Morgunblaðið - 23.10.1980, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1980
Harkaleg gagnrýni f jármálaráðherra á skrif Morgunblaðsins:
„Harðvítug viðleitni til
að skapa tortryggni
í garð stjórnvalda“
í UMRÆÐUM á Alþingi í fyrradag um málefni
Flugleiða vék Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra,
sérstaklega að skrifum Morgunblaðsins um þau, og
komst svo að orði, að skrif blaðsins hefðu verið
stórhættuleg og í þeim hefði falizt harðvitug viðleitni til
þess að skapa tortryggni í garð stjórnvalda. Þessi kafli
úr ræðu fjármálaráðherra fer hér á eftir í heild. Hér á
síðunni birtast einnig svör Morgunblaðsins við gagn-
rýni ráðherrans:
„Meðan þessi mál hafa verið á
döfinni undanfarnar vikur og
mánuði, hefur margt verið skrif-
að í blöð, eins og gefur að skilja.
Hér verður þó ekki hjá því komist
að nefna sérstaklega skrif Morg-
unblaðsins, sem hafa skorið sig
nokkuð úr. í þessu blaði hefur
verið nær daglega mjög harðvít-
ug viðleitni til þess að skapa
tortryggni á gerðum stjórnvalda í
þessu máli og sérstaklega hefur
áköf viðleitni verið til að koma
höggi á einn stjórnarflokkinn,
Alþb., og reyna að telja fólki trú
um, að sá flokkur vinni að því
öllum stundum að koma þessu
félagi á kné.
Athugasemdir eftirlitsmanna
ríkisins, sem gerðu athugasemdir
við reikninga félagsins og fyrir-
liggjandi mat á eignum og áætl-
aðri veðhæfni eigna, voru gerðar
eins tortryggilegar eins og hugs-
ast gat, og allt gert til þess 'að
telja fólki trú um, að engin
ástæða væri fyrir ríkisvaldið til
þess að rannsaka þessi mál frek-
ar en orðið var.
Ég vil segja það hér og nú, að
þessi skrif voru ekki aðeins
furðuleg, þau voru stórhættuleg.
(Gripið fram í: Það voru nú
aðallega ráðh. sem voru hættu-
legir, held ég.) Ég held, að það
væru nú best fyrir hv. þm., að
biðja bara um orðið og taka til
máls hér á eftir frekar en að vera
að tísta hér úr sæti sínu svona
inn á milli. (Gripið fram í: Það
gat nú verið ástæða til.)
En ég endurtek, að hér voru á
ferðinni skrif, sem vissulega fólu
í sér mikla hættu. (Gripið fram í:
Getur þú dæmt — að dæma um
það.) Þessi skrif fólu það í sér, að
fjmrn. og Alþ. áttu að taka á sig
ábyrgð á 10 milljörðum króna án
þess að viðhlítandi rannsókn færi
fram á því, hvort trygging væri
fyrir þessari fjárhæð. Sem sagt:
ríkisstj. átti að taka ábyrgð á því,
að lögð væri á skattgreiðendur
áhætta, sem næmi um það bil
öllum þeim gjöldum af eignar-
skatti, sem ísl. skattgreiðendur
greiða í dag til ríkisins. Þeir
menn sem unnu að því, að fá úr
því skorið, hversu mikil þessi
áhætta væri, voru svívirtir í
Morgunblaðinu og kallaðir öllum
illum nöfnum. (Gripið fram í.)
Ég heyri, að það er töluverð
viðkvæmni hjá sumum, að þetta
skuli vera rifjað upp hér. En
sérstaklega þótti það grunsam-
legt að uppi væru skoðanir um
það, að félagið þyrfti hugsanlega
að selja eignir, til þess að geta
talist hafa veð í lagi fyrir þessum
ábyrgðarheimildum. I grein eftir
grein í þessu blaði var því haldið
fram, að um væri að ræða
einhliða fyrirskipanir stjórn-
valda til Flugleiða hf., að selja
þessa eignina eða hina og skrifað-
ir um það margir ianghundar,
bæði í Reykjavíkurbréfum og
leiðurum. (Gripið fram í: Var
þetta úr lausu lofti gripið?)
Þó dró nú nokkuð úr þessum
skrifum. — (Gripið fram í: Var
þetta úr lausu lofti gripið?) Já,
þetta var úr lausu lofti gripið,
það var víst áreiðanlegt, ég skal
nú sýna fram á það: Hinn 1. okt.
sl., sendu Flugleiðir hf., bréf til
ríkisstj., sem stílað var á Stein-
grím Hermannsson samgrh., þar
sem gerð var grein fyrir því,
hvaða eignir gætu komið til
greina að selja af heildareignum
fyrirtækisins. Þetta bréf er birt
með frv. ríkisstj. sem fskj. nr. 2
og ég vil benda hv. þm., sem
sumir hverjir kynnu að vera
ófróðir um raunverulegt baksvið
þessara mála, að lesa efni þessa
bréfs. Ég vil sérstaklega nefna
hér niðurlag bréfsins, en þar
segir með leyfi forseta:
„Flugleiðir telja æskilegast, að
ef um sölu eigna yrði að ræða
væri hagkvæmast að selja eftir-
farandi eignir. Er þá gert ráð
fyrir, að ekki tækist sala á
flugvélum vegna erfiðs markaðar:
1. Cargolux.“ Fyrirtækið telur,
að með því að selja hlutabréfið
Cargolux myndi skapast að lág-
marki fjórfalt verðmæti. Bætt
greiðslufjárstaða að upphæð 6,5
millj. bandaríkjadala.
„2. Sala skrifstofubyggingar.“
Ég les ekki það sem þar segir um
hvernig haga mætti þeirri sölu,
enda geta þm. lesið það í þessu
frv.
I þriðja lagi er bent á, að
hugsanlegt sé að auka hlutafé. Ég
held að þetta bréf, sem ég hirði
ekki um að rekja frekar, taki af
öll tvímæli um það, að hugleið-
ingar stjórnvalda um hugsanlega
sölu á eignum Flugleiða byggðust
á viðræðum við félagið og á
hugleiðingum forystumanna fé-
lagsins um það nákvæmlega
sama. Þessar ásakanir voru því
algjörlega úr lausu lofti gripnar,
eins og þm. nefni hér áðan.
Hins vegar verður það að
segjast eins og er, að þessi
rótarlegu skrif Morgunblaðsins,
sérstaklega um þennan þátt
málsins, þ.e. um sölu eignanna og
hugsanlegt veðhæfi þeirra, og
ýmsar yfirlýsingar forystumanna
Flugleiða um sama efni, sem ég
hirði ekki um að tína hér til,
sýna, að greinileg tilhneiging
hefur verið fyrir hendi á undan-
förnum vikum að láta ríkissjóð og
skattgreiðendur taka á sig ábyrgð
í þessu máli, sem kynni að vera
langt umfram það sem veð leyfa,
— tilhneiging til að knýja á um
það, að ríkið taki á sig áhættu, að
skattgreiðendur bæti á sig pinkl-
um, sem gætu numið allt upp í 10
milljarða kr. en það verður ekki.“
Tvær góðar
sölur ytra
TVÖ fiskiskip seldu afla sinn
erlendis í gær og fengu bæði
gott verð fyrir fiskinn. Stál-
vík frá Siglufirði seldi 99,9
tonn í Grimsby fyrir 92,1
milijón króna, meðalverð 922
krónur. Gæði fisksins, sem
Stálvík var með þóttu sérlega
mikil. Snorri Sturluson RE
seldi 186,5 tonn í Cuxhaven
fyrir 101,1 milljón, meðalverð
á kiló 542 krónur. í dag
verður lokið við að landa úr
Snorra.
Talsvert hraun-
streymi og gos
úr þremur gígum
ENN GÝS úr þremur gígum
nyrzt á gossprungunni við
Kröflu. í fyrrinótt byrjaði
landið að siga litils háttar á ný
eftir að hafa verið kyrrt um
tima. Um hádegi i gær jókst
hraunstreymið siðan og er enn
talsvert hraunrennsli úr gigun-
um. í gær fannst jarðskjálfti i
Reykjahliðarhverfinu og mæld-
ist hann 2,7 stig á Richter.
Bókagerðarmenn:
Lítið miðaði
í fyrrinótt
SÁTTAFUNDUR i kjaradeilu
bókagerðarmanna og Félags
islenzka prentiðnaðarins, sem
hófst i fyrradag klukkan 21,
stóð til klukkan 07 í gærmorg-
un. Nýr fundur hófst síðan
klukkan 17.30 í gær og stóð
enn þegar Mbl. hafði siðast
fregnir af. Guðlaugur Þor-
valdsson, sáttasemjari ríkis-
ins, átti von á, að fundurinn
stæði fram eftir nóttu.
Lítið mun hafa miðað í
samkomulagsátt á fundinum í
fyrrinótt, en aðilar ræddu þá
vinnu við nýja tækni, svokall-
aðan hvíldartíma og vinnu í
auglýsingadeildum.
Svör Morgun blaðsins
Aths. ntstj.:
Árás sú, sem Ragnar Arnalds,
fjármálaráðherra, gerði á Morg-
unblaðið í þingræðu í fyrradag
vegna skrifa blaðsins um Flug-
leiðamálið, endurspeglar gremju
alþýðubandalagsmanna yfir því
að ítrekaðri aðför þeirra að
Flugleiðum og þar með einka-
rekstrinum í landinu hefur verið
hrundið. Hér á eftir verður
ásökunum ráðherrans og stór-
yrðum í garð Morgunblaðsins
svarað lið fyrir lið:
1. Fjármálaráðherra segir: „í
þessu blaði hefur verið nær
daglega mjög harðvítug viðleitni
til þess að skapa tortryggni á
gerðum stjórnvalda í þessu máli
og sérstaklega hefur áköf við-
leitni verið til að koma höggi á
einn stjórnarflokkinn, Alþýðu-
bandalagið, og reyna að telja
fólki trú um, að sá flokkur vinni
að því öllum stundum að koma
þessu félagi á kné.“ Þessum
ásökunum er vísað til föðurhús-
anna. Hið rétta er, að ítarlegur
fréttaflutningur Morgunblaðsins
leiddi í Ijós, svo ekki varð um
villzt, að Álþýðubandalagið gerði
„harðvítuga" tilraun til þess að
koma höggi á Flugleiðir, skapa
tortryggni í garð fyrirtækisins
og koma því á kné. Þessi atlaga
var gerð í fjöimiðlum og í skjóli
valds fjármálaráðherra. Þáttur í
henm var trúnaðarbrot sérstaks
trúnaðarmanns fjármálaráð-
herra og væri honum nær að
snúa sér að því að setja þann
trúnaðarmann af, eins og Morg-
unblaðið hefur bent á áður, í
stað þess að veitast að blaðinu.
2. Fjármálaráðherra segir, að
Morgunblaðið hafi gert athuga-
semdir eftirlitsmanna ríkisins
við reikninga, mat á eignum og
veðhæfi eigna tortryggilegar og
reynt að telja fólki trú um, að
engin ástæða væri til að rann-
saka þessi mál frekar.
Það er rétt, að athugasemdir
Baldurs Óskarssonar, eftirlits-
manns fjármálaráðherra, voru
tortryggilegar í augum almenn-
ings, en það var ekki Morgun-
blaðið sem stóð fyrir því, heldur
Baldur Óskarsson sjálfur.
Vinnubrögð hans og félaga hans,
Ólafs Ragnars, voru með þeim
endemum, að engum duldist að
hverju var stefnt. Svo langt
gengu þessir trúnaðarmenn fjár-
málaráðherra, í trúnaðarbrotum
og misnotkun aðstöðu, að eftir-
litsmaður samgönguráðherra
baðst undan ábyrgð á yfirlýsing-
um eftirlitsmanns fjármálaráð-
herra í fjölmiðlum.
Það er rangt hjá fjármálaráð-
herra, að Morgunblaðið hafi
reynt að telja fólki trú um, að
engin ástæða væri til frekari
könnunar á málefnum Flugleiða.
Fjármálaráðherra getur ekki
fundið staf í Morgunblaðinu til
þess að staðfesta þessa fullyrð-
ingu og ætti að vera vandaðri í
málflutningi sínum á Alþingi.
3. Fjármálaráðherra segir, að
skrif Morgunblaðsins um þetta
mál hafi verið „stórhættuleg".
Hið rétta er, að tilraunir ráð-
herrans og féiaga hans til að
flækja málið, svo að vitnað sé til
samgönguráðherra um vinnu-
brögð fjármálaráðherra, eru
„stórhættuleg" fyrir atvinnuör-
yggi starfsmanna Flugleiða og
samgöngur innanlands og milli
landa og tímabært orðið, að
ráðherrann geri sér grein fyrir
því.
4. Fjármálaráðberra segir, að
Morgunblaðið hafi krafizt þess
að ráðherra og Alþingi tækju
ábyrgð á 10 milljörðum króna án
þess að viðhlítandi rannsókn
færi fram á því hvort trygging
væri fyrir hendi fyrir þessari
ábyrgð.
Þetta er rangt eins og annað í
þessari þingræðu fjármálaráð-
herra. Morgunblaðið hefur enga
slíka kröfu sett fram. Hins vegar
hefur blaðið krafizt þess, að
ríkisstjórn og Alþingi stæðu
þannig að þessu máli, að rekstur
fyrirtækisins og þar með afkoma
starfsfólks og samgöngur milli
landa og innanlands yrðu
tryggð. Morgunblaðið hefur
spurt, hvort þess væru engin
dæmi, að ríkisábyrgðir væru
veittar út á meira en 60% af
mati og bent á að hæg væru
heimatökin hjá fjármálaráð-
herra að svara þeirri spurningu.
5. Fjármálaráðherra víkur að
hugsanlegri sölu eigna Flugleiða
og mótmælir því, að hugleið-
ingar um það efni hafi verið
samkvæmt einhliða fyrirmælum
stjórnvalda.
Morgunblaðið hefur ekki full-
yrt annað um þetta efni en það,
að Ragnar Arnalds, fjármala-
ráðherra, hafi gert það að skil-
yrði fyrir ríkisábyrgð, að félagið
seldi eignir. Þetta kemur skýrt
fram í 3. tölulið hins dæmalausa
bréfs fjármálaráðherra til
Flugleiða frá 10. okt. sl. Bréf
Flugleiða frá 1. okt. sl. sem
ráðherrann vitnar til hefst á
þessum orðum: „Að ósk ráðu-
neytisins fylgja hér með upplýs-
ingar um athuganir á sölu fast-
eigna, hlutabréfa í öðrum félög-
um ...“ Þetta bréf Flugleiða er
svar við bréfi samgönguráðherra
frá 24. september sl., þar sem
rætt er um sölu eigna og óskað
upplýsinga um möguleika á því.
Það skiptir Morgunblaðið
engu máli, þótt stjórnendur
Flugleiða láti í ljósi þá skoðun í
bréfinu frá 1. okt. sl., að kæmi til
sölu eigna væri hagkvæmast að
selja m.a. hlut félagsins í Cargo-
lux. Það er skoðun Morgunblaðs-
ins, að út frá þjóðhagslegum
sjónarmiðum sé rangt að selja
hlut Islendinga í Cargolux, þar
sem eignarhluti Flugleiða í því
fyrirtæki, skapi okkur margvís-
lega möguleika í flugmálum í
framtíðinni.
6. Fjármálaráðherra segir:
... Þessi rótarlegu skrif Morg-
unblaðsins, sérstaklega um
þennan þátt málsins þ.e. um sölu
eignanna og hugsanlegt veðhæfi
þeirra ... sýna að greinileg til-
hneiging hefur verið fyrir hendi
á undanförnum vikum að láta
ríkissjóð og skattgreiðendur
taka á sig ábyrgð í þessu máli,
sem kynni að vera langt umfram
það sem veð leyfa ...“
I fyrsta lagi er það staðreynd,
hversu oft sem fjármálaráð-
herra reynir að fela það, að það
er ríkisstjórnin sjálf, og þar með
ráðherrann, sem hefur átt frum-
kvæði að því að taka á skatt-
greiðendur þá ábyrgð, sem felst í
bakábyrgðinni vegna Atlants-
hafsflugsins. í öðru lagi er ljóst,
að reglur um veð vegna ríkis-
ábyrgða hafa verið sveigjanlegri
í framkvæmd en fjármálaráð-
herra vill vera láta. I þeim
efnum eiga Flugleiðir að sitja
við sama borð og önnur atvinnu-
fyrirtæki í landinu.