Morgunblaðið - 15.11.1980, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
flfanfgtntlilafrift
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Tollkrít til lækk-
unar vöruverðs
Matthías Á. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, skip-
aði-nefnd sérhæfðra aðila árið 1977 til að endurskoða lög
og reglur um tollheimtu og tolleftirlit. Ein meginniðurstaða
nefndarinnar var samroima tillaga um að taka upp greiðslufrest
í aðflutningsgjöldum vöru, svokallaða tollkrít.
Það kom fram í nefndaráliti að beinn sparnaður fyrir
þjóðarbúið, ef tollkrít kæmist á, yrði um þrír milljarðar króna á
núverandi verðlagi. Hér er því mikið hagsmunamál fyrir alla
landsmenn að ræða, sem stuðla myndi að sparnaði, hagræði og
lægra vöruverði; neytendum, flutningsaðilum og hinu opinbera
til góða.
Kostnaður við meðferð vara er veigamikill verðmyndunar-
þáttur. Hann samanstendur af uppskipun, geymslu vara,
millifærslu milli geymslna, en einnig af ýmsum kerfisþáttum,
s.s. skjalakerfi, útfyllingu umsókna, ferða í tollskrifstofur og
banka o.s.frv. Við athugun á þessum verðmyndunarþáttum
öllum, upplýsingum frá opinberum aðilum og sérfræðilega
rannsókn Rekstrarstofunnar virtist nefndarmönnum ljóst, að
tollkrít gæti haft áhrif til lækkunar á alla þessa kostnaðarþætti.
Nefndarmenn leggja til að tímamörk tollkrítar verði 60 dagar.
Álitið er að tollkrít verði til þess að innflytjendur nái hraðari
veltu í sölu varnings og verði því betur í stakk búnir til að mæta
þeim skuldbindingum, sem þeir hafa tekið á sig, þegar
gjaldfrestur er útrunninn.
Hafnir og hafnarmannvirki eru kostnaðarsamir samfélags-
þættir. Miklu skiptir að hafnarmannvirki, sem fyrir eru, skili
fyllstu afköstum áður en ráðist er í byggingu nýrra. Engin vafi
er á því að tollkrít eykur á afköst vöruhafna og er því einnig að
því leyti til þjóðhagslega æskileg.
Hitt skiptir þó mestu máli, að tollkrít eykur á hagkvæmni í
innflutningsverzlun og stuðlar aö lægra vöruverði á almennum
neytendamarkaði. Það er fagnaðarefni, að fimm þingmenn úr
stjórnarandstöðuflokkum hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um tollkrít. Málið er í eðli sínu ekki pólitískt, heldur
hagræðing í verzlunarsamskiptum, sem kemur heildinni til
góða. Þessvegna ætti að mega vænta þess að það fái óskabyr á
Alþingi. Því verður a.m.k. ekki trúað að óreyndu, að
Alþýðubandalagið stjórni atkvæðum allra stjórnaraðila, þegar
þetta hagræðingarmál kemur til afgreiðslu í þinginu.
Jöfnun atkvæðaréttar
í stéttarfélögum
Sex þingmenn Sjálfstæðisflokks undir forystu Péturs
Sigurðssonar, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga
um hlutfallskosningar í stéttarfélögum, með 300 félagsmönnum
eða fleiri, til stjórnar og trúnaðarstarfa og við kosningu fulltrúa
til landssambandsþinga, ef 1/5 hluti félagsmanna krefst þess.
Við kjör stjórna á landssambandsþingum og á þingum
heildarsamtaka skal og viðhafa hlutfallskosningu.
Sú lýðræðiskrafa hefur lengi verið uppi að hlutfallskosningar
verði teknar upp í stéttarfélögum, enda eru þær ein meginstoð
lýðræðis og jafns atkvæðaréttar meðlimanna. Þannig eru
hlutfallskosningar viðhafðar við kjör fulltrúa til sveitarstjórna
og Alþingis og einnig t.d. við kosningar til Búnaðarþings.
Frumvarpið er flutt sem breyting á lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur. Þó Alþingi geti að sjálfsögðu breytt þeim lögum, á
sama hátt og Álþingi setti þau á sínum tíma, telja
flutningsmenn, að frumvarpið beri að senda til umsagnar
fagfélaga, er efni þess snertir, þ.á m. þinga sérsambanda og
heildarsamtaka, eins og t.d. ASI-þings, sem framundan er.
Samhljóða frumvarp var flutt fyrir þremur árum. Fyrsti
flutningsmaður þess þá var núverandi forsætisráðherra og
meðal meðflutningsmanna voru núverandi dómsmálaráðherra
og núverandi landbúnaðarráðherra. I greinargerð með frum-
varpinu segir, að þó stuðningur þessarra ráðherra ráði ekki
úrslitum um stuðning núverandi ríkisstjórnar við frumvarpið,
þá sé þess samt að vænta, að stuðningur við aukin — og jöfn —
áhrif hinna aimennu félagsmanna í stéttarfélögum sé slíkur,
innan félagasamtakanna og á Alþingi, að skammt sé í höfn
þessa réttlætismáls.
Satúrnus — þessi mynd er tekin frá Voyager 1 þegar Keimfarið var í 18 milljón kilómetra fjar-
læjcð frá reikistjörnunni.
Titan „jarðleg“ pláneta
á tímum íimbulkulda?
Pasadena. Kaliíorníu. 11. nóv. — AP.
„SÍÐUSTU datíana höfum við
aflað meiri vitneskju um Sat-
úrnus en í allri söku mannkyns.
Ég man ekki eftir að hafa
upplifað neitt þessu líkt,“ sagði
Bradford Smith, yfirmaður
þeirrar deildar sem tekur við
myndum frá Voyager 1. Voyag-
er 1 heldur nú á brott frá
Satúrnusi út í hinar miklu
víðáttur vetrarhrautarinnar.
Nú hefur Voyager 1 farið tæp-
lega 1,6 milljarða kilómetra og
er þegar í meira en milljón
kílómetra fjarla'gð frá Satúrn-
usi. Það eru liðin rótt um 3 ár
síðan Voyager 1 lagði upp í hina
miklu ferð og ferð geimfarsins
hefur fyllllega uppfyllt þær von-
ir sem vísindamenn gerðu sér —
raunar gott betur.
Vísindamenn hafa nú skýrt frá
ýmsum uppgötvunum Voyager 1.
Þeirra á meðal, að mikill fimb-
ulkuldi ríkir nú á Titan —
stærsta tungli sólkerfisins. Hita-
stigið á Títan er +149 gráður á
celsíus og það sem vakið hefur
mesta athygli er, að metan í
andrúmslofti Títans nemur að-
eins 1% af lofthjúp tunglsins.
Voyager 1 held-
ur nú út í óra-
víddir vetrar-
brautarinnar
Áður héldu menn, að metan væri
helsta lofttegundin í lofthjúpi
Títans. Vísindamenn segja, að
athuganir á Títani bendi sterk-
lega til, að hin miklu rauðu ský á
Títan myndi andrúmsloft um-
hverfis tunglið og að helzta efnið
sé köfnunarefni. Þá er Títan eina
tunglið í sólkerfinu, sem vitað er
að hefur lofthjúp umhverfis sig.
Fyrstu niðurstöður benda til að
köfnunarefni í lofthjúþ Titans
nemi 98%. Köfnunarefni í loft-
hjúp jarðar nemur 78%. „Það
mætti ef til vill líta á Títan sem
„jarðlega" plánetu á tímum
fimbulkulda," sagði von Esch-
elman, einn þeirra vísinda-
manna, sem hafa unnið að því að
túlka niðurstöður upplýsinga frá
Voyager 1. Hann bætti við, að
fimbulkuldinn á Titan gæti ef til
vill gefið vísbendingar um hvern-
ig lofthjúpur jarðar hefur þróast
í gegnum aldirnar.
Þá segja vísindamenn að ferð
Voyager 1 hafi staðfest grun-
semdir um, að sjötti hringurinn
umhverfis Satúrnus sé staðreynd
og að jafnvel hinn sjöundi sé til
staðar. Samsetning þessara
hringja er mun flóknari og tor-
ráðnari en áður var talið.
Þegar Voyager 1 fjarlægðist
Satúrnus eftir 1,6 milljarða kíló-
metra ferð, þá fór geimfarið í
gegnum stjörnuþoku, sem talin
er vera í rétt um 500 þúsund
kílómetra fjarlægð frá reiki-
stjörnunni. Vísindamenn óttuð-
ust, að geimfarið kynni að rekast
þar á loftsteina en ferð geimfars-
ins í gegnum þokuna gekk áfalla-
laust fyrir sig og geimfarið varð
ekki fyrir neinum skemmdum.
Nú stefnir Voyager 1 út í óra-
víddir vetrarbrautarinnar og
innanborðs eru skilaboð frá
jörðu — hljóð hinna ýmsu dýra
jarðar, auk þjóðlaga og rokktón-
listar. Og einnig eru skilaboð frá
Jimmy Carter, forseta Banda-
ríkjanna, með „kveðjum frá ...
lítilli fjarlægri reikistjörnu".
Rússar breyta um
aðferð í Afganistan
Samcinuðu þjóAunum. 11. núv. — AP
AFGANSKUR flóttamaður sagði
I dag, að Rússar hefðu breytt um
aðfcrð I Afganistan og reyndu nú
að vinna fólk til fylgis við sig
með því að koma betur fram við
það. Aíganski flóttamaðurinn,
Ilahibullah Karzai, er einn fimm
Afgana. sem fara nú um og
hvetja til stuðnings við frelsis-
baráttu Aígana.
Karzai sagði, að þessi aðferð
Rússa væri þó dæmd til að
mistakast því að „sú fjölskylda er
ekki til í landinu, sem hefur ekki
misst náinn ættingja og fólk veit
af völdum hverra það er“. Mo-
hammed Paktiawal, sem flýði í
síðasta mánuði þegar hann var
fulltrúi Afgana á þingi Menning-
ar- og framfarastofnunar SÞ í
BelgraD, bætti því við, að fólk
ynni á stjórnarskrifstofunum á
daginn „en á nóttunni tekur það
sér vopn í hönd gegn innrásarlið-
inu“.
Amanullah Rasool, mikilsvirtur
afganskur hagfræðingur, sem nú
býr í Pakistan, vildi ekki gera
mikið úr óeiningu meðal afg-
anskra skæruliða. „Afgönsku
frelsissveitirnar eru ekki einn
Bcirút. 13. núv. — AP.
KUWAIT lýsti í dag ábyrgð á
hrndur íran fyrir loftárás á landa-
mærastöð í norðurhluta landsins
og Saudi-Arahía. mesta olíusölu-
ríki heims, hét því að koma
Kuwait tii aðstoðar „gegn hvers
konar hættu".
Þar með hefur aukizt hætta á
útbreiðslu striðsins við Persaflóa,
þar sem Bandaríkin og bandalags-
riki þeirra hafa dregið saman 60
herskip til að verja olíuflutninga
til Vesturlanda.
íranir og írakar skýrðu jafn-
framt frá nýjum loftárásum, fall-
hópur heldur öll þjóðin, og við
eigum okkur aðeins eitt takmark,
að Rússar hypji sig frá Afganist-
an,“ sagði hann. Rasool heldur því
fram, að 22.000 rússneskir her-
menn hafi fallið í Afganistan.
hlífarárásum og stórskotahríð í
stríðinu, sem hefur geisað í 54 daga.
Olíuríkið Qatar hét Kuwait einn-
ig stuðningi og búizt er við að önnur
arabaríki við flóann fari að dæmi
þess og Saudi-Arabíu.
Hingað til hefur stríðið ekki haft
veruleg áhrif á olíuflutninga til
Vesturlanda, þótt olíuútflutningur
íraka og Irana hafi minnkað um
fjórar milljónir tunna á dag, en ef
Kuwait og Saudi-Arabía dragast
inn í ófriðinn getur það valdið
neyðarástandi.
Fer Kuwait í stríðið?