Morgunblaðið - 21.09.1980, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
Örn Steinþórsson
prentari -
Fæddur 1. desember 1931
Dáinn 4. september 1980
Örn Steinþórsson, svili minn, er
látinn. Fregnin kom ekki á óvart. í
langan tíma var séð að hverju
stefndi. í um það bil 10 ár barðist
Örn hetjulegri baráttu við sjúk-
dóm þann, sem að lokum varð
honum að aldurtila.
Örn fæddist á Akureyri 1. des-
ember 1931 og var sonur hjónanna
Sigrúnar Ingimarsdóttur, kenn-
ara, og Steinþórs Jóhannssonar,
Minning
kennara. Örn átti tvær alsystur,
Valborgu, sem lézt á fyrsta ári og
Bryndísi, námsstjóra, búsett í
Reykjavík. Þau systkin voru sam-
rýnd og reyndist Bryndísi honum
ávallt sem bezta systir.
Tæpra átta ára flutti Örn suður
á Akranes með móður sinni og
síðari manni hennar, Hans Jörg-
ensen, skólastjóra, og þar ólst
hann upp ásamt hálfbræðrum
sínum: Ingimar, verkfræðingi,
búsettur í Kópavogi, og Snorra,
iðnrekanda, búsettur á Akureyri.
Var jafnan hlýtt samband innan
fjölskyldunnar.
Gagnfræðaprófi lauk Örn á
Akranesi og var vaxandi náms-
maður. Hlaut hann viðurkenningu
fyrir námsárangur og prúðmann-
lega framgöngu. Hann var einnig
liðtækur í fimleikum og íþróttum.
Örn kaus að halda norður og hóf
hann nám í handsetningu í Prent-
verki Odds Björnssonar á Akur-
eyri 28. sept. 1948 og lauk því 28.
sept. 1952. Þar naut hann velvild-
ar Sigurðar O. Björnssonar, hús-
bónda síns. I prentsmiðjunni sem
annars staðar kom þessi hægláti
og prúði maður sér vel.
Brátt varð ljóst, að verkin léku í
höndum Arnar og kom það því
fljótt í hans hlut að annast
viðhald og viðgerðir vélanna. Tví-
TORFÆRU-
verður haldin sunnudaginn /- *6p**k\. /*/***
í nágrenni Grindavíkur
KOMIÐ OG S3ÁIÐ SPENNANDI KEPPNI
STYRKID GOTT MÁLEFNI
Keppendur láti skrá sig í
síma 92-3228 og 92-3605 B|öraun«r*v»itin stakkur
vegis fór hann til útlanda til þess
að kynna sér viðhald véla og
tækja. Sótti hann þriggja mánaða
námskeið við uppsetningu og við-
gerðir á Linotype-setjaravélum í
Brooklyn, New York, árið 1959, og
aftur 1966 sótti hann námskeið í
Hollandi og Þýzkalandi í meðferð
og viðgerðum á vélum. Var eftir
Erni sótzt til þess að annast slík
störf.
Hinn 23. febrúar 1952 kvæntist
Örn Helgu Magnúsdóttur frá
Ólafsfirði. Var hjónaband þeirra
farsælt og þau samhent og sam-
huga. Þeim varð fjögurra barna
auðið, en þau eru: Guðfinna Ásdís,
f. 28.11.1951, fóstra og húsmóðir í
Kópavogi, gift Þorsteini Kr.
Björnssyni, tæknifræðingi, Sigrún
Ingibjörg, f. 28.5. 1955, sjúkraliði
og húsmóðir á Akureyri, gift
Guðmundi Péturssyni, vélstjóra,
Erna Sigurbjörg, hárgreiðslu-
nemi, f. 19.5. 1962, heitbundin
Haraldi Ólafssyni, nema, og
Magnús Þór f. 23.2. 1971, en hann
var sérstaklega kærkomin afmæl-
isgjöf á giftingardegi Arnar og
Helgu.
Barnabörnin þrjú: Helga Krist-
ín, Ingvar Örn og Ragnheiður voru
sannir sólargeislar í lífi Arnar.
Tengdaforeldrar Arnar í Ólafs-
firði, þau Guðfinna Pálsdóttir og
Magnús Gamalíelsson, útgerðar-
maður, tóku honum sem einum úr
fjölskyldunni og reyndist Örn
þeim sem bezti sonur og börnum
þeirra eins og góður bróðir. Var
ávallt einkar kært og hlýtt milli
þeirra.
Á hverju sumri var farið norður
í Ólafsfjörð að heimsækja ömmu
og afa. Jafnan var þá komið við á
Akureyri og Helga og Örn heim-
sótt. I þeim ferðum áttum við
margar ánægjulegar samveru-
stundir. Nú er skarð fyrir skildi.
Fjölhæfni og dugnaður Arnar
kom vel í ljós, þegar þau hjón hófu
að reisa íbúðarhús sitt að Löngu-
mýri 19, en þau fluttu inn í það
rúmu ári eftir að Örn hófst handa
um framkvæmdir. Að vísu var þá
margt ógert, en bráðlega tókst að
ljúka verkinu. Sökum fjölhæfni og
handlagni sinnar var Örn allt í
senn: múrari, rafvirki, pípulagn-
ingamaður og smiður. Húsið var
því að mestum hluta hans eigið
handverk, enda lagði hann mjög
hart að sér.
Örn var fremur hár vexti, skol-
hærður og grannholda, hýr og
ljúfur í lund. Það, sem mér er
minnisstæðast í fari Arnar, er hin
aðdáunarverða karlmennska og
æðruleysi, sem einkenndi hann í
langri sjúkdómsbaráttu.
Alltaf var Örn glaður og bros-
andi, þegar ættingja og vini bar að
garði og aldrei heyrðist hann
kvarta eða harma hlutskipti sitt.
Sannarlega var það einstök hug-
prýði.
Helga stóð við hlið manns síns
og í veikindum hans sýndi hún
fádæma fórnfýsi og dugnað.
Við hjónin vottum Helgu, börn-
um þeirra, tengdabörnum og öðr-
um ættingjum dýpstu samúð. Á
saknaðarstundum er minningin
um góðan dreng bæði björt og
hugþekk.
Fjölskyldan þakkar trausta og
hlýja vináttu alla tíð. Útför hans
fór fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 12. september.
Gottfreð Árnason
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Al (iLVSIN(».\-
SÍ.MIW KK:
22480