Morgunblaðið - 15.11.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
45
Nú eru um það bil 14 mánuðir síðan hafist var handa um hyggingu Sjálfsbjargarsundlaugarinnar. bá hafði
grunnurinn staðið ber i um 13 ár og var svo illa sprunginn að höggva varð upp allan botninn. Það tafði
verkið nokkuð. María Skagan segir um gang verksins í grein sinni: ..Okkur voru réttar svo margar
hjálpandi hendur að nú er verið að flísaleggja laugina og standa vonir til að hún verði tekin í notkun á
allra fyrstu mánuðum næsta árs.“
hlaupa undir bagga og fleyta
þessu augljósa og óumdeilanlega
líknar- og velferðarmáli í örugga
höfn, en að ausa með brauki og
bramli milljarða ábyrgðum og fé í
harla dularfulla og botnlausa hít
Norður-Atlantshafsflugs Flug-
leiða hf., svo ólíku og misdýru,
sem annars er saman að jafna.
Gæfi þjóðin öllu fegurri og kær-
komnari jólagjöf?"
Ættu að kynna sér
máliö niður í kjolinn
Undir þessi ágætu lokaorð Bald-
vins vil ég eindregið taka. En mig
langar að lokum að beina þeim
tilmælum til hans og þeirra, sem
væna kunna forystufólk okkar um
seinagang í þessum málum að
koma hingað niður eftir og kynna
sér málið niður í kjölinn. Þá mun
margt skýrast til hlítar og for-
svarsmenn okkar hljóta verð-
skuldaða sæmd af verkum sínum.
Enda svo þennan pistil með
kærum kveðjum til Baldvins og
vísukorni um laugina.
Allra meina einhver bót,
ætla ég þú verðir.
Æfir hönd og eflir fót
og allan skrokkinn herðir."
Þessir hringdu . . .
Skólarnir geri
hreint fyrir
sínum dyrum
G.A. hringdi til Velvakanda
og kvaðst vera 5 (skóla)barna
faðir. — Mig langar til að fara
fram á það við þig, Velvakandi
góður, að þú spyrjist fyrir um
ákveðið atriði fyrir mig. Það er
varðandi svokallað pappírs-
gjald, sem skólarnir hér inn-
heimta hjá nemendum, 4500
krónur tvisvar á ári. Þetta eru
engar smáræðisfjárhæðir í þess-
um stóru skólum, sem hafa
innan sinna veggja jafnvel á
annað þúsund nemendur. Kvitt-
unin sem börnin fá er ljósrit af
vélrituðu blaði, engin númer eða
neitt slíkt. Mig langar að vita
hvers vegna ekki eru notuð
löggilt kvittanaeyðublöð. Mér
finnst það skortur á reglusemi
sem krafist er af almenningi.
Allt var hljótt
þá ljúfu stund
Af sérstökum ástæðum bið
ég þig, Velvakandi minn, að
birta litla vísu sem ég gerði
þegar ég var ung. Vísan er
svona:
Húmið vafði okkur örmum,
allt var hljótt þá Ijúfu stund,
beggja hjörtu bærðust saman,
bænir stigu af heitum vörum.
Minning frá Hvítárbakka-
skóla veturinn 1907—1908.
María Salómonsdóttir.
Vilmundur Gylfason.
Mér er kunnugt um að ríkið
greiðir ákveðna upphæð á hvern
nemanda vegna námsgagna.
Nægir sú upphæð ekki fyrir
pappír einnig? Er þetta gjald
innheimt í skólum utan Reykja-
víkursvæðisins? Ég er að sjálf-
sögðu ekki á móti því að börnin
fái að föndra og teikna í skólan-
um, en ég krefst þess að skólarn-
ir sinni sínum pappírsskyldum
eins og aðrir og geri hreint fyrir
sínum dyrum með því að upp-
lýsa í hvað allir þessir peningar
fara.
Endurflytjið
páskaerindi
Vilmundar
H.J. hringdi og bað Velvak-
anda að koma á framfæri áskor-
un um að endurflutt yrði í
hljóðvarpinu ópólitískt erindi
Vilmundar Gylfasonar um frels-
isbaráttu Islendinga, flutt á
páskadag 1980. — Ég er viss um
að fleiri en ég hafa áhuga á að
heyra þetta erindi, sem var að
sögn mjög fróðlegt og vel flutt.
Ég var á fjöllum um páskaleytið
og missti því af flutningnum.
Sjái útvarpið sér ekki fært að
endurflytja þennan dagskrárlið,
skora ég á Morgunblaðið að fá
erindið til birtingar.
Bið Kjartan
afsökunar
Jóhanna Guðjónsdóttir
hringdi og bað Velvakanda að
liðsinna sér við að komast í
samband við öryrkja sem
hringdi í Kjartan Jóhannsson í
þættinum „Bein lína“ á miðviku-
dagskvöld. — Þar sem ég hef
áhuga á að ræða við þennan
mann um málefni öryrkja bið ég
hann að hringja í síma 74235.
Það var auðvitað ekki rétt af
mér að hringja í beinu línuna til
að fá upplýsingar um hvar
manninn væri að finna og bið ég
Kjartan afsökunar á því.
fyrir 50 árum
„ÍSLENSKT lán boðið út i
London. Þegar eftir komu
„Dronning Alexanderinc“ í
gær barst sú fregn út um
allan ba> og höfð eftir farþeg-
um og skipverjum. eftir
fréttaskeytum, að í gær hafi
átt að bjóða út i London
islenskt rikislán að uppha-ð
500 þús. sterlingspund (rúm-
ar 11 milljónir kr.) með 5‘A
prósent ársvöxtum.
Er leitað var staðfestingar
á fregn þessari hjá Einari
Árnasyni fjármálaráðherra
svaraði hann á þá leið:
„Fregn þessi er algerlega
röng, eða á misskilningi
byggð. Ekkert ísl. rikislán
hefur verið boðið út i Lon-
don.“
Næsta dag á eftir er birt í
hlaðinu tilkynning frá fjár-
málaráðherra þess efnis að
lánssamningur hafi verið
gerður við Hambrosbank
London. Lánsupphæðin
500.000 sterlingspund, til 40
ára og afborgunarlaus fyrstu
5 árin. Lánið má greiðast að
fullu eftir 10 ár og með
nafnverði. Vextir 5'A prócent.
Umboðsmaður stjórnarinnar,
Magnús Sigurðsson banka-
stjóri, undirritaði lánssamn-
inginn...“
Nýja línan
frá HAFA
Opnum í dag nýjan og stór-
glæsilegan sýningarsal.
Opiö frá 1—6.
Nýtísku HAFA baöinnréttingar í baöherbergiö
yöar.
Mjög fjölbreytt úrval. Afgreiöum samdægurs.
VALD. POULSEN'
Suöurlandsbraut 10. Sími 86499.
Innréttingadeild 2. hæð.
Listasafn
Einars Jónssonar
hefur ákveöiö að gera afsteypur af höggmynd Einars
Jónssonar „Öreigar“, sem hann geröi á árinu 1904.
Myndin verður til sölu í Listasafni Einars Jónssonar
frá og meö þriðjudeginum 18. nóv. til og meö
föstudeginum 21. nóv. kl. 16—19.
Þar sem fjöldi afsteypanna er mjög takmarkaöur
hefur stjórn safnsins ákveöið að hver kaupandi eigi
þess kost aö kaupa eina mynd.
Listasafn Einars Jónssonar