Morgunblaðið - 16.10.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
41
félk í
fréttum
Stórbanka-
menn á
fundi
+ Senn líður að því að aðal-
bankastjóri Alþjóðabankans i
Washington Robert McNam-
ara, hætti stðrfum þar. Hann
varð bankastjóri bankans árið
1968. bessi mynd var tekin af
honum á íundi Alþjóðabankans
í Washington fyrir nokkru
(hann er til vinstri). Hann er að
ræða við Frakkann Jacques De
Larosier sem er framkvæmda-
stjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins.
Með minkum
og refum
+ Fyrir nokkru var Ólaf-
ur Noregskonungur í
opinberri heimsókn hjá
Kekkonen Finnlandsfor-
seta. Eins og við mátti
búast var Ólafi vel tekið
í Finnlandi. Meðal þeirra
bæja, sem konungurinn
heimsótti var bærinn
Nykarleby. Þetta mun
vera lítill bær. Þar eru
stórbú loðdýraræktar-
bænda. Er myndin tekin
er þjóðhöfðingjarnir
heimsóttu eitt af búum
þessum, ásamt fylgdar-
liði sínu. í þessu loðdýra-
búi eru 110.000 minkar
og rúmlega 30.000 refir.
Stórir í sniðum Finnar.
Betri
tíð með
blóm í
haga?
+ Hinn nýi forseti Argentínu,
Roberto Eduardo Viola, átti
nýlega 56 ára afmæli. Hann er
af ítölsku bergi brotinn, frá
Buenos Aires. Hann er kvænt-
ur maður, konan hans, Nelida
berst lítið á, helgar sig heimili
og börnum. Þau eiga tvö börn.
Er forsetinn sagður góður
heimilisfaðir, sem láti sig
miklu skipta heimilislífið,
börnin og tvö barnabörn
þeirra hjóna. Forsetinn hafði
sagt skömmu eftir að hann var
kominn í forsetastólinn, en
mikil óöld hefur ríkt í Argen-
tínu sem kunnugt er af frétt-
um: Aðeins tíminn getur
læknað hin miklu sár, sem
hlotist hafa í þessum atökum.
Rúmlega 7000 manns hafa
horfið sporlaust í landinu. Eru
örygK'sverðir stjórnarinnar
sagðir eiga þar hlut að máli.
Sagt er að vonir manna um
betri tíð og blóm í haga í
Argentínu séu tengdar hinum
nýja þjóðhöfðingja landsins.
Kjólar — kjólar
Dagkjólar — kvöldkjólar — samkvæmiskjólar í nýju
glæsilegu úrvali. Allar stæröir — Hagstætt verö.
Opiö föstudag 9—19. ‘
Laugardag 10—12.
Kjólasalan Brautarholti 22.
Inngangur frá Nóatúni.
■©.
0«
Sjávarrétta-
vika
Ótal tegundir Ijúf-
fengra sjávarrétta á
hlaöboröi í hádeginu og
um kvöld alla þessa
viku.
E oj)| p.i
c=^uiLUj|ui \m nlL g)
REKSTRARBÓKHALD
OG VERÐÁKVARÐANIR
Stjórnunarfélag íslands efnir til
námskeiðs um rekstrarbókhald
og veröákvaröanir í fyrirlestra-
sal félagsins aö Síöumúla 23
dagana 24., 27. og 28. október
kl. 15—19.
Tilgangur námskeiðsins er að kynna
hvernig má meö einföldum haetti fá
upplýsingar úr bókhaldi fyrirtækisins um
kostnaö einstakra vörutegunda eða
kostnað við rekstur einstakra deilda.
Leiðbeinendur:
Brynjar Haraldsson
tæknifræöingur.
Fjallað verður um markmið fyrirtækja,
skipulagningu á rekstri og uppbyggingu
og notkun bókhalds sem stjórntækis.
Lögð veröur áhersla á kynningu aðferöa
viö mat á afrakstri einstakra vörutegunda
og afkomu einstakra deilda fyrirtækisins.
Kynntar veröa ýmsar aðferðir við verð-
lagningu hjá fyrirtækjum sem beita má til
að tryggja arðsemi viökomandi reksturs.
Námskeiöiö er ætlað fram-
kvæmdastjórum, fjármálastjór-
um og aðalbókurum fyrirtækja.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunar-
félagsins, sími 82930.
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SlMI 82930