Morgunblaðið - 16.10.1980, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
Skólastúlkur frá Egils-
stöðum hjálpuðu við
síldarsöltun á Eskifirði
Eskifirði. 15. október.
STANZLALS síldarsöltun hefur
nú veriö hér á Eskifirði í marga
daKa <>g hefur t.d. hjá Söltunar-
stnöinni Auöhjörgu verið saltaö
stanzlaust frá því klukkan 6 í
uaTmorsun eða í um 38 klukku-
stundir <>k áfram er haldiö því nöií
er af síld í bátunum hér við
bryKKjurnar. I>eir brujfðu á það
„ÞAÐ ER verið að fjalla um
búvöruverðið í sexmanna-
nefndinni, en ég á ekki von á
því, að niðurgreiðslur verði
auknar að sinni. Það verður
þá mjög óverulegt, ef eitthvað
verður,“ sagði Ragnar Arn-
alds, fjármálaráðherra, er
Mbl. spurði hann í gær, hvort
fyrirhugað væri að auka
niðurgreiðslur á landbúnað-
arvörum í sambandi við nýtt
búvöruverð.
Nú er í gildi bráðabirgða-
verð á búvörum meðan unnið
ráð hjá AuðbjörKU að fá stúlkur úr
Menntaskúlanum á Egilsstnðum
ásamt fólki, sem ekki hefur hingað
til verið í sildinni. til að salta svu
þeir þyrftu ekki að stoppa í nótt.
Þetta er búin að vera löng og
ströng síldarhrota og varla upprof í
hálfan mánuð eða meira og fólk
farið að þreytast. Ekkert lát er þó á
síldinni enn og annríkið hefur
er að endurskoðun á verð-
grundvellinum.
heldur aukizt eftir að nótaskipin
byrjuðu. Þau eru með það stóra
farma. Flest þeirra eru með fasta
samninga við stöðvarnar svo að þau
sitja fyrir með löndun er þau fá afla
og hefur þess vegna minna verið
hægt að taka af reknetabátunum
síðustu daga og mörgum verði vísað
frá.
I dag kom Votaberg með þúsund
tunnur, Garðey 350, Akurey með
200, Sæberg 200 og Einar Hólm með
150— 200 tunnur, sem var afgangur-
inn úr nót Sæbergs, en Einar Hólm
er 15 lesta bátur. Meira ráða þeir
ekki við hér í dag.
Ofan á síldina kemur svo loðnan
og kom Eldborgin hingað áðan með
yfir 1400 tonn. Þá kom skip til að
taka hér mjöl og annað með tunnur.
Skortur hefur verið á fólki hér því
einstaklega mikið er að gera.
— Ævar.
Landhelgisgæzlan:
Eldri Fokkerflug-
vélin, Þór og Ar-
vakur verða seld
Á ekki von á aukn-
um niðurgreiðslum
- segir Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra
Sleppt
úr gæslu
UNGUM manni var í gær sleppt
úr gæzluvarðhaldi, sem hann
hafði setið í undanfarna 19 daga
vegna rannsóknar á umfangs-
miklu fíkniefnamáli. Áfram sitja í
gæzlu þrír aðilar. Guðmundur
Gígja, lögreglufulltrúi hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykja-
vík, kvað rannsókn málsins standa
sem hæst og væri engar upplýs-
ingar hægt að gefa um málavexti
að svo stöddu.
ÞRJIJ varðskip Landhelgis-
Kæslunnar verða í rekstri allt
næsta ár, en þ<> þannig að gert
er ráð fyrir að skip verði i
höfn um sumartímann meðan
sumarleyfi standa yfir, sam-
Leiðrétting
Missögn varð í andlátsfregn um
Ólínu Björnsdóttur á Sauðárkróki
í Morgunblaðinu í gær. Þar féll
niður hluti úr orði, og sagt að hún
hefði verið formaður Sjálfstæðis-
félagsins. Þar átti að standa
' Sjálfstæðiskvennafélags Sauð-
árkróks. Biður Morgunblaðið við-
komandi velvirðingar á þessum
mistökum.
kvæmt upplýsingum er fram
koma í nýframlögðu fjárlaga-
frumvarpi. A árinu 1981 er
gert ráð fyrir að í fluggæslu
verði rekin ein Fokker Fri-
endshipflugvél, TF-SÝN, og
tvær þyrlur, TF-RÁN og TF-
GRÓ.
í fjárlagafrumvarpinu kem-
ur einnig fram, að á árinu 1980
hafi verið ætlunin að selja eldri
Fokkerflugvél Gæslunnar, og
einnig skipið Árvakur, og sé
það enn á dagskrá. Þá er í
fjárlagafrumvarpinu heimild
til ríkisstjórnarinnar um að
selja varðskipið Þór á næsta
ári, og er líklegt talið að svo
verði gert.
Mikil aðsókn í flug-
áætlanir innanlands
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hef-
ur veitt Flugfélagi Norðurlands
leyfi til áætlunarflugs milli Ak-
ureyrar. Ólafsfjarðar og Reykja-
víkur <>g sömu leið til haka. en
Flugráð hafði mælt með því að
Flugfélag Norðurlands fengi
áætlunina Akureyri — Ólafs-
fjörður — Akureyri og Arnar-
flug leiðina Reykjavík — Ólafs-
fjörður — Reykjavík. Þá hefur
samgönguráðuneytið gefið Is-
cargo vilyrði fyrir því að hefja
áætlunarflug með farþega milli
Isiands ug Ilollands.
Morgunblaðið aflaði í gær upp-
lýsinga hjá Birgi Guðjónssyni í
samgönguráðuneytinu um þessi
mál. Sagði hann að Flugfélag
Norðurlands hafi sótt um áætlun-
arflug á leiðinni Akureyri —
ísafjörður — Akureyri. Flugfélag
Norðurlands hefur haft flugíeyfi á
leiðinni Akureyri — Mývatn —
Reykjavík og sömu leið til baka,
en nú fór félagið fram á það að
breyta miliilendingu við Mývatn í
lendingu í Aðaldal við Húsavík, en
því var hafnað þar sem Flugleiðir
hafa einkaleyfi á þeirri leið. Þá
sótti Flugfélag Norðurlands um
áætlunarleyfi á leiðinni Akureyri
— Sauðárkrókur — Blönduós og
sömu leið til baka, en því var
hafnað og fékk félagið hins vegar
leyfi fyrir Akureyri — Blönduósi
— Akureyri.
Þá var veitt áætlunarleyfi til
Arna á ísafirði á leiðinni milli
ýmissa staða í Djúpinu, en hafnað
var beiðni Arná um vöruflutninga
milli ísafjarðar og Reykjavíkur.
Ernir sóttu einnig um áætluhar-
leyfi á leiðinni Isafjörður — Þing-
eyri — Reykjavík og til baka, en
því var hafnað. Hins vegar var
mælt með leyfi til áætlunar milli
Isafjarðar og Þingeyrar. Þá sóttu
Ernir um leyfi á leiðinni ísafjörð-
ur — Reykjanes — Reykhólar —
Reykjavík, en síðasta leggnum var
hafnað þar sem Arnarflug sinnir
honum.
Varðandi millilandaflug sótti
Iscargo um útvíkkun á flugrekstr-
arleyfi og tilnefningu samkvæmt
loftferðasamningi til farþegaflugs
milli Hollands og íslands. Flugráð
mælti með því og verður það
væntanlega veitt, en þarfnast at-
hugunar að sögn Birgis og hefur
það ekki verið afgreitt formlega
ennþá.
Rjúpnaveiði við Húsavík:
6 af 8 rjúpum lágu
llúsavik 15. okt.
IIÉR er allt hvitt milli fjalls <>g
fjöru og ófærð á heiðum. en af
þeim sökum fóru færri til
rjúpna en vant er 15. okt.
Kristbjörn Árnason þekkt
rjúpnaskytta en þekktari sem
aflakóngur á sildveiðum fór á
snjósleða um Reykjaheiði í dag
<>g sá aóeins 8 rjúpur. en kom
heim með 6 af þeim.
Á ferð sinni fann Kristbjörn
tvær kindur, á með lambi, í
svokölluðum Árnahvammi á
Reykjaheiði, og voru þær í al-
gjöru svelti vegna þess að snjór
og storka var yfir öllu. Ærin var
ver komin en lambið, en þeim er
nú borgið. Af öðrum rjúpna-
skyttum er svipað að segja, þær
sáu lítið af rjúpum og var
eftirtekjan eftir því.
— fréttaritari
Allsherjarverk-
f all í einn dag
FUNDUR 13ja manna nefndar
Alþýðusambands íslands ákvað í
gær allsherjarverkfall félaga ASÍ
hinn 29. októhcr na'stkomandi.
Hér fer á eftir álvktun fundarins:
„Fundur haldinn í 43ja manna
samninganefnd ASÍ, 15. október
1980 fordæmir harðlega þau vinnu-
brögð sem Vinnuveitendasamband
Islands hefur viðhaft í yfirstand-
andi samningaviðræðum. í orði
lýsir Vinnuveitendasambandið
samningsvilja og segist reiðubúið
til hliðstæðra samninga og gerðir
hafa verið við fjölmenna hópa sem
hafa margvísleg réttindi umfram
félagsmenn ASI, en á borði hafnar
Vinnuveitendasambandið alfarið
að ræða slíkar hugmyndir eins og
viðbrögð þeirra við tillögu sátta-
nefndar sýna.
Þrátt fyrir verulega annmarka á
tillögu sáttanefndar telur 43ja
manna nefnd Alþýðusambandsins
að miðað við ríkjandi aðstæður
megi fallast á tillöguna og ná
þannig samningum, sé minnsti
vilji til staðar hjá Vinnuveitenda-
sambandinu til þess að leysa deil-
una. Neiti Vinnuveitendasamband-
ið samningum hlýtur að koma til
vinnustöðvana á ábyrgð þess.
43ja manna nefnd ASÍ samþykk-
ir að leggja til við aðildarfélögin,
að þau þrýsti á um samninga með
því að boða til vinnustöðvunar um
land allt miðvikudaginn 29. októ-
ber nk.
Jafnframt felur nefndin 14
manna viðræðunefnd sambandsins
að hafa forgöngu um að leita eftir
samningum við ríki og bæjarfélög
um frekari aðgerðir ef nauðsyn
krefur."
VSÍ bendir á atriði
til lausnar deilunni
Fundur 43ja manna nefndar Alþýðusambands íslands í gær.
— Ljósm.: Kristján.
SAMBANDSSTJÓRN Vinnuveit-
cndasamhands tslands, sem skip-
uð er 60 mönnum. kom saman í
gær í húsakynnum VSÍ við Garða-
stræti. Stjórnin samþykkti eftir-
farandi ályktun:
„Samabandsstjórn VSÍ hefur
fjallað um stöðu samningavið-
ræðna og er samjnála um að tillaga
sáttanefndar frá 11. okt. sl. er með
öllu óaðgengileg af eftirgreindum
ástæðum:
1. Þar er ekki að finna lausn á
tæknideilu prentiðnaðarins.
2. Grunnlaunahækkunin er nálægt
því tvöfalt meiri en í BSRB
samkomulaginu og fer því of langt
fram úr því.
3. Gert er ráð fyrir að farand-
verkafólk njóti betri kjara en
heimafólk.
4. Gert er ráð fyrir að greiðslur
fyrir tíma, sem ekki en unninn,
verði auknar.
5. VSÍ getur hvorki fallist á gólf í
vísitölu né ígildi þess í launastig-
anum eins og sáttatillagan gerir
ráð fyrir.
Sambandsstjórnin leggur ríka
áherslu á, að samningar takist án
átaka á vinnumarkaðnum og telur
eðlilegt að launþegar á almennum
vinnumarkaði fái launahækkanir,
er tfyggi að launamismunur milli
þeirra og opinberra starfsmanna
aukist ekki. VSÍ hefur nú þegar
fallist á launahækkanir í formi
flokkatilfærslna og almennrar
grunnlaunahækkunar er nemur að
meðaltali 7,5%. Sambærileg hækk-
un í ellefu neðstu flokkum BSRB er
6%. Einstaka starfshópar hafa þó
ekki enn náð sambærilegri hækkun
og opinberir starfsmenn en í heild
hefur VSÍ þegar samþykkt meiri
meðaltalshækkanir en felast í
BSRB samkomulaginu. VSÍ er
reiðubúið að ljúka viðræðunum
þannig að allir starfshópar fái
sambærilega hækkun og opinberir
starfsmenn, ef samkomulag næst
um önnur atriði.
Til þess að ná ofangreindum
markmiðum þrátt fyrir þá stöðu,
sem upp er komin í samningavið-
ræðunum, bendir sambandsstjórn-
in á eftirfarandi:
1. Óhjákvæmilegt er að prentarar
láti af óraunhæfum kröfum um
niðurfellingu ákvæða um tækni-
mál prentiðnaðarins, sem samið
var um 1977 áður en gengið verður
til viðræðna um endanlegar kaup-
tölur í kjarnasamningi. Jafnframt
er nauðsynlegt að ganga frá öðrum
sérkröfum.
2. Teknar verði upp þríhltða við-
ræður vinnuveitenda, launþega og
ríkisstjórnar í því skyni að ná
samstöðu um lausn, sem hefði ekki
frekari verðbólguáhrif en þegar
eru óumflýjanleg. I því sambandi
er bent á skattalækkanir eða
fjölskyldubætur.
3. Aðilar komi sér saman um 4ra
ára áætlun um skipan starfsald-
urshækkana í kjarnasamningi.
4. Áfram verði unnið að samkomu-
lagi um 11 — 12 mánaða launa-
greiðslur í veikinda- og slysatilvik-
um.
5. Stefnt verði að því, að sam-
komulag á þessum grundvelli gildi
til 1. nóvember 1982.
Þá hefur sambandsstjórnin rætt
verkfallshótanir ASÍ og hefur í
framhaldi af því ákveðið að skipa
nefnd með fulltrúum atvinnu-
greina og landshluta til þess að
gera tillögur um verkbannsaðgerð-
ir í varnarskyni, ef nauðsyn kref-
Sambandsstjórnarfundur Vinnuveitendasambands íslands í gær.
LjÓHm.: Emilta.