Morgunblaðið - 23.10.1980, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1980
KÖNNUSTEYPIRINN PÓLITÍSKI:
„Ef hann steypir eitt fat, þá er það svo pólitískt í laninu. aó við
verðum að smíða það upp,“ set?ir lærlinKur Hermanns von Bremen
um lærimeistara sinn. Við erum stódd á æfin«u á verki Luövík
IIolberKs, Konnusteypinum pólitíska. i Pjoðleikhúsinu i fyrra-
kvold. Handverksmaðurinn Ilermann von Bremen sem hýr i
HamborK. Þýzkalandi, á þá ósk heitasta að komast til valda o«
metorða i stjórnmálaheiminum. Ilann lÍKKur þvi daKleKa yfir
pólitískum skræðum ok lætur handverk sitt lónd ok leið. „Þið
vinnið með höndunum. ck með heilanum,“ er svar hans til konu
sinnar Gesku. sem orðin er þreytt á leti eÍKÍnmannsins við að
framfleyta fjölskyldu sinni. „I'að var nú hver prakkarinn kallaður
pólitíkus hér áður fyrr,“ er hennar álit á þessum „starfsvcttvanKÍ“
bónda sins.
Milli þess sem Hermann von
Bremen les hin pólitísku fræði
sín, situr hann í „kolleKÍum
pólitíkum" ásamt nokkrum
stéttarbræðrum sínum og þar
ræða þeir þjóðmálin og sam-
þykkja ýmsar tillögur um lands-
ins gagn og nayðsynjar, sem þeir
hyggjast senda Ráðinu. Tillög-
urnar varða hagsmuni Þýzka-
lands á hinum ýmsu sviðum, en
ekki er laust við að persónulegra
hagsmuna þeirra seilufélaga
verði vart í tillögugerðinni.
Skemmtilegt
en þrælerfitt
Hermann stefnir hátt og æfir
sig leynt og ljóst fyrir „land-
steypishlutverkið" og borgmeist-
ari Hamborgarastaðar vill hann
verða. Hermann er leikinn af
Bessa Bjarnasyni og ræddi
blaðamaður Mbl. við hann í lok
æfingar í fyrrakvöld. „Hann
sækir sellufundi þar sem þeir
kunningjar ræða þjóðmálin eins
og þeir hafa vit á,“ sagði Bessi
Margt gerist
kátbroslegt
Hefðarmennirnir hefja nú
skipulagðar ferðir inn á heimili
borgmeistara og konu hans, og
er Holberg þar í essinu sínu og
margt gerist kátbroslegt í mann-
anna gjörðum. Lærisveinninn
hefur verið dubbaður upp í
hlutverk einkaþjóns borgmeist-
arans og fáum við nú að sjá hin
ýmsu upphugsuðu tilbrigði, flest
fengin úr pólitískum fræðum
húsbóndans, um hina „réttu"
framkomu æruverðugra borg-
meistarahjóna. Gegnir þjónninn
þar þýðingarmiklu lykilhlut-
verki og er hann einnig fljótur
að finna leiðir til að mata eigin
krók á þessari snöggu umbreyt-
ingu í lífi sínu. Þórhallur Sig-
urðsson leikur þjóninn. Þetta er
ekki fyrsta hlutverk hans í
verkum Holbergs, því þegar
hann stóð í fyrsta sinn á leik-
sviði árið 1965, þá í Herranótt,
var hann einnig í hlutverki þjóns
í Grímudansi Holbergs. Þórhall-
Gluggað í hin pólitísku
fræði.
lögum Akureyrar og Kópavogs
og auk þess leikið í nokkrum
sjónvarpsleikritum. „Þetta eru
auðvitað viðbrigði. Þjóðleikhúsið
er viðameira leikhús en hin sem
ég hef leikið í og er það bæði
veikleiki og styrkur að mínu
mati. En mér finnst alltaf gam-
an að reyna eitthvað nýtt og
líkar ágætlega að fara á milli
leikhúsanna." Viðar hafði eftir-
farandi að segja um Könnu-
steypinn pólitíska. „Verkið sýnir
mannlegan breyskleika, sýndar-
mennskuna. Þegar verkið var
samið, gerðu áreiðanlega fáir sér
grein fyrir að þjóðfélagið ætti
eftir að breytast eins og raunin
hefur orðið á. Leikstjórinn hefur
lagt sig fram um að færa verkið
nær nútímanum og mér finnst
honum hafa tekist þar vel upp.“
Fjölmargir leikarar aðrir
koma fram í Könnusteypinum og
má þar helsta nefna Arna
Tryggvason, Val Gíslason,
Þorstein 0. Stephensen, — en
hann lék Könnusteypinn Her-
mann í fyrstu uppfærslu verks-
ins hérlendis hjá M.R. 1923 og
þýddi leikritið þá einnig. —
Sigríður Þorvaldsdóttir, Þóra
Friðriksdóttir, Edda Þórarins-
dóttir, Árni Ibsen o.fl. fara
einnig með hlutverk í leiknum.
Leikmynd og búningateikningar
gerði Björn G. Björnsson, Dóra
Einarsdóttir búninga. Lýsingu
Sýndarmennska, prjál og aðr-
ir mannlegir breyskleikar
um Hermann. „Hann er forystu-
sauður í þessum hópi. Þetta er
þó aðeins venjulegt fólk, en
Hermann rekur sig á að það þarf
meira en að segjast ætla að gera
stóran hlut.“ Bessi sagði þetta
skemmtilegt hlutverk, en þræl-
erfitt. „Þessi stíll Holbergs
krefst þess að leikurinn sé mjög
yfirdrifinn, en þó eru mein-
ingarnar sterkar." — Á boðskap-
urinn erindi til okkar? „Já, eru
þetta ekki sömu vandamálin,
hefur stjórnum ekki verið koll-
varpað, þegar fólkið er ekki
ánægt?“
Til sögunnar koma fjórir hefð-
armenn, sem heyra á tal könnu-
steypisins og sellubræðra hans.
Þeir ákveða því að leika á
Hermann og telja honum trú um
að hann sé orðinn borgmeistari.
Margir hlutir gerast nú á
skömmum tíma á heimili hins
„nýja borgmeistara" og umskipti
verða hvað tilþrifamest á eigin-
konu Hermanns, Gesku. Hin
fyrruni hreinskiptna alþýðukona
umbreytist og eiga orð eins
aðalmannsins einna bezt við
hana, en hann sagði: „Enginn er
hortugri en sá sem kemst í
skyndi til virðingar.“
Guðrún Þ. Stephensen leikur
Gesku og hafði hún eftirfarandi
að segja um hana: „Mér þykir
va-nt ttm Gesku. Hún gengur
hvað lengst í sýndarmennsk-
unni, — hún vill þó gera gott en
týnir eiginléga öllu niður vegna
þessarar hvatar sinnar." Guðrún
sagði að Geska væri áreiðanlega
til í okkur öllum, grunnt væri á
sýndarmennskunni. Verkið fjall-
aði mikið um þennan neikvæða
þátt mannlegs eðlis og það ætti
erindi á öllum tímum sem ádeila
og áminning um að aldrei mætti
gleyma einlægninni og samúð-
inni.
— meðal þess sem
Holberg hæðist
að í þessum
fyrsta gamanleik
sínum
ur sagði lærlinginn og þjóninn í
Könnusteypinum pólitíska vera
fyrirmynd þjónsins Hinriks, sem
þekktur er úr gamanleikjum
Holbergs. „Mér þykir vænt um
verk Holbergs e.t.v. þar sem það
var verk hans sem ég lék fyrst í.
Þetta leiksviðsverk er fyrst og
fremst ádeila á sýndarmennsku
og prjál allra tíma. Lærlingur-
inn og kona hans vinna oll
verkin og ég held að lærlingur-
inn sé nokkru betur gefinn en
hústióndinn. Þetta er einfalt og
einlægt verk og á erindi til allra
tírna," sagði hann í lokin.
Frá viðureign Gesku og Hermanns, en Hermann segist hafa
tamið sér að stilla skapsmuni sina með þvi að telja upp að 20 or
hafði það auðvitað úr pólitískum fræðum. Einum félaga hans
varð þá að orði: „Sé það pólitískt að láta konuna sína hárreita
SÍK, verð ég aldrei pólitíkus." Ljósmyndir Kristján Einarsson.
Dæmigerðir
spjátrungar
Hefðarmennirnir fjórir eru
dæmigerðir spjátrungar þess
tíma, cn Holberg samdi leikritið,
sem talið er fyrsta verk hans,
1722. Hefðarmennirnir hafa
góða skemmtan af að hæða þau
hjón og koma fyrir dyr þeirra í
ýmsum gervum. Þeir eru leiknir
af Baldvini Halldórssyni, Sig-
urði Skúlasyni, Þráni Karlssyni
og Viðari Eggertssyni. Viðar
leikur hér sitt fyrsta hlutverk í
Þjóðleikhúsinu og í tilefni af þvi
spurðum við hann hvort mikil
viðbrigði væru að leika í Þjóð-
leikhúsinu. Viðar útskrifaðist
frá Leiklistarskólanum 1976 og
hefur síðan starfað hjá Leikfé-
Antonius, sem Sigmundur Örn Arngrimsson leikur, til vinstri,
iærlingurinn og þjónninn, sem Þórhallur ieikur, til hægri.
annast Ásmundur Karlsson.
Þýðingu þessarar uppfærslu
gerði dr. Jakob Benediktsson.
Sígildur boðskapur
Leikstjóri sýningarinnar er
Hallmar Sigurðsson og er þetta
fyrsta verkefni hans fyrir Þjóð-
ieikhúsið. Þrátt fyrir annríki við
leiðbeiningar gaf hann sér stund
til að spjalla við okkur í lok
æfingarinnar. „Höfundurinn
beitir háði og það er ýmislegt
sem vekur háð hans,“ sagði
hann. „Þar er sýndarmennskan
efst á blaði. Hvort verkið á
crindi til dagsins í dag? Við
verðum að skoða það í stærra
samhengi. Þarna er verið að
hæða mannlegan breyskleika, en
því er ekki að leyna að verkið er
skrifað í byrjun 18. aldar og
pólitískur veruleiki þá er gjör-
ólíkur þeim sem við þekkjum í
dag. Holberg hyllir hið mennt-
aða einveldi þess tíma, sem kann
að þykja afturfor.
En krúnan á í höggi við nýja
auðmannastétt og nýjan aðal,
sem vill halda óbreyttu ástandi á
meðan krúnan berst fvrir betri
menntun, bókaútgáfu, leikhús-
um o.fl. sem gerir afstöðu Hol-
bergs skiljanlegri. — Við hljót-
um ætíö að líta verk frá okkar
sjónarhorni, og það kallar á
ákveðnar breytingar. — Þó er
nútímahúningurinn ekki allt. —
Það sem felst í verkinu er sígilt."
Næsta verkefni sem Hallmar
leikstýrir er nýlegt verk eftir
Fassbinder, sem sýnt verður í
Alþýðuleikhúsinu síðari hluta
vetrar.
Leikurinn verður frumsýndur
í kvöld, næsta sýning er á
laugardag.
—F.P.
MMMMnMMMMnMMMMMMMnMMMnHMMMMMMMMMMMMMMMMMHMMMMMMMNMMMMI
Wm