Morgunblaðið - 23.09.1980, Qupperneq 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
Valsliðið var vel a
— UBKogVíkim
• KnattspyrnufélaKÍð Þór frá Akureyri sem varð i öðru sæti i 2. deild og ávann sér rétt til þess að leika i 1.
deild næsta keppnistimabil. Lengst til hægri er þjálfari liðsins Árni Njilsson sem unnið hefur mikið og
gott starf með liðinu i sumar, og átt stóran þátt i þvf að liðinu tókst að komast upp i 1. deild.
ftFfrr*-,
Þór tekur í notkun nýtt
og glæsilegt íþróttasvæði
ÞÓR Á Akureyri vígði á sunnu-
daginn stórglæsilegt íþrótta-
svæði við Glerárskóla á Akur-
eyri. Fyrsti leikurinn var spilað-
ur á nýjum og stórum grasvelli
en áður afhenti Haraldur Helgas-
on, formaður vallarnefndar, Sig-
urði Oddssyni, formanni Þórs,
völlinn. Borði hafði verið
strengdur á miðju valiarins og á
þennan borða klippti Haraldur.
Fyrstu spyrnuna á hinum nýja
velli tók einn af stofnendum
félagsins fyrir 65 árum, Hallfreð-
ur Tryggvason. Nánar verður
skýrt frá vígsluathöfninni og
nýja ÞórssvaAinu síðar.
Ljósm. Mbl. Sifftr.
Spennandi Kók-keppni:
Bráðabani skar úr um sigur
— Coca Cola-bílfarmurinn fór hvergi
JÚLÍUS R. Júlíusson sigraði í
Coca-CoIa-golfmótinu sem fram
fór á Grafarholtsvellinum um
helgina.
Var keppni jöfn og
spennandi. Þannig tókst Júliusi
ekki að knýja fram sigur fyrr en
á annari braut í bráðabana gegn
Stefáni Unnarssyni. Kókhlassið
sem átti að renna i hlut þess
kylfings sem færi holu í höggi á
2. eða 17. rann hvergi þar sem
enginn lék með slíkum glæsibrag
á umræddum holum frekar en
öðrum. Fyrri dag keppninnar
komst Þorbjörn Kjærbo næst 17.
holu í einu skoti, eða 77 senti-
metra frá gatinu. Á annari hraut
saup Einar Þórisson hvejur er
kúla hans staðnæmdist 32 senti-
metra frá holu númer tvö.
Seinni daginn komst enginn
nær holu í höggi á þessum braut-
um en 210 sentimetra, sem út af
fyrir sig eru auðvitað stórkostleg
teigskot. Leiknar voru 36 holur og
léku bæði Júlíus og Stefán á 152
höggum. Jón Haukur Guðlaugsson
og Gunnar Finnbjörnsson háðu
einnig bráðabana um þriðja sætið.
Þar fór Jón Haukur með sigur af
hólmi strax á fyrstu braut. Báðir
léku 36 holurnar á 155 höggum.
Eiríkur Jónsson og Sigurjón R.
Gíslason voru jafnir í 5.-6. sæti
með 157 högg, Franz P. Sigurðsson
og Sigurður Albertsson skiptu
með sér 7.-8. sætunum með 158
högg hvor. Níundi var Þorbjörn
Kjærbo með 159 högg og Sigurður
Hafsteinsson hafnaði í tíunda
sæti á 160 höggum.
í keppninni með forgjöf sigraði
Franz P. Sigurðsson á 142 höggum
nettó. Stefán Unnarsson varð ann-
ar á sama höggafjölda, en lakara
skori á síðustu þremur holunum.
Þriðji varð Gunnar Finnbjörnsson
á 143 höggum og Halldór Fannar
varð fjórði, einnig á 143, en lakara
skori á sex síðustu. Þá var einnig
keppt í flatarskotum og sigraði sá
er sló fæst slík. Loks hafði Stefán
heppnina með sér og sigraði í
þessari keppni, sló alls 56 flatar-
högg.
KK-
ÍSLANDSMÓTINU í knattspyrnu er nýlokið.
Mótið var lengst af spennandi og ógerlegt var
að spá um úrslit fyrr en 15 umferðum var lokið
í mótinu. Þá voru línurnar nokkuð farnar að
skýrast. Greinilegt er á umfjöllun blaða og
knattspyrnuáhugamanna að sitt sýnist hverj-
um um gæði knattspyrnunnar sem leikin var í
sumar. Landsliðsnefndarformaðurinn, Helgi
Daníelsson, sagði í einum af föstudagspistlum
sínum í Vísi það skoðun sína, að knattspyrna
sumarsins hafi verið léleg, þegar á heildina er
litið, og ekki í samræmi við þann mikla
kostnað sem mörg félaganna hafa lagt af
mörkum. Þá er athyglisvert að lesa ummæli
fyrirliða nokkurra 1. deildar liða um knatt-
spyrnu sumarsins í nýútkomnu íþróttablaði.
Þar segir Marteinn Geirsson: „Útkoman hefur
verið leiðinlegur fótbolti.“ Jón Gunnlaugsson
íA: „Þetta var í daufara lagi.“ Diðrik Ólafsson:
„Mótið var spennandi en knattspyrnan slak-
ari.“ Af þessu má ráða, að mótið hafi verið
frekar slakt. Undirritaður telur að mótið hafi
verið nokkuð sveiflukennt og sem betur fer
sáust all oft ágætis knattspyrnuleikir í sumar.
En spurningin er hvort að við hjökkum ekki í
sama farinu ár eftir ár, þrátt fyrir erlenda
þjálfara. Einn okkar reyndasti og kunnasti
unglingaþjálfari í knattspyrnu, Lárus Lofts-
son, hélt því fram í viðtali við Mbl. og benti á
ýmislegt sem betur mætti fara. Hvað um það, á
hverju sumri koma fram nýir og efnilegir
knattspyrnumenn, og það er bæði ajhyglisvert
og sérstakt að jafn lítið land og ísland með
rétt yfir tvö hundruð þúsund íbúa skuli eiga
ekki færri en 10 knattspyrnumenn sem leika
sem atvinnumenn hjá sterkum erlendum fé-
lagsliðum. Og sumir þeirra hafa skipað sér á
bekk með bestu leikmönnum í Evrópu. Þeir
eru landi og þjóð mikil og góð kynning og eru
jafnan tilbúnir, ef þess er nokkur kostur, að
leggja á sig langar og erfiðar ferðir án
nokkurrar greiðslu til þess að leika með
íslenska landsliðinu í knattspyrnu, til þess að
vegur þess geti orðið sem mestur. Þetta ber að
þakka og meta af öllum þeim sem fylgjast með
knattspyrnu og reyndar fleirum.
Það hefur vissulega dregið broddinn úr
knattspyrnunni hér heima, að þessir snjöllu
knattspyrnumenn leika erlendis, og sýnt er að
fleiri og fleiri koma til með að bætast í þeirra
hóp. Vitað er að erlend lið hafa augastað á
Lárusi Guðmundssyni, Víking, Sigurði Grét-
arssyni, Breiðabliki, Sigurlási Þorleifssyni,
ÍBV, Ragnari Margeirssyni, ÍBK og Trausta
Haraldssyni, Fram. Þetta eitt út af fyrir sig er
sigur fyrir íslenska knattspyrnu og knatt-
spyrnumenn, og sýnir að hér á landi er mikið
af efnilegum leikmönnum.
Hér á eftir er lítillega fjallað um liðin sem
léku í 1. deildinni síðastliðið keppnistímabil og
jafnframt skýrt frá einkunnagjöf efstu manna
í hverju liði. — þr.
Valur
Það fer ekki á milli mála að
Valsliðið var mjög vel að því
komið að sigra í Islandsmótinu í
knattspyrnu í sumar. Lið Vals var
án alls vafa með sterkustu liðs-
heildina og oft á tíðum urðu góðir
leikmenn að sætta sig við að
verma varamannabekkinn hjá lið-
inu. Þetta gerði það að verkum að
mikil samkeppni var hjá leik-
mönnum að komast í liðið og það
veitir jafnan aðhald. Leikmenn
Vals æfðu vel og samviskusamlega
í allt sumar að sögn þjálfara
þeirra og uppskáru því eins og þeir
sáðu.
Það, sem vekur hvað mesta