsund taldir af í
fellibyl í Honduras.
1965 — Vopnahlé í ófriði Indverja
og Pakistana.
1960 — Mali fær sjálfstæði.
1955 — Juan Peron steypt í
Argentínu.
1949 — Rússar sprengja fyrstu
kjarnorkusprengju sína.
1918 — Mótspyrna Tyrkja í Pal-
estínu brotin á bak aftur.
1862 — Yfirlýsing Abraham Lin-
coln forseta um frelsi þræla —
Bismarck verður kanzlari í Prúss-
landi.
1830 — Venezúela lýsir yfir sjálf-
stæði frá Kólombíu.
1789 — Austurríkismenn og Rúss-
ar sigra Tyrki við Rimnik, Val-
akíu.
1711 — Frakkar taka Rio de
Janeiro — Tuscarora-stríðið í
Norður-Karólínu hefst með morð-
um Indíána á 200 landnemum.
1609 — Hálf milljón afkomenda
Mára rekin frá Spáni.
1586 — Orrustan við Zutphen,
Niðurlöndum.
1550 — Floti Þýzkalandskeisara
tekur flotastöð sjóræningjans
Dragut í Mehedia í Túnis.
1499 — Tyrkir ræna Vicenza.
Afmæli. Anna Cleves Englands-
drottning (1515—1557) — Chest-
erfield lávarður, enskur rithöf-
undur (1694—1773) — Michael
Farady, brezkur vísindamaður
(1791—1867) — Louis Botha,
suður-afrískur hermaður og
stjórnmálaleiðtogi (1862—1919).
Andlát. 1776 Nathan Hale, ætt-
jarðarvinur, hengdur.
Innlent. 1226 d. Sighvatur Böð-
varsson (á leið til Jórsala) — 1093
d. Ólafur konungur kyrri — 1393
d. Einar prestur Hafliðason —
1867 f. Sigurjón Friðjónsson —
1939 „Esja“ kemur til Reykjavíkur
— 1952 d. Ágúst H. Bjarna-
son.1957 Árbæjarsafn opnað —
Orð dagsins. Tilræði er ýktasta
mynd ritskoðunar — George Bern-
ard Shaw, írskur leikritahöfundur
(1856-1950).
POLONEZ
VERD MEÐ RYÐVÖRN
HLBÚINN Á GÖTUNA
KR.5.686.465
Vferö miðað við gengisskránmgu 15/9 80
FIAT-UMBOÐIÐI
Smiójuvegi 4 - Sími 77200y