Morgunblaðið - 23.09.1980, Síða 37
45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980
• Á slíku sambandi
er hin mesta þörf
Fornmenn munu hafa haft
allnáin sambönd við Æsi, guðleg-
ar verur, sem heima áttu á öðrum
hnöttum. En vegna ónógs skiln-
ings á þessu sambandi, gat hér
ekki orðið um næga framför að
ræða.
Með hinum nýja lífssam-
bandsskilningi ætti hér að mega
ráða bót á, ef vilji og samtök nógu
margra væru fyrir hendi.
Og víst er, að á slíku sambandi
er einmitt hin mesta þörf.“
• Óeðlileg
skattheimta
„Einn úr borginni“ skrifar:
„ísland er ekki eina landið með
óeðlilega skattheimtu á mörgum
sviðum. Mér kemur í hug flugvall-
argjaldið eða söluskatturinn.
Einnig erfðafjárskatturinn. Allt
er nú hægt að afsaka. Sósíalista-
ríkin haafa einnig útskýringar á
reiðum höndum á fantabrögðum
sem fólk er beitt í þeirra löndum
— aðferðum sem við þekkjum lítt
til þrátt fyrir allt.
Tökum skattheimtu eins og
erfðafjárskatt, sem var upphaf-
lega lagður á til þess að koma
sjúklingum og gömlu fólki í öruggt
húsnæði, a.m.k. þeim sem verst
voru settir. A sama tíma verða
lífeyrissjóðirnir að halda áfram
með hinar sérstöku B-deildir til
þess að svipta sjúklinga lána- og
lífeyrisrétti.
• Ekki eina
ranglætið
Hér er væntanlega um sams
konar eignarnám að ræða og hjá
mörgum kaupendum íbúða í
verkamannabústöðum, þar sem
kaupandinn eignast aðeins hlut í
íbúð sinni þótt hann hafi greitt
íbúðina að fullu. Auðvitað eiga
sjúklingar að njóta sama lífeyris-
réttar og heilbrigðir. En þetta er
ekki eina ranglætið, sem við búum
við. Nefna mætti t.d. eignasvipt-
ingu á fjölskyldum drykkjusjúkra,
geðveikra eða vangefinna. Þar er
auðvelt fyrir hina hörðu lögmenn
að beita „kunnáttu" sinni.
Að lokum: Ekki má gleyma hinu
sérstæða fyrirkomulagi á lóðaút-
hlutun sveitarfélaganna, sem
miða að því að útiloka láglauna-
fólk eða taka lóðir aftur af þeim
sem fátækir eru.“
Þessir hringdu . . .
• Lindin — ekki
Lindarbær
Þóra Þorsteinsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Ég sá í Lesbók Morgunblaðsins frá
13. sept. mynd af gömlu rauðu
húsi, sem ég hef taugar til og er í
gamla Skugga-hverfinu við Lind-
argötu. Hús þetta byggði afi minn,
Sigurður Jónsson, og þar er faðir
minn fæddur og uppalinn. í Les-
bókinni er hús þetta nefnt Lindar-
bær, en eftir því sem ég veit best
hefur það aldrei borið það nafn, ég
minnist þess a.m.k. ekki. Það var
alltaf nefnt Lindin, og faðir minn
sem eignaðist það eftir afa og átti
það allar götur til ársins 1953, að
við þetta hús og kallaður Steini í
Lindinni.
• Hefur ákveðið að
fara að lögum
Skattgreiðandi í Reykja-
neskjördæmi hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Þegar ég
útfyllti skattaskýrsluna mína um
sl. áramót valdi ég þá leið að taka
hinn svo nefnda 10% frádrátt —
fremur en að taka afslátt
samkvmt vaxtagreiðslum. Þegar
ég fékk skattaseðilinn minn í
hendur sá ég að afslátturinn var
aðeins 8% af framtöldum tekjum.
Þetta þýðir m.ö.o., að einhverju
hefur verið breytt þannig í fram-
tali mínu, að afslátturinn lækkar
sem því nemur. Og síðan segir í
bréfinu frá skattstofunni: Skatt-
stjórinn í Reykjaneskjördæmi
hefur ákveðið að frádráttur yðar
skv. þessu og þessu ákvæði verði
kr. þetta. Getur skattstjórinn í
Reykjaneskjördæmi ákveðið að
fara eftir lögum eða hunsa þau?
Getur skattstofan þarna suður frá
breytt framtölum manna án þess
svo mikið sem láta frá sér heyra
eða gefa framteljanda kost á að
verja sitt mál? Mér skildist á
ríkisskattstjóra að slíkt væri
óheimilt. Hvað er rétt í þessu
efni?
mig minnir, var jafnan kenndur
SKAK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á skákmóti í Sovétríkjunum,
sem haldið var í sumar, kom upp
þessi staða í skák Moskalenkos og
Colovjevs. SvartUr Viroist vera að
sleppa fyrir horn en hvítur var á
öðru máli:
----» w '1P-----IH
m a m
27. Hd8! - Dxh7, 28. Hxe8 -
Kxe8, 29. Hxh7 og svartur gafst
upp.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ 'A t>OMDERSó.2DlMO^A
Á úgpl Þiú FFAK V/IÐ 6'lt-AQr^YMSUU..1'
(rompton porkinson
RAFMÓTORAR
Eigum ávallt fyrirliggjandi 1400—2800 sn/mín.
rafmótora.
1ns fasa 1/3—4 hö
3ja fasa 1/2—25 hö
Útvegum allar fáanlegar gerðir og stærðir.
VALD. POULSENf
SUÐURLANDSBRAUT10
sími 86499