Morgunblaðið - 16.10.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
21
Tvö lagafrumvörp
um kaup og kjör
alþingismanna
- kjör í þingfararkaupsnefnd á dagskrá innan skamms
„ÉG þori ekki á þessu stigi að
fastsetja daginn. en trúlega verð-
ur kosið i þingfararkaupsnefnd
áður en mjög langt um líður.“
sagði Jón Helgason. forseti Sam-
einaðs þings, í samtali við Mbl. i
gær, en allar líkur eru á þvi, að
ekki sé hægt að fresta kjöri
þingfararkaupsnefndar mjög
lengi, en sýnt þykir að umræður
um nýskipan kaup- og kjaramála
þingmanna muni taka sinn tima.
Eins og Mbl. hefur skýrt frá,
hefur Jón Helgason sent þing-
flokkunum til umfjöllunar frum-
varp til Iaga um þingfararkaup
alþingismanna, þar sem gert er
ráð fyrir því að kjaradómur úr-
skurði kaup og kjör þingmanna.
Þetta frumvarp er samið af Bene-
dikt Sigurjónssyni og Gunnari G.
Schram eftir viðræður Gunnars
Thoroddsens, forsætisráðherra, og
Jóns Helgasonar. Einnig hefur
Friðjón Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, samið frumvarp
að beiðni forseta Alþingis, þar
sem gert er ráð fyrir því, að
kjaradómur úrskurði aðeins kaup
þingmanna, en þingfararkaups-
nefnd starfi áfram og úrskurði
aðrar greiðslur. Mbl. spurði Jón
Helgason, hvort frumvarp Frið-
jóns yrði tekið til athugunar
einnig. „Þetta eru bara vinnuplögg
og plagg Friðjóns verður líka tekið
til skoðunar," svaraði Jón.
Mjög skiptar skoðanir eru með-
al þingmanna um það með hvorum
hættinum kjaramálum þing-
manna skuli skipað og má því
búast við að nokkurn tíma taki að
afgreiða ný lög um það efni.
efna til jass-
kvölda i Gaflinum
Jasskvöld í Gaflinum
á fímmtudagskvöldum
Kvartett Kristjáns Magnússonar leikur í kvöld
VEITINGAHÚSIÐ Gafl inn við
Reykjanesbraut í Ilafnarfirði
mun í vetur taka upp þá
nýbreytni. að efna til jasskvölda
á fimmtudagskvöldum.
Forráðamenn Gafis-ins munu fá
ýmsa þekkta jassleikara til að
koma fram á þessum kvöldum.
Fyrsta jasskvöldið verður í
kvöld og að þessu sinni mun
kvartett Kristjáns Magnússonar
leika frá kl. 20 til 23.30. í
kvartettinum eru auk Kristjáns,
sem leikur á píanó, þeir Guð-
mundur Steingrímsson, tromm-
ur, Björn Thoroddsen, gítar og
Gunnar Hrafnsson, bassi.
Matreiðslumenn Gaflsins
munu bjóða gestum upp á ýmsa
létta rétti á jasskvöldunum, svo
sem pizzur, franska lauksúpu og
ýmislegt fleira. Verði verður
stillt í hóf, að sögn veitinga-
mannanna, Jóns Pálssonar og
Einars Sigurðssonar.
Halldór, aðstoðarmaður Guðmundar Axelssonar, heldur hér á dýrustu bókinni í búðinni, 10 milljón
króna bókinni. I>að er Skálholtsprent frá 1688—'89. I 10 milljóna króna bókinni er Olafs saga
Tryggvasonar frá 1689, Landnáma. Kristindómssaga, Grönlandía og Zeta Arngríms lærða allar
prentaðar 1688.
Bókauppboð Klausturhóla:
Sof naði og
missti af bókinni
ÞAÐ ER einhver misskilningur
að bækur hafi farið sérstaklega
lágt á siðasta bókauppboði,
sagði Guðmundur Axelsson i
Klausturhólum. í heildina var
þetta uppboð ekki siðra öðrum.
— Já, það er tómur helvízkur
þvættingur, að það hafi allt farið
fyrir ekki neitt, eins og þeir
sögðu í útvarpinu, sagði við blm.
bókfróður maður. Orðabókin
hans Jóns fór að vísu lágt, en það
var fyrir slysni. Hann sofnaði,
einn sem ætlaði að bjóða og
hann var ákveðinn að fara upp i
120 þúsund. Svo var hún slegin á
50 þúsund, meðan hann svaf, sá.
Og þessi sem keypti hana, hann
ætlaði upp í 200 þúsund og var
lengi að bræða það með sér,
hvort hann væri ekki að tefja
tímann með því að byrja svo lágt
eða í 50 þúsundum — gerði það
samt og fékk hana fyrir fyrsta
boð.
Helztu bækur
Espólín var dýrastur á síðasta
bókauppboði Klausturhóla, Ár-
bækurnar fóru á 320 þúsund, en
„orðabókin hans Jóns", það er
„Supplement til islandske
Ordböger, I—IV“ eftir Jón Þor-
kelsson. Catalouge Halldórs
Hermannssonar af íslenzkum
bókum úr bókasafni Cornell-
háskóla fór óbundin á 40 þúsund.
Niels Horrebow „Zuverlássige
Nachrichten von Island" frá 1753
fór á 42 þúsund og önnur bók
eftir Horrebow, útgefin í París
1764, fór á 155 þúsund. í Austur-
vegi eftir Laxness, fyrsta og eina
útgáfan 1933, var slegin á 45
þúsund.
„Hentug handbók fyrir hvörn
mann“ eftir Magnús Stephensen,
útgefin í Leirárgörðum 1812, fór
á 52 þúsund, „Tíu sögur af þeim
enum heilögu Guðs postulum og
pínslar vottum", prentuð í Viðey
1836, fór á 60 þúsund og þótti
dýrt. Biblían í sjöttu útgáfu,
Reykjavík 1859, var slegin á 60
þúsund. Frímúrarareglan á ís-
landi í 25 ár, félagatal og
söguágrip, prentað sem handrit
á Akureryi 1945, á 48 þúsupd.
Fjögur hundruð ára saga prent-
listar á íslandi, e. Klemens á 50
þúsund, Annáll nítjándu aldar,
sem séra Pétur Guðmundsson
safnaði, á 47 þúsund og Ártíð-
arskrár Jóns Þorkelssonar fóru
óbundnar á 42 þúsund.
íslendinga saga Boga Th.
Melsted I—III fór á 30 þúsund í
fallegu bandi. Kvæðasafn Davíðs
I—III fór óbundið á 8 þúsund
krónur. Stjörnur vorsins, fyrsta
útgáfa, á 4.500 krónur. Ferðabók
Eggerts og Bjarna, 1943, fór á 11
þúsund og Ferðabókin, þjóðhá-
tíðarútgáfa í éinu bindi á ensku,
á 7 þúsund. Kortasaga Haraldar
Sigurðssonar, fyrra bindi, fór á
29 þúsund. íslenzk frímerki á 18
þúsund — og er nú fátt eitt upp
talið.
Guðmundur Axelsson sagði
uppboðin tíðast vel sótt, en það
væri mikið sama fólkið sem
kæmi.
— Menn virðast ekki gera sér
ljóst, sagði hann, hversu góð
kaup oft er hægt að gera á
uppboðunum. Guðmundur Ax-
elsson var ákveðinn í að halda
áfram og vera með bókauppboð
sem næst mánaðarléga í vetur.
Bryndis Árnadóttir lætur fara vel um sig á galdrakústi Baldurs Brjánssonar.
Hollywood:
Baldur Br jánsson
með nýtt töfrabragð
Á kynningarkvöldi í Holly-
ww)d fyrir skommu voru
þátttakendur í keppninni
Ungfrú Hollywood kynntir.
en nú stendur atkva'ða-
greiðsla yfir og verða endan-
leg úrslit kvnnt og ungfrú
Ilollywood krýnd þann 27.
þessa mánaðar.
Þá frumsýndi Baldur
Brjánsson nýjan „galdraþátt“,
sem hann mun verða með
vikulega í Hollywood fyrst um
sinn. Galdurinn felst í því að
Baldur lætur unga stúlku,
Bryndísi Árnadóttur halda
jafnvægi á galdrakústi sínum
og að sögn hans er þetta eitt af
6 elztu töfrabrögðum heims og
er afarvinsælt, þrátt fyrir að
það hafi ekki sézt hér áður.