Morgunblaðið - 23.09.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
27
r
• James Hunt, fyrrverandi heimsmeistari i „Formúlu 1“ kappakstri,
er alltaf jafnvinsæll hjá kvenfólkinu. Hér sést hann með tveimur sem
Kreinilega hafa keypt sér of stuttar buxur.
Arnór er meiddur
• Yngsti atvinnumaður okkar í knattspyrnu. Arnór Guðjohnsen, sem leikur með Lokeren í Belgíu, getur
ekki leikið með isienska landsliðinu á móti Tyrkjum á miðvikudag vegna meiðsla. Arnór lék ekki með liði
sínu um helgina. Arnór sem er annar frá vinstri á myndinni hér að ofan hefur átt góða leiki með liði sínu
það sem af er keppnistimabilinu. Lokaren hafði fjóra útlendinga í liði sínu er keppnistímabilið hófst. Þá
Lubanski frá Póllandi, sem er lengst til vinstri, Lato, einnig frá Póllandi, annar frá hægri, og loks Danann
Preben Elkjær, sem er lengst til hægri. En nú hefur nýlega einn nýr bæst í hópinn, Dobias frá Bohemians
í Prag. Lubanski og Lato léku nýlega 80. og 94. landsleiki sína fyrir Pólland. En þeir voru aðalmennirnir í
liði Póllands er gerði garðinn frægan í HM-keppninni í Vestur-Þýskalandi 1974.
- segja kunnugir um ítalska knattspyrnu
SEM KUNNUGT er, gekk írski
knattspyrnusnillingurinn Liam
Brady til liðs við ítalska knatt-
spyrnurisaveldið Juventus á sið-
asta sumri. Fóru kaupin fram
eftir fleiri vikna þóf, þar sem
fleiri félög höfðu mikinn hug á að
fá Brady í sinar raðir. Og auðvit-
að varð kappinn að kynna sér öll
þau tilboð sem honum bárust.
Juventus bauð best. Framundan
er þvi erfitt keppnistimabil hjá
Brady. Ilann þarf að aðlagast
ítalskri knattspyrnu, sem þykir
heldur hciftarlegri en sú enska,
hann þarf að læra á hina nýju
félaga sína, hann þarf að yfir-
stiga tungumálaerfiðlcika sem
óhjákvæmilega munu koma upp
og margt fleira mætti telja.
Brady gekk bærilega í æfingar-
leikjum með ítalska liðinu, skoraði
meðal annars tvö mörk í einum
þeirra. En í fyrstu umferð ítölsku
deildarkeppninnar náði Juventus
jafntefli á útivelli og bar lítið á
Brady. Hann var með „yfirfrakka"
allan leikinn og er það væntanlega
forsmekkurinn af því sem koma
skal. ítalir hafa nýlega opnað
knattspyrnuvígstöðvar sínar fyrir
erlendum knattspyrnumönnum.
Fyrir nokkrum árum léku þó all
margir útlendingar með ítölskum
liðum, þ.á m. Bretarnir Denis Law
og Jimmy Greaves.
Denis Law stóð sig mjög vel,
hann lék um tíma með Torino og
skoraði á einu keppnistímabili 10
mörk. Það þykir samsvara 25—30
mörkum á keppnistímabili í ensku
knattspyrnunni, slíkur er varnar-
leikurinn í ítölsku knattspyrn-
unni. En Law ber Itölum ekki
sérlega vel söguna. „Maður þarf
helst að hafa augu í hnakkanum
til þess að víkja sér undan brjál-
uðum varnarmönnum." Síðan
heldur Denis Law áfram og segir
frá einum af fyrstu leikjum sínum
með Torino: „Við vorum að leika
gegn Lanerossi Vicenza og vorum
komnir í 3—1. Skoski landsliðs-
maðurinn Joe Baker, sem Torino
keypti um svipað leyti og félagið
keypti mig, hafði skorað tvívegis
og leikið vörn Lanerossi grátt.
Miðverði Lanerossi líkaði atferli
Bakers stórilla, sveif að honum og
potaði í augun á honum. Dómar-
inn sá ekki atvikið, en sá hins
vegar er Joe sparkaði í bræði sinni
á eftir ítalanum. Og Joe var vikið
af leikvelli." Denis Law klikkir
síðan út með því að vara Breta við
að ganga á mála hjá ítölskum
félögum.
Law gekk vel, en aðra sögu er að
segja af Jimmy Greaves, þeim
magnaða markaskorara. Hann var
um skeið hjá AC Milano og var
fljótur upp á kant við kerfið. Það
var margt sem honum mislíkaði
við félagið og bitnaði það á
frammistöðu hans á leikvellinum.
Það gat ekki endað nema á einn
veg, hann var settur á sölulistann.
Og ítölunum til undrunar, mynd-
aðist þegar í stað hin myndar-
legasta biðröð. Það var síðan
Tottenham sem hreppti leikmann-
inn dýrmæta. Það er því ekki
öllum gefið að aðlagast ítalskri
knattspyrnu og augu knattspyrnu-
áhugamannanna munu beinast í
ríkum mæli að Brady ...
Borussia Dortmund hefur ný-
lega keypt hinn 28 ára gamla
miðvallarspilara Walter Meuws
frá FC Brugge. Walter hefur um
nokkurt skeið verið fastur maður
i belgíska landsliðinu.
Ray Wilkins enski landsliðs-
maðurinn i Man. United þjáist af
magaveiki og getur ekki leikið
með liði sínu fyrr en í nóvem-
bermánuði i fyrsta lagi.
Brian Clough hefur sett John
Robertsson á sölulista hjá félagi
sínu Nottingham Forest. Það var
Robertsson sem skoraði sigur-
mark Forest í siðasta úrslitaleik
gegn Hamborg SV, er Forest
tryggði sér Evrópumeistaratitil-
inn.
Brian hefur mikinn áhuga á
að fá til liðs við sig Colin Morris
frá Blackpool.
• Liam Brady i hinum röndótta búningi Juventus. Við hlið hans er
landsliðsmaðurinn kunni, Roberto Bettega.