Morgunblaðið - 15.11.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 2 7
... frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ...
Barnaskattar í borgarstjórn:
Kemur mjög illa
við mjög marga
- segir Birgir ísl. Gunnarsson
Á borgarstjórnaríundi sem
haldinn var fyrir nokkru lögóu
þeir Albert Guómundsson ok
Birjfir ísl. Gunnarsson. borjjar-
fulltrúar Sjálfsta'ðisflokksins.
fram tillöKU um að borjrin félli
frá innheimtu útsvara sem lö>?ð
hafa verið á börn innan lfi ára
aldurs.
Mistökin verði
leiðrétt
Birgir Isl. Gunnarsson talaði
fyrstur og hóf hann mál sitt með
því að lesa umrædda tillögu, en
hún er svohljóðandi:
— Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkir að falla frá innheimtu
útsvara sem lögð hafa verið á börn
innan 16 ára aldurs vegna tekju-
ársins 1979, og endurgreiða þau
útsvör sömu aðila, sem þegar
kunna að hafa verið greidd.
Birgir sagði í ræðu sinni að
þegar skattalögin voru samþykkt
á Alþingi árið 1978, hefði verið
gert ráð fyrir því að tekið yrði upp
staðgreiðslukerfi skatta samhliða
gildistöku laganna, en stað-
greiðslukerfi væri enn ekki komið
á.
Birgir sagði að það hefði komið
mörgum á óvart þegar skattseðlar
hefðu farið að berast til barna
undir 16 ára aldri. Taldi hann að
þetta kæmi mjög illa við mjög
marga. Kvaðst Birgir halda að
þegar hefðu skólabörn eytt þess-
um peningum í skólavörur og
annað sem skólagöngu þeirra væri
viðkomandi og væri varla mikið
eftir af þessum peningum nú.
Birgir sagði að fjármálaráðherra
hefði viðurkennt á þingi að álagn-
ing þessara skatta hefði verið
mistök nú. Því sagðist hann telja
rétt að fella niður innheimtu
útsvars í ár. Þetta væri ekki mikið
fjárhagsatriði fyrir borgina. Hér
væri um að ræða 17,6 milljónir
sem 349 einstaklingar þyrftu að
greiða. Hins vegar væri hér um
verulegt fjárhagsatriði að tefla
fyrir mörg heimili í borginni og
myndi þessi innheimta hitta þau
illa fyrir.
„Við tökum í tillögunni enga
afstöðu til skattlagningar á börn,
það er aðeins fundið að því
hvernig að þessu var staðið. Við
leggjum til að þessi mistök verði
leiðrétt."
Birgir sagði að samkvæmt um-
sögn borgarlögmanns um þetta
atriði væri Ijóst að skylt væri að
leggja á þessi útsvör. Hins vegar
segði einnig í umsögn hans að
samþykkt þessarar tillögu fæli í
sér ívilnandi stjórnvaldsákvörðun,
sem næði jafnt til allra, sem eins
stæði á um, og yrði tæpast túlkað
sem íþyngjandi ákvörðun í garð
annarra. Ennfremur segði borg-
arlögmaður að þannig væri næsta
ósennilegt að gildi slíkrar sam-
þykktar yrði véfengt.
Að lokum sagði Birgir að því
væri um að ræða pólitíska ákvörð-
un en ekki lagalega. Aðeins væri
spurning um pólitískan vilja.
Meirihlutinn féllst
ekki á tillöguna
Næst talaði Elín Pálmadóttir
(S) og sagðist hún styðja tillög-
una. Hér væri um afturvirka og
íþ.vngjandi skatta að ræða og væri
rétt að fella þá niður í ár.
Þá kom í ræðustól Kristján
Benediktsson (F). Hann sagði að
Matthías Á. Mathiesen væri guð-
faðir þessara laga. Þá sagðist
hann telja þessa leið hagstæðari
en gömlu aðferðina, þ.e. að leggja
tekjur barna við tekjur foreldra og
skattleggja síðan þá upphæð. Slíkt
ylli því oft að foreldrar lentu í
hærra skattþrepi en ella.
Þá gat Kristján þess að óheppi-
legt væri að hafa mismunandi
reglur um þetta hjá sveitarfélög-
um. Kvað hann æskilegt að sömu
reglur giltu um allt land. Kristján
sagði að hér væri að vísu um
aðeins 17,6 milljónir að ræða og
skiptu þessir peningar borgina
ekki miklu, en einhverja reglu yrði
að hafa. Kristján sagði að þetta
yrði að vera ákvörðun Alþingis,
hvort fallið yrði frá innheimtu
barnaskatta.
Þá sagði Kristján að meirihluti
borgarstjórnar gæti ekki fallist á
þessa tillögu og las hann síðan upp
frávísunartillögu frá meirihluta
borgarstjórnar. Frávísunartillag-
an er svohljóðandi:
— Með nýju skattalögunum frá
1978 varð m.a. sú breyting að hætt
var að bæta tekjum unglinga
innan 16 ára við tekjur foreldra,
og þau þess í stað gerð að
sérstökum skattþegnum. Var
þetta talin eðlileg breyting sam-
fara því, að hjónum var heimilað
að telja fram til skatts sitt í hvoru
lagi. Ekki var ágreiningur meðal
þingmanna um þessi atriði við
afgreiðslu umræddra skattalaga.
Telja verður eðlilegt, að um
þessi mál gildi sama regla alls
staðar á landinu og ekki skapist
misræmi milli einstakra sveitarfé-
laga, enda um löggjafaratriði að
ræða. Álagðir skattar á þá ungl-
inga í Reykjavík, sem voru innan
16 ára aldurs á tekjuárinu 1979,
nema rúmum 84 milljónum króna,
þar af eru útsvör 17,6 milljónir,
eða um 20 prósent.
Fyrir Alþingi því, sem nú situr,
liggur frumvarp þess efnis, að
opinber gjöld unglinga á árinu
1980 verði felld niður. Ekki liggur
fyrir hverja afgreiðslu það frum-
varp muni hljóta.
Með tilliti til þess, er að framan
greinir, telur borgarstjórn óeðli-
legt, að Reykjavíkurborg felli
niður þær 17,6 milljónir króna,
sem um er að ræða og er hluti
útsvara í heildarskattlagningunni,
enda á slík niðurfelling ekki stoð í
lögum.
Hins vegar er rétt að benda á að
borgaryfirvöld munu að sjálfsögðu
taka til afgreiðslu persónuleg er-
indi frá þeim sem hér um ræðir
um lækkun eða niðurfellingu út-
svara samkvæmt þeirri heimild
sem veitt er til slíks í 27. grein
laga um tekjustofna sveitarfélaga.
I samræmi við framangreindan
rökstuðning vísar borgarstjórn
tillögu Birgis ísl. Gunnarssonar
og Alberts Guðmundssonar frá.
Farið að ráðum
Kristjáns!
Næstur talaði Albert Guð-
mundsson. Hann sagði að Kristján
ætti að gera eins og ráðherra hefði
gert, að viðurkenna að þessi skatt-
lagning hefði verið mistök. Albert
sagði aö það væri rétt að borgar-
stjórn hefði ekki lagalega heimild
til að falla frá innheimtu útsvars
á börn, en samt væri það heimilt í
þessu tilviki. Albert sagðist halda
að Kristján væri að samþykkja
tillögu sem hann vildi raunveru-
lega ekki samþykkja og benti
hann á að Kristján hefði sagt að
menn ættu í staðinn að sækja um
niðurfellingu til borgarráðs. Benti
Albert fólki á að fara að ráðum
Kristjáns i þessu efni.
Sveitarfélög farin
að skera sig úr
Þá kom í pontu Björgvin Guð-
mundsson (Afl). Hann sagðist
telja að Birgir og Albert ættu að
vinna að þessu máli á Alþingi.
Hann sagði þetta alfarið mál
Alþingis. Sagði Björgvin að útsvar
væri einungis fellt niður þegar
sérstakar ástæður væru fyrir
hendi. Síðan lýsti hann sig á móti
tillögu þeirra Alberts og Birgis.
Næstur talaði Davíð Oddsson
(S). Hann lýsti yfir stuðningi
sínum við tillögu þeirra Alberts og
Birgis. Hann sagði að þegar væru
sveitarfélögin farin að skera sig úr
hvað innheimtu útsvara áhrærði,
nokkur hefðu þegar fallið frá
innheimtu. Hann benti þá Björg-
vini Guðmundssyni á afstöðu
nýkjörins formanns Alþýðuflokks-
ins í þessu máli, en hann væri ekki
hlynntur barnasköttunum.
Mál sveitarfélaganna
Þá talaði Birgir ísl. Gunnars-
son. Hann sagði rök Björgvins
ekki standast. Þegar væru sveit-
arfélög farin að fella niður barna-
útsvarið. Þetta væri mál sveitarfé-
laganna og ætti ekki að vísa þessu
til Alþingis. Þessu næst flutti
Birgir varatillögu frá þeim Albert
og er hún svohljóðandi:
— Borgarstjórn samþykkir að
skora á Alþingi að samþykkja það
frumvarp sem nú liggur fyrir
þinginu um niðurfellingu skatta,
sem lagðir hafa verið á börn yngri
en 16 ára á þessu ári.
Síðastur talaði Kristján Bene-
diktsson (F). Hann sagði það
rangtúlkun hjá Albert að hann
hefði beint þeim tilmælum til
barna að sækja um undanþágu frá
greiðslu útsvars. Kristján sagði að
þetta stæði í frávísunartillögunni
og væri hann ekki að skora á einn
eða neinn í þessu sambandi.
Fæðingarheimilið:
Nauðsynlegt að tryggja reykvísku
kvenfólki bestu aðstæður sem völ er á
Á SÍÐASTA borgarstjórnarfundi
urðu nokkrar umræður um fyrir-
hugaða solu Fa'ðingarheimilis
Reykjavíkurborgar. Eins og
greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu. kom í Ijós fyrr í haust að
borgaryfirvöld höfðu látið gera
samning við ríkið um sölu á
Fa>ðingarheimilinu og kom samn-
ingur þessi inn á fund borgrráðs
undirritaður af tveimur ráðherr-
um og vantaði aðeins á hann
undirritun borgarstjúra. Um
samningsgerð þessa var borgar-
ráðsmönnum ekki kunnugt.
A borgarstjórnarfundinum hóf
Elín Pálmadóttir (S) umræðuna.
Fæðingarheimilið á
mikil ítök í konum
Elín sagði, að samningurinn um
sölu Fæðingarheimilisins hefði
borist með óvenjulegum hætti inn
á fund borgarráðs. Hún sagði
þetta gífurlega mikilvægt mál
fyrir konur og fjölskyldur í borg-
inni, því á sínum tíma hefðu konur
þrýst á borgaryfirvöld um að
koma Fæðingarheimilinu á fót.
Síðan þá hefðu konur í borginni
getað valið á milli hvort þær vildu
frekar fæða á Fæðingarheimilinu
eða F'æðingardeildinni. Elín sagði
það ékki geta farið fram hjá
borgaryfirvöldum hve mikil ítök
Fæðingarheimilið ætti í konum í
borginni.
Elín kvað það nauðsynlegt að
fryggja reykvísku kvenfólki þær
bestu aðstæður sem völ væri á í
þessum efnum. I ræðu sinni benti
Elín á að það hefði komið fram í
blöðum að Landspítalinn hefði
látið pláss undir krabbameins-
lækningar, samtals um 160 fer-
metra, en það húsnæði hefði verið
ætlað undir Fæðingardeildina.
Hún sagði að ekki mætti gera
þetta á kostnað Fæðingarheimilis-
ins. Þtsagðist hún telja að þetta
hlyti að vera gert í trausti þess að
Fæðingardeildin fengi pláss í
Fæðingarheimilinu.
Þá vék Elín Pálmadóttir orðum
sínum að þeim fuliyrðingum ríkis-
ins, að engu ætti að breyta í
rekstri Fæðingarheimilisins þó að
ríkið yfirtæki reksturinn og spurði
hver tryði því að ríkið ætlaði sér
að losna við 500 milljónir til þess
að bre.vta engu. (Kaupverð Fæð-
ingarheimilisins mun vera um 500
milljónir, innsk. Mbl.).
Síðan sagði Elín: „Okkur liggur
meira á að koma upp B-álmu
Borgarspítalans en að losna við
Fæðingarheimilið. Ég sé ekki ann-
að en að ríkið geti eins lagt þetta
fé í B-álmuna.“
Sjöfn á móti sölunni
Þá talaði Kristján Benediktsson
(F). Hann sagðist ekki ætla að
ræða þetta mál efnislega en gat
þess að málið hefði verið lengi til
umfjöllunar í borgarkerfinu.
Þá kom upp Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir (Afl). Hún sagðist harma
þau vinnubrögð sem átt hefðu sér
stað í sambandi við gerð kaup-
samningsins á sínum tíma. Þá
lýsti hún andstöðu sinni við fyrir-
hugaða sölu Fæðingarheimilisins.
Sgaðist hún þeirrar skoðunar að
Reykjavíkurborg ætti að reka það
áfram.
Síðan talaði Adda Bára Sigfús-
dóttir (Abl). Hún sagðist vita það
að það væri eindregin ósk margra
kvenna í borginni að reka ætti
Fæðingarheimilið áfram í borg-
inni. Hins vegar sagðist hún
ágirnast þessar 500 milljónir, sem
koma ættu fyrir Fæðingarheimil-
ið, sem hlut borgarinnar í B-álmu
Borgarspítalans. Þá gat hún þess
að þó að Fæðingarheimilið yrði
selt þá gætu konur eftir sem áður
valið á milli stofnana til að fæða
á, Fæðingarheimilið yrði rekið á
sama hátt og áður.
Borgin á að halda
rekstrinum áfram
Na>stur talaði Albert Guð-
mundsson (S). Albert sagði að
auðvitað ætti að reka Fæðingar-
heimilið ef það væri réttlætanlegt.
Albert sagði það ekki þýða fyrir
Öddu Báru að reyna að segja fólki
það að Fæðingarheimili Reykja-
vikurborgar yrði rekið á sama
hátt og áður, þegar ríkið væri búið
að yfirtaka reksturinn. Þá ítrekaði
Albert þá skoðun sína pð borgin
ætti að halda áfram rekstri Fæð-
ingarheimilisins og hafa það
áfram persónulegra og mannlegra
en Fæðingardeildina eins og það
hefði hingað til verið.
Að máli Alberts loknu ko)n Elín
Pálmadóttir í ræðustól. Hún sagö-
ist ekki telja það tryggt að Fæð-
ingarheimilið m.vndi rekið eins og
áður, yrði það selt ríkinu. Enda
sgði Elín yfirmenn Fæðingar-
deildarinnar hafa aðrar skoðanir
á því hvernig reka ætti þessa
stofnun, heldur en yfirmenn Fæð-
ingarheimilisins.
I þessari umræðu töluðu fleiri,
en ekki þykir ástæöa til að rekja
þessar umræður nánar, enda var
málið ekki til afgreiðslu á þessum
fundi. Væntanlega verður frekar
sagt frá máli þessu þegar það
kemur til afgreiðslu borgarstjórn-
ar, en það verður á næstunni.