Morgunblaðið - 23.09.1980, Blaðsíða 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
Ég finn hvergi startbyssuna,
strákar!
BRIDGE
Umsjón: PélLBergsson
COSPER
Viltu veðja 100 kalli að við séum ekki tvíburar?
Garðar Loftsson list-
málari — Sextugur
í úrspilsþraut ert þú með spil
suðurs og einhverra hluta vegna
opnar þú á 1 laufi. Vestur hoppar
þá í 4 spaða og norður vill líka
vera með. Hann stekkur í 6 lauf
og verður það lokasognin.
Norður
S. Á1062
H. K
T. ÁG
L. ÁD9763
Suður
S. 4
H. ÁDG7
T. KD103
L. G1082
Útspil spaðakóngur. Þú reynir
eðlilega ásinn en þá trompar
austur með fjarka og spilar næst
hjartafjarka. Og nú er spurningin
hvernig á að standa að þessu. Á að
svína trompinu eða ekki?
Andstæðingarnir eiga bara tvö
tromp og vel kemur til greina að
taka bara á trompásinn og láta
slag standa. En sé gert ráð fyrir,
að vestur eigi til hjarta þá er til
hundörugg leið.
Þú tekur hjartafjarkann með ás
og spilar næst hjartadrottning-
unni. Gerum ráð fyrir að vestur
fylgi aftur þá lætur þú tígulásinn
frá blindum. Næst spilar þú
hjartagosa en þá fylgir vestur
ekki, lætur spaða, en tígulgosinn
fer úr blindum. Þá er vitað, að
vestur átti 8 spaða og 2 hjörtu.
Næst spilar þú tígulkóng. Vestur
lætur tvistinn en næst Iætur hann
spaða í tíguldrottninguna. Þá er
skipting vesturs orðin ljós. 10 spil
á hálitunum, 1 tígull og hann á því
bæði trompin. Og aðeins er eftir
að svína trompinu og vinna spilið.
Á þennan veg má vinna spil
þetta hvenær sem vestur á a.m.k.
eitt tromp. Hefði hann átt bara
eitt hjarta þá hefði það komið í
ljós þegar drottningunni var spil-
að og þá væri bara eftir að spila
tíglunum og athuga hve mörg spil
hann ætti þar. Og varla þarf að
bæta við, að ef vestur trompar þá
má trompa betur í blindum og
kóngurinn mun koma næst í
trompásinn.
í dag 23. september er sextugur
Garðar Loftsson listmálari frá
Böggvisstöðum í Svarfaðardal.
Foreldrar hans voru Loftur Bald-
vinsson útgerðarmaður og bóndi,
er bjó rausnarbúi á Böggvis-
stöðum. Hann er látinn fyrir
mörgum árum síðan. Móðir hans
er Guðrún Friðfinnsdóttir núlif-
andi á Dalvík. Dvelur hún hjá
dætrum sínum og tveim sonum að
Bjarkarbraut 7. Hún er komin yfir
nírætt og ber aidur sinn vel, eftir
langan og annasaman dag. Börnin
voru 12 og eru 10 á lífi í dag. Tveir
bræðranna eru dánir. Garðar var
sjöunda barn foreldra sinna.
Á mannmörgu heimilí þurfti
mörgu að sinna, bæði til sjós og
lands. Garðar tók ungur til hendi
vegna heimilis síns og sjálfs síns.
Garðar lauk gagnfræðaprófi við
menntaskólann á Akureyri. Um 20
ára bil vann Garðar við KEA á
Akureyri. Komu þar listrænir
hæfileikar hans til notkunar, því
auk venjulegra verslunarstarfa,
þá vann hann mikið við útstill-
ingar.
Snemma komu fram listrænir
hæfileikar Garðars. Hann var
mjög drátthagur og litameðferð
hans honum í blóð borin. Enda
ekki langt frá honum að skyld-
leika listmálararnir Jón Stefáns-
son, Freymóður Jóhannsson, Sig-
urður Guðmundsson listmálari,
Jónas Hallgrímsson skáld og nátt-
úrufræðingur og svo Laxamýrar-
ættin.
Garðar er sjálfmenntaður lista-
maður og hefir hann verið mikil-
virkur listamaður. Eru málverk
hans víða um þetta land, Norður-
lönd og Bandaríki Norður-Amer-
íku. Það er birta og heiðríkja yfir
verkum hans og sönn litafegurð
eins og íslensk náttúra býður svo
fjölbreytilega upp á.
Garðar hefir verið gæfumaður í
einkalífi sínu og á ég þar við
hreina og heilsteypta trú á Frels-
arann Jesúm Krist. Fyrir meira en
tuttugu árum siðan, átti hann sitt
afturhvarf. Hann frelsaðist og tók
afstöðu með söfnuði Hvítasunnu-
manna fyrst á Akureyri og síðar
meir hér í Reykjavík. En þar hefir
hann átt heimili undanfarin 15 ár.
Garðar nam Biblíufræði í Eng-
landi og er góður enskumaður og
vel fær í Helgum Ritningum. Að
Um Skíðblaðni — hið
f urðulega skip Asa
Ingvar Agnarsson skrifar:
„í Gylfaginningu segir svo:
Þá mælti Gangleri: „Hvat er at
segja frá Skíðblaðni, er hann beztr
skipa, hvárt er ekki skip jafnmikit
sem hann?“
Hárr segir: „Skíðblaðnir er
beztr skipanna ok með mestum
hagleik gerr, en Naglfar er mest
skip. Þat á Múspell. Dvergar
nökkurir, synir Ivalda, gerðu
Skíðblaðni ok gáfu Frey skipit.
Hann er svá mikill, at allir æsir
megu skipa hann með vápnum ok
herbúnaði, ok hefir hann byr,
þegar er segl er dregit, hvert er
fara skal, en þá er eigi skal fara
með hann á sæ, þá er hann gerr af
svá mörgum hlutum ok með svá
mikilli list, at hann má vefja
saman sem dúk ok hafa í pungi
sínum."
• Gátu látið skipið
efnast og afefnast
Margt er furðulegt, sem frá er
sagt i goðsögnum, en þó mun sumt
vera, sem styðst við raunveru-
leika, og sem skilja mætti ef
stuðst væri við hinn nýja lífsskiln-
ing, sem boðaður er í kenningum
dr. Helga Pjeturss. Margt í goð-
sögnum á rót að rekja til lífsins á
öðrum stjörnum. Svo mun og vera
um sögu þá af Skíðblaðni, hinu
merkilega skipi, sem Snorri
Sturluson segir frá í Eddu. Æsir
voru lengra komin þjóð á annarri
jörð og Skíðblaðnir var einn hinna
merkilegu farkosta þeirra. Frá-
sögnin bendir til þess, að Æsir
gátu látið Skíðblaðni efnast (mat-
erialiserast) eða afefnast eftir
þörfum: haft hann í fullri stærð og
með öllum búnaði, er þeir þurftu á
honum að halda eða haft hann „í
pungi sínum" þess á milli, þ.e.
látið hann hverfa eða verða að
engu, afefnast.
Hér gæti og verið um það að
ræða, að hinir lengra komnu
munu fara hamförum milli fjar-
lægra staða og milli byggðra
hnatta á svipstundu, en víða í
Eddu er einmitt sagt frá atburð-
um, er þannig mætti skilja.
eðli sínu er Garðar óáreitinn
friðsemdarmaður, farsæll og
stefnufastur. Munar um lið hans í
söfnuði Hvítasunnumanna og
styrk stoð hefir hann verið
Kristniboði meðal framandi þjóða.
Garðar hlaut í vöggugjöf einkar
fagra og bjarta tenor-rödd, beitir
henni af smekkvísi og syngur í
einum kunnasta kór landsins
Kirkjukór Fíladelfíu undir stjórn
Árna Arinbjarnarsonar.
Garðar er faðir tveggja sona og
einnar dóttur, Skírnir prestur,
Baldur uppeldisfulltrúi og Hrafn-
hildur gift og búandi kona.
Nú við þessi merku tímamót í
lífi Garðars, sendum við vinir
hans honum og öllu fólki hans
innilegustu hamingjuóskir í tilefni
afmælisins. Biðjum við honum
Blessunar Drottins á ókomnum
tima og náðar til þjónustu í Guðs
Ríki. Fyrir hönd Fíladelfíusafnað-
arins færi ég traustum vini og
bróður innilegustu kveðjur og
þakklæti fyrir órofa samstöðu og
liðsemd við útbreiðslu fagnaðarer-
indis Jesú Krists.
Einar J. Gíslason.
Krýndur í Kaíró
Kairó, 20. Keptember. — AP.
SONUR fyrrvcrandi íranskeisara,
Reza krónprins, verður væntan-
lega krýndur nýr keisari í Kairó í
október og mun þá mynda útlaga-
stjórn að sögn egypzka tímaritsins
„Október“ í dag.
Tímaritið sagði að Reza yrði
tvítugur í október og ýrði því
krýndur í samræmi við írönsku
stjórnarskrána frá 1906. Reza er
um þessar mundir í Egyptalandi og
hyggst stunda nám í stjórnmálavis-
indum og hagfræði í bandaríska
háskólanum í Kaíró að sögn systur
hans.