Morgunblaðið - 23.09.1980, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
214. tbl. 68. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íranir og írakar
í algern styrjöld
Myndin er talin sýna
flutning á kjarnaoddi
þeim, sem fréttir herma að
hafi þeytzt hundruð metra
í loft upp frá neðanjarðar-
byrginu í Damascus, Ark.,
í sprengingunni á dögun-
um. Utan á hylkinu stend-
ur „Missið ekki“ („Do not
drop“).
Hagdad, 22. september. AP.
ÍRAKAR og íranir sögðu i dag
að algert strið væri hafið milli
landanna. írakar sögðu að þeir
hefðu gert loftárás á flugvöllinn i
Teheran og 10 aðra flugvelli i
Vestur- og Suðvestur-lran. íranir
svöruðu með loftárásum á Was-
et-hérað i írak, 160 km austur af
Bagdad. og hafnarborgina Basra.
Khomeini trúarleiðtogi sakaði í
kvöld Jimmy Carter Bandaríkja-
forseta um að styðja árásir íraka
og skoraði á þjóð íraks að setja
Saadam Hussein forseta af. í
Washington sagði Carter að
Bandaríkin mundu hvorugan aðila
styðja í stríðinu. „Eina von okkar
er sú að þjóðirnar geti leyst
deiluna friðsamlega," sagði hann.
Hvorki íran né írak lýsti form-
lega yfir stríði þrátt fyrir frétta-
tilkynningar um loftárásir og sjó-
orrustur. írakar sögðu, að sex
íranskar flugvélar hefðu verið
skotnar niður og tveir íranskir
flugmenn teknir til fanga. íranir
sögðu, að sex írakskar MIG-
flugvélar hefðu verið skotnar
niður í loftbardögum. Lík fallinna
íranskra flugmanna voru flutt til
íranska landamærabæjarins Ilam.
íranir lýstu því yfir, að héruðin
við Hormuz-sund, innsiglinguna í
Persaflóa, væru ófriðarsvæði og
vöruðu skip við að flytja hergögn
og vistir til hafna í Irak. íranska
landvarnaráðuneytið kunngerði
nýja siglingarleið erlendra skipa
um Hormuz til að „vernda sigling-
ar á Persaflóa". Skipin verða að
sigla 19 km suður af eynni Abu
Mousa, 19 km suður af eynni Serri
pg 19 km suðvestur af eynni Merzi.
íranski sjóherinn stjórnar sigling-
um um Hormuz-sund frá þessum
eyjum. „íransstjórn ber enga
ábyrgð á afleiðingunum, ef þessi
fyrirmæli eru brotin," sagði ráðu-
neytið.
Ríkisstjórnir beggja landa birtu
fyrirmæli um myrkvun í löndun-
um vegna vaxandi loftárása og
hvöttu almenning til að spara
rafmagn og fara ekki nálægt
hernaðarskotmörkum.
Abolhassan Bani-Sadr íransfor-
seti fullvissaði landsmenn í sjón-
varpi, að skyndiárásir íraka hefðu
engin áhrif haft á íranska flugher-
inn. Hann sakaði Bandaríkin um
að styðja stjórn Saadam Husseins
forseta og Baathista í Irak og
kallaði stríðið „bandaríska árás
með írönskum staðgenglum". „Her
okkar mun svara í sömu mynt,“
sagði hann. „Þetta stríð, sem
óvinurinn þröngvaði upp á okkur,
mun ráða örlögum hinnar spilltu
stjórnar sem var skipað að ráðast
á okkur."
í Moskvu ræddi varaforsætis-
ráðherra íraks, Tariz Aziz, í dag
við háttsetta sovézka embættis-
menn um alþjóðamál, m.a. átök
íraka og írana, að sögn Tass.
Olíuflutningar frá Persaflóa
hafa ekki enn orðið fyrir meiri-
háttar truflunum vegna átakanna.
Herfræðistofnunin í London tel-
ur ólíklegt, að átökin verði alls-
herjarstríð milli íraks og írans,
þar sem bæði löndin muni sjá sér
hag í að takmarka átökin.
Um baksvið stríðsins: sjá bls.
24-25.
Óháð verkalýðsfélög
sameinast í Póllandi
Gdansk. 22. september. AP.
FULLTRÚAR frjálsra verkalýðs-
félaga i Póllandi ráku smiðs-
höggið á stofnskrá landssamtaka
i dag og ætla að fara til Varsjár á
morgun til að skrá samtökin hjá
dómsyfirvöldum.
Deild hreyfingarinnar í Varsjá,
sem kveðst hafa 90.000 verkamenn
innan vébanda sinna, hótaði jafn-
framt verkfalli í dag, ef fulltrúar
borgaryfirvalda yrðu ekki við
beiðni þeirra um aukinn aðgang
að fjölmiðlum, aukið framboð á
Viðræður í Færeyjum
Frá JÓKvan Arac í Færeyjum í tta r.
VIÐRÆÐUR eru hafnar milli
stjórnarflokkanna þriggja í Fær-
eyjum og þær geta ef til viil leitt
til þess að stjórnarsamvinnan
verði tekin upp að nýju.
Forseti Lögþingsins frestaði
þrisvar sinnum í dag þingfundi,
þar sem tillagan um þingrof átti
að koma til umræðu og nú hefur
verið ákveðið að næsti fundur
verði haldinn á morgun, þriðju-
dag, kl. 15.
Viðræður fóru fram í dag milli
þingflokka stjórnarflokkanna og
talið er að reynt sé að sætta
flokkana í málinu, sem samvinnan
strandaði á — deilunni um vetrar-
siglingar ferjunnar Smyrils.
matvælum og tryggingar fyrir því
að verkamenn yrðu ekki lögsóttir.
Varsjá er sögð eina borgin, þar
sem slíkum kröfum hafi ekki verið
fullnægt.
Lech Walesa, leiðtogi verka-
manna í Gdansk, segir að nýja
hreyfingin muni hafa aðalstöðvar
í Gdansk og kallast „Samstaða".
Walesa fer ásamt fulltrúum 17
svæðanefnda og landsstjórn sam-
takanna til Varsjár til að skrá
samtökin.
Hreyfingin kemur fram sem ein
landssamtök með deildum í helztu
borgum Póllands. Hvert svæða-
samband verður sjálfstætt í eigin
málum og landsstjórnin mun sam-
ræma störf hinna einstöku félaga
án þess að stjórna þeim.
Pólska stjórnin úrskurðaði, að
óháð verkalýðsfélög, sem vildu
ekki vera í tengslum við hið
ríkisrekna verkalýðssamband,
yrðu að sækja um skráningu hjá
borgarréttinum í Varsjá. Embætt-
ismenn segja, að formleg skrá-
setning muni fara fram hálfum
mánuði eftir að umsókn er lögð
fram.
Muskie býður lapsn á
deilumálum við Irani
Loftárás
Nairobi. 22. septembor. AP.
SÓMALÍUMENN sökuðu Eþíópí
menn í dag um loftárásir á Dc
og tvo aðra bæi nálægt landamæ
um þjóðanna. Eþíópíumenn vísui
ásökuninni á bug. I London vísa
brezka stjórnin á bug mótmælu
Eþíópíumanna gegn þeirri ákvör
un Sómalíustjórnar að vei
Bandaríkjamönnum hernaða
aðstöðu.
T~fc i i i •
New York. 22. ájtúst. AP.
EDMUND S. Muskie, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatti
til þess í dag, að handarísku
gisiarnir í Teheran yrðu iátnir
lausir og bauðst til að leysa öll
deilumál írana og Bandaríkja-
manna „á grundvelii gagn-
kvæmrar virðingar og jafnrétt-
is“.
Muskie skoraði á Allsherjarþing
SÞ að styðja skjóta frelsun gísl-
anna og samþykkja öruggar ráð-
stafanir til verndar diplómötum
alls staðar gegn hryðjuverka-
mönnum.
Hann sagði, að Bandaríkin
mundu hætta refsiaðgerðum gegn
íran og leggja sitt af mörkum til
að finna sanngjarna lausn á deilu-
málum landanna þegar gíslarnir
52 hefðu verið látnir lausir. En
hann tók ekki í mál að ganga að
kröfum írana um að Bandaríkja-
stjórn biðjist afsökunar á stefnu
sinni í stjórnartíð fyrrverandi
keisara.
í Teheran lýsti Hashemi Raf-
sanjani þingforseti því yfir í dag,
að þingið tæki ekki ákvörðun um
afdrif gíslanna fyrr en Bandaríkin
hefðu gengið að kröfum írana,
einkum kröfunni um að auðæfum
keisarans yrði skilað.
Hann kvað árás íraka á íran
„lið í bandarísku samsæri", og
sagði að ófriður þjóðanna mundi
hafa áhrif á afdrif gíslanna.
En fréttatímarit Araba í Lon-
don, „8 Days“, segir í dag, að
Khomeini hafi „endanlega sam-
þykkt“, að gíslunum verði sleppt á
næstu sex vikum og spáir því að
viðræður hefjist snemma í októ-
ber. Leyniviðræður hafa staðið
yfir í þrjá mánuði, segir blaðið.
Brezkt skip
í kúlnahríð
London. 22. septembor. AP.
BREZKT vöruflutningaskip,
„Strathfife", hefur lent í skot-
hríð á Shatt A1 Arab og talið
er að nokkur önnur brezk skip
séu innikróuð í íröksku hafnar-
borginni Basra, að sögn emb-
ættismanna í London í kvöld.
Um manntjón er ekki vitað.