Morgunblaðið - 04.11.1980, Page 29

Morgunblaðið - 04.11.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1980 29 Kjördagur í Bandarikjunum: Reagan virðist sigur- stranglegri en Carter á þó von Washiniíton. 3. nóvembor 1980. BANDARÍKJAMENN kjósa íor- sota til næstu fjoKurra ára í dan. Lan«ri kosninKabaráttu. sem hófst mró þátttöku tiu repúblik- ana ok tveKKja demókrata. er iokift. I nótt fæst skorift úr því, hvor verður na-sti forseti Banda- ríkjanna. Jimmy Carter, fram- bjóftandi demókrata ok núver- andi forseti, efta Ronald ReaKan, frambjóftandi repúhlikana ok fyrrverandi rikisstjóri Kali- forníu. Mikil óánæKja ríkir meft frambjóftendurna ok færri kunna aft Kreifta atkva'fti en nokkru sinni fyrr. ReaKan virðist eÍKa betri sÍKurmöKuleika en Carter af skoftanakönnunum aft da-ma. en baráttan milli þeirra er hörð. — Ilynes Johnson. sem er einn reyndasti fréttaskýrandi Wash- inKton Post, skrifaði á sunnudaK, að yfirleitt heffti hann verið sannfærður um hver yrði sÍKur- veKari kosnin«a. þeKar svo nærri þeim var komift, „en svo er ekki i ár, aldrei fyrr hefur það reynzt jafnmikið kvalræfti fyrir banda- rísku þjóftina að ákvefta hvern skuli kjósa.“ Mikil óánægja þótti ríkja meðal kjósenda árið 1972, þegar kosið var milli Richard Nixons og George MacGoverns, skoðana- kannanir George Gallups sýndu þá, að aðeins 62% þjóðarinnar voru verulega ánægð með annan hvorn frambjóðandann. Niður- stöður Gallups benda til í ár, að aðeins 52% þjóðarinnar séu veru: lega hrifin af Reagan eða Carter. í kosningunum 1956 voru 92% þjóð- arinnar ánægð með Dwight Eisen- hower forseta eða Adlai Stevenson mótframbjóðanda hans. Síðan 1972 hafa margir kjósend- ur sagzt velja skárri manninn af tveimur slæmur frambjóðendum. Það hefur kveðið oftar við í ár en Jimmy Carter, demókrati. áður. Margir kenna aðferð flokk- anna við val frambjóðenda um. Hún er afar tímafrek og talin fæla fjölda stjórnmálamanna frá for- setaframboði. Óttazt er, að minni hluti þjóðarinnar kjósi í ár en nokkru sinni, vegna óánægju kjós- enda með Carter og Reagan. 54% kjósenda fóru á kjörstað 1976, en færri hafa skráð sig á kjörskrá í ár heldur en þá. Talið er, að Reagan muni helzt hagnast á lítilli þátttöku kjósenda. Fleiri eru í forsetaframboði en Carter og Reagan. Mest hefur borið á John Anderson, sem býður sig fram sjálfstætt, en hann tók í byrjun þátt í forkosningabaráttu repúblikana. Hann naut um 18% fylgis meðal kjósenda fyrir nokkr- um vikum, en hefur tapað miklu fylgi eftir því sem nær hefur dregið kosningum. Mikill fjöldi demókrata og repúblikana er hrif- inn af stefnu Andersons, en vill ekki kjósa hann, því sigurmögu- Ronald Reagan, repúblikani. leikar hans eru taldir sáralitlir. Ed Clarke býður sig fram fyrir hönd Frjálsræðisflokksins og Barry Commoner fyrir Borgara- flokkinn. Báðir boða stefnu sína í auglýsingum í fjölmiðlum, en ekki er talið, að þeir muni hafa áhrif á úrslit kosninganna. Auk þeirra eru um 15 manns í framboði til forseta. Kosningarnar í Bandaríkjunum eru eins og 51 sjálfstæð kosning. Það, sem ræður úrslitum, er fjöldi kjörmanna á kjörfundi, sem end- anlega kýs forseta landsins. Sigur- vegari hvers ríkis hlýtur alla kjörmenn ríkisins, en fjöldi þeirra ræðst af fólksfjölda í ríkinu. Alls sitja 538 manns kjörfund. Það er því mikilvægt fyrir frambjóðend- urna að vinna sigur í stærstu ríkjunum. Nýjustu skoðanakann- anir Gallups sýna, að Carter hefur 44% fylgi meðal kjósenda en Reagan 41%. Skoðanakannanir John Anderson, óháftur. Washington Post sýna hins vegar, að Reagan hefur meiri hluta í 22 ríkjum og 207 kjörmenn, en Carter í 15 ríkjum og District of Col- umbia og 163 kjörmenn. 270 kjör- manna er þörf til að vinna kosn- ingarnar. Baráttan er of hörð milli frambjóðendanna í 13 ríkjum til að segja hvor hefur yfirhönd- ina, og því liggja 168 kjörmenn milli hluta. Carter hlaut 297 kjörmenn í kosningunum 1976, > en Gerald Ford 240. Carter vann þá öll Suðurríkin auðveldlega, en Reag- an á nú góða möguleika í Texas og Florida. Stóru iðnaðarríkin, eins og Pennsylvania, Ohio, Michigan og Illinois, eru mjög mikilvæg í þessum kosningum. Ef Carter tapar einnig í þeim, á hann litla von um að vinna kosningarnar. Síðustu daga kosningabaráttunn- ar voru flestir sammála um, að Carter þyrfti að vinna á til að sigra, þótt fáir hafi verið alveg sannfærðir um öruggan sigur Reagans. Það er mál manna, að Reagan hafi komið betur út úr kappræð- um frambjóðendanna síðast liðinn þriðjudag. Hann sýndi, að hann er jafnoki forsetans og virtist ekki hafa eins hættulegar skoðanir og Carter hefur látið í veðri vaka. Reagan hefur alið á óánægju kjósenda með efnahagsstefnu Carters í kosningabaráttunni. Hann hefur hlotið stuðning fjölda demókrata, sem telja hann færan um að rétta við efnahag í landinu og stöðva þróun ýmissa mála, eins og fjölskyldu- og skólamála, í frjálsræðisátt. Carter nýtur stuðnings flestra verkalýðsfélaga. Þau hafa oft reynzt sínum mönnum vel með vel skipulagðri starfsemi á kjördag. í þetta sinn mun Carter þurfa á allri þeirra hjálp að halda. Mikil eftirvænting hefur ríkt síðustu daga um örlög gíslanna í Teheran. Carter hefur margendurtekið, síð- ast nú á sunnudag, að hann vilji ekki nota samninga um frelsun gíslanna í kosningaskyni. Margir líta það þó hornauga, til hversu mikilla tíðinda hefur dregið, svo nærri kosningum og heilu ári eftir handtöku gislanna. Stórblöðin Washington Post og New York Times, hafa bæði lýst yfir stuðningi sínum við Carter. Mun fleiri dagblöð hafa þó lýst yfir stuðningi við Reagan. En óánægja kjósenda kemur vel fram í fjölmiðlum, sem og í samtölum við fólk. New York Times notaði tækifærið, þegar það lýsti yfir stuðningi sínum við Carter til að minna á söguna af manninum, sem var eltur uppi og króaður af í lokuðu sundi. Vopnaðir óþokkar miðuðu á hann byssu og sögðu: „Reagan eða Carter?“ og mannin- um féll allur ketill í eld og hrópaði: „Skjótið, skjótið." Repúblikönum spáð fylgis- aukningu í þingkosningum KOSIÐ verður í dag um alla þingmenn Fulltrúadeildar bandaríska þingsins, 435 að tölu, og þriðjung öldungadeildarþing- manna, sem eru alls 100. Ríkis- stjórar 13 ríkja verða einnig kjörnir. Repúblikönum er spáð góðum kosningum. Þeir hafa aðeins átt meiri hluta í þinginu í fjögur ár (á tíma Eisenhowers), síðan 1932, en þeir vonast til að vinna meiri hluta í kosningunum 1982, ef ekki í ár. Demókratar eiga nú 276 sæti í fulltrúadeildinni, en repúblikan- ar 159. Skoðanakannanir benda til að repúblikanar muni bæta við sig 15—25 sætum í deildinni og komist því hvergi nærri meirihluta þar að þessu sinni. Demókratar eiga 59 sæti í öld- ungadeildinni, en repúblikanar 41. Þar er repúblikönum spáð 2—3 viðbótarsætum. Kosningabaráttan hefur bent til þess, að þingmennirnir, sem snúa til Washington í janúar, verði íhaldssamari en oft áður, úr hvorum flokknum sem þeir - McGovern og Church standa tæpt George McGovern koma. Fjórir þekktir frjálslyndir öldungadeildarþingmenn demó- krata eiga í mjög harðri baráttu í heimarikjum sínum, og skoðan- ir þeirra á ýmsum málum hafa Frank Church mildazt mjög í kosningabarátt- unni. Þeir eru George McGovern, sem var forsetaframbjóðandi demókrata 1972, Frank Church, formaður utanríkismálanefndar Birch Bay öldungadeildarinnar, Birch Bay, sem bauð sig fram til forseta í forkosningunum 1976, og Gary Hart, sem þykir líklegur til forsetaframboðs í framtíðinni. Repúblikanar hófu kosninga- baráttuna betur undir hana bún- ir en demókratar. Sjóðir þeirra voru gildari og óánægja almenn- ings með stjórn Jimmy Carters kom þeim vel. Margir nefndar- formenn demókrata í fulltrúa- deildinni er í hættu í kosningun- um eða eru að hætta af fúsum vilja. Það mun væntanlega hjálpa repúblikönum til að búa sig undir að vinna meiri hluta í deildinni við næstu kosningar. Forseti Bandaríkjanna getur lítið gert án stuðnings þingsins. Ef Reagan vinnur forsetakosn- ingarnar getur meiri hluti demó- krata í þinginu reynzt honum fjötur um fót. En Carter hefur ekki þótt vinna nógu vel með flokksbræðrum sínum í þinginu undanfarin fjögur ár, þótt hann hafi tekið sig á síðari hluta kjörtímabilsins. Lítil þátttaka kjósenda í kosningum í Banda- ríkjunum þykir benda til þess að fólk telji það skipta litlu máli hverjir stjórni landinu, hvort heldur er úr Hvíta húsinu eða þingsöium.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.