Morgunblaðið - 04.11.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.11.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1980 Frá árinu 1972 hefur öldruðu fólki í Reykjavik fjölgað verulega, 80 ára og eldri hefur f jölgað um 50% og ellilífeyrisþegum um 20% á sama tíma hefur íbúatala borgarinnar staðið í stað og ellilífeyrisþegum í öðrum landshlutum farið fækkandi. Þrátt fyrir þessa fjölgun hefur Reykjavík borið mjög skarðan hlut frá borði hvað varðar f járveitingar hins opinbera til uppbyggingar sjúkrastofnana. Á árunum 1975 til ’78 var hlutur Reykjavíkur 10.482 krónur á íbúa miðað við verðlag ársins 1978, Reykjaneshérað fékk 7.824 krónur, en önnur héröð fengu þrisvar til sex sinnum meira. Þetta hefur valdið því að nauðsynleg uppbygging heilsugæzlu- og hjúkrunarheimila aldraðra hefur ekki átt sér stað. Nú skortir um 350 sjúkrarúm fyrir aldraða til þess að þörfinni verði fullnægt og það hefur svo í för með sér að fjöldi fólks dvelur nú á heimilum úti i bæ, en þyrfti sólarhringshjúkrun. Reynt hefur verið eftir mætti að auka heimilisþjónustu við aldraða til að gera þeim kleift að dvelja á heimilum sinum, bæði með hjúkrun og ýmis konar annarri aðstoð. Á síðasta ári voru farnar yfir 21.000 vitjanir í heimahjúkrun, hafði þeim þá fjölgað verulega frá árinu áður. Þrátt fyrir þessa góðu viðleitni eykst stöðugt vandi aldraða fólksins, vegna þess að langlegu- og hjúkrunardeildir vantar til að taka á móti því, þegar það getur ekki verið heima lengur. Nokkuð hefur verið reynt að gera til að leysa vandann og nú er í byggingu B-álma Borgarspítalans, en hún verður ekki komin í gagnið fyrr en eftir um það bil 3 ár og er það of seint að mati flestra viðmælenda blaðsins. Telja þeir að tafarlaus lausn verði að koma til og þegar í stað verði að koma upp húsnæði fyrir langlegu- og hjúkrunardeildir aldraðra. En auk þess sé það nauðsynlegt að skipuleggja öldrunarþjónustuna mun betur en verið hefur, því gott skipulag hennar minnki þörfina á langlegudeildum. í tilefni þessa hafði blaðið samband við ýmsa þá sem að þessum málum vinna og bað þá að skýra ástandið, hvað hefði valdið þessu og hvað væri helst til lausnar. Viðtölin munu birtast hér í hlaðinu næstu daga og er það von biaðsins að þau verði til þess að vekja fólk til umhugsunar um ástandið og að lausn á þessum málum verði fundin hið skjótasta. - HG. Skúli G. Johnsen, borgarlæknir: Fjöldi hjúkrunarplássa fyrir aldraða fullnægir aðeins helmingi þarfarinnar „Það er æði margt, sem þarf að taka inn í dæmið, þegar rætt er um stöðu aldraðra og aðbúnað þeirra hér í Reykjavík", sagði Skúli G. Johnsen, borgarlæknir, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann og innti eftir áliti hans á þeim málum. Hingað renna aðeins 39% f járveitinga til byggingar sjúkrastofn- ana, en þyrftu að vera 55-60%________________________ Eitt af því fyrsta, sem athuga þarf, er hverjar fjárveitingar ríkisins til heilbrigðisþjónustunn- ar í Reykjavík hafa verið miðað við önnur héruð eða landshluta. Fjárveitingar reiknaðar á íbúa á árunum 1971—1974 og 1975—1978 eru mjög mismunandi eftir héruð- um. A fyrra tímabilinu eru fjár- veitingar á íbúa í Reykjaneshér- aði, reiknaðar á verðlagi ársins 1978, 2.730 kr. á íbúa, í Reykjavík- urhéraði 8.540, en á íbúa í Vestur- landshéraði 38.738 og í Austur- landshéraði 38.761 kr. Á síðara tímabilinu eru fjár- veitingar á íbúa miðað við verðlag ársins 1978, í Reykjaneshéraði 7.824 kr og í Reykjavíkurhéraði 10.482 kr., en fjárveitingar til annarra héraða nema frá þre- faldri til sexfaldrar þessarar upp- hæðar. Þessar athuganir sýna, að fjár- veitingar ríkissjóðs til stofnkostn- aðar heiibrigðisstofnana hafa ver- ið afar mismunandi eftir héruðum og langminnstar til Reykjavíkur og Reykjaness. Þetta hefur valdið því, að þróun og uppbygging heiibrigðisþjónustunnar í Reykja- vík hefur staðnað á ýmsum mik- ilvægum sviðum, svo sem í heilsu- gæslu og hjúkrun aldraðra og er nú ekki lengur hægt að sjá fyrir nauðsynlegum þörfum íbúanna, sem þeim ber að tryggja skv. almannatryggingalögum og lögum um heilbrigðisþjónustu. Við skiptingu fjármagns á hér- uð ættu höfuðviðmiðunarþættir að vera þessir: íbúafjöldi, aldursskipting íbú- anna, byggðaeinkenni, stærð og mannfjöldi á upptökusvæði stofn- ana, staðsetning læknaskóla og annarra heilbrigðisstétta. Vegna íbúafjöldans hér, stærðar upptökusvæðis og hlutverks svæð- issjúkrahússins í Reykjavík fyrir alla landsmenn og af fleiri ástæð- um, er hvorki nægjanlegt né réttmætt, að hingað renni aðeins tæplega 39% heildarfjárveitinga til byggingar heilbrigðisstofnana. Það er ekki síður áberandi, að einungis 4,2% af fjárveitingum til heilsugæslustöðva á árabilinu 1974—1980 hafa runnið til Reykja- víkur. Með tilliti til þeirra viðmið- unarþátta, sem ég nefndi áðan, ætti hlutur Reykjavíkur af fjár- veitingunum til þessara mála að vera 55—60%. Það er ekkert efamál, að byggð- astefnan hefur ráðið miklu um fjárveitingar á sviði heilbrigðis- mála og má merkja að misvægi fjárveitinga samsvarar nokkuð vel misvægi atkvæða eftir kjördæm- um. Hér hefur íbúum 80 ára og eldri fjölgaö um 50% síðan 1973, en á sama tíma hefur íbúatalan í Reykjavík staðið í stað____________________________ Það er ekki að undra þótt fólk á landsbyggðinni hafi trúað þing- mönnum og ýmsum öðrum, sem hafa klifað á kostum þess að búa í Reykjavík. Margir hafa treyst á að þar væri mestu þjónustuna að fá og ótalmargir hafa talið best að tryggja sig í ellinni með því að flytjast hingað. Allt of margir hafa uppgötvað um seinan að þeir hefðu átt kost á betri þjónustu í heimahéraði. Þetta ásamt fleiru hefur haft í för með sér óeðlilega fjölgun aldraðra í Reykjavík á meðan langleguplássum hefur jafnvel fækkað og því ríkir nú hreint neyðarástand á þessu sviði. Til dæmis hefur íbúum 80 ára og eldri fjölgað um 50% síðan 1972 og lífeyrisþegum um 20% og hlutfall þessara hópa af heildar- ibúafjöldanum í Reykjavík hefur vaxið verulega. Á sama tíma hefur hlutfall ellilífeyrisþega utan Reykjavíkur farið lækkandi. Ástandið er nú orðið þannig, að hér á sjúkrahúsunum í Reykjavík höfum við orðið að rýma fyrir sjúklingum, sem koma af öllu landinu, með því að útskrifa reykvísk gamalmenni löngu áður en forsvaranlegt er. Hinn mikli fjöldi ellilífeyris- þega, sem býr hér í Reykjavík umfram landsmeðaltal, leggur mjög þungar byrðar á borgarsjóð, vegna ýmiss konar félagslegrar þjónustu, sem þeim er nauðsynleg. Má þar nefna heimilisþjónustu og byggingu og rekstur dvalarstofn- ana fyrir aldraða. Reykjavík situr hins vegar ekki við sama borð og flestir aðrir landshlutar hvað snertir fjárveitingar til sjúkra- stofnana, þ.á m. hjúkrunarheimila og langlegudeilda. Nú skuldar ríkissjóður borginni yfir 1 millj- arð króna vegna framkvæmda í sjúkrahússmálum og er það vænt- anlega öllum Ijóst, að borgarsjóð- ur getur ekki bæði tekið á sig meirihluta byggingarkostnaðar stofnana sem ríkinu ber að greiða 85% af og auk þess staðið undir nauðsynlegri félagslegri þjónustu fyrir ört vaxandi hóp aldraðra. Hvað áttu við með því að Reykjavík sitji ekki við sama borð og önnur sveitarfélög? Með haganlegri og að mínu viti óleyfilegri túlkun um framkvæmd laga um skipan opinberra fram- kvæmda, hefur fjárveitingavaldið með góðum stuðningi embætt- ismanna ríkisins stýrt fjármagni til heilbrigðisstofnana út á landi og knúið borgina til að greiða mikla fjármuni umfram það sem henni ber, á þeim grundvelli, að borgin vildi meiri framkvæmda- hraða en ríkinu hentaði. Fram- kvæmdir þær, sem hér um ræðir, eru t.d. Grensásdeild, Arnarholt, Hafnarbúðir og þjónustuálma og B-álma Borgarspítalans. Frumstæð vinnu- brögð í skipulagningu og áætlanagerð____________ Við höfum sem sagt ekki fengið að byggja upp þjónustu við aldr- aða miðað við þörfina. Áætlanir um þörf fyrir mismunandi stofn- anir hafa annað hvort ekki verið gerðar eða ekkert mark hefur verið tekið á þeim. Þeir, sem hafa haft frumkvæði að uppbyggingu sjúkrastofnana, hafa e.t.v. fremur sinnt þrengri áhugamálum stofn- ana sinna, heldur en brýnustu þörfum samfélagsins. Við erum enn byrjendur í skipu- lagningu og áætlanagerð á sviði heilbrigðisþjónustu og nútíma- vinnubrögð á þessu sviði hafa lítið verið notuð. Þær þróunaráætlanir, sem gerðar hafa verið fyrir stofn- anirnar hér í Reykjavík, taka ekkert mið hver af annarri. Allir vilja gera heil ósköp, en enginn einn aðili hefur haft bolmagn til að samræma óskir og raða verk- efnum. Úr þessu má þó bæta, ef nýr aðili, heilbrigðismálaráð Reykjavíkurhéraðs, fær aðstöðu til að vinna að stjórn þessara mála eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir. Tölur um hjúkrunar- rými fyrir aldraöa hafa verið viliandi_________ Þær upplýsingar, sem hafa legið fyrir um pláss á elli- og hjúkrun- arheimilum aldraðra hafa verið villandi. Það stafar fyrst og fremst af því, að ekki hefur verið tekið tillit til þess, að mestur fjöldi hjúkrunarplássa hefur verið á elli- og dvalarheimilum, sem aldrei var ætlað hlutverk lang- legustofnana. Öldrunarlækninga- deildir og vel útbúnar hjúkrunar- deildir hafa ekki fengið pláss innandyra á sjúkrahúsum hér, ef frá er talin B-álma Borgarspítal- ans, en skv. ávkörðun borgarsjóðs 1973 skulu þar vera hjúkrunar- og langlegudeildir. Þá hefur verið litið fram hjá hlut hinna almennu sjúkradeilda í langlegu og hjúkrun aldraðra og að hann hefur farið mjög minnkandi á undanförnum árum. Ég býst við að nauðsynlegt sé að viðurkenna hlutverk allra almennra sjúkradeilda að þessu leyti og auka hlut þeirra að nýju á þessu sviði, a.m.k. meðan ástandið er svo slæmt, sem raun ber vitni. 300 til 350 hjúkrun- arpláss á langlegu- deildum skortir nú___________ Biðtími rúmliggjandi sjúklinga í heimahúsum, sem þarfnast lang- tímavistunar, er eitt til tvö ár, eða jafnvel enn lengri. Fjöldi hjúkrun- arplássa fullnægir nú aðeins helmingi þarfarinnar og skortir 300 til 350 pláss á slíkum deildum, ef miðað er við að þátttaka almennra sjúkradeilda í hjúkrun og langlegu leggist niður og þær annist eingöngu það hlutverk, sem flestir ætla þeim. Mér reiknast til, að á þeim deildum séu nú 100 til 150 aldraðir langlegusjúklingar. Þessa tölu þarf þó að sannreyna með sjúklingatalningu á öllum spítölunum í Reykjavík. Ef hlut- verk almennu sjúkradeildanna á sviði hjúkrunar og langlegu er viðurkennt, myndu tölurnar líta betur út, þ.e. skorturinn næmi 200 til 250 plássum, en þó er þess að gæta, að forráðamenn Grundar og Hrafnistu hyggjast alls ekki breyta stofnunum sínum í sjúkra- stofnanir frekar en orðið er og þeir munu fækka rúmum til að skapa aðstöðu fyrir fleira starfs- fólk og betri þjónustu. Það sem einnig þarf að taka með í myndina er, að enn frekari fjölgun aldraðra næstu árin mun auka þörfina. Gott skipulag öldrun- arþjónustu minnkar þörfina á stofnunum____________ Hvernig má leysa vandann? Það þarf að finna lausnir, sem komið geti til nota sem allra fyrst. Nauðsynlegt er að ríkið veiti meira fé til byggingar hjúkrunar- heimila hér í Reykjavík, sem koma til viðbótar B-álmunni. Einnig kemur til greina að setja á fót gistiheimili í tengslum við öldrun- ar- og langlegudeildir og væri sú lausn e.t.v. fljótvirkust. Það er einnig nauðsynlegt að skipuleggja öldrunarþjónustu mun betur en verið hefur. Gott skipulag hennar tryggir besta þjónustu, auk þess sem það gerir kleift að nýta vel það pláss, sem við höfum og að halda plássþörf- inni í lágmarki. Með öðrum orð- um: Gott skipulag öldrunarþjón- ustu minnkar þörfina fyrir upp- byggingu stofnana. Það þarf að tengja saman þau úrræði, sem við höfum, allt frá sjúkrahúsum til heimahjálpar. Þetta eru mörg mismunandi þjón- ustustig. Það fyrsta er sjúkra- ÖMURLEGT ÁSTAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.