Morgunblaðið - 23.09.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
21
Arnór illa
ARNÓR Guðjohnsen var fjarri
góðu gamni, er lið hans, Loker-
en i Belgíu. gersigraði Cercle
Briigge í deildarkeppninni um
helgina. Arnór, sem verið hefur
fastamaður í liði Lokeren í
haust, meiddist á æfingu í
síðustu viku og gat því ekki
leikið. Lokeren fór á kostum og
vann stórt og voru Pólverjarnir
Lato og Lubanski meðai marka-
skorara liðsins. Úrslit leikja
urðu annars þessi:
Anderlecht - Standard i-i
Beerschot - Molenbeek 1-0
Beringen - WinterslaK 4-2
Waretfem - Gent 3-0
FC Lie«e - Lierse 0-2
Lokeren - Cercle 5-0
FC BriiKKe - Berchem 4-0
Waterschei - Beveren 1-0
Antwerp - Courtrai 1-0
er markhæsti leikmaður liðsins.
Er frammistaða Öster mjög
óvænt, en Teitur lýsti því sjálf-
ur yfir í samtali við Morgun-
blaðið í vor, að hann hefði
áhyggjur af komandi keppnis-
timabili. liðið virtist engan veg-
inn nógu gott. Voru þá fjórar
umferðir búnar og Öster með
fjögur stig. Úrslit leikja urðu
annars sem hér segir:
Brage — Norrköping 1—1
Atvidaberg — Öster 3—6
Elfsborg — Hammarby 2—2
Kalmar — Landskrona 1—1
Djurgarden — Sundsvall 1—1
Malmö FF1 — Halmstad 0—2
Mjallby — Gautaborg 0—1
Og staðan er þessi:
öster 22 12 8 2 37
GautaborK 22 9 10 3 36
13 32
23 28
Alkmaar hefur forystu
Teitur og félagar með
aðra höndina á bikarnum
PÉTUR Pétursson og félagar
hans hjá Feyenoord sigruðu
Wageningen 1—0 í hollensku
deildarkeppninni um helgina.
Að sögn fréttaskeyta þótti leik-
urinn afspyrnuslakur og lítil
skemmtun fyrir fáa áhorf-
endur. Pétur lék með Feye-
noord meirihluta leiksins þrátt
fyrir meiðsl, en tókst ekki að
skora. Feyenoord þurfti
sjálfsmark til þess að tryggja
sér sigur. Það skoraði Severt
Tollenar. Úrslit í hollensku
knattspyrnunni urðu sem hér
segir:
GAE Deventer - FC Utrecht 2-1
Nac Breda - Tvente 1-2
PSV Eindhoven - MVV Maastr. 2-2
Den Haag - Pec Zwolle 2-3
Roda JC - Willem 2 1-1
FC WageninKen - Feyenoord 0-1
Exceicior - Ajax 2-4
FC GroninKen - Nec Nijmeifen 2-0
Sparta - AZ '67 Alkmaar 3-7
Úrslitin í síðastnefnda leikn-
um vekja að sjálfsögðu athygli,
en stjarna leiksins var Austur-
ríkismaðurinn Kurt Welzl, sem
skoraði fjögur af mörkum Alk-
maar. Jan Peters skoraði tvíveg-
is og Peter Tol sjöunda markið.
Markaskorarinn frægi, Ruud
Geels, skoraði tvö af mörkum
Spörtu og Englendingurinn Dav-
id Loggie það þriðja.
Leikur Excelsior og Ajax þótti
fjörugur og vel leikinn. Steen
Ziegler, Martin Van Geel (2) og
Kees Zwamborb skoruðu mörk
Ajax.
FÁTT virðist geta komið í veg
fyrir að Öster, lið Teits Þórðar-
sonar í Svíþjóð, verði sænskur
meistari. Um helgina sigraði
iiðið Atvidaberg, 6—3, á úti-
velli og hefur 4 stiga forystu er
4 umferðum er ólokið. Teitur
Þórðarson skoraði tvö aí mörk-
um Öster gegn Atvidaberg og
Braxc
Malmo FF
Elfsborg
Ilammarby
Sundsvall
Ilalmstad
Atvidaborg
NorrkOping
Djurgarden
Kalmar
Landskrona
Mjallby
22 10
22 9
22
22
22
22
22
22
22
22
22
22
4 24-
4 26-
5 26-
7 39-
7 25-
8 23-
8 26-
9 23-
9 23-
9 18-
5 12 22-
5 14 16-
14 28
19 27
19 25
■28 24
•32 22
24 20
31 19
31 19
32 19
28 19
■33 15
37 11
Island rak lestina
„VIÐ URÐUM í síðasta sætinu í
FIAT-keppninni, en lékum
samt 70 höggum minna en
islenska liðið í sömu keppni i
fyrra. Strákarnir urðu i 19.
sæti af 20 á 484 höggum í
karlaflokki, en við stúlkurnar
rákum lestina i kvennaflokki á
565 höggum,“ sagði Sólveig
Þorsteinsdóttir kylfingur, í
samtali við Mbl. í gær, en hún
var þá nýkomin heim frá Tor-
inó á Ítalíu, þar sem þetta
árlega stórmót fór fram i þriðja
skiptið. íslendingar tóku þátt i
annað skipti og hefur verið
boðið að vera með að ári.
í einstaklingskeppninni, hinni
svokölluðu Al-Italia-keppni,
varð Ragnar Ólafsson í 30. sæti
af 40 mögulegum á 236 höggum
(80-78-78). Hannes Eyvindsson,
sem einnig keppti í fyrra, hafn-
aði í 39. sæti á 248 höggum
(80-87-81). Sólveig varð í 35. sæti
í kvennaflokki á 272 höggum
(92-91-89) og Jakobína Guð-
laugsdóttir varð í 38. sæti á 293
höggum (93-99-101).
Annars var það Sviss sem
sigraði í landskeppninni, Ítalía
varð í öðru sæti og Skotland í
þriðja sæti. í einstaklingskeppn-
inni sigraði Norðmaðurinn Svi-
land í karlaflokki og svissnesk
stúlka að nafni Regine Lautens í
kvennaflokki.
Landsliðsmark-
vörður í Stjörnuna?
EYJÓLFUR Bragason, hand-
knattleiksmaður úr FH, hefur
tilkynnt félagaskipti yfir i sitt
gamla félag, Stjörnuna í Garða-
bæ. Eyjólfur var aðeins eitt
keppnistimabil hjá FH og náði
ekki að tryggja sér fast sæti i
Island í erfiðum riðli
DREGIÐ var um helgina í riðla
fyrir B-keppnina i handknatt-
leik sem fram fer á Spáni í
febrúar. Fyrir nokkru var frá
þvi sagt i Mbl. og fleiri fjölmiðl-
um, að búið væri að raða niður,
en i ljós kom að það var byggt á
dönskum handknattleikssam-
bandsmanni sem þóttist hafa
sambönd. En það var sem sé
dregið í París um helgina og
verður að segjast eins og er, að
riðillinn er erfiðari heldur en
niðurstaðan sem danskurinn
fékk á dögunum og birt var
viða í hérlendum fjölmiðlum.
ísland er í A-riðli og keppir
þar við landslið Pólverja, Aust-
Reynir sigraöi
í 3. deild
urríkismanna, Svía, Hollendinga
og Frakka. í B-riðli eru Sviss,
Danmörk, Tékkóslóvakía, Búlg-
aría, Noregur og Israel. Fimm
þjóðir komast áfram og er ljóst,
að róðurinn verður þungur fyrir
íslenska liðið. Hins vegar á
íslenska liðið nokkra möguleika,
því verður ekki neitað. Annars
er best að spá sem minnst í þau
spil á þessu stigi málsins.
— gg-
aðalliði félagsins. Síðustu árin
hefur hann þó jafnan verið
meðal markhæstu Ieikmanna i
2. deild, en þar lék Stjarnan til
skamms tíma, en leikur nú i 3.
deild.
Þá hefur heyrst ákveðinn orð-
rómur þess eðlis, að Stjarnan sé
í þann mund að fá aftur til sín
tvo fyrrverandi leikmenn og
máttarstólpa. Má þar fyrst
nefna landsliðsmarkvörðinn
Brynjar Kvaran, sem ér að velta
málinu fyrir sér og hefur gefið
Stjörnumönnum undir fótinn.
Hins vegar er Magnús Teitsson,
sem gekk í FH um svipað leyti
og Eyjólfur. Magnús lék flesta
leiki FH í 1. deild í fyrra og stóð
sig vel. Hann var áður einn
sterkasti leikmaður Stjörnunn-
ar. Mbl. hefur fregnað að hann
sé alvarlega að hugsa um að
leika með Stjörnunni á nýjan
leik í vetur ... — gg
REYNIR og Skallagrímur léku
til úrslita um efsta sætið í 3.
deild á Laugardalsvellinum um
helgina. Reynir sigraði, 4—2,
en bæði liðin flytjast i 2. deild.
Ómar Björnsson skoraði tvö
af mörkum Reynis, allt í allt 23
mörk í sumar og er hann því
markhæsti leikmaður i deildun-
um þremur. Júlíus Jónsson
(víti) og Jón G.B. Jónsson skor-
uðu hin mörk Reynis, en Gunn-
ar Jónsson og Ævar Rafnsson
svöruðu fyrir Skallagrim.
Á meðfylgjandi myndum
RAX eru nýliðarnir tveir, Reyn-
ir t.v. og Skallagrimur. Reyn-
ismenn taka aftur sæti i 2. deild
eftir aðeins eins árs f jarveru, en
Borgnesingarnir taka nú sæti i
þeirri deild í fyrsta skipti.
KR og Valur
hrepptu stigin
FYRSTU leikirnir á Reykja-
vikurmótinu i körfuknatt-
leik fóru fram i iþróttahúsi
Hagaskólans um helgina.
Fyrst mættust KR og ÍR og
lauk leiknum með sigri KR.
sem skoraði 69 stig gegn 65.
Var það ekki fyrr en rétt
undir lokin, að KR náði að
smeygja sér fram úr eftir
mikinn baráttuleik.
FH-stelpur iðnar
við að slá metin
FJÓRAR knáar stelpur úr
FH hafa verið nokkuð iðnar
við að setja boðhlaupsmet í
sinum aldursflokki í sumar.
Þær byrjuðu á því að setja
nýtt niet í 4x100 m boð-
hlaupi með þvi að hlaupa á
57,6 sekúndum. Þá hlupu
þær 3x800 metra á 8:35,2,
síðan 4x200 metra á 2:04,2.
þá 4x400 metra á 4:49,2 og
loks 1000 metra boðhlaup á
2:43,0 min. Öll metin voru
sett á frjálsiþróttavellinum í
Kaplakrika. Þessar knáu
stelpur heita Linda B. Ólafs-
dóttir, Rakel Gylfadóttir,
Anna Birna Jónasdóttir og
Linda B. Loftsdóttir.
West Ham var
refsaö grimmilega
ENSKA knattspyrnufélagið
West Ham United heíur
fengið á baukinn fyrir fram-
komu áhangenda liðsins á
Evrópubikarleik West Ham
og Castilla, sem fram fór í
Madrid fyrir skömmu. West
Ham tapaði 1—3. Refsingin
er í því fólgin að greiða
mjög háa peningasekt, auk
þess sem næstu tveir heima-
leikir West Ham í Evrópu-
keppni verða að fara fram
a.m.k. 300 kilómetra fyrir
utan Lundúnaborg, þar sem
West Ham hefur aðsetur.
Lilleström
í úrslit
LILLESTRÖM tryggði sér
sæti í úrslitum norsku bik-
arkeppninnar i knatt-
spyrnu, er liðið sigraði
Brann. 2—1, í undanúrslit-
um. Mo, úr 2. deild, mætti
Vaalerengen í hinum undan-
úrslitaleiknum. en úrslit
fengust ekki þrátt fyrir
framlengingu.
Guðmundur
Yngvason
í Þrótt
ÞRÓTTUR á Norðfirði fær
góðan liðsstyrk fyrir næstu
knattspyrnuvertíð. Er þar á
ferðinni Guðmundur Yngva-
son. fyrrum leikmaður með
Þrótti, KR, og Stjörnunni.
Guðmundur er sterkur mið-
vallarleikmaður og var m.a.
í Faxaílóaliðinu fræga á
sínum tíma.
Reykjavíkurmótið
Tveir fyrstu leikirnir í úr-
slitakeppni Reykjavíkur-
mótsins í handknattleik fóru
fram i gærkvöldi. KR sigr-
aði Fram. 24—18, í hörku-
leik. Markhæstur hjá Fram
var Atli Hilmarsson með 9
mörk, en Jóhannes. Þorvarð-
iir og Konráð skoruðu 4
stykki hver fyrir KR. Síðan
sigraði Víkingur Þrótt
nokkuð örugglega. 22—17.
ÓIi H. skoraði fimm fyrir
Þrótt, Þorbergur og Steinar
voru með sex stykki hvor
fyrir Viking.