Morgunblaðið - 16.10.1980, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
99 Hef
aðeins
drukkið
staup af
víni, það
getur ekki
mælst 66
„ÞAÐ ER greinilega full ástæða til að halda þessu
eftirliti áfram, það sýnir reynslan undanfarnar
helKar,“ sagði Óskar Ólason yfirlögreuluþjónn umferð-
armála er hiaðamaður Mbl. ræddi við hann um hið
aukna eftirlit í umferðinni í Reykjavík um helgar, en
með því á að reyna að stemma stigu við ölvunarakstri,
sem sífellt virðist færast í vöxt. Það sem af er árinu hafa
852 ökumenn verið teknir vegna gruns um ölvun við
akstur og auk þess hafa verið teknir rúmlega 230
ökumenn, sem sviptir hafa verið ökuréttindum fyrir
ölvunarakstur en ekið hafa eigi að síður. „Ástandið er
mjöK alvarlegt,“ sagði Óskar. „Þrátt fyrir aðvaranir
um aukið eftirlit var 21 ökumaður tekinn á
laugardag ok sunnudag grunaður um ölvun og enginn
veit hvað margir ölvaðir ökumenn voru á ferðinni um
helKÍna því við tökum væntanlega aðeins brot af þeim
fjölda. Eg skora á ökumenn að hugsa nú sitt ráð áður
en þeir setjast fullir undir stýri næst, hugsa um það
hvaða áhrif aksturinn kann að hafa á lif þeirra ef
eitthvað fer úrskeiðis. Ef þeir gera það, er ég viss um
að margir skilja bílinn eftir.“
Blaðamaður og ljósmyndari
fylgdust með lögreglumönnum
að störfum aðfaranótt sl. laug-
ardags og var mjög fróðlegt að
sjá hvernig lögreglan hagar
eftirliti sínu með umferðinni.
Við vorum sett í bíl með
tveimur vönum lögreglu-
monnum, Karli Magnússyni,
sem var bílstjóri og Sigurði
Steingrímssyni. Bíllinn var
númer 12, einn fjölmargra
lögreglubíla, sem voru á ferð-
inni þessa nótt. Aður en haldið
var í eftirlitsferðina sýndi
Óskar Ólason okkur skrár lög-
reglunnar yfir ökumenn, sem
sviptir hafa ökuréttindum.
Hægt er að fletta upp á því
með litlum fyrirvara hvort
ökumenn, sem lögreglan hefur
afskipti af hafa réttindi eða
ekki. Á upplýsingatöflu eru
myndir af ökumönnum, sem
grunur leikur á að aki, þrátt
fyrir sviptingu. Vanir lög-
reglumenn eru fljótir að leggja
andlit á minnið og það er því
hæpið fyrir menn að taka
áhættuna. Enda sýna tölurnar
það svart á hvítu, rúmlega 230
ökumenn hafa verið teknir á
árinu, sem sviptir hafa verið
réttindum.
Upp úr miðnætti var lagt af
stað í eftirlitsferðina. Ekki
höfðum við ekið lengi þegar
fyrsti bíllinn var stöðvaður á
Hringbraut. Ökumaðurinn var
allsgáður en bifreiðin ekki í
fullkomnu lagi. Manninum var
gefinn kostur á að aka beint
heim til sín og fara með bílinn
á verkstæði strax á mánudeg-
inum. Þeir voru fleiri bílarnir,
sem þeir Karl og Sigurður
höfðu afskipti af um nóttina,
sem ekki voru í lagi og ástand
eins bíls var svo slæmt að ekki
var annað að gera en klippa af
honum númerin. En við kom-
um að því síðar.
AKA 2-300 KM
Þeir félagar Karl og Sigurð-
ur óku vítt og breitt um
borgina í þessari eftirlitsferð
og þeir sögðu okkur að ekki
væri óalgengt að eknir væru
2—300 kílómetrar í slíkum
eftirlitsferðum. Þeir voru mjög
vel á verði og bílar voru
stöðvaðir hver eftir annan og
athugað hvort ekki væri allt
með felldu. Stundum voru bílar
stöðvaðir af handahófi eða þá
að aksturinn gaf tilefni til þess.
Stundum er heil bílaröð stöðv-
uð og ástandið kannað í þeim
öllum svo að vissulega er það
mikil áhætta sem ökumenn
taka með því að aka drukknir '
þótt ekkert verði á akstrinum
séð. Karl og Sigurður tjáðu
okkur að yfirleitt tæki fólk
þeim mjög vel, borgararnir
væru fylgjandi góðu eftirliti j
með umferðinni. Jafnvel fólk,
sem tekið er ölvað við akstur er
oft þakklátt lögreglumönnun-
um sem taka það, segir jafnvel
sem svo að lögreglan kunni að
hafa forðað óhöppum og slys-
um á þeirri leið sem ófarin var
á áfangastað.
Leiðin lá upp á Breiðholts-
braut og þar var Volkswagen-
bifreið stöðvuð, sem ekið hafði
á um 100 km hraða. Bílstjórinn
gaf þá skýringu eina að hann
hefði verið að flýta sér heim.
Hann var skrifaður upp og
væntanlega þarf hann að
greiða tugi þúsunda í sekt. Það
borgar sig að flýta sér hægt.
Næst lá leiðin að gatnamótum
Skeiðarvogar og Suðurlands-
brautar og þar var kannað
hvort ökumenn virtu ekki
stöðvunarskylduna. Sem betur
fer fóru langflestir eftir settum
reglum, einn jéppi ók þó inná
Suðurlandsbrautina án þess að
stöðva við gatnamótin. Nafn
ökumannsins fór líka í kæru-
bókina.
NÚMERIN
KLIPPT AF
Klukkan var orðin tvö og þá
voru tveir bílar stöðvaðir með
stuttu millibili, Rambler-bíll á
R-númeri og Moskvitch á
K-númeri. Ástand Ramblers-
ins, sem stöðvaður var á Sæ-
braut, var svo slæmt að ekki
var annað að gera en klippa
númerin af. Sú ráðstöfun vakti
litla hrifningu eigandans, ungs
manns. Bifreiðarstjóri K-bíls-
ins fékk áminningu, bifreið
hans var ekki í fullkomnu lagi
þrátt fyrir að búið. væri að
skoða hann. Næst lá leiðin út á
Skúlagötu og Kalkofnsveg. Þar
veittu þeir Karl og Sigurður
athygli Opel-bifreið, sem ók
allgreitt. Þeir veittu bifreiðinni
eftirför en náðu fyrst að stöðva
hana á Sæbraut enda var
ökuhraðinn óheyrilegur, 100
km á klukkustund. Ökumaður-
inn, 17 ára piltur með reynslu-
skírteini, var færður niður á
stöð fyrir Ásmund Matthías-
son aðalvarðstjóra umferðar-
deildar. Ásmundur hélt mikla
áminningarræðu yfir bílstjór-
anum unga og að því búnu var
bíllinn tekinn í geymslu, enda
hafði orðið verulegur dráttur á
að umskrá hann.
„AÐEINS STAUP
AF VÍNI“
Eftir vel þeginn kaffisopa á
lögreglustöðinni var lagt af
stað á nýjan leik út í umferð
næturinnar. Þeir Karl og Sig-
urður ákváðu að fara í eftirlits-
ferð um Kleppsholtið. Þeir
veittu athygli bifreið á Laugav
læk og ákváðu að veita henni
eftirför. Lögreglubifreiðin náði
bílnum í þann mund er honum
var lagt í bílastæði. Kona ók
bifreiðinni. Hún sagðist vera
að koma úr afmælisboði og
viðurkenndi að hafa fengið sér
eitt staup af víni með kaffinu.
Taldi hún af og frá að þetta
Kamblerinn var stóðvaöur á Sæbraut. Svo
margt reyndist í ólagi að klippa varð
númerin af hílnum. Það er Sigurður sem er á
tali við ökumanninn.
Blásið í blöðruna, Ríkhard varðstjóri fylgist með.
litla vínmagn gæti mælst í
blóðinu. Næsta skref var að
láta konuna blása í blöðru og
mæla áfengismagnið í andar-
drættinum. Niðurstaða þeirrar
prufu var jákvæð og var konan
þá færð á lögreglustöðina. Eft-
ir að konan hafði gefið Ríkhard
Björgvinssyni varðstjóra
skýrslu, sem kominn var á
vakt, var hún færð á slysadeild
Borgarspítalans, þar sem tekið
var blóðsýni til mælingar á
áfengismagninu. Að því búnu
var konan keyrð heim og henn-
ar síðustu orð voru þau, hve-
nær hún fengi afsökunarbréf
frá lögreglunni. Hún var full-
vissuð um að hún fengi bréf,
* niðurstaða mælingarinnar
• skæri úr um hvert innihaldið
yrði.
SOFANDI UND-
IR STÝRI
Áfram hélt eftirlitsferðin, en
sú breyting varð á, að Sigurður
fór heim af vaktinni en við tók
Þessi ökumaður var mjog
drukkinn. Ilann hafði farið
á Umferðarmiðstoðina til þess
að fá sér að borða en sofnað
við stýrið. LKwm. Mhl Kmlila
í eftirlitsferð með lögreglunni, sem hefur byrjað