Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
255. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stefnir
í stórtap
British
Airways
London. 14. nóvembpr. — AP.
BRITISII Airways', citt stærsta
fluRfélaK hcims. tilkynnti í dag,
að tveggja milljóna sterlings-
punda tap, cn þaó jafngildir um
2,8 milljöróum króna, hcfði orðið
á rckstri fclagsins mánuðina
apríl til scptcmbcr. Á sama sex
mánaða tímahili í fyrra varð 71
milljóna punda rekstrarhagnað-
ur, en hagnaðurinn það ár þó
aðeins 20 milljónir punda.
Formælandi BA sagði í dag, að
útlitið væri mjög dökkt það sem
eftir væri ársins og stefndi í
stórtap. Félagið hefur ekki verið
með neikvæðan rekstrarafgang
fyrri árshelming frá því að það
var stofnað við samruna B.O.A.C.
og BEA. árið 1974. Á því tímabili
sem um ræðir er hvað mest um að
vera hjá flugfélögunum, og spáði
formælandi BA því að verulegt
tap yrði á rekstri félagsins í ár,
þrátt fyrir að gætt hefði verið
aðhalds í rekstri með því að selja
eldri vélar félagsins, með því að
takmarka kaup á nýjum vélum og
fækka ferðum, en þ.á m. var flug
hljóðfráu þotunnar Concorde til
Singapore lagt niður. Á tímabilinu
apríl til september fækkaði far-
þegum félagsins um tíu af hundr-
aði miðað við sama tímabil í fyrra,
og sögðu talsmenn British Air-
ways, að hin styrka staða
sterlingspundsins hefði átt sinn
þátt í því að fæla ferðamenn frá
Bretlandi.
British Airways hefur skýrt
starfsfólki frá því að búast ekki
við launahækkunum þar til í júlí á
næsta ári. Vegna fregna af slæmri
afkomu félagsins hefur stjórn
Margrétar Thatcher frestað áætl-
unum um sölu hlutabréfa í fyrir-
tækinu, sem er ríkisrekið.
Pol Pot
í Peking
BanKkok. 14. nóvomber. — AP.
IIÁTTSETTUR maður í thai-
lenzka hernum staðfesti i dag
þann orðróm að Pol Pot fyrrum
forsætisráðherra i Kamhódíu
væri nú staddur í Peking.
Ilermdi maðurinn, sem ekki
vildi verða nafngreindur. að Pol
Pot hefði yfirgefið felustað sinn
í frumskógum vesturhluta Kam-
bódíu fyrir um viku. en óljóst
væri hversu lengi hann yrði í
Kína.
Hins vegar sagðist fulltrúi í
sendiráði Kambódíu í Peking ekki
hafa neina vitneskju um ferðir Pol
Pots, né hvort hann væri staddur í
Peking. Kínverska utanríkisráðu-
neytið vildi ekkert um þessar
fregnir segja í dag. Fyrir skömmu
var Prem Tinsulanonda, forsætis-
ráðherra Thailands, í Peking til
viðræðna um málefni sveita
Rauðu khmeranna, en þar bar
helzt á góma að breyta þyrfti í
æðstu röðum khmeranna, þannig
að leiðtogarnir yrðu „móttæki-
legri".
ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra flytur ræðu á Öryggismálaráðstefnunni í Madríd í gær.
Símamynd — AP. _
Öryggismálaráðstefnu
borgið á síðustu stundu
Madríd. 14. nóvember. — AP.
BANDARÍKJAMENN og Sovét-
menn féllust í dag á málamiðlun
um fyrirkomulag funda á Örygg-
ismálaráðstefnu Evrópu og komu
þar með í veg fyrir að ráðstefnan
fa'ri út um þúfur. eins og lengi
hafði verið óttast.
Samkvæmt málamiðlunartillög-
unni verður góðum tíma, eða um
sex vikum, varið í umræður um
hvernig ríki, er aðild áttu að
Helsinki-sáttmálanum, hafi efnt
fyrirheit um úrbætur í mannrétt-
indamálum, og gott tóm gefst til að
fjalla um innrás Rússa í Afganist-
an, en einnig tryggir málamiðl-
Yfirbugaður eftir
átta klukkustundir
Briissel. 14. nóvember. — AP.
ÞRÍR vopnaðir menn hótuðu
í dag að sprengja skólabifreið
með 16 nemendum og kenn-
ara þeirra í loft upp ef ekki
yrði orðið við kröfum þeirra
um að fá tíma til umráða í
útvarpi og sjónvarpi til að
láta i ljós andúð sína á
félagslegum kjörum belgísks
almennings.
Mennirnir héldu nemendunum
og kennaranum í gíslingu í átta
klukkustundir. og er þeir voru á
leið í upptökusal í útvarpshúsi í
Brússel voru þeir yfirbugaðir.
Engin meiðsl hlutust af er óein-
kennisklæddir lögreglumenn yfir-
buguðu mannræningjana.
Þremenningarnir létu til skarar
skríða í smábænum Vielsalm, sem
er í 130 kílómetra fjarlægð frá
Brússel, klukkan 8.30 að morgni
og létu bílstjórann aka til Brússel.
Samningaþref stóð yfir í átta
klukkustundir rúmar þar sem
bifreiðin stóð á stæði útvarps-
stöðvarinnar, og á meðan skipu-
lagði lögregla aðgerðir sínar, sem
heppnuðust, eins og fyrr segir.
unartillagan að Rússar geti komið
að hugmyndum sínum og tiliögum
um sérstaka ráðstefnu um afvopn-
unarmál að lokinni Öryggis-
málaráðstefnunni.
Mikill fögnuður braust út í ráð-
stefnusal er tilkynnt var aði
samkomulag hefði náðst um mála-
miðlunartillöguna, sem fulltrúar
Svíþjóðar, Kýpur, Austurríkis,
Júgóslavíu, Liechtenstein, Möltu og
San Marínó lögðu fram. Þráttað
hafði verið um dagskrá fundanna í
tíu vikur án árangurs. Vonast er til
að lokasamþykkt verði undirrituð 5.
Formælandi bandarísku sendi-
nefndarinnar á ráðstefnunni sagði,
að ekki kæmi til greina að sam-
þykkja kröfur Rússa um sérstaka
afvopnunarráðstefnu meðan rúss-
neskir hermenn væru í Afganistan.
í ræðu á ráðstefnunni í dag, sagði
Leonid Ilyichev aðstoðarutanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, að atburð-
ifnir í Afganistan væru bein afleið-
ing utanaðkomandi afskiptasemi,
en talið er að hann hafi átt við að
frelsissveitir Afgana nytu stuðn-
ings erlendra ríkja.
Einna harkalegust var ræða
júgóslavneska utanríkisráðherrans,
Josip Vrhovec, á ráðstefnunni í dag,
þar sem hann sagði að þjóðir heims
skyldu fordæma innrásir, valdbeit-
ingu eða utanaðkomandi afskipta-
semi því venjulegast væri vegið að
undirstöðum jafnvægis í alþjóða-
málum og heimsfriði stefnt í hættu.
Ljóst þykir að Vrhovec beindi
spjótum sínum að Rússum og inn-
rásinni í Afganistan.
Reagan ræður sér
starfsmannastjóra
New Y«rk. 14. nóvember. — AP
RONALD Reagan hefur ákveðið
að gera James A. Baker að
starfsmannastjóra sinum í Ilvíta
húsinu. að því er New York Times
skýrir frá i dag. Blaðið hefur
einnig eftir áreiðanlegum heim-
ildum. að Edwin Meese hljóti jafn
mikilvæga stoðu.
Meese mun stjórna undirbúningi
embættistöku Reagans og þótti
hann líklegur til að verða útnefnd-
ur starfsmannastjóri Hvíta húss-
ins þar sem hann var
starfsmannastjóri Reagans er for-
setinn nýkjörni var fylkisstjóri í
Kaliforníu. Baker er 51 árs lög-
fræðingur frá Houston í Texas.
Hann vann fyrir Gerald Ford í
forkosningunum 1976 og fyrir
George Bush er til skamms tíma
keppti við Reagan um útnefningu
repúblikana við forsetakosn-
ingarnar. Bush verður varaforseti í
stjórn Reagans.
Yilja héraðsstjóra á brott
úr embætti i Póllandi
Varsjá, 14. núvember. — AP.
AUKINN þrýstingur var í dag
settur á pólsk yfirvöld og þau hvött
til að víkja Miroslaw Wierzbicki
héraðsstjóra í Czestochowa-héraði
úr emhætti. Wierzbicki féll í ónáð
verkamanna er hann hótaði í viku
byrjun að koma í veg fyrir íyrir-
huguð verkföll með því að heita
hervaldi.
Talsmaður Samstöðu sagði að
fulltrúar starfsfólks í 200
verksmiðjum og stofnunum í Czest-
ochowa-héraði hefðu krafizt þess af
ríkisstjórninni að Wierzbicki yrði
vikið úr embætti. Gengu fulltrúarn-
ir á fund Jozefs Grygiel leiðtoga
kommúnistaflokksins í Czestochowa
í dag og gerðu honum grein fyrir
sjónarmiðum sínum. „Verkamenn á
svæðinu öllu vilja ekki eiga sam-
starf við Wierzbicki, allir eru orðnir
hundleiðir á embættishroka hans,“
sagði einn af formælendum Sam-
stöðu.
Talsmenn Samstöðu sögðu í dag,
að embættismenn úti í héruðunum
virtu oft að vettugi fyrirheit stjórn-
arinnar í Varsjá og gerðu allt hvað
þeir gætu til að trufla störf óháðu
verkalýðsfélaganna. Þannig hefðu
verksmiðjustjórar látið fjarlægja
tilkynningarspjöld Samstöðu í verk-
smiðjum í Ciestochowa og jafn-
framt krafizt þess af verkamönnum
að þeir staðfestu eiða um drottin-
hollustu við yfirmenn sína. Bann við
allri starfsemi óháðra verkalýðsfé-
laga var t.d. enn í gildi í Czestoch-
owa héraði í dag, og tilraunir til að
koma á samningaviðræðum Wierz-
bicki og verkalýðsleiðtoga reyndust
árangurslausar.
Embættismenn í Varsjá vöruðu
við því í dag, að staðbundnar deilur
kynnu að torvelda tilraunir stjórn-
valda til að ná afturbata í efna-
hagsmálum, en frá því var m.a.
skýrt í dag, að 10,5 milljónir smá-
lesta mundi vanta til að kolafram-
leiðsluáætlunum yrði fullnægt, eða
um fjórðung þess magns sem flutt
var út á síðasta ári, en kol eru helzta
gjaldeyristekjulind Pólverja. Þá
hefur útflutningur á matvælum
verið stöðvaður til að mæta kjöt- og
öðrum matvælaskorti heimafyrir.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu
átti í dag viðræður við Stanyslaw
Kania leiðtoga Kommúnistaflokks
Póllands, en það er í fyrsta skipti að
þeir ræðast við, skv. fregnum AP.
Ekkert var látið upp um efni
fundarins annað en að þeir hefðu
rætt um félags- og efnahagslegt
ástand í Póllandi.