Morgunblaðið - 16.10.1980, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.10.1980, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980 Á ferð um N-Þingeyjarsýslu. Texti: Hildur Helga Sigurðardóttir Myndir: Emilía Björg Björnsdóttir. Þeir voru að saga rekaviðardrumba í rigningunni, feðg- arnir Sigurður Alex- andersson, bóndi á Sigurðarstöðum og sonur hans, Val- garður. vargfugl, en minkurinn er þó verstur og fuglinn hræðist hann meira en tófuna, enda drepur hann sér til skemmt- unar. Minkurinn komst í varp- ið hér í hólmanum, en þar eru um 200 hreiður, og fundum við fimm dauðar kollur eftir hann, þótt ekki hefði honum gefist langur tími til að at- hafna sig. „VeÖráttan kólnaði ’65“ „Maður sér bara til frá ári til árs“ Það fyrsta, er fyrir aug- un bar, er hlaðamaður og ljósmyndari Mbl. komu að Sigurðarstöðum á Sléttu, einum nyrsta ba* í byggð þar um slóðir, voru stórir staflar af timbri og var þar að sjálfsögðu kominn rekinn góði, sem löngum hefur verið Sléttungum gott búsílag. Þeir Sigurð- ur Alexandersson, bóndi á Sigurðarstöðum og sonur hans Valgarður, létu slagviðrið, sem var alls- ráðandi þennan dag, ekki aftra sér frá því að saga drumba af miklum móð, en þessir áttu, að þeirra sögn, að fara austur. Eftir stutt spjall í rigningunni við þá feðga var haldið til bæjar, enda fýsilegra að tylla sér í hlýju eldhúsinu og þiggja g(')ðgerðir húsfreyjunnar, Helgu Sæmundsdóttur, en að dvelja langdvölum í rokinu og rigningunni, ótilneyddur. „Ég hef átt lögheimili hér frá sjö ára aldri, en þá fluttist faðir minn hingað," sagði Helga og hellti um leið á könnuna á gömlu Aga-vélinni, sem brennir koksi og stendur enn fyrir sínu. „Húsið með torfþakinu hérna við hliðina á íbúðarhúsinu, er leifar af gömlu bæjarhúsunum, sem fjölskyldan byrjaði að búa í þegar hún fluttist hingað. Seinna byggðum við svo nú- verandi íbúðarhús. En jörðin hefur verið lengi í byggð, þó ekki eins lengi og Oddsstaðir, sem eru landnámsjörð. Við erum með eigin rafstöð, því Aðspurð hvort harðbýlt væri á Sléttu, svaraði Helga því til, að árið 1965 hefði veðráttan kólnað skyndilega. „Og þetta er það norðarlega að grasræktin mátti ekki við því. Annars slapp Sléttan sæmi- lega út úr harðindunum í fyrra. Axarfjörðurinn fór verr, þótt það sé betri sveit. En túnin hér voru illa sprottin í ár. Það var byrjað á því að heyja það sem verst fór í fyrra í vothey. Þessi væta núna er svosem ekkert til að berja sér yfir, en túnin eru lítil og jarðvegurinn grýttur. Hér er þó töluverð útbeit, svo féð hefur nokkuð getað bjargað sér sjálft. Þetta þóttu, og voru, miklar hlunnindajarðir hér á Sléttunni, þegar mest var um vert að hafa næg matföng. En Sigurðarstaðir á Sléttu. Veiðivatnið, Sigurðarstaðavatn, fH er viö bæjardyrnar. bæirnir fyrir utan Leirhöfn eru ennþá rafmagnslausir." Veiðivötn og varp Meðal góðgerða, sem á borð voru bornar var reyktur sjáv- arsilungur, sem Helga sagði betri en vatnasilunginn. En Sigurðarstaðavatn er annars krökkt af fiski og er vatnið alveg við bæjardyrnar, svo að hægt væri að dorga út um eldhúsgluggann, þótt ekki sé nú sá hátturinn hafður á. „Hér eru alls staðar veiðivötn, en þegar kvika kemur fyllist allt af þara,“ sagði Helga. „Veiðin hefur alltaf verið góð hér í vatninu og við reykjum mikið, þótt gamli reykkofinn sé nú kominn að falli. Hvað varpið snertir þá hafa Sléttuvörpin staðist illa, en stærsta varpið var á Grjót- nesi. Á stríðsárunum minnk- uðu vörpin mikið og hafa ekki náð sér upp síðan. Ástæðurnar eru fleiri en ein; hér er mikill

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.