Morgunblaðið - 23.09.1980, Page 19

Morgunblaðið - 23.09.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980 19 Karl Rolvaag ásamt Hilmari Helgasyni á blaðamannafundinum á skrifstofu SÁÁ. M?nd Mbi. Emiiia. hlyti ég að geta stjórnað sjálfum mér. Eftir ósigurinn þá bauð John- son forseti mér sendiherraemb- ætti hér á landi. Þegar manni býðst slíkt embætti er fortíð manns könnuð og FBI gerir það. Sker úr um hvort maður sé hæfur. Meðal annarra hluta er áfengisneyzla könnuð. Nú, ég stóðst þetta próf — enn ein sönnun þess ég ætti ekki við áfengisvandamál að stríða. Ég var hér í fjögur ár og leið ákaflega vel, þó glasið væri auðvitað ekki langt undan. En fljótlega eftir að ég fór héðan missti ég vald yfir áfengisneyzlu minni. Eg fór yfir línuna. Af hverju einmitt eftir að ég fór frá íslandi? Því get ég ekki svarað. Það er svo margt, sem við ekki vitum um alkóhólisma. Til dæmis, af hverju þjóðir á norðlægum breiddargráðum eiga í meiri erfiðleikum með áfengi en jgengur og gerist — þá á ég við Islendinga, Norðmenn, Finna, Rússa og íbúa N-Minne- sota. Frakkar eiga við landlægt áfengisvandamál að stríða — en hins vegar alls ekki ítalir og Spánverjar eða gyðingar, mú- hameðstrúarmenn eiga ekki í þessu geigvænlega stríði. Af hverju? Því getur enginn svar- að. Én það var einmitt eftir að ég hætti að velta þessu „af hverju" fyrir mér og einbeitti mér að sjúkdómi mínum, að árangur fór að nást. Ég hef fundið styrk minn í AA-samtökunum. Og nú hef ég látið af störfum í opinberu lífi. Reyni að leggja mitt af mörkum í baráttunni við áfengið. Ég er alkóhólisti — og verð það sem eftir er. Um árabil drakk ég flösku af whiskey á dag og auk þess einn eða tvo eftir kvöld- verð. Ég þarfnast ekki áfengis núna en stundum myndi ég þiggja ef boðið væri — og okkur alkóhólistum er einmitt kennt að þekkja aðstæður, þar sem hættan er meiri á að detta. Þegar menn eru reiðir, einmana, þreyttir — það eru hættumerki. Það hefur orðið hugarfars- breyting síðustu 10 árin gagn- vart áfengisvandamálinu, stórkostleg hugarfarsbreyting. Og mér hefur verið tekið stórk- ostlega í þau ár, sem ég hef haldið mér þurrum. Nánast við- kvæði, að sagt er við mig: Karl, en hvað þú lítur vel út. Á föstudaginn var haldið samsæti okkur, sem gegnt höfum fylkis- stjórastörfum í Minnesota, til heiðurs. Við erum átta, sem erum á lífi og allir sögðu: Karl, en hve þú lítur vel út. Fólk hringir í sífellu til mín með vandamál sín og leitar ráða og hjálpar. Og maður reynir hvað maður getur. En það verð ég að segja, að enn lifi ég í blekkingu. Því enn þann dag í dag á ég erfitt með að viðurkenna, að ég hafi ekki getað stjórnað eigin lífi. Svona erfitt er vandamálið — og svona erfitt verður það. Ég og mínir líkar eigum í því það sem eftir er ævinnar," sagði Karl Rol- vaag, að lokum. viðfangsefni heimspekinga um aldir. Sömuleiðis er það snar þáttur í vinnu stjórnmálafræð- inga. Það gæti þess vegna orðið efni í fræðilega deilu að velta fyrir sér hvort það sé pólitísk athöfn þegar stjórnmálaflokkur ræður sér framkvæmdastjóra. í mínum huga leikur enginn vafi á, að það er hápólitískt að ráða framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins. Mér myndi til dæmis ekki detta í hug, að Ólafur Ragnar Grímsson eða Steingrímur Hermannsson yrðu ráðnir framkvæmdastjórar Sjálfstæðisflokksins. Þeir eru þó báðir duglegir menn og röskir. En aldeilis óhæfir til starfans af pólitískum ástæðum. Svo geta Einar K. Guðfinnsson Bolungarvik: Er framkvæmda- stjórinn ópólitískur? SYNDAREGISTUR Jóns Magn- ússonar, formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna, frá 21. sept. kallar á nokkrar athuga- semdir. Ég læt eftirfarandi nægja: Það var aðalatriði í grein þeirri, sem ég reit í Morgunblað- ið 19. þessa mánaðar, að með samþykkt sinni um ráðningu nýs framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins hafi fram- kvæmdastjórnin farið út fyrir verksvið sitt. Hafi í raun og veru brotið lög Sambands ungra sjálfstæðismanna. Því til rök- stuðnings vitnaði ég til fimmtu greinar í lögum SUS. í þessari lagagrein kemur ótvírætt fram að framkvæmdastjórn annist daglegan rekstur SUS milli funda stjórnarinnar. Hún á að taka ákvarðanir er lúta að framkvæmdum sambandsins. Og loks er klásúla um að framkvæmdastjórn sé óheimilt að álykta um stjórnmál. í framhaldi af þessu benti ég á það í grein minni, að ályktun framkvæmdastjórnar sé laga- brot. Þetta segir héraðsdóms- lögmaðurinn Jón Magnússon, formaður SUS, að sé rangt. Rök hans eru þau, að „hugtakið stjórnmál verður ekki skýrt það rúmt, að ráðning framkvæmda- stjóra Sjálfstæðisflokksins falli þar undir". Nú er það svo, að heilar háskólagreinar fást við grein- ingu hugtaka. Þetta hefur verið menn velt fyrir sér hvort ráðn- ing á framkvæmdastjóra Sjáif- stæðisflokksins sé pólitísk eður ei. Það vill svo vel til að valdsvið framkvæmdastjórnarinnar er nákvæmlega markað í lögum SUS, eins og ég hef þegar rakið. Samkvæmt því er framkvæmda- stjórninni ætlað að annast dag- legan rekstur á milli funda stjórnar SUS og að taka ákvarð- anir er lúta að framkvæmdum sambandsins. Þrátt fyrir ítrasta velvilja er mér fullkomlega ómögulegt að flokka ráðningu framkvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins undir þetta skýrt af- markaða verksvið fram- kvæmdastjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ráðning framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins er ekki hluti af daglegum rekstri SUS. Því síður má segja, að ráðning hans lúti að framkvæmdum sambandsins. Þess vegna er laukrétt ályktað þegar sagt er að framkvæmdastjórnin hafi farið út fyrir sitt verksvið og brotið lög SUS. Hvernig sem á málin er litið, er ljóst, að framkvæmdastjórn SUS gekk of langt, þegar hún ályktaði um ráðningu Kjartans Gunnarssonar í starf fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins. Engin ástæða er til þess að erfa það frumhlaup. En af framansögðu má sjá, að allar fullyrðingar formanns SUS þess efnis að ég hafi rangfært stað- reyndir eru úr lausu lofti gripn- ar. ÞEGAR ÞÚ KAUPIR ELECTROLJUX FRYSTIKISTU FYRIR HEIMILIÐ, BORGAR SIG AÐ LÍTA Á FLEIRA EN VERÐIÐ! Rafmagnsnotkun, lítrastænó og hraófrystirými gætu ráÓiÓ miklu. Electrolux frystikisturnar fást í fjórum stærðum: Gerð: TC 800 TC 1150 TC 1500 TC 1850 Stœrd í lítrum: 225 325 425 525 Hæft í mm: 850 850 •850 850 liengd í mm: 795 1050 1325 1600 I)ýpt í mm: 650 650 650 650 Afköst við frystingu i ku sólarh. 14.5 22.0 30.3 38.0 Frystikista er skynsamleg fjárfesting. Þú gerir hagkvæmari innkaup, sparar þér eilífar búðarferðir og matvörurnar nýtast betur. En það er ekki sama hvaða tegund þú kaupir, - kynntuþér kosti Electrolux.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.