Morgunblaðið - 23.09.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 23.09.1980, Síða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980 Gulrótarflækja — Þessi skemmtilega gulrótarflækja kom upp úr garði i Mosfellssveitinni. Ljósmynd Mbl.: Ól. K.M. IMLJTÍMA jassdaIIett Nú hefjum við nútíma jassballett til vegs og virðing- ar hériendis. Nýr jassballettskóli, Dansstúdíó, býður ykkur velkomin um borð, og skuldbindur sig til þess að kenna einungis það allra besta sem gerist í jassballettheiminum í dag. Áhersla er lögð á leikfimi og jassballett við nútíma- tónlist auk þess sem sérstaklega verða kenndir - sviðs- og sýingadansar fyrir bæði hópa og einstaklinga. INNRITUN Keykjavík: Alla virka daga kl. 13-17 í síma 75326. Keflavík: Alla virka daga kl. 9-12 í síma 92-1395. KENNSLA Kennt verður jafnt að degi sem kvöldi. í Reykjavík tvo daga í viku og í Keflavík aðra tvo daga. Allir aldurshópar frá 6 ára aldri. Velkomin í nýjan og ferskan jassballettskóla, sem miðlar þekkingu og reynslu undanfarinna ára við nám og kennslu á erlendum vettvangi. dANSSTÚdíÓ Sóley Jóhannsdóttir Símar 91-75326 og 92-1395 rti 24. þing Alþýðusambands Vestfjarða: Samningar á heima- velli ef heildarsamn- ingar dragast á langinn „24. ÞING Alþýðusambands Vest- fjarða lýsir áhyggjum sinum vegna þess seinagangs i kjara- samningum láglaunafóiks, sem lýsir sér í þvi, að liðnir eru meira en 9 mánuðir frá uppsögn kjara- samninga. Þingið telur, að ef árangurslaust samningaþóf held- ur áfram, hijóti að reka að því, að Aiþýðusamband Vestfjarða taki samningamálin i sinar hendur og það heldur fyrr en seinna og knýi fram samninga á heimaveili. Höfn, Hornafirði. 22. Hept. UM 800 tunnur af síld bárust hingað til Hafnar á laugardag og fékkst aflinn úti af Reyðarfirði og Mjóafirði. Síldin var söltuð hjá Fiskimjölsverksmiðju Horna- fjarðar, söltun hófst um klukkan 17 og var lokið um klukkan 23. Siidin var stór og falleg og töluðu menn um „gömlu. góðu demants- síldina“. Verkalýðshreyfingin getur ekki liðið þetta ástand deginum lengur. Kjaraskerðingin hefur aukizt jafnt og þétt meðan tími hefur tapazt í tilgangslítið samninga- stapp. Þingið skorar því á öll aðildarfélög ASV að afla sér nú þegar verkfallsheimildar. Þingið ítrekar samþykktir verkalýðshreyfingarinnar um al- gjöran forgang á launajöfnunar- stefnu. Einnig ályktar þingið fyrri samþykktir um, að krónutölu- Siðastliðna nótt fengu bátarnir ágætan afla á Norðfjarðardýpi og lönduðu á Neskaupstað í dag. Verulegum hluta aflans var síðan ekið yfir Oddsskarð til Eskifjarð- ar. Hingað kom engin síld í dag og eru menn hér heldur súrir yfir þessari vertíð. Við Vestmannaeyj- ar fékk einn bátur 60 tunnur, en bræla var við Eyjar í fyrrinótt. Einar hækkun launa ein og sér er ekki einhlít til að ná auknum kaup- mætti, enda eru félagsleg kjör og réttindi láglaunafólks miklu lak- ari en hjá öðru launafólki. Mikið vantar á, að atvinnuör- yggi fiskvinnslufólks sé í sam- ræmi við landslög. Skylda at- vinnurekenda til greiðslu launa í uppsagnarfresti getur nánast ver- ið geðþótta þeirra háð. Lág- markskrafa verkafólks er að búa við sömu lífeyrisréttindi og samið hefur verið um við opinbera starfsmenn. Takmarkið hlýtur að vera að allir landsmenn sitji þar við sama borð, þegar starfsævinni lýkur. Þingið leggur áherzlu á að skattalækkun láglaunafólks fái að birtast í öðru formi en orðunum tómum. 24. þing Alþýðusambands Vest- fjarða mótmælir harðlega hinni óbilgjörnu afstöðu foiystu Vinnu- veitendasambands Islands til sanngjarnra óska verkalýðshreyf- ingarinnar. Þá varar þingið mjög eindregið við því að hin sérfræði- legu sjónarmið einstaklinga, sem hvorki þekkja til atvinnurekstrar né baráttu verkalýðshreyfingar- innar af eigin raun, séu um of látin ráða í stefnumörkun og störfum aðila vinnumarkaðarins." Lítið af síld til Hornafjarðar Starfsemi Fríhafnarinnar í endurskoÖun: Olliim starfsmönn- 50 sagt upp unum ÖLLUM starfsmönnum Fríhafn- arinnar á Keflavikurflugvelli var í gær sent uppsagnarbréf og er miöað við að uppsagnirnar taki gildi á áramótum. Að sögn Harð- ar Helgasonar ráðuneytisstjóra utanrikisráðuneytis stafa upp- sagnirnar af skipulagsbreyting- um sem standa fyrir dyrum, en starfsemi Frihafnarinnar er nú i endurskoðun vegna minnkandi flugumferðar. Hörður Helgason sagði ekki vera hægt að segja á þessu stigi hvenær endurskipulagningu starf- seminnar lyki, en hún stæði í mjög nánu sambandi við hvernig háttað verður starfi Flugleiða á næstu mánuðum. Ágúst Agústsson fjármálastjóri Fríhafnarinnar sagði starfsmenn vera tæplega 50 nú eftir að sumarstarfsfólkið væri hætt og kvað hann hér vera um varúðar- ráðstöfun að ræða, verið væri að ræða skipulagsbreytingar, sem e.t.v. hefðu í för með sér þörf fyrir færri starfsmenn, en það myndi ekki koma ljós fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Brynjar Hansson starfsmaður Fríhafnarinnar og trúnaðarmaður starfsmanna sagðist í samtali við Mbl. ekki hafa mikið um málið að segja, en ljóst væri að búið væri að segja upp starfsmönnum. Þætti sér það undarleg aðgerð þegar ekki væri vitað hvað gera ætti, ráðamenn Fríhafnarinnar hefðu ekki ákveðið hvernig starfseminni yrði háttað í framtíðinni og því væri ekki ljóst hvers vegna lægi á að segja upp starfsfólki. Björgunarsveitin Stakkur i Grindavik efndi um helgina til torfærukeppni við bæinn og vort áhorfendur fjöimargir, en keppendur voru fimm. Sigurvegari var Gunniaugur Bjarnason sem ól Willys, annar Guðmundur Gunnarsson, einnig á Willys, og þriðji ólafur Eyjóifsson, sem ók Scout Keppnin gekk vel fyrir sig og urðu engin óhöpp. . K l ll . ■ 1 iii... i ■—— — * "

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.